Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gunnhildur Yrsa ekki sátt með ákvarðanir FIFA: „Heimurinn er ekki öruggur fyrir samkynhneigða“ „Heimurinn er ekki öruggur fyrir samkynhneigðra, það er bara þannig, og því miður ýtir framkoma FIFA undir ástandið. Ég hef verið stolt af því að spila fótbolta, að allir væru velkomnir, en í dag líður mér ekki þannig,“ segir landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir á Twitter-síðu sinni. 29.11.2022 07:01
Einn úr starfsliði Gana smellti af sjálfu með súrum Son eftir sigur Gana á Suður-Kóreu Gana vann frábæran 3-2 sigur á Suður-Kóreu í H-riðli heimsmeistarakeppninnar í fótbolta. Eftir leik ákvað einn úr starfsliði Gana að smella af sjálfu með tárvotum Son Heung-min, leikmanni Tottenham Hotspur og fyrirliða Suður-Kóreu. 28.11.2022 23:30
Agnelli, Nedvěd og öll stjórn Juventus segir af sér Þau stórtíðindi bárust í kvöld að öll stjórn ítalska knattspyrnuliðsins Juventus hafi sagt af sér. Þar á meðal er forsetinn Andrea Agnelli og varaforsetinn Pavel Nedvěd en sá síðarnefndi lék á sínum tíma með liðinu. 28.11.2022 22:15
Bruno Fernandes skaut Portúgal í sextán liða úrslit Portúgal er komið í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 2-0 sigur á Úrúgvæ. Bruno Fernandes með bæði mörkin þó svo að Cristiano Ronaldo hafi reynt að sannfæra alla og ömmu þeirra um að hann hefði skorað fyrra mark leiksins. 28.11.2022 21:00
Nkunku fer til Chelsea næsta sumar Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir að franski sóknarmaðurinn Christopher Nkunku fari til enska fótboltafélagsins Chelsea sumarið 2023. Nkunku á að baki 8 A-landsleiki fyrir Frakkland og var einn þeirra sem átti að fara til Katar þar sem HM fer nú fram. Hann þurfti hins vegar að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. 28.11.2022 20:30
Dregið í þriðju umferð FA bikarsins: Manchester City mætir Chelsea Dregið var í þriðju umferð FA bikarsins á Englandi nú rétt í þessu. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Englandsmeistara Manchester City og Chelsea. 28.11.2022 20:01
Ingunn úr Vesturbænum í Laugardalinn Ingunn Haraldsdóttir, fyrrverandi fyrirliði KR, er gengin í raðir Þróttar og mun leika með liðinu í Bestu deild kvenna á næstu leiktíð. Ingunn var samningslaus og því þarf Þróttur ekki að greiða fyrir miðvörðinn öfluga. 28.11.2022 19:30
Casemiro skaut Brasilíu í sextán liða úrslit Brasilía er komin í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 1-0 sigur á Sviss. Miðjumaðurinn Casemiro skaut Brasilíu áfram með marki þegar lítið var eftir af venjulegum leiktíma. 28.11.2022 17:55
Hótar Messi eftir að hann sá hvað hann gerði í klefanum eftir leik Argentína vann lífsnauðsynlegan sigur á Mexíkó á heimsmeistaramótinu í Katar um helgina en tap hefði þýtt að argentínska landsliðið væri úr leik á mótinu. 28.11.2022 16:31
KSÍ segir ráðuneytið hafa gefið grænt ljós á samning við Sáda Utanríkisráðuneytið sá ekkert athugavert við fyrirhugað samstarf og landsleik á milli Íslands og Sádi-Arabíu í fótbolta, samkvæmt svari við fyrirspurn Knattspyrnusambands Íslands á síðasta ári. 28.11.2022 16:14
Kudus hetja Gana sem lifði af kjaftshöggið Gana fékk sín fyrstu stig í H-riðli HM karla í fótbolta þegar liðið vann Suður-Kóreu, 3-2, í bráðfjörugum leik í Katar í dag. 28.11.2022 15:02
Hetja Þjóðverja fékk tönn inn í sig eins og Jónatan Niclas Füllkrug er á allra vörum í Þýskalandi eftir að hafa haldið góðu lífi í HM-þátttöku Þjóðverja með jöfnunarmarki sínu gegn Spáni í Katar í gær. 28.11.2022 13:30
Eftirminnileg innkoma Aboubakars í einum besta leik mótsins Vincent Aboubakar átti eftirminnilega innkomu þegar Kamerún gerði 3-3 jafntefli við Serbíu í G-riðli heimsmeistaramótsins í Katar í dag. 28.11.2022 12:00
Bannað að skalla boltann daginn fyrir og daginn eftir leik Skotar ætla að stíga stórt skref í átt að því að verja knattspyrnufólk sitt fyrir höfuðhöggum tengdum fótboltaiðkun. 28.11.2022 11:00
Íranir vilja sparka Bandaríkjamönnum af HM Íranska knattspyrnusambandið hefur sent inn formlega kvörtun til FIFA vegna Bandaríkjanna. 28.11.2022 10:00
Aðalmarkvörður Kamerún í agabann André Onana mun ekki standa í marki Kamerún í dag þegar liðið mætir Serbíu á heimsmeistaramótinu í Katar. 28.11.2022 09:22
