Til athugunar að endurskoða brottvísanir
Forsætisráðherra segir til athugunar að endurskoða það að vísa fólki úr landi til Grikklands. Heldur hefur fækkað í hópi þeirra sem vísa á úr landi á næstu dögum, samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra.