Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Írönsk yfirvöld segja Rushdie og stuðningsmenn hans eina bera ábyrgð á árásinni Yfirvöld í Íran taka fyrir að hafa komið að árás á rithöfundinn Salman Rushdie í New York á föstudag. Þau segja Rushdie sjálfan og aðdáendur hans bera ábyrgð á árásinni. 15.8.2022 07:37
Kenna kirkjusöfnuðum um mislingafaraldur sem banað hefur áttatíu börnum Yfirvöld í Simbabve segja kirkjusöfnuðum um að kenna að áttatíu börn hafi látist úr mislingum síðan í apríl. Sjúkdómurinn hefur breiðst út um Simbabve undanfarnar mánuði og tæp sjö prósent þeirra sem hafa greinst með sjúkdóminn hafa látist úr honum. 15.8.2022 07:14
Nýjar ruslatunnur mörg ár í framleiðslu og kostar hvert eintak um 2,8 milljónir króna Ný tegund af ruslatunnum á götum San Francisco var meira en þrjú ár í framleiðslu og kostar hvert eintak hennar 21 þúsund Bandaríkjadali eða 2,8 milljónir íslenskra króna. Ruslatunnutegundin er ein af sex nýjum ruslatunnum sem hafa verið teknar í notkun í borginni í sumar. 15.8.2022 00:20
Klessti á vegartálma, skaut úr byssu út í loftið og svipti sig lífi Maður keyrði bíl sínum á vegartálma nálægt þinghúsinu í Washington í Bandaríkjunum í dag. Í kjölfarið steig hann út úr brennandi bílnum, skaut nokkrum sinnum úr byssu út í loftið og svipti sig að lokum lífi. 14.8.2022 21:40
Einn látinn og tugir særðir eftir sprengingu á flugeldamarkaði Einn er látinn og að minnsta kosti 51 er særður eftir kröftuga sprengingu sem átti sér stað við flugeldageymslu á markaði í Jerevan, höfuðborg Armeníu, fyrr í dag. 14.8.2022 19:10
Að minnsta kosti 41 látinn eftir kirkjubruna í Kairó Að minnsta kosti 41 er látinn eftir að eldur kviknaði í Abu Sefein kirkju í Giza á stórhöfuðborgarsvæði Kairó í Egyptalandi í morgun. Meðal hinna látnu eru tíu börn og þar að auki eru sextán slasaðir eftir brunann. 14.8.2022 18:00
Bandarískir þingmenn stinga óvænt upp kollinum í Taívan Fimm bandarískir þingmenn fóru í morgun í óvænta heimsókn til Taívans, þar sem þeir munu meðal annars funda með forseta eyríkisins. Tæpar tvær vikur eru síðan Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, fór til Taívans en sú ferð reitti ráðamenn í Kína til mikillar reiði. 14.8.2022 14:58
Rómversk stórborg fundin, enginn veit hvað hún hét Fornleifafræðingar hafa fundið rústir 2.000 ára stórborgar frá tímum Rómaveldis á Norður-Spáni. Málið þykir hið dularfyllsta því enginn veit hvað borgin hét og engin gögn eru til um hana. 14.8.2022 14:30
Freyja aflífuð vegna ágangs ferðamanna Rostungurinn Freyja var aflífaður í morgun. Sú ákvörðun var tekin að aflífa dýrið eftir að komist var að þeirri niðurstöðu að ágengni almennings og ferðamanna væri of mikil og það skapaði hættuástand. Þrátt fyrir ítrekuð áköll hafi ferðamenn og aðrir áhugasamir ekki haldið nægilegri fjarlægð frá Freyju. 14.8.2022 13:46
Börn tróðust undir er eldur kom upp í kirkju Minnst 41 lét lífið og fjórtán eru slasaðir eftir að eldur kom upp í kirkju nærri Kaíró í Egyptalandi í morgun. Eldsupptök eru ekki ljós en bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar benda til þess að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni og borist hratt um kirkjuna. 14.8.2022 11:35
