Telur Icelandair „verulega undirverðlagt“ og vill sjá umfangsmeira kaupréttarkerfi Bandarískt fjárfestingafélag, sem eru á meðal tíu stærsta hluthafa Icelandair, segir að miðað við núverandi verðlagningu á íslenska flugfélaginu á markaði sé það „verulega undirverðlagt“ borið saman við önnur alþjóðleg flugfélög. Það væri til bóta ef Icelandair myndi bæta úr upplýsingagjöf sinni til fjárfesta, meðal annars með tíðari afkomuspám, og þá ætti félagið að koma á fót umfangsmeira kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur þess. Innherji 17. janúar 2023 17:41
Annar flugritinn sendur til Frakklands til greiningar Yfirvöld í Nepal hafa sent annan af flugritum flugvélar sem brotlenti á sunnudaginn til Frakklands til rannsóknar. Um er að ræða þann flugrita sem geymir gögn um flugferðina en hinn flugritinn, sem tekur upp samskipti flugmanna í stjórnklefa flugvélarinnar verður rannsakaður í Nepal. Erlent 17. janúar 2023 14:14
Mannskæðasta slys í þrjá áratugi Að minnsta kosti 68 létust í flugslysi í Nepal í morgun. 72 voru um borð og telja björgunarsveitir ólíklegt að nokkur hafi komist lífs af. Mannskæðara flugslys í Nepal hefur ekki orðið síðan 1992. Erlent 15. janúar 2023 21:28
„Lággjaldaflugfélögin eru líklega að ýta eldri flugfélögum í átt að nýju viðskiptamódeli“ „Sumir ferðamenn kunna að spila þennan leik og hafa tíma og sveigjanleika. Í þeim tilfellum er mjög auðvelt að fá mjög gott verð,“ segir Birgir Jónsson forstjóri Play. Viðskipti innlent 15. janúar 2023 11:03
Fjörutíu látnir hið minnsta eftir flugslys Að minnsta kosti 64 manns eru látnir eftir að flugvél brotlenti skammt frá flugvelli í Nepal. 72 manns voru innanborðs í flugvél sem var á leið til bæjarins Pokhara frá höfuðborginni Kathmandu. Erlent 15. janúar 2023 09:39
„Sáum okkur leik á borði“ Þeir fjölmörgu Íslendingar sem lagt hafa leið sína til Tenerife undanfarnar vikur hafa eflaust tekið eftir flennistóru auglýsingaskilti Elko við innritunarborðið í TFS flugstöðinni. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að auglýsingin er á íslensku. Innlent 14. janúar 2023 15:36
Öll vélin í hláturskasti þegar „Magnús Hlynur“ fór með öryggisávarp Yfirflugliði hjá flugfélaginu Play reynir að létta upp á stemninguna í flugferðum með því að fara með öryggisávarpið með eftirhermum af frægu fólki. Allir farþegar vélar á leið frá Tenerife til Keflavíkur voru í hláturskasti þegar hann hermdi eftir Magnúsi Hlyn fréttamanni er hann fór með ávarpið. Lífið 13. janúar 2023 15:48
Faldi efnin í höfuðpúða, bakpoka og úlpu í farangrinum Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt svissneskan karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa reynt að smygla tæpu 1,4 kílóum af kókaíni til landsins. Innlent 13. janúar 2023 08:51
Heiðar Þór frá Icelandair til BusTravel Iceland Heiðar Þór Aðalsteinsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs ferðaþjónustufyrirtækisins BusTravel Iceland. Viðskipti innlent 12. janúar 2023 10:33
Flugstjórinn í rétti í máli Margrétar Icelandair var heimilt að neita Margréti Friðriksdóttur um greiðslu staðlaðra skaðabóta eftir að henni var vísað úr flugvél félagsins í september á síðasta ári. Þetta er niðurstaða Samgöngustofu sem telur að ekki sé tilefni til að draga í efa ákvörðun flugstjórans um að neita Margréti um far í því skyni að tryggja öryggi flugvélarinnar. Innlent 11. janúar 2023 15:42
