Fimm ný tilfelli af kórónuveirunni voru greind í dag

Fimm ný tilfelli af kórónuveirunni voru greind í dag og eru staðfest smit hér á landi því orðin fjórtán. Allir smituðust erlendis, ellefu komu í flugi frá Veróna og þrír frá München eftir skíðaferð í Austurríki. Fólkið er í einangrun en ekki alvarlega veikt. Einn þeirra smituðu starfar á Landspítalanaum og eru nú um tuttugu starfsmenn þar í sóttkví. Yfirmaður smitsjúkdóma hefur áhyggjur af því að veiran lami starfsemina.

1061
02:01

Vinsælt í flokknum Fréttir