Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eigandi Patagonia gefur fyrirtækið til góðgerðarsjóðs Bandaríski auðmaðurinn Yvon Chouinard, sem er stofnandi og eigandi útivistarfataframleiðandans Patagonia, segir að hann hafi gefið fyrirtækið til góðgerðarsjóðs. 15.9.2022 07:41
Innherji á Vísi færður fyrir aftan greiðsluvegg Frá og með deginum í dag verður viðskiptamiðillinn Innherji á Vísi í áskrift og færður fyrir aftan greiðsluvegg. Samhliða þessu er ný innskráning á Vísi kynnt til leiks þar sem notast er við rafræn skilríki. Þegar fram líða stundir verður ýmis önnur þjónusta í boði fyrir innskráða lesendur. 15.9.2022 07:01
Hlíf af mótor flugvélar Atlanta lenti í innkeyrslu í Belgíu Hlíf féll af mótor flugvélar frá flugfélaginu Atlanta ehf. sem var á leið frá Liége í Belgíu til Möltu síðastliðinn fimmtudag. Hlífin lenti í innkeyrslu við íbúðarhúsnæði í Waremme í Belgíu. 14.9.2022 16:54
Bein útsending: Ferðaþjónustudagurinn 2022 Ferðaþjónustudagurinn 2022 fer fram í Norðurljósasal Hörpu í dag, miðvikudaginn 14. september. Á fundinum verður fjallað um ferðaþjónustu með tilliti til verðmætasköpunar og stöðunnar í hagkerfinu meðal annars en honum verður streymt í beinni útsendingu hér á Vísi. 14.9.2022 14:30
Um 380 milljónum deilt til 25 einkarekinna fjölmiðla 25 einkareknir fjölmiðlar deila með sér rúmlega 380 milljónum króna samkvæmt niðurstöðu úthlutunarnefndar um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Þremur umsóknum var hafnað þar sem umsóknirnar uppfylltu ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðning en í heildina sóttu fjölmiðlarnir 28 um rekstrarstuðning að fjárhæð 917,5 milljónir króna. 14.9.2022 11:27
Guðrún Edda, Stefanía og Vigdís Perla til liðs við Aton.JL Aton.JL hefur ráðið þær Guðrúnu Eddu Guðmundsdóttur, Stefaníu Reynisdóttur og Vigdísi Perlu Maack til starfa. Allar hafa þær þegar hafið störf. Guðrún Edda og Stefanía starfa sem ráðgjafar og Vigdís sem verkefnastjóri. 14.9.2022 10:54
Lóa Fatou nýr framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Good Good Lóa Fatou Einarsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri rekstrarsviðs (COO) í höfuðstöðvum matvælafyrirtækisins Good Good í Reykjavík. Hún mun sem slíkur leiða uppsetningu og rekstur á starfsemi fyrirtækisins í Evrópu og Norður-Ameríku. 14.9.2022 08:56
Hörn ráðin til Transition Labs Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Transition Labs þar sem hún mun gegna stöðu verkefnastjóra. 14.9.2022 08:44
Kemur til 50skills frá CreditInfo Kristín Helga Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá fyrirtækinu 50skills sem sérhæfir sig í hugbúnaðargerð á sviði ráðninga. Hún starfaði áður hjá Creditinfo Lánstrausti þar sem hún gegndi stöðu forstöðumanns vöru- og verkefnastýringar. 14.9.2022 08:13
Íbúðum sem seljast yfir ásettu verði fækkar Íbúðum sem seldust yfir ásettu verði fækkaði um tæp tíu prósent á höfuðborgarsvæðinu milli maí og júní. Þrátt fyrir það styttist meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu milli júní og júlí mánaða úr 42,3 dögum í 40,1 dag. 14.9.2022 07:30
Hamingjuvikan framundan: „Þetta þarf ekki að vera flókið eða dýrt“ Í næstu viku er International Week of Happiness at work. Vikan hefst mánudaginn 19.september og lýkur 25.september. 14.9.2022 07:01
