Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hækkandi sjávarstaða og möguleiki á skyndiflóðum víða vegna Ian Fellibylurinn Ian kom til Georgetown í Suður-Karólínu um klukkan 18:00 á íslenskum tíma og hefur þegar látið til sín taka. Íbúar í Flórída eiga enn við afleiðingar veðursins sem geisaði þar þegar fellibylurinn átti leið hjá. 30.9.2022 21:45
Ekki lengur sent í sóttkví við komuna til Ástralíu Ástralía mun hætta að senda ferðalanga sem koma til landsins í sóttkví við komu frá og með 14. október næstkomandi. Landið hefur verið þekkt fyrir einar ströngustu reglur og viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum. 30.9.2022 20:31
Putin segir Vesturlönd sækja að Rússum með skemmdarverkum og úrkynjun Úkraína hefur óskað eftir aðild að Atlantshafsbandalaginu með hraði eftir að Rússlandsforseti setti á svið innlimun fjögurra héraða í landinu með athöfn í Kreml í dag. Utanríkisráðherra segir ekkert mark takandi á svo kölluðum kosningum í þessum héruðum þar sem varla fannst maður á móti innlimuninni. 30.9.2022 19:21
Svíar á svæðinu sólarhring áður en meint skemmdarverk átti sér stað Fjórir lekar fundust á Nord stream 1 og 2 gasleiðslurnar í Eystrasalti á dögunum og telur Atlantshafsbandalagið að um skemmdarverk hafi verið að ræða. Norrænir jarðskjálftamælar urðu varir við tvær sprengingar á svæðinu. Sænski sjóherinn sinnti eftirliti á svæðinu þangað til sólarhring áður en meintu skemmdarverkin áttu sér stað. 30.9.2022 18:37
„Þetta sýnir ekki styrk. Þetta sýnir veikleika“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), segir ólöglega innlimun Rússlands á fjórum héruðum Úkraínu vera mikla stigmögnun í tengslum við innrás Rússa hingað til. Ákvörðun Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, hefði þó ekki áhrif á eðli átakanna eða stuðning NATO við Úkraínu. 30.9.2022 17:09
Ian stefnir hraðbyri að Suður-Karólínu Íbúar við strendur Suður-Karólínu í Bandaríkjunum hafa flúið heimili sín og leitað á hærri svæði í aðdraganda þess að fellibylurinn Ian nær þar landi. Fellibylurinn hefur þegar valdið gífurlegum skaða á Kúbu og í Flórída en hefur safnað krafti á nýjan leik og veðurfræðingar búast við miklum flóðum í Charleston og víðar. 30.9.2022 16:31
Meðlimir sértrúarsafnaðar flúðu úr haldi í Mexíkó Um tuttugu meðlimir gyðinglegs sértrúarsafnaðar í Mexíkó flúðu úr haldi lögreglu. Húsleit var gerð í búðum safnaðarins fyrir helgi vegna gruns og mansal og alvarleg kynferðisbrot. 30.9.2022 15:38
Óska eftir skjótri inngöngu í NATO Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tilkynnti nú fyrir skömmu að ríkisstjórn hans hafi formlega sótt um skjóta inngöngu í Atlantshafsbandalagið (NATO). Það er í kjölfar þess að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skrifaði undir ólöglega innlimun fjögurra héraða Úkraínu. 30.9.2022 14:56
Bölsótaðist út í Vesturlönd Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að þau héruð Úkraínu sem hann innlimaði einhliða og ólöglega í rússneska sambandsríkið í dag tilheyri Rússlandi. Þau hafi tilheyrt rússneska keisaraveldinu og Sovétríkin hafi rekið Þjóðverja þaðan í seinni heimsstyrjöldinni. 30.9.2022 14:22
Ekki útilokað að Lula sigri strax í fyrstu umferð Skoðanakönnun sem var birt fyrir síðustu sjónvarpskappræður frambjóðenda í forsetakosningunum í Brasilíu benda til þess að Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrverandi forseti, gæti unnið endanlegan sigur strax í fyrstu umferð. Taugar eru þandar fyrir kosningarnar en Jair Bolsonaro forseti hefur ítrekað gefið í skyn að hann muni ekki viðurkenna úrslitin ef hann tapar. 30.9.2022 14:07
Umkringdir rússneskir hermenn sagðir hörfa frá Lyman Úkraínumenn eru sagðir hafa nánast umkringt hóp rússneskra hermanna í borginni Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Rússar eru sagðir undirbúa það að hörfa frá bænum á sama tíma og forseti Rússlands lýsir yfir innlimun héraðsins. 30.9.2022 12:16
