![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2017-09-07T144452.760Z-haukar.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2025-02-14T125946.545Z-2021-10-15T150140.503Z-Jeruzalem_Ormoz.png)
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.
Mikael Kaaber hefur verið að leika frá blautu barnsbeini og er óhræddur við krefjandi hliðar starfsins en Svala kærastan hans hefur spilað veigamikið hlutverk í þróun hans sem listamaður. Hann fer með hlutverk í kvikmyndinni Ljósbrot og segir að það hafi verið óhjákvæmilegt að dýfa tánum í erfiðar tilfinningar í ferlinu. Blaðamaður ræddi við Mikael.
Það var líf og fjör í Egilshöllinni í gærkvöldi þegar kvikmyndin Ljósbrot var frumsýnd. Rauður dregill tók á móti gestum, margt var um manninn og fólk úr menningarlífi landsins lét sig ekki vanta.
Leikstjórinn Baltasar Kormákur hefur hlotið hin eftirsóttu Roger Ebert Golden Thumb verðlaun fyrir kvikmyndina Snertingu.
Tónlistarmaðurinn sívinsæli Helgi Björnsson var að senda frá sér lagið Í faðmi fjallanna ásamt tónlistarmyndbandi sem má sjá hér í pistlinum. Lagið er úr nýju íslensku kvikmyndinni Ljósvíkingar en Helgi fer einmitt með hlutverk í henni.
Snerting, kvikmynd Baltasars Kormáks, hefur verið tilnefnd til hinna virtu kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Myndin er ein af sex sem tilnefndar eru en tilnefningarnar voru gerðar opinberar á Alþjóðlegu norsku kvikmyndahátíðinni í Haugesund.
Jökull Júlíusson söngvari Kaleo mun verða í gestahlutverki í einum frægustu sápuóperuþáttum veraldar, Glæstum vonum. Hann mun flytja eitt af frægustu lögum sveitarinnar í þættinum, Way Down We Go.
Á blaðamannafundi í morgun tilkynnti franska leikkonan Juliette Binoche, forseti Evrópsku kvikmyndaakademíunnar, að Ljósbrot undir leikstjórn Rúnars Rúnarssonar hafi verið valin til forvals Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.
Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir munu fara með aðalhlutverkið í íslensku þáttaröðinni Reykjavík Fusion. Þetta er í fyrsta sinn sem þau eru saman á skjánum. Auk þess fara reynsluboltarnir Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson með leikstjórn, í þeirra fyrsta verkefni af slíku tagi, eftir áratugi af auglýsingaleikstjórn.
Bandaríski leikstjórinn David Lynch glímir við langvinna lungnaþembu og hefur gefið það í skyn að hann muni ekki koma til með að leikstýra á ný. Hann hættir sér ekki út vegna hræðslu við það að veikjast af sýkingum líkt og Covid.
Leikarar á borð við Jeff Daniels, Jared Harris og J.K. Simmons eru væntanlegir hingað til lands í byrjun október til að leika í kvikmynd um fund Ronald Reagans fyrrverandi Bandaríkjaforseta og Mikhail Gorbatsjov fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna í Höfða í Reykjavík.
Ákvörðun Kvikmyndamiðstöðvar Íslands um að synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk vegna kvikmyndaverkefnis á þeim grundvelli að hún hafi verið illa klippt, fyrirsjáanleg og yfirborðskennd, hefur verið felld úr gildi. Menningar- og viðskiptaráðuneytið kvað upp úrskurð í málinu á dögunum.
Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston var við tökur á sjónvarpsþáttunum The Morning Show í New York-borg um helgina þegar hún fékk yfir sig gusu af olíu.
Stórleikarinn Robert Downey Jr mun fara með hlutverk í tveimur væntanlegum bíómyndum Marvel. Um er að ræða tvíleikinn Avengers: Doomsday og Avengers: Secret Wars, og mun Downey fara með hlutverk skúrksins Victor Von Doom, eða Doctor Doom, í þeim báðum.
Kvikmyndin Ljósbrot sem skartar ungstjörnunum Elínu Hall, Kötlu Njálsdóttir, Mikael Kaaber, Baldri Einarssyni, Gunnari Kristjánssyni og Ágústi Wigum, fer í almennar sýningar 28 ágúst.
