Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Banna drónaflug eftir banvæna árás Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa bannað drónaflug til afþreyingar í landinu eftir að litlir drónar voru notaðir til að sprengja þrjá olíubíla í loft upp á dögunum. 23.1.2022 22:03
Farga milljónum bóluefnaskammta þrátt fyrir lágt bólusetningarhlutfall Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að ríki heims einblíni á að tryggja ríkisborgurum sínum örvunarskammta af bóluefninu gegn Covid-19. Frekar eigi að einblína á að tryggja öllum heimsbúum grunnbólusetningu til að stemma stigu við frekari þróun veirunnar. 23.1.2022 21:56
Endalok faraldursins í Evrópu séu í nánd Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að í mars muni sex af hverjum tíu Evrópubúum hafa smitast af kórónuveirunni. Því nálgist endalok faraldurs hennar í álfunni. 23.1.2022 19:42
Harðir bardagar eftir flótta ISIS-liða Harðir bardagar hafa geisað í norðausturhluta Sýrlands eftir að fjölda ISIS-liða tókst að strjúka úr fangelsi sem sýrlenskir Kúrdar hafa rekið. Fangelsið hýsti um það bil 3.500 ISIS-liða og hefur gert lengi en meðal fanganna voru nokkrir af leiðtogum Íslamska ríkisins. 23.1.2022 17:07
Forsætisráðherrann frestaði brúðkaupinu vegna Covid-19 Jacinda Arden, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur frestað brúðkaupi sínu í aðdraganda þess að ríkisstjórn hennar herðir sóttvarnarreglur. Ómíkron afbrigði kórónuveirunnar er í töluverðri dreifingu á Nýja-Sjálandi þessa dagana. 23.1.2022 15:50
Einn hamstur reyndist með Covid Einn af 77 hömstrum sem íbúar Hong Kong skiluðu til lógunar á dögunum reyndist smitaður af Covid-19. Alls hefur rúmlega tvö þúsund hömstrum verið lógað í Hong Kong á undanförnum dögum eftir að nokkrir þeirra greindust smitaðir í gæludýrabúð. 23.1.2022 14:50
Franskur ævintýramaður fannst látinn við Asóreyjar Hinn 75 ára gamli ævintýramaður Jean-Jacques Savin fannst í gær látinn undan ströndum Asóreyja. Í byrjun árs lagði hann af stað á sérsmíðuðum bát sem hann ætlaði að róa yfir Atlantshafið. 23.1.2022 13:58
Hernaðaruppbygging Rússa heldur áfram Hernaðaruppbygging Rússa við landamæri Úkraínu heldur áfram en viðræður um spennuna í Austur-Evrópu virðast hafa skilað litlum árangri. Yfirvöld í Bretlandi saka Rússa um að ætla sér að gera innrás í Úkraínu og koma á laggirnar ríkisstjórn sem væri hliðholl Rússlandi. 23.1.2022 11:30
Drógu látinn mann inn á pósthús til að innheimta ellilífeyri hans Lögreglan á Írlandi hefur hafið rannsókn á atviki þar sem tveir menn drógu lík látins manns inn á pósthús í þeim tilgangi að fá ellilífeyri hans greiddan út. 22.1.2022 22:08
Vilja styrkja tengsl Bandaríkjanna og Íslands Bandarískir fulltrúadeildaþingmenn hafa lagt fram frumvarp sem þeir kalla Íslandsfrumvarpið. Því er ætlað að styrkja tengsl milli Bandaríkjanna og Íslands með því að heimila sérstök atvinnulandvistarleyfi fyrir Íslendinga. 22.1.2022 18:23
Vonast eftir því besta en búa sig undir það versta Íbúar borgarinnar Kharkiv, sem er sú næst stærsta í Úkraínu, vonast eftir því besta en búa sig undir það versta. Borgin er í austurhluta landsins, skammt frá landamærum Rússlands þar sem tugir þúsunda hermanna eru staddir. 22.1.2022 16:12