FBI segir Baldwin hafa tekið í gikkinn Leikarinn Alec Baldwin, tók í gikk byssu á tökum kvikmyndarinnar Rust þegar Haylyna Hutchins, tökustjóri kvikmyndarinnar, fékk skot úr byssunni í bringuna og dó. Skotið hæfði einnig Joel Souza, leikstjóra en Baldwin hefur haldið því fram að hann hafi ekki tekið í gikkinn þegar skotið hljóp af. 14.8.2022 10:41
„Ég er hundrað prósent mannæta“ Ný heimildamynd er væntanleg þar sem fórnarlömb Armie Hammer stíga fram og lýsa hrottafengnu ofbeldi sem þessi 35 ára bandaríski leikari beitti þær. 14.8.2022 10:24
Rushdie kominn úr öndunarvél Salman Rushdie er kominn úr öndunarvél og farinn að tala og segja brandara. Þetta segir vinur rithöfundarins, en ráðist var á Rushdie á sviði í New York á dögunum þar sem hann ætlaði að halda fyrirlestur. Rushdie var stunginn ítrekað og fluttur á sjúkrahús. 14.8.2022 07:48
Einn látinn og að minnsta kosti fjörutíu særðir eftir að tónleikasvið hrundi á Spáni Einn lést og að minnsta kosti 40 særðust eftir að tónleikasvið hrundi vegna sterkra vindhviða á Medusa-tónlistarhátíðinni í Cullera-borg í Valensía-héraði á Spáni á laugardag. 14.8.2022 00:13
Skógareldar í nágrenni Íslendingabyggða á Spáni Skógareldur braust út í bænum Guardamar del Segura, skammt sunnan við Alicante síðdegis. Eldar loga í um tíu metra fjarlægð frá íbúðarhúsum. 13.8.2022 20:14
„Byssukúlan“ sem var þrjátíu og þrjú ár á leiðinni Rithöfundurinn Salman Rushdie hefur um árabil þurft að fara huldu höfði vegna morðhótana. Undanfarin ár hafði hann þó farið að lifa eðlilegu lífi á nýjan leik en hann var stunginn margsinnis á sviði í New York-ríki í Bandaríkjunum í gær. 13.8.2022 18:00
Skyndilegur dauði mörg þúsund fiska vekur furðu Skyndilegur dauði mörg þúsund fiska í Oder-á í Póllandi hefur vakið mikla furðu. Vísindamenn hafa útilokað kvikasilfurseitrun sem mögulega skýringu en segja að selta í ánni hafi mælst óvenjuhá. Forsætisráðherra Póllands telur mikið magn efnaúrgangs valda fiskadauðunum. 13.8.2022 17:54
Lífríki í ám og sjó ógnað Loftslagbreytingar, mengun og innrásartegundir í dýraríkinu valda því að dýraríkið í vötnum og sjó hefur tekið miklum breytingum á Spáni á síðustu árum. 13.8.2022 13:00
Leitarheimildin byggði á grun um brot á njósnalögum Meðal þeirra leynilegu gagna sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna fjarlægðu úr sveitarklúbbi og heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta, í Flórída voru gögn sem höfðu hlotið einhverjar af hæstu leyndarskilgreiningum bandarískra stjórnvalda. 13.8.2022 08:19
Myrtu níu óbreytta borgara eftir áflog í fangelsi Meðlimir mexíkóska eiturlyfjahringsins Los Mexicles myrtu níu óbreytta borgara í borginni Ciudad Juárez í dag. Þeir gengu berserksgang á götum borgarinnar eftir að tveir fangar voru drepnir í fangelsi borgarinnar. 12.8.2022 23:51
Hafa borið kennsl á árásarmann Rushdie Lögreglan í New York hefur borið kennsl á manninn sem réðst á rithöfundinn Salman Rushdie er hann hélt fyrirlestur í dag. Rushdie var stunginn nokkrum sinnum í kviðinn og hálsinn. 12.8.2022 21:25
Gögnin innihéldu upplýsingar um forseta Frakklands Alls voru tuttugu kassar sem innihéldu meðal annars ljósmyndir, leynileg gögn og bréf, fjarlægð af heimili Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta á mánudaginn. Ekki er ljóst á hverju húsleitarheimild alríkislögreglunnar var byggð en von er á að heimildin verði birt í kvöld. 12.8.2022 20:39
