Breiðfylkingin segir SA eiga næsta leik
Forysta breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins segir framhald viðræðna við Samtök atvinnulífsins ráðast af næsta leik samtakanna. Forystufólk breiðfylkingarinnar kom saman til fyrsta fundar innan eigin raða eftir að þau lýstu viðræðum við SA árangurslausum síðastliðinn föstudag.