Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rannsaka hvort tölvupóstar séu hluti af upplýsingahernaði Rússa Bandaríska alríkislögreglan FBI er sögð rannsaka hvort að tölvupóstar sem persónulegur lögmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta lét götublaði í té séu hluti af upplýsingahernaði Rússa í aðdraganda kosninga í næsta mánuði. 16.10.2020 23:31
Saka mexíkóska ráðherrann um mútuþægni og stórfellt fíkniefnasmygl Bandarískir saksóknarar saka fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó um að hafa aðstoðað við smygl á þúsundum kílóa af fíkniefnum til Bandaríkjanna gegn mútum. 16.10.2020 23:19
Rannsaka hrottalegt morð á kennara sem hryðjuverk Franska lögreglan rannsakar nú hrottalegt morð á kennara sem sýndi skopmyndir af Múhammeð spámanni í kennslustund sem hryðjuverk. Kennarinn var hálshöggvinn og skutu lögreglumenn árásarmanninn til bana. 16.10.2020 20:20
Trump duglegri við að segja ósatt, eins og áður Þeir Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Joe Biden, forsetaframbjóðandi, mættust ekki í kappræðum í gær eins og til stóð. Þrátt fyrir það voru þeir þó báðir að svara spurningum í sjónvarpi á sama tíma en á mismunandi sjónvarpsstöðvum. 16.10.2020 16:01
Johnson segir litlar líkur á samningi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir að Bretar eigi að undirbúa sig fyrir að vera án fríverslunarsamnings við Evrópusambandið þann 1. janúar. 16.10.2020 15:32
Forsætisráðherra Taílands ætlar ekki að segja af sér Prayuth Chan-ocha, forsætisráðherra Taílands, hefur hafnað því að segja af sér vegna mótmæla sem eiga sér stað í Bangkok, höfuðborg landsins. Lögreglan hefur brugðist hart við mótmælunum og beitt kylfum og háþrýstidælum gegn mótmælendum. 16.10.2020 14:22
Kona í Svíþjóð greindist með Covid-19 í annað sinn Læknar við Sahgrenska sjúkrahúsið hafa staðfest að 53 ára kona í Svíþjóð hafi greinst með Covid-19 í annað sinn. Segja þeir að einungis um tímaspursmál hafi verið að ræða. 16.10.2020 14:17
Nýsjálendingar kjósa sér nýtt þing á morgun Þingkosningar fara fram á Nýja-Sjálandi á morgun þar sem reiknað er með harðri baráttu milli Verkamannaflokks Jacindu Ardern forsætisráðherra og Íhaldsmannanna í Þjóðarflokknum. 16.10.2020 12:43
Auknar sigurlíkur Biden leiða til aukinnar skotvopnasölu Hlutabréf skotvopnaframleiðenda í Bandaríkjunum hafa hækkað síðustu vikur, að því er virðist í takti við auknar vinsældir Joes Biden. 16.10.2020 12:42
Barir í Berlín fá að hafa opið áfram eftir dómsúrskurð Dómstóll í Berlín höfuðborg Þýskalands úrskurðaði í morgun að lokanir á börum og veitingastöðum í borginni sem settar voru á í síðustu viku skuli falla úr gildi. 16.10.2020 11:57
Ætla að veita geislavirku vatni út í Kyrrahafið Yfirvöld í Japan ætla að veita rúmlega milljón tonnum af geislavirku vatni úr Fukushima kjarnorkuverinu út í sjó. Nærri því áratugur er liðinn frá því að kjarnorkuverið skemmdist í kjölfar jarðskjálfta og flóðbylgju árið 2011. 16.10.2020 10:44
Fá að halda framkvæmdum áfram við að reisa The Whale í Andenes Heimild hefur fengist til að halda áfram framkvæmdum við Hvalinn („The Whale“), mikillar byggingar á Andenes í Norður-Noregi, sem ætlað er að hýsa stórbrotna hvalasýningu og safn um dýrin. 16.10.2020 10:26
Vöruðu Hvíta húsið við því að Rússar væru að nota Giuliani Leyniþjónustur Bandaríkjanna vöruðu Hvíta húsið við því í fyrra að ráðamenn í Rússlandi væru að nota Rudy Giuliani, einkalögmann Donald Trump, forseta, til að miðla fölskum upplýsingum og áróðri til forsetans. 16.10.2020 09:24
Fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó handtekinn í Bandaríkjunum Bandaríska fíkniefnalögreglan (DEA) handtók Salvador Cienfuegos á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles í gær. 16.10.2020 07:55
Hættan á að smitast af veirunni í flugvél virðist hverfandi Hættan á því að smitast af kórónuveirunni í flugvél virðist hverfandi, eftir því sem niðurstöður nýrrar rannsóknar gefa til kynna, sem bandaríska varnarmálaráðuneytið lét gera. 16.10.2020 07:39