Opnuðu Hlöllastað í kyrrþey og koma upp mathöll við Smáralind Hlöllabátar hafa opnað útibú í Öskjuhlíð við Bústaðaveg, í húsi sem staðið hefur autt um nokkra hríð. Framkvæmdastjóri Hlöllabáta ehf. segir ekki hafa farið mikið fyrir opnuninni í maí, en nú sé rekstur staðarins að komast á mikið skrið. Þá stefnir félagið að opnun lítillar Mathallar við Smáralind. 14.9.2022 07:01
Loka Skuggabaldri í síðasta sinn á laugardagskvöld Næstkomandi laugardagskvöld verður haldið kveðjupartý fyrir djassbúlluna Skuggabaldur við Austurvöll. 13.9.2022 23:36
Takk fyrir ekkert, segja andvaka veitingamenn Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði hafa sent frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem þau lýsa yfir gríðarlegum vonbrigðum með fyrirhugaða hækkun áfengisgjalda. 13.9.2022 20:44
Halla nýr forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu Halla Thoroddsen er nýr forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu ehf. (SH). Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Sóltúns. 13.9.2022 20:44
Amazon birtir heimildarþátt um Kerecis Heimildarþáttur um íslenska lækningavörufyrirtækið Kerecis er nú aðgengilegur á streymisveitunni Amazon Prime. Aðstoðarforstjóri Amazon stýrir þáttaröðinni sem fjallar um áhugaverð fyrirtæki, sem hann telur eiga erindi við framtíðina. 13.9.2022 18:15
Kemur ný inn í eigenda hóp Réttar Védís Eva Guðmundsdóttir hefur bæst í hóp eigenda hjá hjá lögmannsstofunni Rétti – Aðalsteinsson & Partners. Hún hefur sérhæft sig í mannréttindamálum og Evrópurétti og hefur starfað á stofunni frá 2020. 13.9.2022 12:58
BYKO einn af eftirsóknarverðustu vinnustöðum Evrópu BYKO hlaut á dögunum viðurkenningu sem einn af eftirsóknarverðustu vinnustöðum í Evrópu í hópi meðalstórra fyrirtækja. Tölvuleikjafyrirtækið CCP hlaut einnig viðurkenningu í sama flokki, og auglýsingastofan Sahara hlaut viðurkenningu í hópi lítilla fyrirtækja. 13.9.2022 12:55
Ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá Arctic Adventures Sindri Snær Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventure. 13.9.2022 08:10
„Sorgarfréttir úr Kópavogi“ en síðasta ballið er ekki búið Sportbarinn og ballstaðurinn Spot mun leggja upp laupana í þessum mánuði en næsta laugardag verður síðasta ballið á staðnum haldið. Eigandi Spot segir það hafa verið heiður að fengið að skemmta þúsundum manna síðustu ár. 13.9.2022 07:00
Gagnrýna hækkun hæstu áfengisskatta í Evrópu „Ríkisstjórnin hjálpar ekki til í baráttunni við verðbólguna þegar hún bætir í gjöld sem hækka almennt verðlag,“ segir framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda um hækkun áfengisgjalda í nýjum fjárlögum. 12.9.2022 18:04
Nýr framkvæmdastjóri hjá Kerecis Dr. Dan Mooradian hefur tekið við sem framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarmála hjá Kerecis. Klara Sveinsdóttir sem var áður framkvæmdastjóri rannsóknar-, þróunar-, gæða- og skráningarmála mun nú einbeita sér einungis að gæða- og skráningarmálum. 12.9.2022 12:00
Tafir á uppfærslu reikningsyfirlits Vegna uppfærslu á kerfum Reiknistofu bankanna eru tafir á að reikningsyfirlit uppfærist hjá bönkum og sparisjóðum. Viðskiptavinir eru beðnir um að gæta þess að endurtaka ekki greiðslur. 12.9.2022 10:56
