Birna spilar sinn tíunda bikarúrslitaleik í dag Birna Valgarðsdóttir, fyrirliði Keflavíkur, spilar tímamóta bikarúrslitaleik í Laugardalshöllinni í dag þegar Keflavíkurkonur mæta Val í úrslitaleik Poweradebikars kvenna í körfubolta. Leikurinn hefst klukkan 13.30. Körfubolti 16. febrúar 2013 10:00
Sigurður og Sverrir Þór geta báðir unnið annað árið í röð Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari karlaliðs Grindavíkur, og Sigurður Ingimundarson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur, geta báðir unnið bikarinn annað árið í röð i dag en þeir eru þeir einu í Laugardalshöllinni í dag sem urðu bikarmeistarar í fyrra. Körfubolti 16. febrúar 2013 09:00
Tveir risaleikir í Höllinni í dag Fréttablaðið fékk Inga Þór Steinþórsson, þjálfara beggja Snæfellsliðanna, til þess að spá í úrslitaleiki Powerade-bikarsins sem fram fara í Laugardalshöllinni í dag. Hann spáir Keflavík og Grindavík sigri í leikjunum og flestir aðrir spámenn Fréttablaðsin eru sammála. Körfubolti 16. febrúar 2013 06:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Grindavík 91-79 | Garðbæingar bikarmeistarar! Stjarnan var í miklu stuði og vann Grindavík í bikarúrslitaleik karla í dag 91-79. Grindavík var að spila sinn sjöunda úrslitaleik en Stjörnumenn voru komnir í Höllina í annað skiptið og hafa því unnið báða úrslitaleikina sem þeir hafa spilað. Körfubolti 16. febrúar 2013 00:01
Snæfell: Enginn ásetningur hjá Sveini Arnari Stjórn körfuknattleiksdeildar Snæfells hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið fagnar niðurstöðu Aga- og úrskurðarnefndar KKÍ. Körfubolti 15. febrúar 2013 22:14
Færri dómarar í bikarúrslitaleiknum í ár Grindavík og Stjarnan mætast á morgun í bikarúrslitaleik karla í körfubolta í Laugardalshöllinni og dómaranefnd KKÍ hefur raðað niður dómurum á leikinn sem og á kvennaleikinn sem er á milli Keflavíkur og Vals. Körfubolti 15. febrúar 2013 11:45
Sveini Arnari ekki refsað Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ úrskurðaði í dag í máli Sveins Arnars Davíðssonar, leikmanns Snæfells í Domino's-deild karla. Körfubolti 14. febrúar 2013 23:17
Haminn nýr liðsfélagi Bullock og Watson í Finnlandi Haminn Quaintance dó ekki ráðalaus eftir að hann var rekinn frá Skallagrími í síðustu viku því kappinnn er þegar búinn að finna sér nýtt félag. Quaintance mun klára tímabilið með Kauhajoen Karhu í finnsku úrvalsdeildinni. Þetta kom fram á karfan.is. Körfubolti 13. febrúar 2013 09:30
Oddur braut parketið í Ásgarði Oddur Kristjánsson, 17 ára bakvörður úr Stjörnunni, lét finna fyrir sér í leiknum á móti Njarðvík í gær. Réttara sagt þá lét hann parketið í Ásgarði finna fyrir sér. Körfubolti 12. febrúar 2013 11:45
Fjölnismenn kærðu úrslit tapleiksins gegn Tindastóli Forráðamenn Fjölnis vilja að leikur liðsins gegn Tindastóli í Domino's-deild karla verði endurtekinn. Körfubolti 11. febrúar 2013 21:30
Góð byrjun ÍR-inga dugði ekki til | Úrslit kvöldsins Þrír leikir fóru fram í Domino's-deild karla í körfubolta í kvöld, þar sem suðurnesjaliðin þrjú unnu öll góða sigra. Körfubolti 11. febrúar 2013 21:12
Umdeilt atvik í leik KFÍ og Snæfells Forráðamenn KFÍ ætla ekki að kæra atvik sem átti sér stað í leik liðsins gegn Snæfelli í gær. Körfubolti 11. febrúar 2013 19:46
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Njarðvík 77-87 Njarðvíkingar unnu í kvöld 87-77 sigur í Ásgarði á Stjörnunni í Dominos deild karla. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik en góður sprettur Njarðvíkinga í seinni hálfleik skipti sköpum og náðu leikmenn Stjörnunnar aldrei að brúa það bil. Körfubolti 11. febrúar 2013 18:14
Dramatík á Ísafirði | Úrslit kvöldsins í Dominos-deildunum Snæfell komst í hann krappann á Ísafirði í Dominos-deild karla í kvöld. Framlengja þurfti leikinn þar sem gestirnir mörðu sigur. Körfubolti 10. febrúar 2013 21:28
Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Þór 88-83 KR batt enda á þriggja leikja taphrinu með góðum sigri á Þór frá Þorlákshöfn 88-83 á heimavelli sínum í kvöld í Dominos deild karla í körfubolta. KR var einu stigi yfir í hálfleik 44-43. Körfubolti 10. febrúar 2013 18:45
Þórsarar unnu Stjörnuna - Hreinn hetja Tindastóls Þórsarar komust aftur upp í annað sætið í Dominos-deild karla í körfubolta eftir fimmstiga sigur á Stjörnunni, 105-100, í spennuleik í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Stjörnumenn hafa nú tapað þremur deildarleikjum í röð. Tindastóll komst á sama tíma úr fallsæti eftir dramatískan heimasigur á Fjölni. Körfubolti 8. febrúar 2013 21:03