Fyrstu myndirnar af vatnaveröldinni Evrópu í tuttugu ár Könnunarfarið Júnó er byrjað að senda myndir frá nærflugi sínu hjá ístunglinu Evrópu við Júpíter. Myndirnar eru þær fyrstu af tunglinu frá því að Galíleó flaug þar fram hjá fyrir 22 árum. Talið er að haf fljótandi vatns sé að finna undir ísilögðu yfirborði Evrópu þar sem líf gæti mögulega þrifist. 30.9.2022 11:24
Putin með sjónarspil í tilefni ólöglegrar innlimunar Í hádeginu fer fram athöfn í Kreml þar sem Vladimir Putin forseti Rússlands undirritar formlega yfirlýsingu um innlimun fjögurra héraða í Úkraínu í rússneska sambandslýðveldið. Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin muni aldrei viðurkenna þennan gjörning. 30.9.2022 11:24
NASA og SpaceX vilja lengja líftíma Hubble Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX hafa gert samkomulag um tilraunaverkefni sem snýr að því að hækka mögulega sporbraut geimsjónaukans Hubble og lengja líftíma hans. Það voru forsvarsmenn SpaceX og Polaris Program sem leituðu til NASA og lögðu til að möguleiki þess að þjónusta Hubble á þennan hátt, og mögulega aðra gervihnetti, yrði rannsakaður. 30.9.2022 10:27
Lekinn í Eystrasalti lítill hluti af losun manna á metani Þrátt fyrir að þúsundir tonna af jarðgasi velli út um göt á Nord Stream-gasleiðslunum tveimur er lekinn lítill í samanburði við aðra losun manna á metani. Áætlað er að ef allt gasið í leiðslunum læki út í andrúmsloftið næmi það um 0,1% af heildarlosun á metani í heiminum. 30.9.2022 09:35
Að minnsta kosti nítján látnir eftir árás á skóla í Kabúl Að minnsta kosti nítján eru látnir og á þriðja tug slasaðir eftir að sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á Kajj námsmiðstöðina í höfuðborg Afganistan í morgun. Nemendur voru í prófi þegar sprengingin varð en á svæðinu en enginn hefur tekið ábyrgð á árásinni enn sem komið er. 30.9.2022 08:05
23 látnir og 28 særðir eftir árás í Zaporizhzhia Að minnsta kosti 23 eru látnir og 28 særðir eftir árás á bílalest almennra borgara í Zaporizhzhia. Úkraínumenn segja Rússa hafa staðið að árásinni en Rússar segja Úkraínumenn ábyrga. 30.9.2022 07:50
Fjöldi látinna í Flórída á reiki eftir fellibylinn Ian Fellibylurinn Ian sem gekk á land í Flórída á miðvikudag stefnir nú á Suður-Karólínu en fjölmargir íbúar flúðu úr stærstu borg ríkisins, Charleston, í gær. Ríkisstjóri Flórída segir ljóst að fellibylurinn, sem er einn sá stærsti í sögu Bandaríkjanna, hafi verið mannskæður en verið er að staðfesta fjölda látinna. 30.9.2022 07:30
Ian gæti orðið sá mannskæðasti í sögu Flórída Fellibylurinn Ian, sem gekk á land í Flórída í Bandaríkjunum í gær, hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar og óttast er að hann sé mannskæðasti fellibylur í sögu Flórída. Íbúðarhús eru víða gjörónýt, þak fauk af spítala, vegir skemmdust og brýr hrundu. 29.9.2022 20:10
Liz Truss gefur ekkert eftir varðandi skattalækkanir Liz Truss forsætisráðherra Bretlands varði í dag nýlegar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem meðal annars fela í sér miklar skattalækkanir á hina efnameiri. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við stefnunni og áhrifum hennar á alþjóðlega markaði og hvatti bresku stjórnina í vikunni til að draga þær til baka. 29.9.2022 19:41
Hafi beðið Taívan um milljarð dala til þess að tryggja bandalagið Forseti Paragvæ, Mario Abdo Benítez er sagður hafa beðið taívönsk stjórnvöld um að fjárfesta í bandalagi ríkjanna tveggja fyrir einn milljarð dollara eða rúmlega 147 milljarða króna. Fjárfestinguna er hann sagður biðja um til þess að fá hvata til að láta ekki undan þrýstingi og gerast bandamaður Kína. 29.9.2022 15:20
