Kannaðist ekki við að hafa ekið á súlu í annarlegu ástandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í dag uppi á ökumanni sem grunaður var um að hafa ekið á súlu. Sá var grunaður um að hafa ekið í annarlegu ástandi. Innlent 9. október 2023 17:51
Leit að Sigurveigu lokið Leit að Sigurveigu Steinunni Helgadóttur er lokið. Hún hefur sjálf látið vita af sér. Þetta staðfestir bróðir hennar, Þorvaldur S. Helgason. Innlent 9. október 2023 16:35
Vopnað rán og ekið um með ungabarn í fanginu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gærkvöldi eða nótt um vopnað rán í póstnúmerinu 105. Var greint frá því að einstaklingur hefði ógnað öðrum með skotvopni og krafið um fjármuni. Innlent 9. október 2023 06:01
„Ég vildi fá að hringja í pabba og þeir bönnuðu mér það“ Nítján ára maður, sem er dökkur á hörund, og var handtekinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar segir húðlit sinn hafa ráðið aðgerðum lögreglu. Hann segir fordóma í samfélaginu hafa færst í aukana. Lögmaður mannsins hefur krafist miskabóta úr hendi ríkisins. Innlent 8. október 2023 20:09
Braust inn í grunnskóla og flúði á rafhlaupahjóli Í nótt braust einstaklingur inn í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þegar lögreglu bar að garði var einstaklingurinn farinn af vettvangi á rafhlaupahjóli. Innlent 8. október 2023 07:31
Banaslys í Norðfjarðarsveit Maður á sjötugsaldri lést í vinnuslysi í dag á sveitabæ í Norðfjarðarsveit. Innlent 7. október 2023 21:14
Kona ráfandi um á sokkunum Tæplega áttatíu mál voru skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar, en þar segir að nokkuð hafi verið um ölvun og stimpingar í miðborginni. Þar gistu þrír einstaklingar fangageymslu eftir nóttina. Innlent 7. október 2023 07:21
Yfirgefinn alelda bíll við Krýsuvíkurveg Bíll stóð í ljósum logum skammt frá Krýsuvíkurvegi fyrr í kvöld. Þegar slökkvilið kom á staðinn hafði yfirgefinn bíllinn nánast brunnið til kaldra kola. Innlent 6. október 2023 20:58
Braust inn og hafði á brott borðtölvu, iPhone og iPad Tilkynnt var um tvö innbrot í höfuðborginni í morgun. Í öðru innbrotinu hafði þjófurinn á brott, ásamt fleiru, borðtölvu, iPhone og iPad. Innlent 6. október 2023 18:03
Lýsa eftir Sigurveigu sem ekkert hefur spurst til í þrjá daga Lögreglu hefur verið tilkynnt um hvarf Sigurveigar Steinunnar Helgadóttur, 26 ára. Ekkert hefur spurst til hennar frá því að hún fór frá heimili sínu í Vesturbæ Reykjavíkur aðfaranótt þriðjudags. Innlent 6. október 2023 13:05
Ný tegund netsvika beinist að heimabanka Íslendinga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við nýju formi netsvika, svokölluðum smishing árásum. Þar er markmiðið að yfirtaka heimabanka með alvarlegum afleiðingum, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar. Fólk fái skilaboð sem líti út fyrir að vera frá þeirra viðskiptabanka. Viðskipti innlent 6. október 2023 09:42
Stúlkan á Selfossi komin í leitirnar Lögreglan á Suðurlandi lýsti í dag eftir stúlku á Selfossi sem hafði ekki sést til síðan klukkan 22 í gærkvöldi. Innlent 6. október 2023 07:23
Beittu varnarúða á mann með hníf í austurbænum Lögregla á höfuðborgarsvæðinu beitti varnarúða til að yfirbuga mann sem fór ekki að fyrirmælum lögreglu í austurbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt. Innlent 6. október 2023 06:18
Europol og Tik Tok æfðu viðbrögð við hryðjuverkatengdu efni Hryðjuverkasvið Europol, fulltrúar löggæsluyfirvalda í ellefu ríkjum og samskiptamiðill Tik Tok tóku þátt í sameiginlegri æfingu hinn 28. september síðastliðinn, til að æfa viðbrögð við hryðjuverkatengdu efni á miðlinum. Erlent 5. október 2023 08:31
Frelsissvipting í Kópavogi Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás og frelsissviptingu í Kópavogi á sjöunda tímanum í morgun. Innlent 4. október 2023 19:29
Áfram í gæslu eftir harmleikinn í Bátavogi Krufning á 58 ára karlmanni sem fannst meðvitundarlaus í félagsíbúð við Bátavog í Reykjavík laugardagskvöldið 23. september bendir til þess að honum hafi verið ráðinn bani að sögn lögreglu. Kona á 42. aldursári var í dag úrskurðuð í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald en hún var á vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Innlent 4. október 2023 13:22