Halda sínu striki þrátt fyrir bilun í Bandaríkjunum Bilun í NOTAM-flugumferðarkerfinu í Bandaríkjunum hefur ekki áhrif á ferðir Icelandair og Play að svo stöddu. Bandaríkjaflug flugfélaganna tveggja eru á áætlun að svo stöddu. Innlent 11. janúar 2023 14:01
Flugbanni í Bandaríkjunum aflétt en lítið vitað um orsök Fjölda flugferða hefur verið frestað í Bandaríkjunum vegna bilunar sem upp er komin í kerfi sem sendir út viðvaranir til flugmanna um mögulegar ógnir á flugleiðum. Erlent 11. janúar 2023 12:15
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 146 prósent árið 2022 Brottförum erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 146 prósent milli ára, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Brottfarir voru 1,7 milljón árið 2022, um milljón fleiri en árið 2021. Viðskipti innlent 11. janúar 2023 09:20
Forstjóri Play spáir einu besta ári íslenskrar ferðaþjónustu Flugfélagið Play hyggst fljúga til hátt í fjörutíu áfangastaða í sumar og bætast þrettán nýir við. Þotum verður fjölgað úr sex í tíu og spáir forstjórinn því að þetta ár verði eitt það besta frá upphafi í íslenskri ferðaþjónustu. Viðskipti innlent 10. janúar 2023 21:57
Play hefur áætlunarflug til Toronto í júní Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugsætum til Toronto í Kanada en áætlunarflug þangað hefst þann 22. júní. Toronto er fimmti áfangastaður Play í Norður-Ameríku. Flogið verður alla daga vikunnar á Hamilton International flugvöll. Viðskipti innlent 10. janúar 2023 11:27
Flugbransinn: „Þú verður háður þessum bransa má segja frá degi eitt“ „Flugbransinn er gífurlega hraður og er enginn dagur eins. Þú verður háður þessum bransa má segja frá degi eitt,“ segir Sonja Arnórsdóttir framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Play. Atvinnulíf 9. janúar 2023 07:01
Fluginu frestað eftir árekstur á Keflavíkurflugvelli Flugvél á vegum hollenska flugfélagsins Transavia, sem áætlað var að flygi til Amsterdam nú í kvöld, er ekki á förum í bráð. Ástæðan er sú að ökutæki við störf á flugvellinum var ekið á vélina. Innlent 8. janúar 2023 20:45
Í þessum hópi ræða menn um bilaða flugvélahreyfla Svo vænt þykir fyrrverandi starfsmönnum Loftleiða um sitt gamla félag að þeir halda úti sérstökum aðdáendaklúbbi. Þar lifir enn gamli Loftleiðandinn þar sem öldungar rifja upp glæsta tíma í flugsögunni. Lífið 7. janúar 2023 21:10
Fluttu um 3,7 milljónir farþega á nýliðnu ári Flugfélagið Icelandair flutti 3,7 milljónir farþega á nýliðnu ári, eða um 150 prósent fleiri en árið 2021. Flugframboð félagsins jókst jafnt og þétt á árinu og var það um 91 prósent af framboði ársins 2019 í desember. Viðskipti innlent 6. janúar 2023 08:40
Bankaði á öxl flugmannsins sekúndum fyrir slysið Myndband sem ástralskur fréttamiðill hefur birt sýnir að farþegi um borð í annarri af tveimur þyrlum sem rákust saman á flugi í Ástralíu um helgina reyndi að vara flugmanninn við sekúndum áður en slysið mannskæða varð. Erlent 5. janúar 2023 14:50
