Réttað yfir Weinstein vegna Óskarsmála Byrjað verður að velja kviðdómendur fyrir réttarhöld yfir Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðandanum alræmda, í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Weinstein er ákærður fyrir að brjóta á fimm konum, meðal annars í kringum Óskarsverðlaunahátíð fyrir níu árum. Erlent 10. október 2022 11:20
Sacheen Littlefeather er látin Aðgerðarsinninn Sacheen Littlefeather er látin, 75 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein í brjósti undanfarin ár. Í tilkynningu frá Óskarsverðlaunaakademíunni segir að hún hafi verið umkringd fjölskyldu og vinum þegar hún féll frá. Lífið 3. október 2022 06:49
Hildur Guðnadóttir eigi möguleika á að slá met hljóti hún tilnefningu Íslenska tónskáldið Hildur Guðnadóttir er sögð eiga möguleika á því að vera tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna á komandi hátíð. Bæði fyrir tónlist sína í kvikmyndinni „Tár“ og „Women Talking.“ Tónlist 30. september 2022 23:56
Rússar sniðganga Óskarinn Rússar ætla ekki að senda inn tilnefningu til bestu erlendu kvikmyndarinnar á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fer fram í mars á næsta ári. Formaður rússnesku Óskarstilnefninganefndarinnar hefur sagt af sér vegna málsins. Bíó og sjónvarp 27. september 2022 23:45
Berdreymi framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna Framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2023 er kvikmyndin Berdreymi eftir leikstjórann Guðmund Arnar Guðmundsson. Þetta tilkynnti Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra á Eddunni fyrr í kvöld. Lífið 18. september 2022 21:42
Hildur Guðna orðuð við Óskarsverðlaun Kvikmyndin Tár var í dag frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Cate Blanchett fer með aðalhlutverk myndarinnar og samdi Hildur Guðnadóttir tónlistina. Hildur er sögð líkleg til að vinna Óskarsverðlaun fyrir myndina. Lífið 1. september 2022 23:22
Segist hafa afþakkað boð um að verða aðalkynnir á næstu Óskarsverðlaunahátíð Bandaríski grínistinn Chris Rock segist hafa hafnað boði um að verða kynnir á næstu Óskarsverðlaunahátíð sem fram fer í mars á næsta ári. Rock var kýldur af Will Smith á síðustu Óskarsverðlaunahátíð þegar hann var að kynna tilnefningar fyrir bestu heimildarmynd ársins og gerði þá grín að Jada Pinkett Smith, eiginkonu Will Smith. Lífið 30. ágúst 2022 08:35
Gantast enn með kinnhestinn en vill ekki ræða við Will Smith Á nýlegu uppistandi hélt grínistinn Chris Rock áfram að gantast með kinnhestinn víðfræga sem Will Smith veitti honum á síðustu Óskarsverðlaunum. Chris minntist ekki á nýlegt myndband Will Smith þar sem sá síðarnefndi biðst fyrirgefningar á framferði sínu á Óskarsverðlaununum. Hann hélt hins vegar áfram að gera grín að atvikinu. Lífið 31. júlí 2022 10:08
Will Smith biðst aftur afsökunar á kinnhestinum Will Smith birti myndband á Instagram-síðu sinni fyrr í dag þar sem hann biður Chris Rock afsökunar fyrir að hafa gefði honum kinnhest á síðustu Óskarsverðlaunahátíð. Lífið 29. júlí 2022 15:04
Óskarsverðlaunahafi handtekinn á Ítalíu Kanadíski kvikmyndaleikstjórinn og Óskarsverðlaunahafinn Paul Haggis var handtekinn vegna gruns um kynferðisofbeldi á Ítalíu í gær. Haggis er sagður neita sök en hann er nú í stofufangelsi. Erlent 20. júní 2022 13:34
Grét þegar hún var ekki tilnefnd til Óskarsins Í nýrri stiklu fyrir heimildarmyndina um Jennifer Lopez má sjá að hún tók það mjög nærri sér að vera ekki tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir kvikmyndina Hustlers. Lífið 19. maí 2022 13:30
Liza Minnelli upplifði eins og skemmt hafi verið fyrir sér á Óskarnum Grammy verðlaunahafinn Michael Feinstein sem er vinur og samstarfsmaður Lizu Minnelli sagði í viðtali í gær að henni hafi fundist vera eyðilagt fyrir sér á Óskarnum í síðasta mánuði þegar hún kom fram með Lady Gaga. Lífið 20. apríl 2022 16:30
Will Smith í tíu ára bann frá Óskarnum Bandaríski leikarinn Will Smith fær ekki að mæta á Óskarsverðlaunahátíðina eða aðra tengda viðburði næstu tíu ár. Lífið 8. apríl 2022 19:18
Óskarsvaktin fer yfir hátíðina og eftirmála hennar Óskarvakt Vísis í ár skipuðu þær Dóra Júlía og Elísabet Hanna. Þær hafa nú tekið saman stærstu mál Óskarsins 2022 og sett þau í svokallaðan uppgjörsþátt, um hátíðina og allt sem henni hefur fylgt. Kjólarnir, tískan, kynnarnir, atvikið sem allir eru að tala um og eftirmálar þess. Lífið 5. apríl 2022 14:30
