Eldur kviknaði í stýrishúsi vörubíls nærri Borgarnesi
Hringveginum var lokað við Hafnarskóg rétt sunnan við Borgarnes eftir að eldur kviknaði í stýrishúsi vörubíls. Slökkvilið náði fljótt niðurlögum eldsins og varð bílstjóra ekki meint af, að sögn slökkviliðs.