Gjörólíkir og óvenjulegir kosningafundir hvor á sinni sjónvarpsstöðinni Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, sátu báðir fyrir svörum í beinni útsendingu á sitthvorri bandarísku sjónvarpsstöðinni í gær. 16.10.2020 07:25
Smituðum fjölgaði um milljón í Bandaríkjunum á einum mánuði Tilfelli kórónuveirunnar í Bandaríkjunum eru nú orðin fleiri en átta milljónir frá upphafi faraldursins. Ein milljón Bandaríkjamanna smitaðist síðasta mánuðinn, nú þegar veður fer að kólna. 16.10.2020 06:57
Youtube tekur þátt í herferð gegn samsæriskenningum Bannað verður að bendla einstaklinga eða hópa við samsæriskenningar eins og Qanon sem hafa orðið kveikjan að ofbeldisverkum á samfélagsmiðlinum Youtube. 15.10.2020 23:40
Staðan í Evrópu geti versnað hratt Dagleg dauðsföll af völdum Covid-19 í Evrópu eru um fimm sinnum færri en þau voru í fyrstu bylgju faraldursins í mars og apríl. Yfirmaður WHO í Evrópu segir þrátt fyrir það að ekki sé tilefni til bjartsýni. 15.10.2020 23:17
Harris hættir við kosningafundi vegna kórónuveirusmits Kamala Harris, varaforsetaefni Demókrataflokksins, aflýsti kosningaviðburðum fram yfir helgi í varúðarskyni eftir að einn nánasti ráðgjafi hennar greindist smitaður af kórónuveirunni. Sjálf greindist Harris ekki smituð í gær en hún fer í aðra sýnatöku í dag. 15.10.2020 20:12
Twitter lokaði á reikning Trump-framboðsins tímabundið Aðgangi framboðs Donalds Trump Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlinum Twitter var lokað tímabundið eftir að það deildi myndbandi um Joe Biden, mótframbjóðanda forsetans, sem stjórnendur Twitter töldu brjóta notendaskilmála miðilsins. 15.10.2020 18:07
Lyfið sem Trump segir hafa læknað sig af Covid Tilraunalyfið REGN-COV2, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti var meðhöndlaður með eftir að hann greindist með kórónveiruna, er enn á tilraunastigi og hvorki hefur verið sýnt fram á að það geri tilætlað gagn né sé öruggt. 15.10.2020 16:52
ESB beitir bandamenn Pútín þvingunum Evrópusambandið hefur ákveðið að beita sex meðlimir ríkisstjórnar Vladímírs Pútín, forseta Rússlands, viðskiptaþvingunum vegna eitrunar rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní. 15.10.2020 14:28
Segjast hafa fundið lekann á geimstöðinni Geimfarar um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni virðast nú hafa fundið leka á geimstöðinni sem erfiðlega hefur gengið að finna. Leitin hefur staðið yfir í nokkrar vikur en geimfararnir sem flugu til geimstöðvarinnar í gær voru með sérstakan búnað sem á að hjálpa þeim að finna lekann. 15.10.2020 12:35
Mismuna Rómafólki í skjóli faraldursins Heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar hefur verið notraður til að áreita Rómafólk víða í Mið- og Austur-Evrópu. Mannréttindasamtök og sérfræðingar óttast að með aukinni dreifingu veirunnar muni mismununin og áreitið aukast einnig. 15.10.2020 11:13
Óttast að Evrópuþjóðir séu ekki búnar undir þriðju bylgju faraldursins Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins varar nú við því að ríkisstjórnir aðildarríkja sambandsins séu óviðbúnar uppsveiflu kórónuveirufaraldursins sem nú virðist skollin á í álfunni. 15.10.2020 10:58
Herða aðgerðir í London og víðar Gripið verður til umfangsmikilla ferðatakmarkana og hertra sóttvarna í London á laugardagsmorgun. Fólki verður bannað að hitta aðra en fjölskyldumeðlimi sína innandyra, hvort sem það sé á heimilum eða krám. 15.10.2020 09:24
Forseti Kirgistans segir af sér Sooronbai Jeenbekov, forseti Kirgistans, hefur sagt af sér embætti eftir mikla mótmælaöldu sem gengið hefur yfir landið síðustu dagana. 15.10.2020 08:52
Biden og Trump keppa um áhorf Þeir Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, mótframbjóðandi hans, munu keppa um áhorfendur í nótt, í stað þess að mætast í kappræðum eins og upprunalega stóð til. Báðir munu þeir svara spurningum kjósenda á sitthvorri sjónvarpsstöðinni og á sama tíma. 15.10.2020 08:47
Varar við því að ungt heilbrigt fólk fái líklega ekki bóluefni fyrr en 2022 Yfirmaður vísindastarfs hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, Soumya Swaminathan, segir að svo gæti farið að ungt heilbrigt fólk fái ekki bóluefni gegn COVID-19 fyrr en á þarnæsta ári, eða 2022. 15.10.2020 08:27