Björguðu grunuðum bankaræningja úr göngum nærri Vatíkaninu Slökkviliðsmenn á Ítalíu björguðu í dag karlmanni sem hafði fests í göngum sem hann gróf sjálfur í Rómarborg nærri Vatíkaninu. Talið er að maðurinn hafi verið að grafa göngin til þess að ræna banka en hann festist eftir að þau hrundu. 12.8.2022 20:04
Skaut ellefu manns til bana Karlmaður var í dag skotinn til bana af lögreglu í borginni Cetinje í Svartfjallalandi eftir að hafa sjálfur myrt ellefu manns. Sex aðrir eru slasaðir eftir skotárásina. 12.8.2022 18:49
Salman Rushdie stunginn á sviði Ráðist var á rithöfundinn Salman Rushdie á meðan hann hélt fyrirlestur í New York í dag. Hann hefur um áratugabil mátt sæta stöðugum líflátshótunum vegna bókar hans Söngva Satans. 12.8.2022 15:29
Fundu mænusótt í skólpi í New York Yfirvöld í New York hafa greitt frá því að mænusótt (e. Polio) hafi fundist í skólpkerfi borgarinnar. Það þykir til marks um að veiran sé í meiri dreifingu meðal óbólusettra í borginni en áður var talið. Áður hafði mænusótt ekki greinst í Bandaríkjunum í meira en áratug. 12.8.2022 15:20
Samsung-prinsinn náðaður af forsetanum Forseti Suður-Kóreu ætlar að náða Samsung-prinsinn svokallaða Lee Jae-yong, ári eftir að honum var sleppt úr fangelsi á reynslulausn. Hann var dæmdur fyrir fjárdrátt og fyrir að múta Park Geu-hye, fyrrverandi forseta landsins. Yoon Suk Yeol ætlar einnig að náða aðra auðjöfra og með því markmiði að sporna gegn efnahagsvandræðum. 12.8.2022 11:58
Vann tveggja áratuga langt dómsmál vegna 35 króna ofrukkunar Indverskur lögmaður vann á dögunum dómsmál sem hann höfðaði fyrir 22 árum. Árið 1999 rukkaði lestarfyrirtæki hann 20 rúpíum, eða um 35 krónum, of mikið og hann fór með málið fyrir dómstóla. 12.8.2022 11:34
Mestu þurrkar Evrópu í fimm hundruð ár Lítið sem ekkert hefur rignt í Vestur-, Suður- og Mið-Evrópu í tæpa tvo mánuði. Veðurfræðingar búast ekki við rigningu á næstunni og hefur þurrkunum verið lýst sem þeim verstu í heimsálfunni í fimm hundruð ár. 12.8.2022 10:37
Sameinuðu þjóðirnar uggandi eftir ítrekaðar árásir á kjarnorkuver Rússar og Úkraínumenn benda enn hvorir á aðra vegna ítrekaðra árása á stærsta kjarnorkuver Evrópu í austurhluta Úkraínu. Árásir þessar hafa aukið á áhyggjur manna af því árásirnar leiði til stórslyss í kjarnorkuverinu sem hafi óafturkræfar afleiðingar í för með sér. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna kallar eftir því að svæðið í kringum kjarnorkuverið verði hlutlaust. 12.8.2022 10:00
Voru að leita að trúnaðargögnum um kjarnorkuvopn Fulltrúar Bandarísku alríkislögreglunnar FBI sem gerðu húsleit á heimili Donald Trump í Mar a Lago í Flórída voru meðal annars að leita að trúnaðargögnum er vörðuðu kjarnorkuvopn. Þetta herma heimildir Washington Post. 12.8.2022 07:52
Eistar meina flestum Rússum inngöngu í land sitt Eistland tilkynnti það í morgun að frá byrjun næstu viku mun landið meina allmörgum Rússum inngöngu í landið. Rússar sem hafa fengið vegabréfsáritun frá eistneskum yfirvöldum munu ekki lengur fá að heimsækja Eistland. 12.8.2022 07:51
Maður sem reyndi að brjótast inn í skrifstofu FBI skotinn til bana eftir eftirför lögreglu Brynklæddur og vopnaður maður sem reyndi að brjótast inn í skrifstofu FBI fyrr í dag og flúði af vettvangi var skotinn til bana af ríkislögregluþjónum eftir klukktíma langa eftirför um sveitavegi Ohio-ríkis. 12.8.2022 00:06
