Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hætta fjármögnun kolaorkuvera erlendis Xi Jinping, forseti Kína, tilkynnti í ræðu sinni á allsherjaþingi Sameinuðu þjóðanna í dag að Kínverjar væru hættir að fjármagna byggingu nýrra kolaorkuvera á erlendri grund. 21.9.2021 23:27
Pútín með nægan stuðning í Dúmunni til að breyta stjórnarskrá Sameinað Rússland, flokkur Pútíns Rússlandsforseta, hlaut 324 af 450 þingsætum í Dúmunni í nýafstöðnum kosningum þar í landi. Þetta var staðfest af kjörstjórn í dag og er 19 sætum minna en flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Engu að síður tryggja þessi úrslit Pútín sterka stöðu. 21.9.2021 19:09
Náðu sátt í máli gegn konu erindreka sem varð unglingi að bana Fjölskylda Harry Dunn sem lét lífið þegar eiginkona bandarísks erindreka ók hann niður árið 2019 hefur náð sátt í einkamáli sínu gegn konunni vestanhafs. Málið gæti enn endað á borði dómstóla sem sakamál. 21.9.2021 15:35
Biden lagði áherslu á samvinnu í skugga deilna við bandamenn Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði þjóðir heims þurfa að vinna saman sem aldrei fyrr í fyrsta ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Kastast hefur í kekki á milli Bandaríkjastjórnar og hefðbundinna bandalagsríkja vegna brotthvarfsins frá Afganistan og umdeilds kafbátasamnings við Ástrali. 21.9.2021 14:52
Bullsjóðandi sundlaugar og húsþök sem gægjast út úr hrauninu Um sex þúsund íbúar af þeim áttatíu þúsund sem búa á eyjunni La Palma þar sem eldgos hófst á sunnudaginn hafa þurft að flýja heimili sín vegna gossins. Myndir og myndbönd sýna hvernig þykkur hraunstraumurinn hefur mulið allt það sem fyrir verður undir sig. 21.9.2021 14:30
Þrjú fórnarlambanna í Perm voru innan við tvítugt Íbúar í borginni Perm í Rússlandi eru í áfalli eftir að nemandi við ríkisháskólann þar skaut sex manns til bana í gær. Þrjú þeirra látnu voru innan við tvítug að aldri. 21.9.2021 14:22
Skotinn til bana eftir að hafa krafið viðskiptavin um að bera grímu Tvítugur starfsmaður bensínstöðvar í þýska bænum Idar-Oberstein var skotinn til bana eftir að hafa krafið viðskiptavin bensínstöðvarinnar um að bera grímu þar inni síðasta laugardagskvöld. Morðinginn hefur verið handtekinn og segist við lögreglu hafa verið ringlaður af álagi vegna takmarkana sökum heimsfaraldursins. 21.9.2021 13:44
Kóalabjörnum snarfækkar vegna þurrka, elda og ágangs manna Um það bil þriðjungsfækkun hefur orðið í kóalabjarnastofninum í Ástralíu undanfarin þrjú ár. Þurrkar, gróðureldar og ágangur manna hefur gengið nærri björnunum sem eru eitt þekktasta tákn landsins. 21.9.2021 11:39
Þriðji maðurinn ákærður vegna tilræðisins gegn Skrípal Bresk yfirvöld hafa gef út ákæru á hendur rússneskum karlmanni í tengslum við taugaeiturstilræðið gegn rússneska fyrrverandi njósnaranum Sergei Skrípal árið 2018. Maðurinn er talinn hafa stýrt aðgerðinni og að hann tilheyri rússnesku herleyniþjónustunni. 21.9.2021 10:52
Húsleit á heimili kærasta ungu konunnar sem hvarf Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili unnusta Gabrielle Petito sem hvarf þegar þau voru saman á ferðalagi um Bandaríkin í sumar. Til stendur að kryfja lík sem talið er vera af Petito í dag. 21.9.2021 09:54
