Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skutu óvopnaðan mann til bana er hann stóð upp úr rúmi sínu Lögreglan í Columbus í Ohio hefur birt myndband af því þegar svartur maður var skotinn til bana á heimili sínu af lögreglu. Maðurinn var líklegast sofandi þegar lögreglu bar að og hélt á rafrettu þegar þeir nálguðust hann. 31.8.2022 23:52
Lífslíkur Bandaríkjamanna ekki verið lægri í 25 ár Meðalævilengd Bandaríkjamanna mælist nú 76,1 ár og hefur ekki verið lægri síðan árið 1996. Covid-19 faraldurinn er talinn stór áhrifavaldur í þessari lækkun. 31.8.2022 21:41
Camilo Guevara er látinn Camilo Guevara, sonur byltingarleiðtogans Che Guevara, er látinn, sextíu ára að aldri. Camilo lést eftir að hafa fengið hjartaáfall vegna blóðtappa í lungum. 31.8.2022 20:41
Rannsaka dauða fjögurra skjaldbaka Yfirvöld í Ekvador rannsaka nú dauða fjögurra risaskjaldbaka sem fundust á Galapagos-eyjum fyrr á árinu. Talið er að veiðiþjófar hafi veitt og borðað þær. 31.8.2022 19:40
Putin grætur Gorbachev krókódílatárum Þjóðarleiðtogar víða um heim minnast Mikhails Gorbachevs síðasta leiðtoga Sovétríkjanna, sem lést í gærkvöldi níutíu og eins árs að aldri, fyrir þátttöku hans í lokum kaldastríðsins. Ráðamenn í Rússlandi bera harm sinn hins vegar í hljóði enda andúð Rússlandsforseta á sovétleiðtoganum fyrrverandi öllum kunn. 31.8.2022 19:40
Starfsmenn þýska fjármálaráðuneytisins grunaðir um tengsl við Rússland Þýska leyniþjónustan er sögð hafa verið beðin af þýska fjármálaráðuneytinu að kanna tengsl tveggja hátt settra starfsmanna innan ráðuneytisins við Rússland. Ráðuneytið hafi sagst vilja minnka áhrif rússneskrar orku. 31.8.2022 17:57
Oscar Pistorius vill fá reynslulausn Suðurafríski spretthlauparinn Oscar Pistorius ætlar að reyna að fá að komast úr fangelsi á reynslulausn. Pistorius skaut kærustu sína, Reeva Steenkamp, til bana árið 2013 en hann var dæmdur í þrettán ára fangelsi fyrir morðið. 31.8.2022 17:22
NASA reynir aftur á laugardag Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) ætla að gera aðra tilraun til að koma geimfari á braut um tunglið á laugardaginn. Hætt var við fyrsta tunglskot Artemis-áætlunarinnar á mánudaginn vegna vandræða með einn af stærstu hreyflum Space Launch System-eldflaugarinnar. 31.8.2022 16:41
Gera Rússum erfiðara og dýrara að ferðast til Schengen-svæðisins Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í morgun að gera rússneskum ferðamönnum erfiðara og dýrara að fá vegabréfsáritun til ferðalaga inn í sambandið. Þeir komust ekki að samkomulagi um að meina Rússum alfarið um vegabréfsáritanir, eins og ráðamenn nokkurra ríkja í Austur-Evrópu hafa farið fram á. 31.8.2022 15:26
Barn dó í hagléli á Spáni og fimmtíu slösuðust Tuttugu mánaða gömul stúlka lést á Spáni í gær eftir að hafa orðið fyrir stærðarinnar hagléli. Þá slösuðust fimmtíu er mjög óvenjulegt óveður gekk yfir La Bisbal de l’Emporda og aðra bæi í Girona í Katalóníu á Spáni. 31.8.2022 12:45
Dáður á Vesturlöndum en fyrirlitinn heima fyrir Mikhail Gorbachev síðasti leiðtogi Sovétríkjanna sem lést í dag níutíu og eins árs að aldri var dáður á Vesturlöndum fyrir þátt hans í lokum kalda stríðsins en fyrirlitinn heima fyrir vegna hruns Sovétríkjanna og versnandi hag almennings. 31.8.2022 11:55
Tekur ekki á móti nýjum forsætisráðherra í Buckingham-höll í fyrsta sinn í sjötíu ár Elísabet Bretadrottning mun ekki taka á móti nýjum forsætisráðherra í Buckingham-höll í Lundúnum og er það í fyrsta sinn í sjötíu ára valdatíð drottningarinnar. Þess í stað mun nýr forsætisráðherra, hvort sem það verður Liz Truss eða Rishi Sunak sem vinnur leiðtogakjör Íhaldsflokksins, ferðast til Skotlands þann 6. september og hitta drottninguna þar. 31.8.2022 11:44
Gruna að leynileg gögn hafi verið falin í Mar-a-Lago Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og starfsmenn hans neituðu ítrekuðum kröfum Þjóðskjalasafns Bandaríkjanna um að skila opinberum og leynilegum gögnum sem Trump tók með sér til Flórída þegar hann flutti úr Hvíta húsinu 2020. Dómsmálaráðuneytið segir mögulegt að Trump og hans fólk hafi fært og falið gögn, til að hindra rannsókn hins opinbera. 31.8.2022 10:34
Aldarfjórðungur frá dauða Díönu Aldarfjórðungur er í dag liðinn frá því að Díana prinsessa lést í bílslysi í frönsku höfuðborginni París, þá 36 ára gömul. Bresku prinsarnir Vilhjálmur og Harry munu verja deginum sitt í hvoru lagi, en þeir hafa vanalega komið saman á þessum degi til að minnast móður sinnar. 31.8.2022 09:28
Heilbrigðisráðherra segir af sér í kjölfar dauða þungaðs ferðamanns Marta Temido, heilbrigðisráðherra Portúgal, hefur sagt af sér eftir að þungaður ferðamaður lést eftir að hafa verið vísað frá yfirfullri fæðingadeild. 31.8.2022 08:18
Breskir lestarstarfsmenn boða sólarhringsverkfall Breskir lestarstarfsmenn hafa ákveðið að fara í sólarhringslangt verkfall 26. september næstkomandi vegna bágra kjara. Starfsmenn breska lestarkerfisins hafa ítrekað lagt niður störf undanfarna mánuði vegna lágra launa, lítils starfsöryggis og aðstæðna á vinnustað. 31.8.2022 08:12
„Greiddi leiðina fyrir frjálsa Evrópu“ Leiðtogar þjóða og alþjóðastofnana, núverandi og fyrrverandi, víðs vegar um heim hafa minnst Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna, sem lést í gær, 91 árs að aldri. 31.8.2022 07:41
Krefjast 24 ára dóms yfir fyrrverandi blaðamanni fyrir landráð Ríkissaksóknari í Rússlandi hefur krafist þess að fyrrverandi blaðamaðurinn Ivan Safronov, sem hefur verið ákærður fyrir landráð, verði dæmdur í 24 ára fangelsi. 31.8.2022 06:49
Nítján látin og barns með albínisma enn saknað Árás átti sér stað við lögreglustöð á Madagaskar í gær þar sem nítján eru sagðir hafa látið lífið af völdum lögreglu og tuttugu og einn særst. Hópur fólks er sagður hafa reynt að ráðast inn á lögreglustöð í bænum Ikongo. 30.8.2022 23:56
Þrír slösuðust er tómattrukkur lenti í árekstri Hraðbraut í Kaliforníu fylltist af tómötum í dag eftir að trukkur sem var að flytja tómata klessti á. Þrír slösuðust í slysinu og tók það marga klukkutíma að þrífa brautina. 30.8.2022 21:46
Míkhaíl Gorbatsjov er látinn Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, er látinn 91 árs að aldri. Gorbatsjov hafði verið að glíma við veikindi í langan tíma og lést á spítala í Moskvuborg í dag. 30.8.2022 20:46
Rússar muni skrúfa fyrir gasflæði um Nord Stream 1 leiðsluna enn á ný Orkurisinn Gazprom er sagður ætla að loka fyrir flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 gasleiðsluna til Þýskalands á morgun og muni lokunin vara í þrjá daga. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gazprom lokar á flæði gass til Þýskalands en gasflæði þangað sem og til annarra Evrópuríkja hefur verið óstöðugt í nokkurn tíma. 30.8.2022 20:25
Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar komnir til Úkraínu Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar eru komnir til Kænugarðs í Úkraínu og hyggjast skoða aðstæður í kjarnorkuverinu í borginni Zaporizhzhia. Úkraínskar hersveitir sækja hart fram gegn Rússum í Kherson héraði og eru sagðar hafa náð fjórum bæjum þar undan yfirráðum Rússa. 30.8.2022 20:24
Íranar reyndu að stela dróna Bandaríkjahers Bandaríski herinn kom í nótt í veg fyrir að íranskt skip næði að stela dróna þeirra við Arabíuflóa. Til þess að Íranarnir gáfu þeim drónann til baka þurfti að kalla út Sea Hawk-þyrlu hersins. 30.8.2022 19:03
Skoða leiðir til að endurheimta Namibíufé Graham Hopwood framkvæmdastjóri IPPR í Namibíu greindi í dag frá því að samtökin og Íslandsdeild Transparency International hafi tekið höndum saman og séu nú að kanna leiðir til sækja þá fjármuni sem „hafi verið teknir út úr Namibíu“ vegna umsvifa Samherja þar í landi. 30.8.2022 17:36
Plata Rússa til að skjóta dýrum eldflaugum á gervi-HIMARS Úkraínumenn segjast hafa platað Rússa til að skjóta minnst tíu Kalibr-eldflaugum á gerviskotmörk sem smíðuð voru eftir útlit HIMARS-eldflaugakerfa. Gerviskotmörkin eru smíðuð úr timbri og er erfitt að greina þau sundur frá raunverulegum HIMARS með drónum sem eru hátt á lofti. 30.8.2022 16:50
„Monsúnrigning á sterum“ Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir Pakistan standa frammi fyrir „monsúnrigningu á sterum“. Tugir milljóna hafa orðið fyrir barðinu á miklum flóðum þar og er einn þriðji landsins sagður undir vatni, þó rigningarnar hafi hætt fyrir þremur dögum. 30.8.2022 15:56
Tók upp flugferðir sínar yfir Úkraínu og birti til minningar fallins félaga Flugher Úkraínu birti í morgun myndband sem einn af flugmönnum hersins gerði til minningar um annan. Myndbandið sýnir flugmann, sem heitir Ivan, fljúga yfir Úkraínu í mismunandi verkefnum og skjóta eldflaugum að skotmörkum. 30.8.2022 14:01
Úkraínuforseti skorar á Rússa að leggja á flótta frá Kherson Óstaðfestar fregnir eru um stórsókn úkraínskra hersveita í Kherson héraði í suðurhluta Úkraínu. Forseti landsins skorar á rússneskar hersveitir að leggja á flótta og segir að Úkraínumenn muni endurheimta landamæri sín á öllum vígstöðvum. 30.8.2022 11:50
Vill gera miklar breytingar á Evrópusambandinu Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, kallaði í gær eftir umfangsmiklum breytingum á Evrópusambandinu. Gera þyrfti sambandinu auðveldara að stækka og komast yfir innri deilur, samhliða því að gera því kleift að standa í hárinu á utanaðkomandi andstæðingum eins og Rússlandi og Kína. 30.8.2022 10:17
Selenskí varar innrásarhermenn í Kherson við yfirvofandi gagnárásum Úkraínuher hefur hafið gagnárás sína í suðurhluta Úkraínu, eftir að hafa unnið að því í nokkrar vikur að rjúfa birgðarlínur Rússa í Kherson og einangra innrásarhermenn þar. 30.8.2022 08:17
Dómur kveðinn upp í morði sem vakti heimsathygli í hlaðvarpsþáttum Hinn ástralski Chris Dawson hefur verið sakfelldur fyrir morðið á eiginkonu sinni Lynette Dawson, fjórum áratugum eftir að hún hvarf sporlaust. Mál Dawson hjónanna var tekið til rannsóknar hjá lögregluyfirvöldum að nýju eftir að ljósi var varpað á ný sönnunargögn í hlaðvarpsþáttunum The Teacher's Pet. 30.8.2022 08:04
Yfirvöld nota gervigreind til að finna faldar sundlaugar Yfirvöld í Frakklandi hafa notað gervigreind til að leita að sundlaugum í níu héruðum, sem íbúar hafa ekki gefið upp. Fleiri en 20 þúsund sundlaugar hafa fundist til þessa og fært skattayfirvöldum jafnvirði 1,4 milljarða króna í tekjur. 30.8.2022 07:45