Bætir við sig þremur áfangastöðum á Jótlandi og einum í Þýskalandi Flugfélagið Play mun frá miðjum júní á næsta ári fljúga sex sinnum í viku milli Keflavíkurflugvallar til Jótlands í Danmörku. Flugferðirnar skiptast á milli þriggja flugvalla – Billund, Árósa og Álaborgar. Þá verður einnig flogið til Düsseldorf í Þýskalandi. Viðskipti innlent 5. janúar 2023 09:05
Mýflug kaupir þriðjung í Erni og Hörður selur meirihlutann Eftir meira en hálfrar aldar rekstur hefur Hörður Guðmundsson selt meirihluta sinn í Flugfélaginu Erni og er Mýflug í Mývatnssveit orðinn þriðjungseigandi. Hörður segir að með þessu sé ætlunin að styrkja rekstur tveggja lítilla flugfélaga. Viðskipti innlent 3. janúar 2023 19:30
Hún sagði „já, já“ við óvæntu bónorði íslenska flugstjórans Íslenskur flugstjóri í innanlandsflugi á Grænlandi kom farþegum sínum sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu þegar hann birtist úr stjórnklefanum og bað einn flugfarþegann um að giftast sér. Lífið 2. janúar 2023 21:42
Íslenski flugstjórinn birtist óvænt og bar fram bónorð Íslenskur flugstjóri Air Greenland í innanlandsflugi frá Kangerlussuaq til Nuuk kom grænlenskri kærustu sinni sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu. Hún hafði enga hugmynd um að hann væri um borð, hvað þá að hann væri að stýra flugvélinni, þegar hann birtist óvænt úr stjórnklefanum, fór í hátalarakerfið og bar fram bónorð. Lífið 2. janúar 2023 11:55
Seinka öllu flugi í Keflavík á morgun Öllum flugferðum Icelandair frá Keflavíkurflugvelli verður seinkað á morgun, gamlársdag, vegna veðurs. Útlit er fyrir erfið akstursskilyrði á Reykjanesbraut og í Reykjanesbæ í fyrramálið. Innlent 30. desember 2022 14:18
Hnoðaður til lífs um borð í þotu Icelandair Bandarískur karlmaður var hnoðaður til lífs um borð í þotu Icelandair að kvöldi jóladags, sem var þá á leið frá Íslandi til Seattle í Bandaríkjunum. Svo heppilega vildi til að tveir læknar voru með í för, sem aðstoðuðu flugþjón við að koma manninum til bjargar. Innlent 27. desember 2022 06:16
Varði aðfangadagskvöldi með ókunnugum strandaglópum í Keflavík „Þetta var ekki alveg aðfangadagurinn sem ég átti von á,“ segir Alexa, bandarísk kona sem ætlaði einungis að millilenda hér á landi í tvo klukkutíma í gær en endaði á því að verja jólunum í Keflavík þar sem flugi hennar til Bandaríkjanna var aflýst vegna veðurs. Innlent 25. desember 2022 18:50
Sérsveitin í aðgerð á Keflavíkurflugvelli Sérsveit ríkislögreglustjóra var með töluverðan viðbúnað á Keflavíkurflugvelli á fimmta tímanum í dag. Lögregla var kölluð til eftir að taska fannst yfirgefin í flugvallarbyggingunni. Innlent 23. desember 2022 17:37
Vél á leið til Ísafjarðar þurfti að snúa við vegna bilunar Flugvél á vegum Mýflugs þurfti snúa við er hún var á leið til Ísafjarðar vegna tæknilegra örðugleika. Vélin lenti heilu og höldnu á Akureyrarflugvelli en hættustig var virkjað á vellinum vegna atviksins. Þrír voru um borð í vélinni. Innlent 22. desember 2022 18:33
Mikilvægt að farþegar leiti réttar síns Raskanirnar á flugferðum í vikunni höfðu áhrif á tugi þúsunda farþega og er enn verið að vinna í því að koma hlutunum í eðlilegt horf. Samgöngustofa og Neytendasamtökin hafa fengið fjölmargar fyrirspurnir frá farþegum vegna bóta. Farþegar eigi alltaf rétt á ákveðinni þjónustu og jafnvel skaðabótum, þó það sé meira álitsefni. Innlent 22. desember 2022 15:08