Geðlæknir segir ráðstefnu um hugvíkkandi efni mjög áhugaverða
Margir helstu vísindamenn, læknar og sérfræðingar á sviði hugvíkkandi efna héldu erindi á ráðstefnu um málefnið í dag. Rætt var um rannsóknir á efnum eins og MDMA, Sílósíbin, Ketamín og Ajúvaska og hvernig þau hafi gagnast við meðferð á geðröskunum.