Rússnesk stjórnvöld talin hafa myrt Litvinenko Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í morgun að rússnesk stjórnvöld hefðu staðið að morðinu á Alexander Litvinenko, rússneskum fyrrverandi leyniþjónustumanni, árið 2006. Eitrað var fyrir Litvinenko með geislavirku efni. 21.9.2021 08:59
Mistök í breska varnarmálaráðuneytinu setja afganska túlka í hættu Breska varnarmálaráðuneytið hefur beðist afsökunar á mistökum sem urðu til þess að tölvupóstföng fleiri en 250 afganskra túlka voru gerð opinber og líf þeirra þannig sett í hættu. 21.9.2021 08:40
Maðurinn sem tók upp árásina á Rodney King er látinn George Holliday, pípulagningamaðurinn frá Los Angeles sem tók upp á myndband árás fjögurra bandarískra lögreglumanna á Rodney King árið 1991, er látinn. 21.9.2021 07:41
Trudeau fagnar sigri og heldur forsætisráðherrastólnum Kosningum er lokið í Kanada og virðist sem Justin Trudeau hafi tryggt sér áframhaldandi veru á forsætisráðherrastóli, þriðja kjörtímabilið í röð. 21.9.2021 07:08
Covid fer fram úr spænsku veikinni í Bandaríkjunum Minnst 675 þúsund Bandaríkjamenn hafa dáið vegna Covid-19 frá því faraldur kórónuveirunnar hófst. Það er sambærilegur fjöldi og talið er hafi dáið vegna spænsku veikinnar á árunum 1918 og 1919. 21.9.2021 06:30
Fyrsti læknirinn ákærður vegna þungunarrofs í Texas Búið er að kæra fyrsta lækninn fyrir að framkvæma þungunarrof í Texas eftir að ný og ströng lög tóku gildi. Alan Braid, læknirinn sem um ræðir, sagði opinberlega frá því í síðustu viku að hann hefði framkvæmt aðgerð sem væri gegn lögunum. 20.9.2021 22:45
Bóluefni Pfizer virki fyrir fimm til ellefu ára börn Lyfjaframleiðandinn Pfizer tilkynnti í dag að rannsóknir fyrirtækisins hafi sýnt fram á að bóluefni þess veiti börnum á aldrinum fimm til ellefu ára vörn gegn kórónuveirunni. 20.9.2021 21:35
Nýtt gosop opnaðist nærri þorpi Nýtt gosop hefur opnast í eldfjallinu Rajada nálægt Cabeza de Vaca í Cumbre Vieja þjóðgarðinum á suðurhluta La Palma í Kanaríeyjum. Nýja opið opnaðist nærri bænum Tacande í El Paso og hefur það leitt til frekari rýmingar. 20.9.2021 21:23
Vísa hundruðum Haítíbúa úr landi þrátt fyrir ófremdarástand Bandaríkjastjórn flaug á fjórða hundrað Haítíbúum úr landi í gær og kom í veg fyrir að fjöldi annarra kæmist yfir landamærin frá Mexíkó. TIl stendur að senda enn fleiri Haítíbúa til síns heima þrátt fyrir hamfarir og pólitískan óstöðugleika þar. 20.9.2021 15:54
Bandaríkin slaka á ferðabanni til landsins Yfirvöld í Bandaríkjunum munu frá og með nóvember næstkomandi slaka á ferðabanni til landsins sem verið hefur í gildi frá því í mars á síðasta ári. Fullbólusettir íslenskir ferðamenn munu því að öllum líkindum geta ferðast til Bandaríkjanna á ný eftir langt hlé. 20.9.2021 14:55
Látin eftir stunguárás á vinnumálaskrifstofu í Bergen Kona á sextugsaldri er látin eftir hníftunguárás manns sem réðst inn á vinnumálaskrifstofu í Bergen í Noregi í morgun. 20.9.2021 13:43
Sex nú sagðir látnir í skotárásinni í Rússlandi Háskólanemi sem hóf skothríð á skólafélaga sína í borginni Perm í Rússlandi í morgun drap að minnsta kosti sex manns og særði fjöldi annarra. Hann særðist sjálfur þegar hann streittist gegn handtöku og liggur á sjúkrahúsi. 20.9.2021 13:02
Hótelstjórinn í Rúanda sakfelldur fyrir hryðjuverk Dómstóll í Rúanda sakfelldi Paul Rusesabagina fyrir hryðjuverk í dag. Rusesabagina var hylltur sem hetja þegar hann bjargaði á annað þúsund manns frá þjóðarmorði í landinu árið 1994. Hann heldur fram sakleysi sínu og telur sakirnar eiga sér pólitískar rætur. 20.9.2021 12:21