Mjög harður árekstur tveggja bíla í Aðaldal Mjög harður árekstur tveggja bíla varð á Norðausturvegi, skammt vestan við Laxamýri í Aðaldal, suður af Húsavík, um klukkan 11 í morgun. Innlent 4. október 2023 13:03
Þremur bjargað af svölum íbúðar eftir að eldur kom upp í hlaupahjóli Viðbragðsaðilar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir til klukkan 2:15 í nótt vegna elds á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Um talsverðan eld var að ræða og mikinn reyk, segir í yfirlit lögreglu yfir verkefni næturinnar. Innlent 4. október 2023 06:16
Ákváðu að kæra eftir að bent var á fleiri myndskeið Umhverfisstofnun mun skila kæru til Lögreglunnar á Suðurlandi vegna utanvegaaksturs Þjóðverjans Petes Ruppert í fyrramálið. Innlent 3. október 2023 21:44
Bílabrunarnir á Akureyri: Karlmaður kærður fyrir hótanir í garð sakbornings Foreldrar sautján ára stráks sem grunaður er um eina af tveimur meintum íkveikjum á Akureyri um miðjan september hafa kært karlmann fyrir hótanir í garð stráksins í aðdraganda brunanna. Eigendur bíla sem urðu fyrri íkveikjunni að bráð hafa enn ekki verið boðaðir í skýrslutöku vegna málsins. Innlent 3. október 2023 19:05
Manninum sem fannst látinn í austurborginni virðist hafa verið ráðinn bani Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir allt benda til þess að manni, sem lést eftir að hafa fundist meðvitundarlaus um þarsíðustu helgi, hafi verið ráðinn bani. Innlent 3. október 2023 17:17
Þrjú mál á hendur Sölva felld niður Lögregla hefur hætt rannsókn í þremur málum sem jafnmargar konur höfðuðu gegn fjölmiðlamanninum Sölva Tryggvasyni og sökuðu um ofbeldi. Tvö og hálft ár er liðið síðan hann fór í umtalað viðtal í eigin hlaðvarpsþætti eftir útbreidda slúðursögu um að hafa gengið í skrokk á vændiskonu. Sagan átti ekki við rök að styðjast. Innlent 3. október 2023 07:01
Braut gegn lögregluþjónum en sagði þá ætla að drepa hann Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir valdstjórnarbrot fyrir að beita tvo lögregluþjóna ofbeldi. Maðurinn neitaði sök og hélt því fram að annar lögregluþjónninn hafi ætlað að drepa hann, og því sagðist því halda að þeir myndu drepa hann. Innlent 3. október 2023 06:30
Leitað að gerendum í líkamsárásarmáli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk símtal rétt fyrir klukkan eitt í nótt þar sem maður sagðist hafa orðið fyrir líkamsárás. Þegar lögregla mætti á vettvang voru meintir gerendurnir farnir af vettvangi í bifreið. Innlent 3. október 2023 06:05
Fimmtán ára drengur grýtti skóflu að lögreglumönnum Fimmtán ára drengur kastaði skóflu í átt að lögreglumönnum í dag. Skóflan endaði á lögreglubifreið svo af hlutust minniháttar skemmdir. Innlent 2. október 2023 23:43
Keyrði á 84 í nágrenni skóla og bíður ákæru Maður á yfir höfði sér ákæru eftir að hafa keyrt á 84 kílómetra hraða í nágrenni grunnskóla, þar sem leyfður hámarkshraði er 30. Innlent 2. október 2023 17:24
Skoða mikið magn myndefnis vegna árásarinnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer nú yfir mikið magn myndefnis vegna árásarinnar á ráðstefnugest á vegum Samtakanna '78 á Hverfisgötu í miðborg Reykjavíkur síðastliðið þriðjudagskvöld. Árásarmennirnir eru enn ófundnir. Innlent 2. október 2023 15:00
Viðbragðsaðilar kallaðir út eftir að maður sást ganga í sjóinn Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um hálfeittleytið í nótt vegna manns sem hafði sést ganga í sjóinn á Eiðisgranda. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var lið strax kallað út ásamt köfurum eins og gert er í tilvikum sem þessum. Innlent 2. október 2023 07:06
„Að tengja þennan dag við fleiri jákvæða hluti er partur af batanum“ Guðný S. Bjarnadóttir beið í 721 dag frá því að hún kærði mann fyrir nauðgun þar til héraðssaksóknari tilkynnti henni að ekki yrði gefin út ákæra í máli hennar. Í dag verður hún 42 ára gömul, í dag eru tvö ár liðin síðan henni var nauðgað og í dag verður stofnfundur nýrra samtaka hennar - Hagsmunasamtaka brotaþola. Innlent 2. október 2023 07:00
Ósáttur með verðlagningu og barði leigubílstjóra Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um mann sem hafði barið leigubílstjóra í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 1. október 2023 16:48