Hættur í akademíunni eftir löðrunginn Leikarinn Will Smith hefur sagt sig úr bandarísku kvikmyndaakademíunni vegna hegðunar sinnar á óskarverðlaunahátíðinni á dögunum þegar hann löðrungaði grínistann Chris Rock. Lífið 1. apríl 2022 23:39
Rock að melta kinnhestinn: „Hvernig var helgin ykkar?“ Grínistinn Chris Rock er enn að melta kinnhestinn sem leikarinn Will Smith veitti honum á Óskarsverðlaunahátíðinni aðfaranótt mánudags. Rock kom fram í Boston í gærkvöldi í fyrsta skipti síðan uppákoman átti sér stað. Lífið 31. mars 2022 08:35
Smith neitaði að yfirgefa salinn eftir kinnhestinn Leikarinn Will Smith var beðinn um að yfirgefa Óskarsverðlaunahátíðina eftir að hann gaf grínistanum Chris Rock kinnhest. Smith neitaði að verða við beiðninni. Lífið 30. mars 2022 23:27
Talaði um Ísland á rauða dreglinum: „Það var ískalt“ Leikkonan Rosie Perez nýtti viðtal á rauða dreglinum á Óskarsverðlaununum í það að lofsama Ísland. Hún var stödd hér við tökur í lok síðasta árs. Lífið 30. mars 2022 14:30
Stjörnurnar skiptu um föt og fóru beint í eftirpartý Eftir Óskarshátíðina er fjörið rétt að byrja og halda stjörnurnar beint í eftirpartý í nýjum sparifötum. Stærstu og umtöluðustu teitin utan hátíðarinnar eru líklega Governors Ball, Vanity Fair og áhorfspartýið hjá Elton John. Lífið 30. mars 2022 14:00
Sýnatökugrín Reginu Hall féll í grýttan jarðveg Óskarskynnirinn Regina Hall kallaði á Bradley Cooper, Tyler Perry, Simu Liu og Timothée Chalamet á svið á verðlaunaafhendingunni á sunnudag. Hún þóttist þurfa að prófa þá fyrir Covid baksviðs. Lífið 29. mars 2022 07:01
Smith biður Chris Rock afsökunar á kinnhestinum Leikarinn Will Smith hefur beðist afsökunar á að hafa slegið starfsbróður sinn, Chris Rock, á sviðinu á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt. Hann sló Rock eftir að sá síðarnefndi, sem var að kynna verðlaunaflokk á hátíðinni, grínaðist með hárgreiðslu Jada Pinkett Smith, eiginkonu Will, en hún er með sjúkdóm sem veldur hárlosi. Lífið 28. mars 2022 23:42
Fordæma kinnhestinn sem verður rannsakaður Bandaríska kvikmyndakademían hefur fordæmt hegðun leikarans Wills Smith á nýafstaðinni Óskarsverðlaunafhendingu, þar sem Smith gaf grínistanum Chris Rock kinnhest í beinni útsendingu. Lífið 28. mars 2022 19:41
Megan Thee Stallion stal senunni í Encanto atriði Lagið We Don't Talk About Bruno úr Encanto var flutt á hátíðinni í gær í sérstakri Óskarsútgáfu. Megan Thee Stallion fór þar á kostum. Tónlist 28. mars 2022 17:00
Óskarsverðlaunaflutningur Billie Eilish og Finneas O'Connell Systkinin Billie Eilish og Finneas O'Connell unnu Óskarsverðlaunin í ár fyrir besta frumsamda lagið. Bond lagið þeirra No Time to Die var valið það besta úr kvikmyndum síðasta árs. Tónlist 28. mars 2022 15:00
Það besta í hári og förðun á rauða dreglinum að mati HI beauty „Hárið stal klárlega senunni þetta kvöldið,“ segja Ingunn Sig og Heiður Ósk þáttastjórnendur Snyrtiborðsins hér á Vísi. Tíska og hönnun 28. mars 2022 14:31
Stjörnurnar sem skinu skærast á Óskarnum Í beinni textalýsingu okkar frá Óskarsverðlaununum í nótt fórum við auðvitað líka yfir tískuna á rauða dreglinum jafn óðum og gestirnir mættu á svæðið. Tíska og hönnun 28. mars 2022 11:12
Blue Ivy kom fram í Óskarsatriði Beyoncé Beyoncé ljómaði eins og sólin í stórkostlegu atriði í nótt. Söngkonan Beyoncé opnaði Óskarsverðlaunin með flutningi á laginu Be Alive úr kvikmyndinni King Richard. Tónlist 28. mars 2022 10:31
Bradley Cooper og Denzel Washington ræddu við Will Smith eftir atvikið Leikararnir Bradley Cooper, Denzel Washington og Tyler Perry ræddu allir við Will Smith eftir að hann sló Chris Rock á Óskarnum í nótt. Lífið 28. mars 2022 09:41
Sigurvegarar Óskarsins 2022: „Þetta er okkar stund“ Óskarsverðlaunahátíðin 2022 fer líklega í sögubækurnar sem ein viðburðarríkasta og jafnvel undarlegasta hátíðin hingað til. Dune vann flest verðlaun kvöldsins, alls sex, en þó ekki sem besta myndin. Hátíðin var í beinni útsendingu á Stöð 2 auk þess sem fylgst var grannt með gangi mála í vaktinni, eins og sjá má neðst í fréttinni. Lífið 28. mars 2022 04:44
Will Smith valinn besti leikari í aðalhlutverki stuttu eftir atvikið Will Smith hefur átt ansi viðburðarríkt kvöld á Óskarnum en hann var nú að vinna til verðlauna sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir King Richard. Þetta eru hans fyrstu Óskarsverðlaun. Lífið 28. mars 2022 03:28