Flestir rólegir en pirrandi að þurfa að hætta að draga „Við erum bara spenntir að komast í land,“ segir Markús Ingi Karlsson, vélstjóri um borð á Þórsnesi SH109, sem var dregið með bilaða vél til Þórshafnar í nótt. Samhliða því var allri sautján manna áhöfninni gert að fara í sóttkví vegna einkenna sem nokkrir skipverjanna fundu fyrir. Innlent 26. apríl 2021 13:54
Lilja telur Samherja hafa gengið of langt Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir Samherja hafa gengið of langt í viðbrögðum sínum við umfjöllun Ríkisútvarpsins um fyrirtækið. Innlent 26. apríl 2021 13:39
Inga Lind deilir hart á Njál Trausta Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona gagnrýnir harðlega málflutning Njáls Trausta Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um ágæti fiskeldis á Austfjörðum. Innlent 23. apríl 2021 15:20
Strandaglópur snýr loks heim eftir fjögurra ára einveru Sjómaðurinn Mohammed Aisha hefur undanfarin fjögur ár þurft að dvelja einn í skipinu MV Amman við strendur Egyptalands en hefur nú loks verið frelsaður og er floginn heim til Sýrlands. Hann segist finna fyrir miklum létti enda ekki auðvelt að vera einn í fjögur ár. Erlent 22. apríl 2021 20:39
Vandlæting formanns VR Fyrir nokkrum kynslóðum þótti það alsiða að uppnefna fólk eða gefa því viðurnefni. Úr mínum heimabæ á Skaganum þekki ég mýmörg dæmi. Tímarnir breytast þó blessunarlega og mennirnir (flestir) með. Þegar ég hugsa til þessara viðurnefna í dag finnst mér þau einstaklega kjánaleg, heimskuleg og ekki síður særandi fyrir þá sem þau þurftu að þola. Það er eitthvað smásálarlegt við þetta, ef svo má að orði komast. Skoðun 21. apríl 2021 08:42
Segir frábært hvað ræst hefur úr fisksölu í faraldri Aflabrögð á vetrarvertíð í Grindavík hafa verið mjög góð frá áramótum. Hjá stærstu útgerðinni, Þorbirni, hefur sala sjávarafurða á erlenda markaði gengið vonum framar og verðlækkanir vegna covid-faraldursins reynst minni en óttast var. Viðskipti innlent 16. apríl 2021 21:21
Hverjir eiga Ísland? Fimm sjokkerandi punktar Ein verðmætasta sameiginlega eign þjóðarinnar samkvæmt lögum er sjávarauðlindin. Fyrir nýtingu á henni greiðir útgerðin veiðileyfagjald. En vissu þið þessa fimm punkta um veiðileyfagjöldin? Skoðun 15. apríl 2021 11:01
Fiskibátur strandaði í Krossavík Fiskibátur á netaveiðum með tvo um borð strandaði í Krossavík, austan við Reykjanestá, í hádeginu í dag. Innlent 13. apríl 2021 13:50
Norðfirðingar vilja stækka hlut sinn í Síldarvinnslunni Áhugi er meðal heimamanna á Norðfirði að auka hlut sinn á ný í Síldarvinnslunni, stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Austfjarða, nú þegar stefnt er að skráningu fyrirtækisins á hlutabréfamarkað. Viðskipti innlent 12. apríl 2021 22:10
Fyrir hvað og á kostnað hvers verður Laxeldi í Seyðisfirði? Sjókvíaeldi er hafið í Austfjörðum og stefnir í Seyðisfjörð. Er samfélagslegt mikilvægi eldisins slíkt, að það réttlæti umhverfisvána sem því fylgir? Áleitin spurning með hag samtímans í huga og ekki síður það hvernig við viljum skila lofti, landi og sjó til komandi kynslóða. Skoðun 9. apríl 2021 12:01
Kafaði niður í loðnutorfu í Faxaflóa og kvikmyndaði Íslenskur kafari kvikmyndaði loðnutorfu í síðasta mánuði með því að kafa sjálfur niður í torfuna. Ekki er vitað til þess að slíkt hafi áður verið gert í heiminum. Kafarinn lýsir þessu sem ævintýri. Innlent 8. apríl 2021 23:40
Margrét tekur við formennsku af Grétu Maríu Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Margréti Hólm Valsdóttur, útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík, nýjan formann Matvælasjóðs. Margrét tekur við formennsku af Grétu Maríu Grétarsdóttur sem réð sig nýverið til starfa hjá Brimi. Viðskipti innlent 7. apríl 2021 14:49
Kennsla í loðnuveiði: Dæla úr nót annarra „Það er bara fundin torfa og kastað,“ svarar skipstjórinn á Beiti NK, Sturla Þórðarson, þegar við biðjum hann um að útskýra fyrir áhorfendum hvernig loðnuveiðar fara fram. Innlent 5. apríl 2021 07:43
Netagerðarmeistari lifir á loðnuvertíð fram eftir ári Nýafstaðin loðnuvertíð færir netaverkstæðum kærkomna búbót sem endist þeim langt fram eftir ári. Dæmi um slíkt fundum við austur í Neskaupstað. Viðskipti innlent 3. apríl 2021 23:14
Splunkunýtt skip Samherja komið til Eyjafjarðar Nýtt uppsjávarskip, Vilhelm Þorsteinsson EA, sigldi í fyrsta sinn inn Eyjafjörð í gær en skipið var sérsmíðað í Danmörku fyrir Samherja. Skipið er 89 metrar á lengd, 16,6 metrar á breidd og burðargeta þess vel yfir þrjú þúsund tonn í þrettán lestartönkum þar sem afli verður kældur. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samherja. Viðskipti innlent 3. apríl 2021 13:52