Fimmtán látnir í átökum í Bagdad Að minnsta kosti fimmtán eru látnir eftir átök írakskra öryggissveita og stuðningsmanna valdamikils sjíaklerks í höfuðborginni Bagdad. Átökin blossuðu upp eftir að klerkurinn, Moqtada al-Sadr, tilkynnti að hann væri hættur í stjórnmálum. 30.8.2022 06:46
Nota gervigreind til að finna ótilkynntar sundlaugar Yfirvöld í Frakklandi hafa notað gervigreind til þess að finna sundlaugar í einkaeigu sem eigendur hafa ekki tilkynnt um. Gervigreindin hefur fundið yfir tuttugu þúsund sundlaugar í landinu hingað til. 29.8.2022 23:37
Þrír látnir eftir skotárás í matvörubúð í Oregon Þrír létu lífið í gærkvöldi í skotárás í matvörubúð í bænum Bend í Oregon. Grunaður árásarmaður er meðal þeirra látnu. 29.8.2022 22:19
Minnst 27 sentímetra hækkun sjávarmáls óumflýjanleg Búist er við 27 sentímetra hækkun á sjávarmáli að lágmarki vegna yfirvofandi bráðnunar jökulhetta á Grænlandi í kjölfar frekari hlýnunar jarðar. Þessi hækkun er sögð ekki taka til greina bráðnun annarsstaðar í heiminum en sú frá Grænlandi myndi ein valda fyrrnefndri hækkun enda um mikið magn íss að ræða eða 110 billjón tonn. 29.8.2022 20:08
Segir vatn þekja þriðjung landsins Loftslagsmálaráðherra Pakistan segir vatn þekja þriðjung landsins vegna mikillar rigningar og fjölda flóða þar í landi síðustu vikur. Síðasta sólarhring hafa 75 íbúar landsins látið lífið vegna flóðanna. 29.8.2022 19:47
Búið að bera kennsl á börnin í ferðatöskunum Lögreglunni á Nýja-Sjálandi hefur tekist að bera kennsl á lík tveggja barna sem fundust í ferðatöskum í borginni Auckland fyrir tveimur vikum síðan. Búið er að láta nánustu fjölskyldu barnanna vita af málinu og hafa þau óskað eftir því að nöfn þeirra verði ekki gerð opinber. 29.8.2022 17:42
Talinn hafa ætlað að stela ljónsungum en var drepinn Maður var drepinn af ljónum í dýragarði í Gana, eftir að hann fór yfir girðingu í dýragarði í Accra, höfuðborg landsins, í gær. Talið er að maðurinn hafi mögulega ætlað að stela tveimur sjaldgæfum hvítum hvolpum sem hafa vakið mikla athygli í dýragarðinum. 29.8.2022 15:01
Flaggskip breska flotans vélarvana Umfangsmikil bilun varð í vél stærsta herskips Bretlands og flaggskipi breska flotans, HMS Prince of Wales, í gær. Verið var að sigla skipinu til Ameríku þegar bilunin varð og var skipið skammt suður af Bretlandi, þar sem það lá við ankeri. 29.8.2022 14:32
Segjast hafa brotið sér leið í gegnum varnir Rússa Úkraínumenn segjast hafa gert umfangsmiklar gagnárásir gegn Rússum í Kherson-héraði í Suður-Úkraínu. Embættismenn segja gagnárásirnar hafa skilað árangri og þeir hafi brotið sér leið í gegnum varnir Rússa á svæðinu. 29.8.2022 11:24
Pakistanar kalla eftir aðstoð vegna gífurlegra flóða Ráðamenn í Pakistan segja ríkið nauðsynlega þurfa aðstoð til að bregðast við miklum flóðum þar í landi. Minnst þúsund eru látnir vegna flóðanna og eru þau sögð hafa valdið gífurlegum skaða víðsvegar um landið. 29.8.2022 10:51
Hætt við fyrsta geimskot Artemis-áætlunarinnar Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa hætt við að skjóta fyrsta geimfari Artemis-áætlunarinnar á loft í dag. Var það gert vegna bilunar í einum af fjórum aðalhreyflum Space Launch System-eldflaugarinnar. 29.8.2022 09:31
Hollenskur sérsveitarmaður lést af sárum sínum eftir skotárás í Bandaríkjunum Hollenskur sérsveitarmaður er látinn eftir að hann særðist alvarlega í skotárás fyrir utan hótel, sem hann dvaldi á, í Indianapolis í Bandaríkjunum fyrir þremur dögum síðan. 29.8.2022 08:16