Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Árásarmaðurinn öskraði „Hvar er Nancy?“ Maðurinn sem braust inn á heimili Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í nótt og réðst á eiginmann hennar með hamri var að leita að henni. Heimildarmenn fjölmiðla vestanhafs segja manninn hafa öskrað: „Hvar er Nancy?“ þegar hann réðst á Paul Pelosi. 28.10.2022 17:01
Njósnarinn í Tromsö sagður vera ofursti í GRU Yfirvöld í Noregi hafa nafngreint rússneskan njósnara sem handtekinn var nýverið í Tromsö. Sá heitir Mikhail Valerievich Mikushin og er fæddur árið 1978 í Rússlandi. Hann er talinn vera ofursti í GRU, leyniþjónustu rússneska hersins. 28.10.2022 15:40
Brotist inn á heimili Pelosi og ráðist á eiginmann hennar Paul Pelosi, eiginmaður Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, varð fyrir árás eftir að maður braust inn á heimili þeirra hjóna í San Francisco. Paul var fluttur á sjúkrahús er talið að hann muni ná sér að fullu en Nancy var ekki á heimilinu. 28.10.2022 13:23
Segja mögulegt að skjóta niður bandaríska gervihnetti Rússar segjast mögulega geta skotið niður gervihnetti Bandaríkjanna sem notaðir eru til að afla upplýsinga fyrir Úkraínumenn eða hjálpa þeim að öðru leyti. 28.10.2022 12:27
Marsskjálftamælir nam stóran loftsteinaárekstur Tvíeyki bandarískra geimkönnunarfara náðu í sameiningu að verða vitni að því þegar stór loftsteinagígur myndaðist á yfirborði Mars í fyrra. Það sem árekturinn leiddi í ljós gætti haft þýðingu fyrir mannaða leiðangra til reikistjörnunnar í framtíðinni. 28.10.2022 11:32
Samkomulag um að banna nýja jarðefnaeldsneytisbíla í höfn Evrópusambandið náði samkomulagi um lög sem myndu í reynd banna nýja bensín- og dísilbíla frá og með árinu 2035 í dag. Samkvæmt því þurfa bílaframleiðendur að ná 100% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda innan þrettán ára. 28.10.2022 08:37
Varað við eldgosi á stærstu eyju Havaí Yfirvöld á bandarísku Kyrrahafseyjunni Havaí vara íbúa við að Mauna Loa, stærsta virka eldfjall eyjanna, gæti verið við það að gjósa. Jarðskjálftavirkni við tind fjallsins hefur aukist að undanförnu en Mauna Loa gaus síðast fyrir tæpum fjörutíu árum. 28.10.2022 08:07
Segir Rússa hafa gert þrjátíu drónaárásir á tveimur dögum Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sagði í reglulegu ávarpi sínu í nótt að Rússar hafi gert fleiri en þrjátíu árásir með drónum á Úkraínskar borgir síðustu tvo dagana. 28.10.2022 07:34
Sleppir loftslagsráðstefnunni og ýtir embættismönnum úr stjórninni Rishi Sunak, nýr forsætisráðherra Bretlands, ætlar ekki að taka þátt í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi í næsta mánuði. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að hann ýtti bæði forseta ráðstefnunnar og loftslagsráðherranum út úr ríkisstjórninni. 28.10.2022 07:34
Telja Kínverja hafa sett upp ólöglegar lögreglustöðvar í Hollandi Utanríkisráðuneytið í Hollandi segist vera að rannsaka það hvort Kínverjar hafi sett upp ólöglegar lögreglustöðvar í Rotterdam og Amsterdam. Hollenskir miðlar hafa fjallað um málið síðustu daga og telja kínverska ríkið bera ábyrgð á stöðvunum. 27.10.2022 22:33
Segir næsta áratug þann hættulegasta frá seinni heimsstyrjöldinni Heimsbúar standa frammi fyrir hættulegasta áratug heimsins frá seinni heimsstyrjöldinni. Þetta sagði Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í ræðu sem hann flutti í dag þar sem hann sakaði meðal annars Vesturlönd um að bera ábyrgð á innrás hans í Úkraínu og valda usla í heiminum. 27.10.2022 21:53