Skoða það að taka Freyju af lífi Yfirvöld í Noregi eru nú með það til skoðunar hvort það eigi að taka rostunginn Freyju af lífi. Freyja hefur upp á síðkastið tekið sér lúr í bátum í höfnum Noregs og sökkt einhverjum þeirra í leiðinni. 12.8.2022 00:02
Faldi sprengjuna í gervifæti Afganski sjeikinn Rahimullah Haqqani var í dag myrtur í sjálfsvígssprengjuárás í Kabúl, höfuðborg Afganistan. Talið er að morðinginn hafi falið sprengjuna í gervifæti sínum og sprengt sig er hann var við hlið Haqqani. 11.8.2022 23:29
Árásargjarn höfrungur nartar í Japani Höfrungur hefur bitið að minnsta kosti sex strandgesti í Japan en í gær þurfti að flytja eitt fórnarlamba hans á spítala vegna sára sinna. Yfirvöld hafa sett upp tæki og tól til að reyna að komast hjá árásunum. 11.8.2022 21:38
Rekin í gegn af fljúgandi sólhlíf Strandgestur í Garden City í Suður-Karólínu lést af sárum sínum eftir að sólhlíf sem hafði fokið úr festingu sinni lenti í bringu hennar. 11.8.2022 19:30
Tók banka í gíslingu til að geta tekið út sparifé sitt Maður tók banka í gíslingu í Beirút í dag til að krefjast þess að bankinn leyfði honum að taka út sparifé af læstum reikningi svo hann gæti borgað sjúkrareikninga föður síns. Mótmælendur hópuðust fyrir framan bankann til að krefjast þess að bankinn léti undan kröfum mannsins. 11.8.2022 18:42
Tveir alvarlega slasaðir eftir rússíbanaslys í Lególandi Alls eru 34 slasaðir, þar af tveir alvarlega, eftir rússíbanaslys í bænum Günzburg í suðurhluta Þýskalands. Öllum farþegum rússíbanans bauðst áfallahjálp eftir slysið. 11.8.2022 17:41
Færast nær fyrsta geimskoti Starship Starfsmenn geimferðafyrirtækisins SpaceX náðu nýjum áfanga í Texas í vikunni þegar tilraunir voru gerðar með Starship-geimfarið. Kveikt var á hreyflum fyrra og seinna stigs Starship en þetta var í fyrsta sinn sem tilraunir eru gerðar með fyrra stigið, sem kallast Super Heavy. 11.8.2022 16:33
Viðbrögðin sýna tangarhald Trumps á Repúblikanaflokknum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gæti mögulega verið fundinn sekur um brot á lögum sem hann sjálfur þyngdi refsinguna við töluvert. Það er að segja ef hann braut lög með því að flytja opinber gögn, og þar á meðal leynilegt gögn, með sér til Flórída þegar hann flutti úr Hvíta húsinu. Trump er sagður vera að leita sér að lögmönnum til að mögulega verja sig. 11.8.2022 14:30
Segja Rússland vera hryðjuverkaríki Þingmenn Lettlands samþykktu í morgun ályktun um að Rússland væri hryðjuverkaríki og aðgerðir Rússa í Úkraínu væru tilraunir til þjóðarmorðs á úkraínsku þjóðinni. Þingmennirnir kölluðu eftir því að önnur ríki lýsi því einnig yfir að Rússland sé hryðjuverkaríki. 11.8.2022 11:29
Sífellt fleiri reyna að komast til Kanaríeyja og margir hafa dáið Minnst 9.589 manns hafa flúið frá ríkjum Afríku til Kanaríeyja á þessu ári. Það er aukning um 27 prósent, samanborið við sama tímabil í fyrra. Leiðin er þó mjög hættulegt og minnst þúsund hafa dáið við að fara hana, samkvæmt hjálparsamtökum sem starfa á svæðinu. 11.8.2022 10:37
Hyggjast banna „Parasite-kjallaraíbúðir“ í Seúl Yfirvöld í Suður Kóreu hyggjast banna ákveðnar tegundir kjallaraíbúða í Seúl, höfuðborg landsins í kjölfar dauða tveggja kvenna og ungrar stelpu sem fórust í miklum flóðum í borginni fyrr í þessari viku. 11.8.2022 08:20
Sjö ákærðir fyrir nauðgun í kjölfar hópárásar í námu í Suður-Afríku Yfirvöld í Suður-Afríku hafa ákært sjö manns fyrir 32 nauðganir eftir hópárás í yfirgefinni námu í nágrenni Jóhannesarborgar. 11.8.2022 07:50