Bjóða umbun í þeirri von að leysa morð á þýskum bakpokaferðalangi Þýski leikskólakennarinn Simone Strobel var myrt í Ástralíu árið 2005 og enn hefur enginn verið ákærður í málinu. Áströlsk yfirvöld hafa nú boðið eina milljón Ástralíudala til þess sem kemur fram með upplýsingar sem leiðir til þess að málið leysist. 15.10.2020 08:14
Smitum fjölgar ört í Þýskalandi Staðfest tilfelli kórónuveirunnar í Þýskalandi í gær voru 6.638 og hafa þau aldrei verið fleiri, en fyrra met var sett þann 28. mars síðastliðinn. 15.10.2020 07:54
Tuttugu manns handteknir í mótmælunum í Bangkok Lögreglan í Tælandi handtók um tuttugu manns sem tóku þátt í fjölmennum mótmælaaðgerðum í Bangkok, höfuðborg landsins, í gærkvöldi. 15.10.2020 07:04
Lýsir yfir neyðarástandi vegna mótmæla í Bangkok Forsætisráðherra Taílands lýsti yfir neyðarástandi vegna mótmæla sem geisa nú í höfuðborginni Bangkok. Mótmælendur hafa krafist afsagnar forsætisráðherrans og að dregið verði úr völdum Maha Vajiralongkorn konungs. 14.10.2020 23:25
Facebook og Twitter skipta sér af vafasamri frétt um Biden Samfélagsmiðlarisarnir Facebook og Twitter takmörkuðu deilingar á vafasamri frétt bandarísks götublaðs um Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, í dag. Talsmaður Facebook segir miðilinn hægja á dreifingu fréttarinnar á meðan staðreyndavaktarar meti sannleiksgildi hennar. 14.10.2020 21:14
Barron Trump greindist einnig með veiruna Barron Trump, sonur forsetahjónanna Donald og Melaniu Trump, greindist einnig með kórónuveiruna. 14.10.2020 20:43
Koma á útgöngubanni í Frakklandi Útgöngubann til að hefta hraða útbreiðslu kórónuveirunnar tekur gildi í París og átta öðrum borgum í Frakklandi á laugardag. Emmanuel Macron, forseti, segir bannið verða í gildi í að minnsta kosti fjórar vikur. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir vegna uppgangs veirunnar. 14.10.2020 19:28
Borgarstjóri segir af sér í skugga óviðeigandi sambands og morðhótana Ethan Berkowitz, borgarstjóri Anchorage í Alaska í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér vegna undarlegrar flækju sem hefur undið upp á sig. 14.10.2020 14:31
Grískir nýnasistar dæmdir í fangelsi Nikos Michaloliakos, leiðtogi og stofnandi Gullinnar dögunar, grísks öfgaflokks sem var nýverið skilgreindur sem glæpasamtök, hefur verið dæmdur til þrettán ára fangelsisvistar. Auk hans voru aðrir leiðtogar Gullinnar dögunar einnig dæmdir í fangelsi. 14.10.2020 12:51
Ætla sér að leysa ráðgátuna um „ólæsilega hraðskrift“ Astridar Lindgren Hópur bókmenntafræðinga, tölvunarfræðinga og hraðritara í Svíþjóð hefur nú verið falið að ráða í og lesa úr frumhandritum barnabókahöfundarins Astridar Lindgren. Hún notaðist við sérstaka hraðskrift sem enginn annar gat lesið. Hún kallaði táknin „krumelunser“. 14.10.2020 12:40
Kóralrifið mikla hefur minnkað um helming frá 1995 Kóralrifið mikla hefur tapað um helmingi alls kórals síns frá árinu 1995. Skaðann má að mestu rekja til hækkandi hitastigs sjávar og veðurfarsbreytinga af mannavöldum. 14.10.2020 12:00
Ósáttir við væntanlegar þvinganir vegna eitrunar Navalní Verði Rússar beittir viðskiptaþvingunum vegna eitrunar stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalní, munu þeir svara fyrir sig. 14.10.2020 10:49
Þrír geimfarar sendir til geimstöðvarinnar á mettíma Þremur geimförum var í morgun skotið á loft og sendir af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Soyuz-geimfarið sem flutti þá er nú tengt geimstöðinni, einungis þremur klukkustundum eftir geimskotið sjálft. 14.10.2020 09:30
Trump ósáttur vegna skorts á ákærum gegn pólitískum andstæðingum hans John Bash, saksóknarinn sem William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, skipaði til að rannsaka hvort að embættismenn í forsetatíð Barack Obama hefðu brotið af sér í starfi varðandi mál Michael Flynn, hefur lokið rannsókn sinni. 14.10.2020 08:55
Tugir söfnuðust saman í Liverpool eftir að barir lokuðu: „Hjarðónæmi, hér komum við“ Tugir söfnuðust saman á torgi í miðborg Liverpool í gærkvöldi nokkrum klukkustundum áður en hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar tóku gildi. 14.10.2020 07:07