Hækka gjald á áfengi og tóbak Gert er ráð fyrir að hækka gjald á áfengi og á tóbak sem selt er í tollfrjálsum verslunum, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í morgun. Gert er ráð fyrir að hækkunin skili sér í tekjum fyrir ríkissjóð upp á 700 milljónir króna. 12.9.2022 10:15
Verðbólgan ein sú lægsta í Evrópu Verðbólgan á Íslandi er ein sú lægsta meðal Evrópuríkja samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í dag. Þó er mikilvægt að standa vörð um hana. 12.9.2022 09:58
Jafnvægi heimilis og vinnu: Haustrútínan Jæja. Nú er nokkuð liðið frá því að skólarnir byrjuðu, flestir kláruðu fríin sín og vinnan farin aftur á fullt. Eða hvað? 12.9.2022 07:00
True Detective verður stærsta kvikmyndaverkefni Íslandssögunnar Gert er ráð fyrir að tökur á fjórðu þáttaröð bandarísku sjónvarpsþáttanna True Detective muni taka níu mánuði og framleiðslukostnaður verði um níu milljarðar króna. 11.9.2022 18:41
Nýr Nissan X-Trail e-Power Nissan hefur kynnt fjórðu kynslóð af jepplingnum X-Trail, sem kynntur verður hjá BL í desember. X-Trail státar af háþróuðu fjórhjóladrifi. Bíllinn er búinn bensínvél sem hleður orku beint inn á rafhlöðu bílsins þaðan sem 94 kW rafmótorinn notar hana. 11.9.2022 07:01
Forstjóri RB í hláturskasti yfir Snapchat myndbandi með filter Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna (RB) byrjar daginn á morgungöngu með Eldi hundinum sínum. Stundum hefur hún þó þá þegar þurft að fara yfir eitthvað vinnutengd ef eitthvað hefur gerst um nóttina. 10.9.2022 10:00
Ráðherrar vísa hver á annan um franskarnar: Sigmar segir Bjarna þurfa að taka nefið upp úr stórfyrirtækjunum Veitingamaður segir yfirvöld hygla erlendum neytendum en skattpína þá íslensku, með því að leggja háan toll á franskar kartöflur. Það gæti munað miklu fyrir landsmenn ef verndartollur sem ekkert verndar lengur yrði afnuminn - en ráðherrar vísa hver á annan. 9.9.2022 21:30
Lélegt lykilorð fyrrverandi starfsmanns reyndist örlagaríkt Bandarískur sérfræðingur í netöryggismálum telur að heimurinn standi á barmi stafrænna hamfara verði tölvuöryggismál ekki gripinn fastari tökum. Hún vísar til þess að eitt slæmt lykilorð hafi nærri orðið til þess að lama bandaríska efnahaginn á síðasta ári. 9.9.2022 14:38
„Við erum hér til að sækja vernd fyrir nafnið á landinu okkar“ Munnlegur málflutningur í máli íslenskra stjórnvalda gegn bresku verslunarkeðjunni Iceland Foods vegna vörumerkjaskráningar verslunarkeðjunnar á orðinu Iceland hófst í morgun. 9.9.2022 11:54
Að þekkja muninn á sérfræðingi og rugludalli Hafið þið ekki lent í því að vera að tala við einhvern sem virðist vita allt um einhver málefni, algjör sérfræðingur, en síðan kemur í ljós að viðkomandi veit lítið sem ekkert um hvað hann/hún er að tala? 9.9.2022 07:00
Fréttaþulurinn Bernard Shaw er látinn Bandaríski fréttaþulurinn Bernard Shaw, sem starfaði lengi sem aðalfréttaþulur bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN, er látinn, 82 ára að aldri. 8.9.2022 14:27