Sást til rússneskra herskipa nærri lekastaðnum í vikunni Evrópskar öryggisstofnanir eru sagðar hafa fylgst með ferðum rússneskra herskipa nærri staðnum þar sem lekar komu á Nord Stream-gasleiðslurnar í Eystrasalti í vikunni. Atlantshafsbandalagið telur að um skemmdarverk hafi verið að ræða. 29.9.2022 14:04
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar veikja varnir sínar í vestri vegna innrásarinnar Úkraínskir hermenn eru sagðir nærri því að umkringja stóran hóp rússneskra hermanna í bænum Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Þorp víðs vegar um bæinn hafa verið frelsuð og er útlit fyrir að Rússar eigi einungis eina undankomuleið frá Lyman. 29.9.2022 14:00
Drottningin lést úr elli Elísabet II. Bretlandsdrottning lést úr elli, 96 ára að aldri. Dánarvottorð hennar var gefið út í dag. 29.9.2022 13:35
Fellibylurinn í myndskeiðum: Ian skilur eftir sig mikla eyðileggingu í Flórída Útlit er fyrir að fellibylurinn Ian, sem gekk á land í Flórída í Bandaríkjunum í gær, hafi valdið gífurlegum skemmdum í sjávarbyggðum þar. Myndbönd frá Flórída sem tekin voru í gær og í nótt sýna að sjór gekk langt inn á land og olli mikilli eyðileggingu. 29.9.2022 11:38
Ætlar að innlima héruðin á morgun Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlar að skrifa undir innlimun fjögurra héraða Úkraínu á morgun, föstudag. Þetta tilkynnti Kreml nú fyrir skömmu og sagði að klukkan þrjú á morgun, að staðartíma, myndi Pútín skrifa undir innlimun héraðanna í rússneska sambandsríkið og halda ræðu í kjölfarið. 29.9.2022 10:13
Tvær milljónir án rafmagns og fólk innlyksa eftir Ian Fjöldi fólks er innlyksa í húsum sínum vegna flóða og tvær milljónir manna eru án rafmagns á suðvestanverðum Flórídaskaga í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Ian gekk þar yfir í nótt. Fellibylurinn er einn sá öflugasti sem gengið hefur á land í Bandaríkjunum. 29.9.2022 09:05
Svíar fundu fjórða lekann og Rússar benda á Bandaríkjamenn Sænska landhelgisgæslan hefur fundið fjórða gaslekann á Nord Stream gasleiðslunum, samkvæmt Svenska Dagbladet. Blaðið hefur eftir talsmanni landhelgisgæslunnar að tveir af lekunum fjórum séu í sænskri lögsögu en hinir tveir eru í danskri lögsögu. 29.9.2022 07:30
Ian muni valda gríðarlegri eyðileggingu í Flórída Fellibylurinn Ian hefur hefur valdið gríðarlegum flóðum á vesturströnd Flórída síðan hann gekk á land í kvöld, klukkan sjö að íslenskum tíma. Ríkisstjóri segir viðbúið að fellibylurinn muni skilja eftir sig gríðarlegar rústir. Bylurinn hefur þegar valdið tveimur dauðsföllum á Kúbu og rafmagnsleysi um alla eyjuna. 28.9.2022 23:40
„Þau hafa gott af þessu“ Margrét Danadrottning segir að barnabörn hennar sem svipt voru titlum sínum fyrr í dag hafi gott af því. Börn Jóakims Prins munu í framtíðinni ekki bera titlana prinsar og prinsessur en fá enn að vera greifar og greifynjur af Monpezat. 28.9.2022 19:20
Leppstjórar biðja Pútín um innlimun Leppstjórar Rússlands í Luhansk- og Donetsk-héruðum hafa beðið Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að lýsa yfir innlimun héraðanna og annarra í rússneska sambandsríkið. Búist er við því að Pútín muni lýsa yfir innlimuninni á komandi dögum. 28.9.2022 14:46
Telja gasleiðslurnar geta skemmst varanlega Óttast er að rússnesku gasleiðslurnar tvær í Eystrasalti kunni að skemmast varanlega eftir skemmdarverk sem virðast hafa verið unnin á þeim. Þýski sjóherinn ætlar að taka þátt í rannsókn á lekanum. 28.9.2022 14:36
Börn Jóakims prins svipt titlum sínum Margrét Þórhildur Danadrottning hefur ákveðið að börn Jóakims prins beri í framtíðinni ekki titlana prins og prinsessur. Breytingin tekur gildi þann 1. janúar 2023. Breytingin nær bæði til barnanna tveggja sem hann á með fyrrverandi eiginkonu sinni Alexöndru greyfynju og þeirra tveggja sem hann á með Marie prinsessu, núverandi eiginkonu. 28.9.2022 14:09