Réðst á markvörð með hornfána Undarlegt atvik átti sér stað í leik í tyrknesku B-deildinni þegar áhorfandi lamdi markvörð í höfuðið með hornfána. 28.11.2022 08:31
Belgíska pressan harðorð: „Getur einhver hrist De Bruyne til lífsins?“ Fjölmiðlar í Belgíu fóru ófögrum orðum um frammistöðu belgíska landsliðsins gegn Marokkó á HM í Katar í gær. Kevin De Bruyne fékk sérstaklega að finna fyrir því. 28.11.2022 08:01
Kviðmágarnir á sama hóteli í Katar Fornu fjendurnir John Terry og Wayne Bridge ku vera á sama hótelinu í Katar þar sem heimsmeistaramótið í fótbolta fer fram. 28.11.2022 07:30
Sjáðu hópslagsmálin þegar allt sauð upp úr í leik Zenit og Spartak Zenit St. Pétursborg og Spartak Moskva áttust við í rússneska bikarnum í knattspyrnu á sunnudag. Það væri ekki frásögu færandi nema fyrir þá staðreynd að það sauð allt upp úr í leiknum og á endanum fengu sex leikmenn rautt spjald eftir hópslagsmál undir lok leiks. Þá höfðu alls tíu gul spjöld farið á loft í venjulegum leiktíma. 28.11.2022 07:01
Landsliðsmarkvörðurinn Sandra um HM í Katar: „Þetta er högg í magann“ Sandra Sigurðardóttir, markvörður Íslands- og bikarmeistara Vals sem og íslenska landsliðsins, var gestur í Silfrinu á RÚV í dag. Hún segir það högg í magann fyrir baráttu samkynhneigðra að heimsmeistaramót karla í knattspyrnu sé haldið í Katar. 27.11.2022 23:00
Messi færist nær Miami Lionel Messi mun að öllum líkindum ganga í raðir Inter Miami í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í sumar. Hann yrði launahæsti leikmaður í sögu deildarinnar. Messi er ekki eini leikmaðurinn orðaður við Inter Miami en Sergio Busquets, fyrirliði spænska landsliðsins, er einnig sagður vera á leiðinni til félagsins. 27.11.2022 22:01
Þjóðverjar halda í vonina eftir jafntefli við Spán Spánn og Þýskaland gerðu 1-1 jafntefli í stórleik dagsins á HM í fótbolta. Að liðin deili með sér stigunum þýðir að Spánn er í kjörstöðu til að fara áfram í 16-liða úrslit þökk sé ótrúlegum 7-0 sigri á Kosta Ríka í fyrstu umferð mótsins. Þýskaland þarf hins vegar sigur gegn Kosta Ríka í lokaumferðinni sem og að treysta á að Spánn vinni Japan. 27.11.2022 21:00
Dagný skoraði og Glódís Perla hélt hreinu Fyrirliðinn Dagný Brynjarsdóttir skoraði annað mark West Ham United í 2-0 sigri á Birmingham City í enska deildarbikarnum í fótbolta í dag. Þá stóð Glódís Perla Viggósdóttir vaktina í hjarta varnar Bayern München sem vann sannfærandi 2-0 sigur á Essen í þýsku úrvalsdeildinni í dag. 27.11.2022 18:46
Frábær endurkoma Króatíu sem ætlar sér langt í Katar Þrátt fyrir að lenda undir snemma leiks þá sneri Króatía taflinu sér í við og vann á endanum magnaðan 4-1 sigur á Kanada í F-riðli HM karla í fótbolta. 27.11.2022 18:00
Íhuga að fá Pulisic á láni til að fylla skarð Ronaldo Forráðamenn Manchester United íhugðu að sækja bandaríska landsliðsmanninn Christian Pulisic á láni frá Chelsea síðasta sumar. Áhuginn er enn sá sami og gæti Man United reynt að fá leikmanninn í sínar raðir þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. 27.11.2022 17:00
Marokkó galopnaði F-riðilinn með sigri gegn Belgum Marokkó vann mikilvægan 2-0 sigur er liðið mætti Belgíu í F-riðli heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu sem fram fer í Katar. Með sigrinum stökk marokkóska liðið á topp riðilsins. 27.11.2022 15:00
Sveindís og stöllur styrktu stöðu sína á toppnum með stórsigri Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg unnu öruggan sigur er liðið heimsótti Köln í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur 0-4 og Wolfsburg er nú með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. 27.11.2022 14:00
Segir að ummæli Klinsmann um íranska liðið sé „svívirðing við fótbolta“ Carlos Queiroz, þjálfari íranska landsliðsins í fótbolta, segir að ummæli fyrrum knattspyrnumannsins Jürgen Klinsmann um liðið séu „svívirðing við fótbolta.“ 27.11.2022 13:00
Eitt skot á mark og Kosta Ríka heldur sér á lífi Kosta Ríka vann lífsnauðsynlegan 1-0 sigur er liðið mætti Japan á HM í Katar í dag. Keysher Fuller skoraði eina mark leiksins með fyrsta skoti Kosta Ríka á markið í keppninni. 27.11.2022 11:54