Réttur fjöldi marka gæti gefið 650 milljónir króna Íslenskar getraunir mun síðar í mánuðinum taka upp nýjan getraunaleik sem felst í því að þátttakendur giska á hversu mörk verði skoruð í heild í hverjum þeim þrettán leikja sem eru á hinum hefðbundna enska getraunaseðli. Leikurinn verður nefndur XG og er það vísun í „Expected goals“ – mörkum sem reiknað sé með. 8.9.2022 14:00
Fjölskylduhátíð á Pop up í Laugardal Pop up markaður fer fram undir KSÍ stúkunni Laugardal um helgina og á heimapopup.is. Tugir spennandi verslana bjóða varning og matarvagnar og leiktæki verða á staðnum. Þetta er í átjánda sinn sem markaðurinn er haldinn og hefur farið stækkandi með hverju árinu. 8.9.2022 13:50
Deila um milljónir í húsaleigu í Sjálandi Eigendum húsnæðisins þar sem veitingastaðurinn Sjáland er rekinn í Garðabæ var ekki heimilt að rifta leigusamningi við rekstraraðila veitingastaðarins. Landsréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness þess efnis á dögunum. Aðilar deila um húsaleigu. 8.9.2022 13:31
Mesta hækkun stýrivaxta í sögu Seðlabanka Evrópu Seðlabanki Evrópu hefur ákveðið að hækka strýrivexti sína um 0,75 prósentustig, úr 0,5 í 1,25 prósent. Stýrivaxtahækkunin er sú mesta í sögu bankans frá árinu 1998. 8.9.2022 12:55
Allt það helsta frá haustkynningu Apple Forsvarsmenn Apple kynntu í gær nýjar vörur á árlegri kynningu fyrirtækisins. Þar á meðal var kynntur nýr sími, ný snjallúr og ný heyrnartól. Eins og gengur og gerist þá vöktu nýju tækin og tólin mikla athygli. 8.9.2022 12:38
Matthías frá Arion banka til Héðins Matthías Stephensen hefur verið ráðinn fjármálastjóri Héðins. Hann kemur frá Arion banka þar sem hann hefur starað frá 2011, síðast sem forstöðumaður rekstrar og sölu á viðskiptabankasviði, ásamt því að vera innlánastjóri bankans. 8.9.2022 10:09
Soffía Theódóra nýr fjárfestingastjóri hjá Brunni Soffía Theódóra Tryggvadóttir hefur verið ráðin fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures. Soffía Theódóra kemur til Brunns frá bandaríska Fortune 500 fyrirtækinu NetApp. Hjá Brunni mun Soffía Theódóra sinna greiningu og öflun fjárfestingatækifæra, byggja upp tengslanet við erlenda vísifjárfesta og starfa með stjórnendum og frumkvöðlum að lokinni fjárfestingu. 8.9.2022 09:52
Bein útsending: Orkuskipti á hafi – Raunsæi, vonir og væntingar Orkuskipti á hafi verður umræðuefnið á fundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem hefst klukkan níu í dag. 8.9.2022 09:00
Hugsa eigi um vörumerki eins og litla svarta kjólinn Það getur ýmislegt mælt með því að breyta útliti rótgróins vörumerki en það er engin ástæða til að gera það ef markmiðið er bara að gera breytingar breytinga vegna. Hugsa á um vörumerki eins og litla klassíska svarta kjólinn í fataskápnum sem passar alltaf og fer líklega aldrei úr tísku. 8.9.2022 09:00
Ráðin nýr framkvæmdastjóri hjá Dohop Ingunn Svala Leifsdóttir hefur verið ráðin nýr framkæmdastjóri rekstrar hjá Dohop (e. COO) og mun hún sem slíkur bera ábyrgð á fjármálum og rekstri félagsins. Hún mun sitja í framkvæmdastjórn Dohop. 8.9.2022 08:58
Margrét frá Brunni Ventures og til Transition Labs Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir verið ráðin sem yfirmaður rekstrar hjá Transition Labs. Hún var áður fjárfestingarstjóri hjá Brunni Ventures en þar á undan starfaði hún sem aðstoðarforstjóri Carbon Recycling International. 8.9.2022 08:51