Færeyingar ætla að afnema allar takmarkanir Færeyska stjórnin hefur sett fram áætlun um það hvenær búast megi við afléttingu allra samkomutakmarkana vegna kórónuveirufaraldursins. Stefnt er að því að öllum takmörkunum verði aflétt fyrir 1. mars. 22.1.2022 15:01
Tongverjar staðráðnir í að klára enduruppbyggingu Hjálparstarf á Tonga er að taka á sig mynd en ríkisstjórn eyjaklasans segir drykkjarvatn í forgangi. Vika er liðin frá því að stærðarinnar sprengigos olli miklum skemmdum á eyjunum svo minnst þrír dóu og tvö þorp þurrkuðust út. 22.1.2022 11:44
Játaði að hafa myrt Petito áður en hann svipti sig lífi Þegar Brian Laundrie fannst látinn í feni í Flórída fannst skrifblokk nærri honum. Í skrifblokkina hafði hann skrifað að hann hefði myrt Gabrielle Petito, kærustu sína. Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) tilkynnti þetta í gærkvöldi en Laundrie hvarf skömmu eftir að hann sneri einn úr ferðalagi sem þau höfðu bæði farið í í fyrra. 22.1.2022 09:53
Þotu snúið við vegna farþega sem neitaði að bera grímu Flugvél American Airlines á leið frá Miami til Lundúna á miðvikudaginn var snúið við eftir tæplega klukkustundar flug vegna farþega sem harðneitaði að bera grímu líkt og allir aðrir. 21.1.2022 19:09
Þrír lögregluþjónar ákærðir fyrir að skjóta átta ára stúlku til bana Þrír lögregluþjónar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum voru ákærðir fyrir manndráp í vikunni. Það er vegna skothríðar þeirra fyrir utan leikvang framhaldsskóla í bænum Sharon Hill í ágúst þar sem átta ára stúlka varð fyrir skoti og dó. 21.1.2022 17:01
Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu. 21.1.2022 13:19
Covid gerir hjálparstarf á Tonga flókið Skip sjóhers Nýja-Sjáland kom til hafnar í Tonga-eyjum í morgun. Þar um borð voru 250 þúsund lítrar af drykkjarvatni og öðrum nauðsynlegum birgðum. Um borð í HMNZS Aotearoa er einnig búnaður sem hægt er að nota til að eima sjötíu þúsund lítra af vatni á dag. 21.1.2022 11:27
Stjóri Sameinuðu þjóðanna segir heiminn fara versnandi Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir heiminn að mörgu leyti verri síðan hann hóf fyrsta kjörtímabil sitt fyrir fimm árum. Það sé vegna faraldurs kórónuveirunnar, veðurfarsbreytinga og aukinnar spennu ríkja á milli. 21.1.2022 10:23
Blinken og Lavrov funda í Genf í dag Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands, þeir Antony Blinken og Sergei Lavrov, munu hittast síðar í dag í Genf í Sviss til að ræða ástandið í Úkraínu en spennan á svæðinu fer nú vaxandi dag frá degi og óttast vesturlönd að Rússar hyggi á innrás í landið. 21.1.2022 07:07
Óttast að tugir séu látnir: Flutningabíll og mótorhjól skullu saman Talið er að tugir hafi látist þegar flutningabíll sprakk í loft upp í Gana í Vestur-Afríku fyrr í dag. Í bílnum voru sprengiefni sem nota átti við námugröft. 20.1.2022 23:08
„Það er ekkert sem kallast minniháttar innrás“ Forseti Úkraínu svaraði Bandaríkjaforseta fyrr í dag og segir að það sé ekkert sem hægt sé að kalla minniháttar árás; rétt eins og það séu engin minniháttar mannaföll eða lítilsháttar hryggð vegna ástvinamissis. 20.1.2022 21:48
Tókst ætlunarverkið: Yngsta kona sögunnar til að fljúga umhverfis hnöttinn Hin nítján ára gamla Zara Rutherford lenti í Belgíu, heimalandi sínu, í dag og er þar með yngsta kona sögunnar til þess að fljúga einsömul hringinn í kringum jörðina. 20.1.2022 17:29