„Fólk er að horfa á húsin sín hverfa ofan í jörðina“ Hjónin Hafsteinn Helgi Halldórsson og Guðrún Agla Egilsdóttir bjuggu á La Palma í tvö ár en eru nýflutt heim til Íslands. Þau segja eldgosið sem nú gengur yfir eyjuna enn eitt áfallið fyrir íbúana sem hafa nýlega glímt við bæði skógarelda og hitabeltisstorm. 20.9.2021 11:54
Bóluefni Pfizer sagt verja fimm til ellefu ára börn Lyfjarisinn Pfizer segir að bóluefni sitt gegn kórónuveirunni verndi börn á aldrinum fimm til ellefu ára. Fyrirtækið ætlar sér að sækja um leyfi til að gefa börnum bóluefnið í Bandaríkjunum á næstunni. 20.9.2021 11:34
Telja sig hafa fundið lík ungrar konu sem hvarf á ferðalagi með kærastanum Bandaríska alríkislögreglan staðfesti í gær að lík Gabrielle Petito, sem var saknað eftir að hún fór í ferðalag með kærastanum þvert yfir Bandaríkin, hefði að líkindum fundist í Wyoming. Kærasta hennar er nú einnig saknað og fór umfangsmikil leit fram á náttúruverndarsvæði á Flórída um helgina. 20.9.2021 10:21
Hraunstraumurinn gleypir fjölmörg hús á La Palma Yfirvöld á Kanaríeyjum segja að um fimm þúsund manns, þar af fimm hundruð ferðamenn, þurft að flýja heimili sín og dvalarstaði vegna eldgossins á La Palma. Talið er að um eitt hundrað hús hafi þegar eyðilagst í eldgosinu. 20.9.2021 10:19
Býflugur drápu 63 mörgæsir Krufning á 63 mörgæsum sem fundust dauðar í Simon's Town, nærri Höfðaborg í Suður-Afríku, hefur leitt í ljós að þær létust af völdum býflugnastunga. Sérfræðingar segja um ólíkindaviðburð að ræða. 20.9.2021 10:10
Átta féllu í skotárás í rússneskum háskóla Byssumaður skaut átta til bana og særði marga til viðbótar í háskóla í rússnesku borginni Perm í morgun. Að sögn innanríkisráðuneytis landsins er árásarmaðurinn í haldi en talsmaður skólans segir að hann hafi verið felldur. 20.9.2021 08:56
Pútín vinnur öruggan sigur en mikið rætt um kosningasvindl Flokkur Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, Sameinað Rússland, virðist öruggur með þægilega sigur í þingkosningunum sem fram fóru um helgina þar í landi. 20.9.2021 06:52
Þingsætum flokks Pútíns fækkar miðað við fyrstu tölur Þegar tíu prósent atkvæða í rússnesku þingkosningunum hafa verið talin er Sameinað Rússland, flokkur Vladimírs Pútín, með 38 prósent atkvæða. Í síðustu kosningum hlaut flokkurinn 54 prósent atkvæða. 19.9.2021 21:35
Eldgos hafið á La Palma Eldgos er hafið á La Palma á Kanaríeyjum. Reykjarsúlur stigu upp til himins klukkan korter yfir þrjú á staðartíma í fjallinu Rajada, nálægt Cabeza de Vaca í Cumbre Vieja þjóðgarðinum á suðurhluta eyjunnar. 19.9.2021 14:40
Sakar Ástrala og Bandaríkjamenn um tvífeldni og lygar Franski utanríkisráðherrann hefur lýst yfir neyðarástandi í samskiptum Frakklands við Ástralíu og Bandaríkin vegna ákvörðunar Ástrala um að rifta skyndilega samkomulagi um kaup á frönskum kafbátum. Frakkar kölluðu sendiherra sína í ríkjunum heim á föstudag. 19.9.2021 14:04
Danski þjóðarflokkurinn: Pia Kjærsgaard útilokar ekki endurkomu í formannsstólinn Pia Kjærsgaard, fyrrverandi formaður Danska þjóðarflokksins, útilokar ekki að hún muni aftur gera tilkall til forystu flokksins, batni pólitískt gengi hans ekki á næstunni. 19.9.2021 11:31
