

CrossFit
Fréttir af keppendum og mótum í CrossFit.

Dagur í lífi Söru Sigmunds í Dúbaí
Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir eyðir síðustu mánuðum ársins 2021 í hitanum í Dúbaí og gerir allt til þess að geta keppt á sínu fyrsta móti rétt fyrir jól. Í Youtube-þættinum „Behind the Rune“ sýnir Sara frá degi sínum í Dúbæ og ræðir markmið sín á næstunni.

Ben: Katrín Tanja hefur verið lengur í fjölskyldunni en sjö ára dóttir mín
Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur slitið samstarfi sínu við þjálfarann Ben Bergeron en þau kveðja bæði hvort annað með hjartnæmum pistlum á samfélagsmiðlum sínum.

Besta konan fékk betur borgað en besti karlinn á Rogue CrossFit mótinu
Tia-Clair Toomey fékk best borgað af öllum á Rogue Invitational CrossFit mótinu sem fór fram um síðustu helgi og þar með meira en sigurvegarinn hjá körlunum.

Hver er þessi Jami Tikkanen sem þjálfar nú Anníe Mist, Katrínu Tönju og BKG?
Þrjú af besta CrosFit fólki Íslands og um leið heimsins er nú þjálfað af Finnanum Jami Tikkanen eftir að Katrín Tanja Davíðsdóttir ákvað að leita til hans eftir sex ár með bandaríska þjálfarann Ben Bergeron. En hver er þessi maður sem okkar besta fólk vill vera hjá?

Katrín Tanja skiptir út þjálfaranum sínum eftir sex ára samstarf
Vonbrigðin á heimsleikunum kalla fram stórar breytingar hjá íslensku CrossFit konunni Katrínu Tönju Davíðsdóttur.

Ekkert vonleysi hjá Katrínu Tönju þrátt fyrir vonbrigðin um helgina
Katrín Tanja Davíðsdóttir var aldrei með í toppbaráttunni á Rogue Invitational CrossFit mótinu og endaði að lokum í fimmtánda sæti. Hún segist vera mjög spennt fyrir framhaldinu þrátt fyrir vonbrigðaár.

„Hún er ótrúleg manneskja og íþróttamaður“
Anníe Mist Þórisdóttir fékk að sjálfsögðu mikið hrós frá öllum sem fylgdust með frábærri frammistöðu hennar á Rogue Invitational stórmótinu í Texas um helgina.

Anníe Mist aftur á pall og nú með fjölskylduna með sér: Hjarta mitt er fullt
Anníe Mist Þórisdóttir vann silfurverðlaun á einu stærsta CrossFit móti ársins og nú fyrir framan nærfjölskyldu sína sem missti af því þegar hún vann bronsverðlaun á heimsleikunum í haust.

Anníe Mist endaði í öðru sæti eftir slakan árangur í síðustu grein
Anníe Mist Þórisdóttir endaði í 2. sæti Rogue International-mótsins í Crosssfit en mótinu lauk nú í kvöld. Anníe Mist var jöfn Tiu-Clair Toomey fyrir síðustu grein mótsins en sú ástralska vann síðustu greinina og þar með mótið.

Sterkasta flugfreyja landsins býr í Hveragerði
Anna Guðrún Halldórsdóttir í Hveragerði er líklega sterkasta flugfreyja landsins en hún gerði sér lítið fyrir á dögunum og setti þrjú Evrópumet og tvö heimsmet í Ólympskum lyftingum.

Anníe Mist í forystu fyrir lokadag Rogue Invitational
Anníe Mist Þórisdóttir er með 15 stiga forskot á toppnum fyrir lokadag Rogue Invitational-mótsins í Crossfit með 445 stig. Anníe sigraði í seinustu grein dagsins í gær, en næst á eftir henni kemur fimmfaldur Crossfit Games meistari, Tia-Clair Toomey.

Anníe Mist jöfn á toppnum eftir þrjár greinar
Anníe Mist Þórisdóttir er jöfn Lauru Horvath á toppi Rogue Invitational-mótsins í Crossfit með 270 stig þegar þrjár æfingar eru búnar.

Anníe sigraði í fyrstu grein og situr í öðru sæti eftir daginn
Anníe Mist Þórisdóttir situr í öðru sæti eftir fyrsta dag Rogue Invitational-mótsins í Crossfit. Hún gerði sér lítið fyrir og sigraði fyrstu grein, en tvær greinar fóru fram í gær.

Anníe Mist eyddi hálftíma á dag í hitaþjálfun í gufubaði
Þegar þú býrð í kuldanum á Íslandi en ert á leið út til Texas til að keppa í miklum hita og miklum raka þá er um að gera að finna leið til þess að undirbúa sig.

