Hólmbert Aron tryggði Holstein Kiel sigurinn í fyrstu umferð deildarinnar Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði sigurmark Holstein Kiel þegar liðið hafði betur gegn Eintracht Braunschweig en liðin leiddu saman hesta sína í fyrstu umferð þýsku B-deildarinnar í fótbolta karla í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 13:41
Erik ten Hag þögull sem gröfin um Højlund Erik ten Hag vildi ekkert tjá sig um væntanlega komu danska framherjans Rasmusar Højlund til Manchester United þegar hann ræddi við Skysports í aðdraganda æfingaleiks liðsins gegn Borussia Dortmund sem leikinn verður á morgun. Fótbolti 30. júlí 2023 13:34
Kólumbía í bílstjórasætið eftir glæsilegan sigur á Þjóðverjum Kólumbía fór með 2-1 sigur af hólmi þegar liðið mætti Þýskalandi í annarri umferð riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í fótbolta kvenna í Sydney í Ástralíu í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 11:38
Liverpool vann sannfærandi sigur í Singapúr Liverpool lagði Leicester City að velli með fjórum mörkum gegn engu þegar liðin áttust við í æfingaleik í Singapúr í morgun. Fótbolti 30. júlí 2023 10:55
Mbappé orðaður við Liverpool Slúðurdálkar enskra fjölmiðsla slá því upp að forráðamennn Liverpool hafi rætt við kollega sína frá franska félaginu Paris Saint-Germain um að fá Kylian Mbappé til liðs við sig á lánssamningi. Fótbolti 30. júlí 2023 10:10
Noregur kláraði riðlakeppnina með stæl Noregur vann stórsigur, 6-0, þegar liðið mætti Filippseyjum í lokaumferð heimsmeistaramótsins í fótbolta kvenna á Eden Park í Nýja-Sjálandi í morgunsárið. Fótbolti 30. júlí 2023 09:39
Komið að ögurstundu fyrir Noreg Norska landsliðið gæti verið á heimleið af Heimsmeistaramóti kvenna eftir daginn í dag. Ekkert nema sigur gegn Filipseyjum dugar þeim mögulega til að komast áfram úr A-riðli. Fótbolti 30. júlí 2023 08:01
„Ég segi nei“ Reece James, leikmaður Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, hefur gefið það til kynna að hann hafi engan áhuga á að ganga í raðir Arsenal. Enski boltinn 30. júlí 2023 07:01
FH biðu ekki boðanna eftir að félagaskiptabanni liðsins var aflétt Eins og greint var frá á Vísi í gær hefur félagaskiptabanni FH verið aflétt og hafa FH-ingar strax tekið til óskiptra málanna við að styrkja hópinn, en tveir nýjir leikmenn eru á leið til liðsins. Fótbolti 29. júlí 2023 22:04
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 1-1 | Allir daprir í Kópavogi Stjarnan komst upp í 4. sæti Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld þrátt fyrir að missa niður forskotið í 1-1 jafntefli við Breiðablik. Blikar misstu hins vegar af tækifæri til að fara upp fyrir Val í 2. sæti deildarinnar. Íslenski boltinn 29. júlí 2023 21:37
„Gæðin í þessum leik ekki upp á marga fiska“ „Viltu ekki bara spyrja mig um leikinn?“ spurði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, og vildi ekkert tjá sig um hvöss orðaskipti á milli þeirra Þórs Sigurðssonar, styrktarþjálfara Stjörnunnar, eftir 1-1 jafntefli liðanna í Bestu deildinni í kvöld. Íslenski boltinn 29. júlí 2023 21:01
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Valur 1-7 | Meistararnir með stórsigur í Eyjum Valskonur gerðu góða ferð til Eyja í dag og unnu yfirburðasigur á ÍBV. Flóðgáttirnar opnuðust í seinni hálfleik þar sem sex mörk voru skoruð. Íslenski boltinn 29. júlí 2023 19:45
Félagaskipti Højlund til Manchester United klár Manchester United og Atalanta hafa komist að samkomulagi um kaupverð á danska framherjanum Rasmus Højlund en United mun reiða fram rúmar 70 milljónir evra alls. Fótbolti 29. júlí 2023 19:30
Selfoss nældi í þrjú dýrmæt stig í fallbaráttunni Selfoss nældi í dýrmæt stig í fallbaráttunni í Bestu deild kvenna í dag með 1-0 sigri á Keflavík. Úrslitin þýða að Keflavík hefur nú tapað fjórum leikjum í röð og eru aðeins tveimur stigum frá botnsætinu. Fótbolti 29. júlí 2023 19:19
Þróttur valtaði yfir Þór/KA fyrir norðan Þróttur gerði góða ferð norður yfir heiðar í dag þar sem liðið lagði Þór/KA 0-4 í Bestu deild kvenna. Þetta var þriðji sigur Þróttara í röð í deildinni. Fótbolti 29. júlí 2023 18:12
„Fæturnir voru þungir, við vorum ryðgaðar og þurfum að komast í takt aftur“ Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, var ekki sáttur með hvernig liðið byrjaði leikinn gegn FH í Kaplakrika í dag. Honum lyktaði með 1-1 jafntefli. Íslenski boltinn 29. júlí 2023 16:53
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Tindastóll 2-1 | EM-farinn bjargaði Stjörnunni Sædís Rún Heiðarsdóttir, nýkomin heim af EM U19-landsliða, sá um að tryggja Stjörnunni 2-1 sigur gegn Tindastóli í Bestu deildinni í fótbolta í dag með sannkölluðu draumamarki. Íslenski boltinn 29. júlí 2023 16:48
Umfjöllun og viðtöl: FH - Breiðablik 1-1 | Jafnt í stórleiknum FH og Breiðablik skildu jöfn, 1-1, í fyrsta leik dagsins í Bestu deild kvenna í fótbolta. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Íslenski boltinn 29. júlí 2023 16:45
Guðlaugur Victor beint í byrjunarlið Eupen | Jafntefli í fyrsta leik Guðlaugur Victor Pálsson fór beint í byrjunarlið Eupen í fyrsta leik tímabilsins í dag, eftir að hafa formlega gengið til liðs við liðið í gær. Hann spilaði allan leikinn í miðri vörn liðsins í 2-2 jafntefli gegn Westerlo. Fótbolti 29. júlí 2023 16:11
Óvænt úrslit í Lengjudeildinni Lengjudeildin heldur áfram að bjóða upp á óvænt úrslit. Í þremur leikjum af fjórum vann liðið sem var neðar í töflunni. Í fjórða leiknum voru liðin jöfn að stigum. Íslenski boltinn 29. júlí 2023 16:07
Valgeir hafði betur gegn Hákoni í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar Häcken vann 3-1 sigur gegn Elfsborg í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Valgeir Lundal spilar með Häcken og Hákon Rafn Valdimarsson er markvörður Elfsborg. Fótbolti 29. júlí 2023 15:05
Jamaíka vann sinn fyrsta sigur í sögu HM Jamaíka vann Panama með einu marki gegn engu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í dag. Þetta var fimmti leikurinn í sögunni sem kvennalið þjóðarinnar spilar á HM og sigurinn því sögulegur. Fótbolti 29. júlí 2023 14:33
Maximin með tilfinningaþrungna yfirlýsingu á samfélagsmiðlum Allan Saint-Maximin kveður Newcastle eftir fjögur ár hjá félaginu. Hann gengur nú til liðs við Al-Ahli í Sádí-Arabíu. Enski boltinn 29. júlí 2023 13:52
Frakkar á toppi F-riðils eftir sigur gegn Brasilíu Frakkland vann Brasilíu 2-1 í æsispennandi leik á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Frakkland er á toppi F-riðilsins eftir úrslitin. Með sigri hefði Brasilía getað tryggt sig í 16-liða úrslitin en nú er allt mögulegt. Fótbolti 29. júlí 2023 12:14
Sjáðu þegar Jóhann Berg fékk rautt spjald í æfingaleik Íslenski landsliðsmaðurinn, Jóhann Berg Guðmundsson, fékk rautt spjald í æfingaleik gegn Real Betis í gærkvöldi. Enski boltinn 29. júlí 2023 11:30
David Beckham tilbúinn að taka til hendinni hjá Manchester United Ein allra mesta goðsögnin í sögu Manchester United og meðeigandi í Inter Miami segist tilbúin til að koma að rekstri United en telur að Glazier fjölskyldan þurfi að fara. Þetta kemur fram í viðtali á The Athletic. Fótbolti 29. júlí 2023 11:00
Svíar í sextán liða úrslit eftir stórsigur á Ítölum Svíþjóð gerði sér lítið fyrir og vann Ítalíu 5-0 á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Þær sænsku komust í þriggja marka forystu rétt fyrir hálfleik og bættu svo tveimur mörkum við í þeim síðari. Þær eru því komnar í sextán liða úrslit og mæta Bandaríkjunum, Hollandi eða Portúgal. Fótbolti 29. júlí 2023 09:52
Bestu mörkin: Upphitun fyrir 14. umferð Bestu deildar kvenna Það verður leikinn heil umferð í dag í Bestu deild kvenna en 14. umferð mun fara fram að öllu leyti í dag. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir úr Breiðablik og Snædís María Jörundsdóttir úr settust í sófann hjá Helenu Ólafsdóttur spáðu í spilin fyrir umferðina, ræddu undir 19 ára landsliðið og árangur þeirra í lokamóti Evrópumótsins sem fór fram fyrir stuttu. Fótbolti 29. júlí 2023 08:01
Dagskráin í dag: Golf og Besta deild karla og kvenna Það er nóg um að vera á íþróttarásum Stöðvar 2 Sport í dag. Fótboltinn í Bestu deildum karla og kvenna er fyrirferðarmikill en Golfið fær sitt pláss líka. Öll 14. umferðin verður leikin í Bestu deild kvenna. Sport 29. júlí 2023 06:01
Nákvæmari uppbótartími á Englandi Knattspyrnusambandið á Englandi og samtök dómara þar í landi, PGMOL, hafa tilkynnt það að á komandi leiktíð verður tekið harðar á leiktöfum og reynt að hafa það þannig að boltinn verði sem mest í leik. Svipuð nálgun og hefur verið á undanförnum heimsmeistaramótum í knattspyrnu karla og kvenna þannig að þegar ekki er verið að spila fótbolta er þeim tíma bætt við uppbótartímann. Fótbolti 28. júlí 2023 23:02