Á þriðja tug látin eftir troðning í messu Minnst tuttugu og níu eru látin, þar á meðal ellefu börn og ein þunguð kona, eftir að mikil ringulreið og troðningur skapaðist í messu í Líberíu. 20.1.2022 17:02
Ríkisstjórnin sökuð um að hóta þingmönnum og jafnvel kúga þá Þingmenn Íhaldsflokks Englands, sem vilja velta Boris Johnson, forsætisráðherra, úr sessi sem leiðtogi flokksins, hafa orðið fyrir hótunum frá meðlimum úr ríkisstjórn Bretlands. Þetta segir einn þingmaður flokksins og ráðleggur hann flokksbræðrum sínum og systrum sem hafa orðið fyrir kúgunum að leita til lögreglunnar. 20.1.2022 16:45
Sakaður um aðgerðaleysi vegna kynferðisbrota presta Benedikt páfi er sakaður um að hafa sýnt af sér aðgerðaleysi í tengslum við misnotkun á fjögurra barna í biskupsdæmi hans í München op Freising frá 1977 til 1982. 20.1.2022 15:31
„Rússarnir eru að sameina NATO“ Erindrekar Bandaríkjanna og Evrópu funda nú í Berlín vegna mögulegrar innrásar Rússlands í Úkraínu. Útlit er þó fyrir að spennan í Austur-Evrópu muni mögulega endurvekja Atlantshafsbandalagið. 20.1.2022 14:15
Allt gæti farið úr böndunum hjá Rússum Prófessor í stjórnmálaheimspeki segir afleiðingar af mögulegri innrás Rússa í Úkraínu geta verið grafalvarlegar. Þegar spenna sé orðin eins mikil og nú þurfi lítið til að allt fari úr böndunum og stríð eða jafnvel styrjöld brjótist út. 20.1.2022 13:09
Hæstiréttur brást vonum Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gær kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra fengi ekki aðgang að gögnum hans. Lögmenn Trumps höfðu vonast eftir því að koma í veg fyrir afhendingu gagnanna en nú er sú von úti. 20.1.2022 12:37
Íhugar að hefja aftur tilraunir með langdrægar eldflaugar Ríkisstjórn Norður-Kóreu ætlar mögulega að hefja á nýjan leik tilraunir með langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn. Sú ákvörðun var tekin á ríkisráðsfundi í vikunni að Kim Jung-un, einræðisherra Norður-Kóreu, íhugaði að hefja tilraunirnar aftur vegna „óvinveittrar stefnu“ Bandaríkjanna í garð einræðisríkisins. 20.1.2022 11:05
Maxwell óskar eftir nýjum réttarhöldum Breska athafnakonan Ghislaine Maxwell hefur óskað eftir því að réttað verði í máli hennar að nýju. Hún var í lok desember sakfelld fyrir mansal á börnum og að hafa útvegað bandaríska auðkýfingnum Jeffrey Epstein ungar stúlkur sem hann misnotaði kynferðislega. 20.1.2022 10:52
Tókst ekki að breyta reglum öldungadeildarinnar og samþykkja kosningalög Tilraunir Demókrata til að koma á nýjum kosningalögum í Bandaríkjunum misheppnuðust í gær þegar tveir öldungadeildarþingmenn flokksins neituðu að taka þátt í því að breyta reglum þingdeildarinnar. Umræddar breytingar eru Demókrötum nauðsynlegar til að koma frumvarpinu í gegnum þingið vegna naums meirihluta þeirra. 20.1.2022 09:48
Fyrsta flugvélin með hjálpargögnum komin til Tonga Fyrsta flutningavélin með hjálpargögn er nú lent á flugvellinum á Tonga. Vélin er með drykkjarvatn og fleiri nauðsynjar en þessi afskekkti eyjaklasi varð illa útí í eldgosi sem hófst um síðustu helgi. 20.1.2022 08:05
Biden telur Pútín hyggja á innrás og segir hann munu gjalda það dýru verði Joe Biden Bandaríkjaforseti segist telja að Vladimír Pútín kollegi hans í Rússlandi hyggi á einhvers konar innrás í Úkraínu á næstunni. 20.1.2022 07:06
