Farga milljónum bóluefnaskammta þrátt fyrir lágt bólusetningarhlutfall
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að ríki heims einblíni á að tryggja ríkisborgurum sínum örvunarskammta af bóluefninu gegn Covid-19. Frekar eigi að einblína á að tryggja öllum heimsbúum grunnbólusetningu til að stemma stigu við frekari þróun veirunnar.