Vildi sýna að venjulegt fólk gæti farið út í geim Fjórir almennir borgarar sem skotið var á braut um jörðu á miðvikudag sneru aftur heilu og höldnu í nótt þegar SpaceX Crew Dragon geimfar þeirra lenti á sjó nærri strönd Flórída. 19.9.2021 10:01
Fámennt og tíðindalítið á mótmælunum í Washington Svo fór sem margan grunaði að mótmælin í Washingtonborg í gær voru fámenn og tíðindalítil. 19.9.2021 09:59
Fyrrverandi forseti Alsír er allur Tilkynnt var um andlát Abdelaziz Bouteflika, fyrrverandi forseta Alsír, í gær. Hann varð 84 ára gamall og gegndi embætti forseta í tvo áratugi, frá 1999 til 2019. 18.9.2021 23:31
Norskur ráðherra: Segir af sér vegna skattaklandurs Kjell Ingolf Ropstad, barna-. fjölskyldu og kirkjumálaráðherra og formaður Kristilega þjóðarflokksins (KrF) í Noregi, sagði af sér á blaðamannafundi í morgun eftir að fjölmiðlar höfðu flett ofan af skattamisferli hans. 18.9.2021 13:24
Þinghúsið girt af vegna fyrirhugaðra mótmæla í dag Mikill viðbúnaður er við þinghús Bandaríkjanna í Washington vegna fyrirhugaðrar samkomu í dag til stuðning þeirra sem sæta rannsókn og gæsluvarðhaldi vegna óeirðanna hinn 6. janúar sl. 18.9.2021 12:09
Stúlkum bannað að sækja miðskóla í Afganistan Stjórn Talibana í Afganistan tilkynnti í gær að miðskólar yrðu opnaðir á ný eftir mánaðarlangt hlé. Hvergi er minnst á stúlkur í yfirlýsingunni og er talið að stjórnarliðar vilji þar með banna stelpum að sækja miðskóla í landinu. 18.9.2021 12:00
Auðkýfingurinn Robert Durst sakfelldur fyrir að myrða bestu vinkonu sína Robert Durst, sem er 78 ára gamall, var í dag sakfelldur fyrir að myrða Susan Berman árið 2000. Meðal sönnunargagna í málinu var atriði úr heimildarþætti um hann þar sem hann heyrðist segja „Þarna kom það. Þeir náðu þér.“ 17.9.2021 23:57
Bandaríkjaher játar mistök vegna drónaárásar í Kabúl Þann 29. ágúst síðastliðinn framkvæmdi Bandaríkjaher drónaárás í Kabúl sem grandaði tíu almennum borgurum, þar af sjö börnum úr sömu fjölskyldu. Hershöfðinginn Kenneth McKenzie sagði á upplýsingafundi í dag að hann telji nú að þau sem létust í árásinni hafi ekki tengst Ríki Íslams né verið hættuleg hermönnum á flugvellinum í Kabúl. 17.9.2021 23:17
Ásakandi Andrésar getur birt honum stefnu vestra Dómari í New York í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu að kona sem sakar Andrés prins um að hafa níðst á sér þegar hún var undir lögaldri geti birt honum stefnu þar vestra. Lögmenn Andrésar reyna að þræta fyrir að honum hafi verið birt stefna konunnar í Bretlandi á lögmætan hátt. 17.9.2021 15:01
Réttarhöld hafin í milljóna króna skaðabótamáli vegna Ischgl Réttarhöld hófust í dag í Vín þar sem til skoðunar er hve seint austurrísk yfirvöld brögðust við útbreiðslu kórónuveirunnar í skíðabæjum á borð við Ischgl. Málshefjendur segja hæg viðbrögð hafa orðið til þess að fjöldi fólks fékk Covid-19 og lét í sumum tilfellum lífið. 17.9.2021 14:09
Breyta reglunum vegna fjörugs ástarlífs Madsen í fangelsi Dönsk stjórnvöld hyggjast banna sakamönnum sem sitja í lífstíðarfangelsi að hefja ný ástarsambönd á meðan þeir dúsa í fangelsi. Frumvarp þess efnis var lagt fram eftir að í ljós kom að sautján ára gömul stúlka féll fyrir Peter Madsen, morðingja blaðakonunnar Kim Wall, þrátt fyrir að hann væri í fangelsi. 17.9.2021 13:07