Fannst látin í lendingarbúnaði flugvélar Starfsmenn Lufthansa fundu lík í lendingarbúnaðsrými flugvélar flugfélagsins eftir lendingu í Frankfurt. Flugvélin hafði verið að fljúga frá Teheran, höfuðborg Íran. 27.10.2022 21:14
Einn látinn og leikmaður Arsenal meðal særðra eftir hnífaárás í verslunarmiðstöð Pablo Marí, leikmaður Arsenal sem nú er á láni hjá ítalska félaginu Monza, var stunginn þegar maður gekk berserksgang í verslunarmiðstöð á Ítalíu fyrr í kvöld. Leikmaðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður, en í það minnsta einn er látinn eftir árásina. 27.10.2022 19:43
Önnur árás framin á meðan forsetahjónin heiðruðu fórnarlömb Forsetahjón Íslands eru í opinberri heimsókn í Slóvakíu þessa dagana. Í morgun lögðu þau kerti á minnisvarða um tvö fórnarlömb skotárásar sem framin var fyrir framan skemmtistað hinsegin fólks í landinu á dögunum. Á sama tíma og þau gerðu það bárust fregnir af annarri árás á hinsegin hjón. 27.10.2022 19:10
Skildu eftir sig skjöl sem varpa ljósi á vandræði Rússa Þegar hersveitir Rússa hörfuðu með hraði frá austanverðu Kharkív-héraði í Úkraínu í september, skyldu þeir ýmislegt eftir sig. Þar á meðal mikið magn þungavopna eins og skrið- og bryndreka auk stórskotaliðsvopna. Þeir skyldu þó einnig eftir sig mikið magn gagna. 27.10.2022 15:15
Telja að orkukreppan geti hraðað orkuskiptunum Hækkandi orkuverð vegna stöðu efnahagsmál og stríðsins í Úkraínu gæti leitt til þess að heimsbyggðin skipti hraðar yfir í endurnýjanlega orkugjafa, að mati Alþjóðaorkumálastofnunarinnar. Hún spáir nú í fyrsta skipti að útlit að losun vegna jarðefnaeldsneytis nái hámarki um miðjan áratuginn. 27.10.2022 14:08
Herða bann við „hinsegin áróðri“ í Rússlandi Rússneska þingið samþykkti að herða núgildandi bann við svonefndum „hinsegin áróðri“ þannig að það nái ekki lengur aðeins til barna og ungmenna heldur fólks af öllum aldri. Þannig verður nú hægt að sekta vegna viðburða, kvikmynda eða vefsíða sem eru talnar auglýsa samkynhneigð. 27.10.2022 10:12
Ye vísað á dyr í höfuðstöðvum Skechers Tónlistarmanninum og fatahönnuðinum Ye, áður Kanye West, var vísað á dyr þegar hann mætti óboðinn í höfuðstöðvar Skechers í Los Angeles í gær. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að Ye og föruneyti hans hafi verið fylgt út eftir stutt samtal. 27.10.2022 07:56
Selenskí segir hegðun Rússa brjálæðislega Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sakar rússneska herforingja úr innrásarliðinu um brjálæðislega hegðun þegar kemur að því að reyna að ná bænum Bakhmut á sitt vald. 27.10.2022 06:56
Kaka á andlit konungs, götulokanir og eignaspjöll Samtökin Just Stop Oil hafa nú mótmælt 26 daga í röð framleiðslu ríkja á jarðefnaeldsneyti. Meðlimir samtakanna hafa gert ýmislegt til að vekja athygli fólks á málstað sínum. 26.10.2022 23:25
Óttast dreifingu ebólu í höfuðborg Úganda Sex börn úr sömu fjölskyldunni í Kampala, höfuðborg Úganda, hafa greinst með ebólu. Yfirvöld óttast að útbreiðslan verði hraðari nú þegar hún hefur náð til þéttbýlli svæða landsins. 26.10.2022 20:45
Pýtonslanga gleypti konu í Indónesíu Pýtonslanga gleypti konu á sextugsaldri á eyjunni Súmötru í Indónesíu á sunnudagskvöld. Atvikið átti sér stað á plantekru þar sem konan starfaði. 26.10.2022 20:44