Aðstoðarþjálfarinn fær traustið og tekur við Bournemouth Gary O'Neil hefur samið við Bournemouth um að taka við sem aðalþjálfari liðsins í ensku úrvalsdeildinni til ársins 2024. 27.11.2022 11:31
Króatar óska eftir virðingu eftir að þjálfari Kanada sagðist ætla að ríða þeim Zlatko Dalic, þjálfari króatíska landsliðsins í knattspyrnu, hefur beðið kollega sinn hjá kanadíska landsliðinu, John Herdman, um að sýna liðinu sem hafnaði í öðru sæti á seinasta heimsmeistaramóti virðingu eftir að sá síðarnefndi sagði að hann og leikmenn hans myndu ríða Króötum í leik liðanna sem fram fer í dag. 27.11.2022 08:01
Íhugaði að hætta eftir fyrsta leik á HM en mamma talaði hann af því Hinn 26 ára Lucas Hernández, leikmaður Bayern München og franska landsliðsins, íhugaði að binda enda á knattspyrnuferil sinn eftir að hafa slitið krossband í fyrsta leik franska landsliðsins á HM í Katar. 27.11.2022 07:01
Stuðningsmaður Wales lést í Katar Velska knattspyrnusambandið hefur staðfest að einn stuðningsmaður velska landsliðsins hafi látist í Katar þar sem heimsmeistaramótið í fótbolta fer nú fram. Ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað. 26.11.2022 23:31
KR-ingar ráða norskan aðstoðarþjálfara Knattspyrnudeild KR hefur samið við Norðmanninn Ole Martin Nesselquist og mun hann gegna stöðu aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu. 26.11.2022 23:01
Nökkvi skaut Beerschot á toppinn Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði sigurmark Beerschot er liðið vann 2-1 sigur gegn Anderlecht U23 í belgísku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Sigurinn skaut Nökkva og félögum á topp deildarinnar. 26.11.2022 21:45
Argentínumenn héldu vonum sínum á lífi Eftir óvænt tap gegn Sádí-Arabíu í fyrsta leik þurfu Lionel Messi og félagar hans í argentínska landsliðinu sárlega á sigri að halda gegn Mexíkó í seinasta leik dagsins á HM í Katar. Messi og Enzo Fernandez sáu um markaskorun Argentínumanna og niðurstaðan 2-0 sigur. 26.11.2022 20:58
Hjörtur og félagar kláruðu leikinn í fyrri hálfleik Hjörtur Hermannsson og félagar hans í Pisa unnu öruggan 3-1 sigur er liðið tók á móti Ternana í ítölsku B-deildinni í fótbolta í kvöld þar sem öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. 26.11.2022 18:58
Heimsmeistararnir fyrstir til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Ríkjandi heimsmeistarar Frakklands urðu í dag fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum HM í Katar er liðið vann 2-1 sigur gegn Dönum. 26.11.2022 17:58
Guðný lagði upp í stórsigri í Íslendingaslag Guðný Árnadóttir og stöllur hennar í AC Milan unnu sannkallaðan stórsigur er liðið heimsótti Alexöndru Jóhannsdóttur og liðsfélaga hennar í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 1-6 og Guðný átti sinn þátt í fyrsta marki gestanna. 26.11.2022 15:40
Loksins skoraði Lewandowski á HM og Pólverjar upp í efsta sæti Pólverjar unnu mikilvægan 2-0 sigur er liðið mætti Sádí-Arabíu í C-riðli heimsmeistaramótsins í Katar. Sigurinn lyftir Pólverjum upp í efsta sæti riðilsins og setur bæði Mexíkó og Argentínu í erfiða stöðu fyrir seinni leik riðilsins í dag. 26.11.2022 15:05
Fiskaði víti og kallaður snillingur Meðlimur nefndar sem greinir alla leiki á HM í Katar fyrir Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hrósar Cristiano Ronaldo og segir portúgalska framherjann með snilligáfu. Ástæðan er hvernig Ronaldo fiskaði vítaspyrnu í 3-2 sigir Portúgals á Gana. 26.11.2022 13:00
Ástralía lætur sig dreyma eftir sigur á Túnis Ástralía vann 1-0 sigur á Túnis í fyrsta leik dagsins á HM í Katar. Sigurinn þýðir að Ástralía á enn möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar. 26.11.2022 12:00
Felix vill yfirgefa Madríd Portúgalski landsliðsmaðurinn João Félix hefur fengið nóg af bekkjarsetunni hjá Atlético Madríd og vill yfirgefa félagið þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. 26.11.2022 11:30
Southgate hrósaði hugarfarinu og segir liðið í góðri stöðu Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, talaði lið sitt upp eftir frekar dapra frammistöðu í markalausu jafntefli liðsins gegn Bandaríkjunum á HM í Katar. Southgate var sérstaklega sáttur með varnarleik sinna manna. 26.11.2022 10:30