Þjóðverjar beina spjótum að Telegram Þjóðverjar hyggjast taka harðar á notkun samskiptaforritsins Telegram. Forritið hefur gjarnan verið orðað við glæpastarfsemi en stjórnvöld í Þýskalandi hafa áhyggjur af pólitískum öfgahópum sem nýta sér miðilinn í annarlegum tilgangi. 19.1.2022 23:46
Nýjar myndir sýna eyðilegginguna á Tonga Stjórnvöld á eyjunni Tonga birtu myndir af eyðileggingu á eyjunni Tonga fyrr í dag eftir neðansjávareldgos sem hófst í Kyrrahafi síðustu helgi. 19.1.2022 19:05
Smitaðist viljandi af Covid og kafnaði á nokkrum mínútum Hana Horka, fræg þjóðlagasöngkona frá Tékklandi, lést á sunnudaginn eftir að hafa vísvitandi smitast af Covid-19. Fjöldi nýsmitaðra náði nýjum hæðum í Tékklandi í dag. 19.1.2022 14:36
Tveir handteknir eftir að kennari var myrtur á Írlandi Tveir karlmenn hafa verið handteknir í tengslum við morðið á Ashling Murphy, sem var myrt fyrir viku síðan þegar hún var úti að skokka í bænum Tullamor í Offaly sýslu á Írlandi. 19.1.2022 14:33
„Áhugaverður“ fundur kolefnis á Mars mögulega til marks um lífrænt ferli Við greiningu sýna af yfirborði Mars fann könnunarfarið Curiosity tegund kolefnis sem gjarnan er tengt við lífræn ferli. Það á í það minnsta við hér á jörðinni en þessi tegund kolefnis getur einnig myndast við ákveðin jarðfræðileg ferli. 19.1.2022 14:01
Höfuðpaur mansalshrings dæmdur vegna dauða 39 manna Dómstóll í Belgíu hefur dæmt víetnamskan mann, sem talinn er vera höfuðpaur mansalshrings, í fimmtán ára fangelsi vegna dauða 39 Víetnama sem létust af völdum súrefnisskorts í vöruflutningabíl sem fannst yfirgefinn í Essex í Bretlandi í október 2019. 19.1.2022 13:36
Eins og fimm hundruð kjarnorkusprengjur hafi sprungið í einu Vísindamenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) áætla að kraftur sprengigossins á Tonga hafi við til samræmis við að sprengja tíu megatonn af dínamíti. Það þýðir að sprengingin var álík því að sprengja fimm hundruð kjarnorkusprengjur eins og þeirri sem varpað var á Hiroshima við endalok seinni heimsstyrjaldarinnar. 19.1.2022 12:16
Segjast hafa umtalsverð sönnunargögn um lögbrot Starfsmenn ríkissaksóknara New York sögðust í gær hafa fundið umtalsverð sönnunargögn um að forsvarsmenn fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta, hefðu beitt sviksömum og villandi leiðum til að fá lán og greiða lægri skatta. 19.1.2022 09:47
Samflokksmenn Johnson sagðir leggja drög að hallarbyltingu Þingmenn breska Íhaldsflokksins eru sagðir leggja drög að því að koma forsætisráðherranum Boris Johnson frá. Framganga hans síðustu vikur og mánuði hefur grafið verulega undan trúverðugleika hans og samflokksmenn hans eru sagðir hafa fengið sig fullsadda. 19.1.2022 08:30
Reiknað með að tilkynnt verði um afléttingar í Englandi Búist er við því að Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, kynni afléttingar á sóttvarnatakmörkunum í Englandi síðar í dag. 19.1.2022 07:54
Vilja spyrja Giuliani spjörunum úr varðandi árásina á þinghúsið Bandaríska þingnefndin sem nú rannsakar árásina á þinghúsið í Washington í janúar í fyrra hefur nú stefnt Rudy Guiliani fyrir nefndina, en hann var um tíma persónulegur lögmaður Donalds Trump forseta. 19.1.2022 07:01