Nunnur og prestar horfi á klám, sem þó sé verkfæri djöfulsins Frans páfi, æðsti maður innan kaþólsku kirkjunnar, hefur varað við því að prestar og nunnur horfi á klám á netinu. Hann segir klám vera til þess fallið að veikja prestshjartað, auk þess sem það sé verkfæri djöfulsins. 26.10.2022 19:23
Fundinn sekur í öllum ákæruliðum eftir skrautleg réttarhöld Hinn bandaríski Darrell Brooks hefur verið fundinn sekur um sex morð að yfirlögðu ráði, þegar hann ók bifreið sinni inn í jólaskrúðgöngu í Waukesha, úthverfi Milwaukee í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum, í nóvember á síðasta ári. Réttarhöldin yfir honum vöktu mikla athygli, en hann kaus að verja sig án aðstoðar lögmanns. 26.10.2022 17:47
Sakfelldir fyrir ráðabrugg um að ræna ríkisstjóra Þrír karlmenn á þrítugs og fimmtungsaldri voru sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Mennirnir tilheyrðu vopnaðri öfgasveit sem mislíkaði aðgerðir Whitmer til að stemma stigu við kórónuveirufaraldrinum. 26.10.2022 16:02
Skutu á mótmælendur við leiði Amini Vitni segja öryggissveitir í Íran hafa skotið á syrgjendur sem komið höfðu saman við gröf Masha Jina Amini í dag. Þar hafði fólk komið saman vegna þess að fjörutíu dagar eru liðnir síðan hún dó í haldi lögreglunnar. 26.10.2022 15:16
Styrkur metans aldrei aukist eins mikið frá upphafi mælinga Hlutfall gróðurhúsalofttegundarinnar metans í andrúmslofti jarðar hefur aldrei aukist jafna mikið og í fyrra frá því að mælingar hófust. Styrkur þriggja helstu gróðurhúsalofttegundanna í lofthjúpnum náði methæðum árið 2021. 26.10.2022 15:01
Útlitið dökknar fyrir demókrata á lokasprettinum Merkjanleg sveifla í átt að Repúblikanaflokknum er í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum sem fara fram eftir tvær vikur. Demókratar óttast nú að tapa yfirráðum í báðum deildum þingsins. 26.10.2022 14:06
Skaut tvo til bana en var með sex hundruð skot: „Þetta hefði getað farið mun verr“ Ungur maður sem skaut kennara og fimmtán ára stúlku til bana í St. Luis í Bandaríkjunum í vikunni var vopnaður hálfsjálfvirkum riffli og var með sex hundruð skot. Sjö nemendur særðust eða slösuðust einnig í árásinni áður en lögregluþjónar skutu hinn nítján ára gamla Orlando Harris til bana. 26.10.2022 12:09
Eitt fyrstu verka Sunaks að hringja til Úkraínuforseta Rishi Sunak nýr forsætisráðherra Bretlands hét forseta Úkraínu í gær áframhaldandi stuðningi Breta í baráttunni gegn innrás Rússa. Forseti Þýskalands dáðist af hughrekki Úkraínumanna í heimsókn til Kænugarðs í gær og lofaði aukinni hernaðaraðstoð. 26.10.2022 11:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum. 26.10.2022 11:07
Telja keisaramörgæsina nú í útrýmingarhættu Bandarísk stjórnvöld settu keisaramörgæsina á lista yfir dýrategundir sem eru taldar í hættu á útrýmingu í gær. Hnattræn hlýnun og bráðnun hafíss við Suðurskautslandið er talin ógna þessari stærstu mörgæsartegund jarðar. 26.10.2022 09:10
Stefnir í tveggja og hálfrar gráðu hlýnun á meðan ríki draga lappirnar Útlit er fyrir að hnattræn hlýnun nái tveimur og hálfri gráðu fyrir lok aldarinnar ef ríki heims auka ekki metnað sinn í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er heilli gráðu meira en stefnt er að með Parísarsamkomulaginu til þess að forðast verstu afleiðingar loftslagsbreytinga. 26.10.2022 08:42