55 kíló farin hjá Grétari Inga Þorlákshafnarbúar eru stoltir af liði sínu í körfunni, ekki síst miðherjanum Grétari Inga Erlendssyni sem var 170 kíló fyrir tæpum tveimur árum en er nú kominn í toppform. Grétar er að ná sér góðum af meiðslum en ætlar sér að hjálpa Þórsurum að reyna að endurtaka leikinn frá því í fyrravetur. Körfubolti 8. febrúar 2013 08:00
Öll úrslitin í körfunni í kvöld Fjórir leikir fóru fram í fimmtándu umferð Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld og þar unnu Grindavík, Snæfell, Keflavík og ÍR sína leiki. Körfubolti 7. febrúar 2013 22:10
Snæfell aftur á sigurbraut í Hólminum - þriðja tap KR í röð Snæfellingar komust aftur á sigurbraut í Fjárhúsinu í Stykkishólmi í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld þegar þeir unnu sex stiga sigur á KR, 110-104. Snæfell hafði tapað tveimur deildarleikjum í röð í húsinu sem og undanúrslitaleik í bikarnum. KR-ingar hafa nú þremur deildarleikjum í röð. Körfubolti 7. febrúar 2013 21:14
Fimmti sigur Keflvíkinga í röð Keflvíkingar fögnuðu sínum fimmta sigri í röð og stöðvuðu þriggja leikja sigurgöngu Ísfirðinga með því að vinna níu stiga sigur á KFÍ, 111-102, í leik liðanna í Domnos-deild karla í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. Körfubolti 7. febrúar 2013 21:08
Grindvíkingar áfram sigursælir í Ljónagryfjunni Njarðvíkingar hafa ekki unnið Grindavík í heimaleik á Íslandsmótinu síðan í mars 2008 og það breyttist ekki í kvöld. Grindvíkinga unnu leikinn með tólf stigum, 96-84, og fögnuðu þar sem sínum sjötta sigri í röð í Ljónagryfjunni. Körfubolti 7. febrúar 2013 20:59
Herbert byrjar vel með ÍR-liðið Herbert Svavar Arnarson byrjar vel sem þjálfari ÍR-inga en hann og Steinar Arason stýrðu botnliði ÍR til 26 stiga sigurs á Skallagrími, 96-70, í Hertz-hellinum í Seljaskóla í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld. ÍR komst af botninum með þessum sigri en þar sitja nú Tindastólsmenn. Körfubolti 7. febrúar 2013 20:48
Herbert snýr aftur - tekur við ÍR ásamt Steinari ÍR-ingar hafa fundið eftirmann Jóns Arnars Ingvarssonar og ráðið þjálfara fyrir lokasprettinn í Dominos-deild karla í körfubolta. ÍR-ingar hafa komist að samkomulagi við þá Steinar Arason og Herbert Arnarson um að taka við liðinu í sameiningu út tímabilið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍR. Körfubolti 6. febrúar 2013 14:48
Bara tvö lið í karlakörfunni hafa ekki rekið Kana í vetur Félagsskiptaglugginn í íslenska körfuboltanum er nú lokaður, sem þýðir að ekkert lið í Dominos-deild karla eða kvenna getur hér eftir bætt við sig eða skipt út bandarískum leikmanni til loka tímabilsins. Nokkur liðanna gerðu breytingar áður en fresturinn rann út um mánaðamótin og eftir þær eru það aðeins tvö af tólf liðum Dominos-deildar karla sem hafa ekki rekið bandarískan leikmann á tímabilinu. Körfubolti 6. febrúar 2013 06:30
Sallie stoppaði stutt á Sauðárkróki Roburt Sallie náði aðeins að leika einn leik með Tindastól í Dominos-deild karla í körfubolta því stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur tekið þá ákvörðun að láta hinn nýja leikmann fara frá félaginu þrátt fyrir að það séu aðeins tvær vikur síðan að hann kom á Krókinn. Þetta kemur fram á Feykir.is. Körfubolti 4. febrúar 2013 22:29
Haminn rekinn vegna samskiptaörðugleika og virðingarleysis Haminn Quaintance, einn besti leikmaður Dominos-deildar karla, er á heimleið en Úrvalsdeildarlið Skallagríms í körfuknattleik hefur tekið þá ákvörðun að segja upp samningi við leikmanninn og var hann ekki með liðinu í síðasta leik liðsins í Dominos-deildinni. Körfubolti 4. febrúar 2013 21:59
McCallum með 44 stig gegn Njarðvík Shannon McCallum heldur áfram að gera það gott með KR en hún hefur nú skorað alls 109 stig í sínum fyrstu þremur leikjum með liðinu. Körfubolti 3. febrúar 2013 21:29
Jón Arnar hættur með ÍR Jón Arnar Ingvarsson er hættur sem þjálfari liðs ÍR í Domino's-deild karla. Liðið situr á botni deildarinnar eftir fjórtán umferðir. Körfubolti 2. febrúar 2013 11:43
Frábær fjórði leikhluti hjá Keflvíkingum Keflvíkingar eru komnir upp í fimmta sætið í Dominosdeild karla í körfubolta eftir 15 stiga sigur á KR, 100-85, í DHL-höllinni í kvöld en liðin höfðu þar með sætaskipti í deildinni. Keflvíkingar unnu síðustu fjórar mínútur leiksins með fimmtán stigum. Körfubolti 1. febrúar 2013 21:17
Þrír sigrar í röð hjá Ísfirðingum KFÍ vann sinn þriðja leik í röð í Dominos-deild karla í körfubolta þegar Ísfiðringar fögnuðu sjö stiga heimasigri á Tindastól, 92-85 í fallbaráttuslag í kvöld. KFÍ komst alla leið upp í 9. sæti með þessum sigri. Körfubolti 1. febrúar 2013 21:09