Alltaf sömu karlarnir því það hættir enginn Það er enginn undir þrítugu í áhöfn Beitis NK, skipi Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, og sá elsti á dekki er 65 ára. Áður fyrr var algengt að sautján-átján ára gamlir strákar væru á loðnuveiðunum. Innlent 2. apríl 2021 07:50
Tæp sextíu prósent andvíg núverandi kvótakerfi Tæp 60 prósent Íslendinga eru andvíg núverandi kvótakerfi í sjávarútvegi. Afstaða almennings virðist ekki breytast mikið milli aldurshópa en töluverður munur er á afstöðu kvenna og karla til kvótakerfisins. Innlent 1. apríl 2021 22:31
Telur sjómenn hlunnfarna um allt að milljarð á síðustu loðnuvertíð Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki greiddu tvöfalt meira fyrir loðnu til vinnslu af norskum skipum en íslenskum í síðustu loðnuvertíð. Formaður Sjómannasambandsins telur íslenska sjómenn hafa verið hlunnfarna um allt að milljarð. Forstjóri Síldarvinnslunnar segir að sínum sjómönnum hafi verið greitt það sem vantaði upp á þeirra hlut í dag. Innlent 31. mars 2021 19:01
Þorsteinn nýr forstjóri Hafró Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Þorstein Sigurðsson í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar – rannsóknar- og ráðgjafastofnunar hafs og vatna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Innlent 31. mars 2021 13:53
Segja halla mjög á Íslendinga í samningum við Norðmenn Forystumenn loðnuútgerða og skipstjórar eru afar ósáttir við hversu hátt hlutfall Norðmenn fá af loðnukvótanum og segja að mjög halli á Íslendinga í skiptisamningi um þorskveiðar í Barentshafi. Viðskipti innlent 30. mars 2021 23:26
Þrávirk efni ógna heilsu háhyrninga við Ísland Margfalt meira af þrávirkum efnum fundust í íslenskum háhyrningum sem éta bæði fisk og spendýr en þeim sem nærast aðeins á fiski í nýrri rannsókn hafvísindamanna á Íslandi, í Kanada og Danmörku. Heilsu hvalanna og afkomu stofnsins er ógnað af menguninni. Innlent 30. mars 2021 09:01
Ævintýraleg öflun verðmæta á skömmum tíma á loðnuvertíð Það er óhætt að tala um loðnuævintýri miðað við útflutningsverðmæti síðasta loðnufarms fiskiskipsins Beitis, sem reyndist 650 milljónir króna. Það tók áhöfn skipsins aðeins átta klukkustundir að ná aflanum um borð. Viðskipti innlent 29. mars 2021 23:34
Höfum öll ofboðslega gott af því að finna hvað heldur okkur gangandi „Það er bara gaman að vinna á vertíð. Það eru vaktir. Það er fjör. Þú finnur það að þú ert að bjarga verðmætum og að þetta skiptir máli. Ég held að við höfum öll bara ofboðslega gott af því að vera svona með puttann á púlsinum á því hvað heldur okkur gangandi,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, um eigin reynslu af því að vinna á loðnuvertíð. Innlent 28. mars 2021 23:00
Helena Gallardo Roldán fyrsti starfsstöðvastjóri Hafró á Austurlandi Helena Gallardo Roldán hefur verið ráðin starfsstöðvastjóri og sérfræðingur á nýrri starfsstöð Hafrannsóknastofnunar á Neskaupstað sem opnaði fyrr í mánuðinum. Viðskipti innlent 22. mars 2021 14:24
Finna ekki dæmi um svindl á veitingastöðum þrátt fyrir niðurstöður rannsóknar Eftirlit með veitingastöðum í Reykjavíkur hefur ekki leitt í ljós svindl með fisktegundir sem virtist koma fram í rannsókn sem var gerð árið 2016. Sú rannsókn benti til þess að á Íslandi væri eitt hæsta hlutfall rangra merkinga á fiskmeti á veitingastöðum í Evrópu. Innlent 22. mars 2021 07:00
Botnvörpuveiðar taldar losa jafnmikið og flugsamgöngur Allt að milljarður tonna af koltvísýringi losnar út í höf jarðar vegna botnvörpuveiða á ári, meira en losnar frá samgöngum út í loftið. Þetta er á meðal bráðabirgðaniðurstaðna nýrrar rannsóknar á hvernig þjóðir geta barist gegn loftslagsbreytingum og hruni vistkerfa hafsins. Erlent 18. mars 2021 15:09
Óþolandi staða Efla þarf Verðlagsstofu skiptaverðs sem þarf að hafa burði til þess að bera saman afurðaverð á erlendum mörkuðum og afurðaverð hér á landi. Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Innlent 18. mars 2021 13:50
Grænlenskur togari sokkinn eftir tveggja daga eldsvoða Grænlenski togarinn Polar Aassik er nú sokkinn undan ströndum Qasigiannguit á vesturströnd landsins, en eldur hafði logað í skipinu í um tvo sólarhringa. Erlent 18. mars 2021 08:22
Segir loðnuvertíðina stóran lottóvinning fyrir þjóðarbúið Núna er áætlað að loðnuvertíðin skili yfir tuttugu milljarða króna útflutningsverðmætum. Þetta kom fram í viðtali við Gunnþór Ingvason, forstjóra Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, en þangað var Börkur NK í kvöld á leið með síðasta loðnufarm Austfjarða á þessari vertíð, 1.900 tonna farm. Þá virðist einungis Ísfélag Vestmannaeyja eiga eftir um þúsund tonn óveidd af sínum kvóta. Viðskipti innlent 10. mars 2021 22:29