Það verða allir að sjá kántrýútgáfuna af Anníe Mist og Katrínu Tönju
Vinkonurnar Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir taka sjálfa sig ekki alltof alvarlega og það er jafnan mjög gaman hjá þeim og gaman í kringum þær. Þegar Texasbúar færðu þeim gjafir var aðeins eitt í stöðunni.

Sara fór langt út fyrir þægindarammann á löngum dögum í London
Sara Sigmundsdóttir var mætt til London í nýjasta þættinum af endurkomuseríu sinni „Road to Recovery“ en það var lítill tími sem fór til spillis hjá íslensku CrossFit konunni í heimsókninni til höfuðborgar Englands.

Æft og bömpað í hitanum hjá íslenska CrossFit fólkinu í Austin
Íslensku keppendurnir hafa skilað sér til Texas fylkis í Bandaríkjunum þar sem framundan er Rogue Invitational boðsmótið sem byrjar í lok vikunnar.

Sara óhrædd að taka áhættu með nýja krossbandið sitt í brimbrettabruni
Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir eyðir tíma sínum í Dúbaí fram í desember og hefur verið að taka sér ýmislegt fyrir hendur milli allra æfinganna.

Smámunasemin hjá Anníe og Katrínu seinkaði framleiðslunni um sex mánuði
Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir standa í stórræðum þessa daga því ekki aðeins eru þær að undirbúa sig fyrir Rogue stórmótið í Texas heldur voru þær einnig að setja ný sérhönnuð heyrnartól á markaðinn. Heyrnartólin komu hálfu ári of seint á markaðinn því þær ætluðu ekki að láta neitt frá sér sem þær væru ekki fullkomlega sáttar með og stoltar af.

Sara náði markmiði sínu að ná að vera með hundrað sentimetra rass
Íslenska CrossFit stjarnan Sara Sigmundsdóttir segir bara hlutina eins og þeir eru. Á því er að sjálfsögðu engin breyting í nýjasta þættinum af netþáttaröð hennar „Road to Recovery“ sem var frumsýndur í gær.

Katrín Tanja tekur harkalega U-beygju: Ég er ekki búin
Katrín Tanja Davíðsdóttir náði ekki sínum markmiðum á heimsleikunum í CrossFit í sumar en það er mikill hugur í tvöfalda heimsmeistaranum fyrir komandi tímabil.

Anníe Mist: Þerna gerði ég mér grein fyrir því að ég er f-g sterk ennþá
Annie Mist komst á verðlaunapall á heimsleikunum í CrossFit innan við ári eftir að hún eignaðist dóttur sína Freyju Mist. Hún er enn að átta sig á því að hún hafi náð þessu.

Anníe og Katrín keppa við hvor aðra á hverjum degi: Þetta er geðveikt
Þetta eru sérstakir dagar hjá íslensku CrossFit konunum Anníe Mist Þórisdóttur og Karínu Tönju Davíðsdóttur. Í fyrsta sinn fá þær tækifæri til að undirbúa sig saman fyrir stórt mót.

Sóla skein á CrossFit móti á Spáni og fór heim með eina og hálfa milljón
Íslenska CrossFit konan Sólveig Sigurðardóttir vann glæsilegan sigur á Madrid CrossFit Championship mótinu um helgina.

Anníe og Katrín voru ósáttar með heyrnartólin sín og fundu sjálfar lausnina
Íslensku CrossFit konurnar Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru vanar að treysta á sjálfa sig og vinna markvisst af sínum markmiðum.

Sara Sigmunds: Ég vil aldrei aftur horfa á heimsleikana í CrossFit
CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir mætti sem áhorfandi á síðustu heimsleika í CrossFit en það ætlar hún aldrei að gera aftur.

Snorri Barón: Uppáhalds „Dóttir“ allra komin með grænt ljós
CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir fékk gleðifréttir í gær nákvæmlega sex mánuðum eftir að hún gekkst undir krossbandsaðgerð á hné.

Sýndu unga Anníe Mist kynna sig til leiks á fyrstu heimsleikunum
Þrettán ára CrossFit ævi íslenskrar goðsagnar var gerð upp á skemmtilegan hátt sem auglýsing fyrir eitt stærsta CrossFit mót ársins.

Katrín Tanja gat bara ekki hætt að hlæja
Vinkonurnar og CrossFit stórstjörnurnar Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru ekki bara æfingafélagar heldur einnig viðskiptafélagar.

Sara kvaddi Simba sinn og verður í Dúbaí þangað til í desember
CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir ætlar ekki að eyða næstu mánuðum hér heima á klakanum heldur er hún flogin suður á bóginn þar sem næstu mánuður fara að koma sér í keppnisform fyrir fyrsta mótið sitt eftir krossbandsslit.