Bólusetja gegn kórónuveirunni með munnúða Kínverjar hafa, fyrstir þjóða, hafið bólusetningar gegn COVID-19 með munnúða í stað sprautu. 26.10.2022 08:37
Heita fordæmalausum viðbrögðum ef Norður-Kórea hefur kjarnorkuvopnatilraunir á ný Fulltrúar Bandaríkjanna, Japan og Suður-Kóreu hafa varað við fordæmalausum viðbrögðum ef Norður-Kórea framkvæmir sjöundu tilraun sína með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld Vestanhafs og bandamenn þeirra grunar að kjarnorkuvopnatilraunir Norður-Kóreu séu að hefjast á ný. 26.10.2022 08:10
Finnskur fjöldamorðingi á flótta handtekinn Lögregla í Finnlandi handtók í gærkvöldi fangann Juha Valjakkala eftir að hann hafði flúið úr opnu fangelsi. Valjakkala var handtekinn eftir að ábendingar bárust frá almenningi. 26.10.2022 08:02
Hvetja þá sem hafa flúið til að halda sig erlendis út veturinn Stjórnvöld í Úkraínu hafa biðlað til þeirra Úkraínumanna sem hafa flúið land frá því að Rússar hófu innrás sína í febrúar síðastliðnum, um að snúa ekki aftur fyrr en í vor. Orkuinnviðir landsins ráði einfaldlega ekki við mannfjöldann. 26.10.2022 07:12
Rússar búa sig undir árás á Kherson Rússneskar hersveitir í Kherson héraði búa sig nú undir mikinn bardaga við úkraínska herinn að sögn úkraínsks embættismanns. 26.10.2022 06:52
Setti bókstafinn Z á bílinn og fékk hálfa milljón í sekt Manni í Þýskalandi hefur verið gert að greiða fjögur þúsund evrur, eða rúmar 570 þúsund krónur, í sekt fyrir að hafa sett bókstafinn Z á bílinn sinn. Merkið hefur verið notað til marks um stuðning við innrás Rússa í Úkraínu. Maðurinn hefur áfrýjað. 25.10.2022 23:28
Happdrætti fyrir þá sem lenda í miðjusætinu Farþegar ástralska flugfélagsins Virgin Australia sem lenda í því að þurfa að sitja í miðjusætinu í flugferðum félagsins verða skráðir í happdrætti. Þyrlu-pöbbarölt og fríar flugferðir eru meðal vinninga. 25.10.2022 22:41
Nýr kafli í samskiptum Bretlands og Úkraínu Vólódímír Selenksí Úkraínuforseti segir nýjan kafla í samskiptum Bretlands og Úkraínu vera að hefjast. Hann tekur vel á móti nýkjörnum kollega sínum. 25.10.2022 22:14
Lést nokkrum mánuðum eftir fyrsta baðið í sextíu ár Amou Haji, oftast þekktur sem skítugasti maður heims, er látinn, 94 ára að aldri. Skömmu fyrir andlátið hafði Haji þvegið sér í fyrsta sinn í yfir sextíu ár. Hann lést í heimaþorpi sínu Dejgah í vesturhluta Íran. 25.10.2022 21:33
Sunak segir heilindi og fagmennsku verða hans leiðarljós Nýr forsætisráðherra Bretlands segist þegar ætla að hefjast handa við að leiðrétta þau mistök sem gerð hefðu verið í hagstjórninni undir stjórn fyrrverandi forsætisráðherra. Stjórn hans muni hafa heilindi, fagmennsku og ábyrgð að leiðarljósi. 25.10.2022 19:30
Kallaði nýja forsætisráðherrann Rashee Sanook Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, var ekki með nafn Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, á hreinu þegar hann óskaði honum til hamingju með nýja starfið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem seinheppni forsetans þegar kemur að orðavali vekur athygli. 25.10.2022 18:21
Rottur þjálfaðar til þess að bjarga fólki eftir jarðskjálfta Verið er að þjálfa rottur til þess að finna fólk sem festist í rústum eftir jarðskjálfta. Rotturnar eru þá látnar bera lítinn bakpoka sem dugi meðal annars sem einskonar staðsetningartæki. 25.10.2022 18:01