Milljónum sagt að flýja undan Ian sem nálgast fimmta stigið Fellibylurinn Ian stefnir hraðbyri á Flórída í Bandaríkjunum eftir að hafa valdið mikilli eyðileggingu og dauðsföllum á Kúbu. Heitur sjór á Mexíkóflóa hefur gefið fellibylnum aukinn kraft og er hann skilgreindur sem fjórða stigs fellibylur og sagður nálægt fimmta stiginu. 28.9.2022 12:21
Siðgæðislögreglan sögð horfin af strætum og torgum Ekkert hefur sést til fulltrúa siðgæðislögreglu sem á að fylgjast með klæðaburði kvenna á strætum Teheran í Íran undanfarna daga. Raddir um að slaka ætti á ströngum reglum um klæðaburð kvenna hafa orðið háværari eftir dauða ungrar konu í haldi siðgæðislögreglunnar fyrr í þessum mánuði. 28.9.2022 12:20
Skaut fast á Repúblikana fyrir fylgispekt þeirra við Trump Dómari fór hörðum orðum um Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og leiðtoga Repúblikanaflokksins fyrir ítrekaðar lygar þeirra um kosningasvik í Bandaríkjunum. Hún sagði Trump hafa gert háttsetta Repúblikana lafandi hrædda við að missa völd sín svo þeir þorðu ekki að fara gegn honum. 28.9.2022 11:11
Óttast loftslagsstórslys vegna gaslekans Losun gróðurhúsalofttegunda frá lekanum í Nord Stream-gasleiðslunum tveimur í Eystrasalti gæti jafnast á við árslosun heillrar borgar. Vísindamenn óttast loftslagshamfarir en losun vegna lekans gæti í versta falli orðið umtalsvert meiri en árslosun Íslands. 28.9.2022 10:54
Fundu lík Hilaree Nelson í hlíðum Manaslu Leitarteymi í Nepal hefur fundið lík bandarísku útivistarkonunnar Hilaree Nelson í hlíðum fjallsins Manaslu í Himalayja-fjöllunum. BBC greinir frá. 28.9.2022 10:17
Hvetja bresk stjórnvöld til að endurskoða skattalækkunaráform Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur bresku ríkisstjórnina til að endurskoða áform sín um stórfelldar skattalækkanir. Hagfræðingar sjóðsins vara við því að aðgerðin verði eldsneyti á frekara verðbólgubál og magni upp ójöfnuð. 28.9.2022 08:54
Rafmagnslaust á Kúbu vegna fellibylsins Ian Rafmagn er farið af á allri Kúbu eftir að fellibylurinn Ian gekk yfir vesturhluta eyjarinnar í gær og í nótt. 28.9.2022 07:07
Segja 99,23 prósent hafa stutt tillögu um að heyra undir Rússland Talsmenn leppstjórna Rússa í fjórum úkranskum hérðuðum hafa lýst því yfir að yfirgnæfandi meirihluti hafi greitt atkvæði með því að heyra undir Rússland, í svokölluðum „þjóðaratkvæðagreiðslum“ sem boðað var til og haldnar í gær. 28.9.2022 06:27
Gerir son sinn að forsætisráðherra Konungur Sádi-Arabíu hefur skipað son sinn og erfingja í stöðu forsætisráðherra landsins. Annar sonur hans verður varnarmálaráðherra og þriðji sonurinn orkumálaráðherra. 27.9.2022 20:25
Danir telja sprengingarnar hafa verið skemmdarverk Forsætisráðherra Danmerkur sagði á blaðamannafundi fyrr í kvöld að dönsk yfirvöld telji að sprengingarnar tvær, sem ollu leka á Nord stream gasleiðslunum í gær, hafi verið skemmdarverk. Hún sagðist þó ekkert geta gefið upp um hverjir eru taldir standa að baki skemmdarverkum. 27.9.2022 19:52
„Þetta land er Úkraína“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), segir væntanlega innlimun Rússa á fjórum héruðum Úkraínu vera marklausa og alvarlegt brot á alþjóðalögum. Hann segir að ríki NATO muni ekki láta af stuðningi við rétt Úkraínumanna til fullveldis og sjálfsvarnar og að sviðsettar atkvæðagreiðslur Rússa hafi ekki lögmæti. 27.9.2022 16:56
Hinsegin fólk óttast um hag sinn undir róttækri hægristjórn Orðræða og stefnuskrár tveggja róttækra hægriflokka sem unnu sigur í ítölsku þingkosningunum um helgina vekja ugg á meðal hinsegin fólks í landinu. Líklegasta forsætirsáðherraefnið hefur sagst óvinur „LGBT-þrýstihópsins“ og „kynjaðrar hugmyndafræði“. 27.9.2022 14:01