Karlmaður lést í eldsvoða
Karlmaður á sjötugsaldri sem var í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg í Reykjavík þegar eldur kviknaði í morgun hefur verið úrskurðaður látinn. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem fer með rannsókn málsins.