Ný og spennandi grínþáttasería er væntanleg á Stöð 2 á næstunni. Þættirnir fjalla um vini sem ákveða að kaupa subbulegan bar sem er við það að fara á hausinn.
Iceguys frumsýna í dag á Vísi sitt nýjasta tónlistarmynd við lagið Gemmér Gemmér. Einn af leikstjórunum segir að strákarnir séu afskaplega hæfileikaríkir og ekkert hafi verið til sparað þegar kom að framleiðslunni á myndbandinu.
Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron er sögð vera við það að skrifa undir samning um að leika í nýrri kvikmynd sem Baltasar Kormákur er sagður ætla að leikstýra.
Stofnandi heimildarmyndahátíðarinnar IceDocs sem fer fram um helgina segir ekkert annað að gera við veðurfarinu en að drífa sig á Akranes og ylja sér inn í Bíóhöllinni. Þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram og dagskráin vegleg.
Íslenska tónskáldið Atli Örvarsson er tilnefndur til Emmy-verðlauna í flokki framúrskarandi tónverka fyrir sjónvarpsþættina Silo.
Bandaríski stórleikarinn Toby Maguire er á landinu. Samkvæmt heimildum Vísis spókaði hann sig í sólinni í miðborginni síðdegis í dag og tók myndir með aðdáendum.
Á blaðamannafundi klukkan tíu í morgun tilkynnti Alberto Barbera, listrænn stjórnandi hinnar virtu kvikmyndahátíðar í Feneyjum, fyrstu myndirnar sem hafa verið valdar fyrir komandi hátíð í haust. Og þeirra á meðal er nýjasta stuttmynd leikstjórans RÚnars Rúnarssonar. 0 (Hringur), með Ingvari E. Sigurðssyni í aðalhlutverki, hefur verið valin til að keppa um aðalverðlaun stuttmyndakeppni í Feneyjum.
Fyrsta stikla stórmyndarinnar Gladiator II undir leikstjórn sjálfs Ridley Scott hefur litið dagsins ljós. Myndin er sjálfstætt framhald af Skylmingaþrælnum sem kom út árið 2000 og tekinn er upp þráðurinn einhverjum 25 árum eftir atburði fyrstu myndarinnar.
Bandaríski kvikmyndaframleiðandinn og Óskarsverðlaunahafinn Jon Landau er látinn 63 ára að aldri. Hann framleiddi myndir á borð við Titanic og Avatar á löngum og margverðlaunuðum ferli.
Bandaríski stórleikarinn Brad Pitt fer með aðalhlutverk í bíómynd um Formúlu 1 sem er meðal annars framleidd af formúlukappanum Lewis Hamilton. Myndin er í bígerð og stefnt er á frumsýningu í júní á næsta ári.
Bandaríski leikarinn Ben McKenzie sem sló í gegn í sjónvarpsþáttunum The O.C. upp úr aldamótum er staddur hér á landi. Hann skellti sér á Kaffihús Vesturbæjar í samnefndum hluta Reykjavíkur í dag á meðan eiginkona, móðir og börn busluðu í Vesturbæjarlauginni.
Kanadíski leikarinn Donald Sutherland, frægur fyrir hlutverk sín í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á borð við The Dirty Dozen og MASH, er látinn eftir langa baráttu við veikindi. Hann var 88 ára gamall.
Íslenska heimildarmyndin Heimaleikurinn vann í nótt áhorfendaverðlaun Sydney Film Festival í Ástralíu.
Kvikmyndin Snerting hefur hlotið lof í mörgum af stærstu bíómyndamiðlum vestanhafs. Baltasar Kormákur leikstjóri myndarinnar fagnar góðu dómunum sem og góðu áhorfi í bíóhúsum hérlendis.
Tengdasonur Íslands, trúðurinn Jelly Boy the Clown, heillaði Simon Cowell og félaga í dómnefndinni í raunveruleikaþættinum America's Got Talent upp úr skónum með ótrúlegu áhættuatriði. Sjá má atriðið í myndbandi neðst í fréttinni.
Skoski leikarinn Gerard Butler er staddur á landinu. Tilefnið eru tökur á spennumyndinni Greenland: Migration en tökurnar hófust í gær.