Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fóru beinustu leið að skila og skipta gjöfum Fyrsti opnunardagur verslana eftir jól var í dag og má því gera ráð fyrir því að margir hafi nýtt tækifærið til að skila eða skipta jólagjöfum sem hentuðu ekki alveg. En hversu rúmur er skilafresturinn og er algengt að fólk skili jólagjöfum? 27.12.2022 21:01
Liður í góðum viðskiptaháttum að hafa rúman skilafrest Mikil aukning er á fyrirspurnum til Neytendasamtakanna vegna of naums skilafrest á vörum. Formaður samtakanna segir að þrátt fyrir að engin eiginleg lög nái yfir skilafrest þá sé það liður í góðum viðskiptaháttum að gefa viðskiptavinum sínum rúman frest til að skila vörum sem þeir hafa ekki not fyrir. Þær verslanir sem komi vel fram við viðskiptavini séu bæði langlífar og dafni jafnan betur. 27.12.2022 12:59
Verðið á jólamatnum hækkar hressilega milli ára Þó flestir loki augunum í aðdraganda jóla, vilji „njódda og livva“ eins og skáldið sagði, og leyfa sér er hætt við að þeim hinum sömu bregði í brún þegar kreditkortafyrirtækin senda út sína reikninga eftir jól. 22.12.2022 16:10
Kökudeig Evu Laufeyjar innkallað: „Gjörsamlega miður mín“ Katla hefur gefið út sölustöðvun og innköllun af markaði á smákökudeigi sem fyrirtækið framleiddi í samstarfi við Evu Laufey. Um er að ræða tvær tegundir af kökudeigi sem notið hefur gríðarlegra vinsælda og seldist upp hjá framleiðanda. Fjölmargir hafa tjáð sig um deigið í nokkrum samfélagsmiðlahópum og sagt frá hræðilegri lykt sem gýs upp þegar það er tekið úr umbúðunum. Eva Laufey segist miður sín vegna málsins. 22.12.2022 11:00
Innkalla grísahakk vegna beinflísa Með hliðsjón af öryggi og velferð neytenda hefur Stjörnugrís ákveðið að taka úr sölu og innkalla Grísahakk frá Stjörnugrís. 21.12.2022 14:39
Innkalla hættulegan stól Ikea hefur innkallað skrifborðsstól af gerðinni Odger í kolgráum vegna hættu á að fóturinn brotni með tilheyrandi fall- og slysahættu. 21.12.2022 09:54
Gjaldahækkanir dynja á bíleigendum um áramót Álögur á bíleigendur um áramótin hækka mun meira en sem nemur verðlagshækkunum, samkvæmt bandormi ríkisstjórnarinnar, sem Alþingi samþykkti fyrir helgi. Talsmaður FÍB segir skattahækkanirnar bitna verst á íbúum dreifbýlisins, sem þurfa að sækja þjónustu um langan veg. 20.12.2022 23:47
Ormsson, Ilva og Heimkaup sektuð fyrir Taxfree auglýsingar Neytendastofa hefur sektað Heimkaup, Ormsson og Ilvu fyrir að tilgreina ekki prósentuhlutfall verðlækkunar þegar fyrirtækin auglýstu taxfree afslátt af vörum sínum. Ormsson var auk þess sektað fyrir að auglýsa sjónvörp á afslætti í lengri tíma en sex vikur þrátt fyrir að þau hafi aldrei verið seld á tilgreindu fyrra verði. 20.12.2022 16:13
Bíómiðinn kominn yfir tvö þúsund kall og neytendur jafn hneykslaðir og 2008 Þau tímamót urðu nýverið að verð á bíómiða er í fyrsta sinn komið yfir tvö þúsund krónur. Neytendur sem fréttastofa tók tali sögðu verðið sláandi en lýsandi fyrir efnahagsástandið í landinu. Þá bíti verðbólgan fast í jólainnkaupunum þetta árið. 20.12.2022 11:12
„Íslendingar eru algjörir bruðlarar“ Nú þegar kuldakast ríður yfir landið og sundlaugum hefur verið lokað til að spara heitt vatn hefur umræða um notkun heitra potta á heimilum sprottið upp á samfélagsmiðlum. Fiskikóngurinn og einn helsti pottasölumaður landsins, Kristján Berg Ásgeirsson segir Íslendinga gjarnan bruðla með heitt vatn. Mörg tonn af vatni fari í notkun á hitaveitupottum. 17.12.2022 07:37
Hlupu móðir úr strætó á milli verslana í leit að Prime Öngþveiti skapaðist í verslunum í dag þegar börn freistuðu þess að kaupa sér nýja íþróttadrykkinn Prime. Sumir ferðuðust á milli verslana með strætó í leit að drykknum sem tröllríður nú samfélagsmiðlum. Verslunarstjóri hjá Krónunni segist aldrei hafa séð annað eins ástand. 16.12.2022 21:00
Lækka endurgreiðslu á rafbílum en fjölga þeim sem geta fengið Hámarksendurgreiðsla á virðisaukaskatti við kaup á rafmagns- og vetnisbílum lækkar á árinu 2023 úr 1,56 milljónum króna í 1,32 milljónir króna. Hámarksfjöldi bíla sem geta sótt slíka ívilnun hefur verið fjölgað úr fimmtán þúsund í tuttugu þúsund. Þetta kemur fram í nýsamþykktu frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld. 16.12.2022 20:33
Aldrei séð annað eins ástand í Krónunni Öngþveiti skapaðist í verslunum Krónunnar í dag þegar Prime vítamíns- og íþróttadrykkur var tekinn í sölu. Drykkurinn seldist hratt upp en hann er framleiddur af heimsfrægum áhrifavöldum og er hann að mestu auglýstur á samfélagsmiðlum og efnisveitum eins og TikTok, Instagram og Youtube og nýtur gífurlegra vinsælda meðal ungs fólks. 15.12.2022 18:20
Lítill munur á verði á jólamat milli Bónuss og Krónunnar Bónus var oftast með lægsta verðið í nýlegri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á jólamat. Könnunin var gerð í átta matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Tilboð eru víða í matvöruverslunum nú fyrir hátíðarnar, verðbreytingar tíðar og hvetur ASÍ neytendur til að vera vel vakandi vilji þeir gera hagstæð innkaup á jólamatnum. 15.12.2022 14:17
Kr. í Þorlákshöfn og Vík verða að Krónunni Verslununum Kr. í Þorlákshöfn og Vík í Mýrdal hefur verið breytt í Krónuverslanir. Verðið þar breytist í dag og verða verslunirnar teknar í gegn eftir áramót. Verslunarstjórinn í Þorlákshöfn segir breytingarnar muna öllu fyrir bæjarbúa. 15.12.2022 09:18
Skilagjald hækki um tvær krónur Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis leggur til að skilagjald einnota drykkjarvöruumbúða hækki um tvær krónur, úr átján krónum í tuttugu. Gjaldið var síðast hækkað í fyrrasumar. 13.12.2022 09:13
Sektar Fiskikónginn fyrir að fara ekki að fyrirmælum Neytendastofa hefur sektað Fiskikónginn um 50 þúsund krónur fyrir að hafa ekki fylgt fyrirmælum stofnunarinnar um verðmerkingar á síðunni heitirpottar.is með fullnægjandi hætti. 9.12.2022 14:24
Banna auglýsingar Verna um „erkitýpurnar“ Teit, Hebu og Svölu Neytendastofa hefur bannað tryggingafélaginu Verna að birta auglýsingar sínar þar sem fólk er sagt hafa stórlækkað reikninga sína með því að hafa fært viðskipti sín til félagsins. Auglýsingarnar eru taldar villandi, ósannaðar og brjóta gegn lögum. 9.12.2022 13:56
Gluggasmið sem sagði verkið í „algjörum forgangi“ gert að endurgreiða innborgun að fullu Fyrirtæki sem smíðar glugga hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini staðfestingargjald pöntunar að fullu eftir að viðskiptavinur ákvað að rifta samningi, þrettán mánuðum eftir að hann hafði samþykkt tilboð fyrirtækisins í smíði þriggja glugga og hurðar vegna lekavandamála í fasteign. Framkvæmdir voru þá ekki hafnar og ekki vitað til þess að fyrirtækið hefði hafið smíði glugganna. 7.12.2022 15:29
Sumir hækka úr fimm og hálfri í sjö milljónir Ragnar Þór Ægisson, bílasali og meðeigandi Bílamiðstöðvarinnar, segir að reikna megi með því að rafbílar sem nú eru niðurgreiddir að hluta af hinu opinbera muni í sumum tilvikum hækka í verði úr til dæmis eins og 5,5 milljónum í sjö milljónir. 7.12.2022 09:10
Tvær til þrjár ruslatunnur við sérbýli Tvær til þrjár tunnur verða við sérbýli á höfuðborgarsvæðinu með lögum um hringrásarkerfi sem taka gildi um áramótin. Íbúum verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili; pappír, plastumbúðir, matarleifar og blandaður úrgangur. 6.12.2022 17:13
Engin jóladagatöl frá Lions í ár Hin sívinsælu jóladagatöl frá Lionsklúbbnum hafa ekki verið í sölu fyrir þessi jól. Ástæðan er sú að verksmiðjan sem framleiðir dagatölin fékk ekki þau hráefni sem þarf í framleiðsluna. 5.12.2022 15:50
Úrelt fyrirkomulag á bílasölu sem bjóði hættunni heim Hægt er að selja ökutæki með áhvílandi veði án þess að láta kaupanda vita af gjöldunum. Samskiptastjóri Samgöngustofu segir ábyrgðina liggja hjá kaupanda að kanna áhvílandi gjöld. Framkvæmdastjóri FÍB segir fyrirkomulagið vera úrelt og að þarna sé verið að bjóða hættunni heim. 2.12.2022 17:01
Bjór fyrir átta þúsund krónur í tuttugu þúsund króna dagatali Bjór sem viðskiptavinur Nýju vínbúðarinnar fékk í jóladagatali verslunarinnar kostar rúmlega helmingi minna ef hann hefði verið keyptur í stykkjatali. Einungis helmingur bjórsins var jólabjór og var restin með ódýrari bjór landsins. 2.12.2022 16:35
Íslenskar bækur og spil jólagjöf ársins Jólagjöf ársins árið 2022 er samkvæmt niðurstöðu Rannsóknarseturs verslunarinnar íslenskar bækur og spil. Þetta staðfestir Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir forstöðumaður RSV í samtali við fréttastofu, en greint var frá niðurstöðunni á Rás 2 í morgun. 1.12.2022 10:40