VG mælist með 3,5 prósent Vinstri græn mælast enn utan þings, samkvæmt nýjum þjóðarpúsli Gallúp. Fleiri myndu kjósa Sósíalistaflokkinn. Innlent 1. ágúst 2024 20:11
„Mýkri leiðir í hörðum heimi“ „Ég stend hér í dag með hjartað fullt af þakklæti, fyrir það traust sem mér og okkur hjónum er sýnt. Þakklát foreldrum mínum, sem gáfu mér gott veganesti út í lífið. Og ég er þakklát kjarkmiklu konunum sem sýndu mér ungri að aldri að með hugrekki og samtakamætti getum við hreyft við samfélaginu, og leitt framfarir.“ Innlent 1. ágúst 2024 17:48
Undurfagur flutningur fyrir nýjan forseta Sigríður Thorlacius flutti lögin Vikivaka og Vetrarsól við embættistöku Höllu Tómasdóttur, sem varð í dag sjöundi forseti lýðveldisins. Lífið 1. ágúst 2024 17:24
Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Halla Tómasdóttir tók við embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í dag. Dagskráin hófst með helgistund í Dómkirkjunni klukkan 15:30 en embættistakan var í beinu streymi á Vísi frá klukkan 15:00. Innlent 1. ágúst 2024 14:16
Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Halla Tómasdóttir verður sett í embætti sem sjöundi forseti Íslenska lýðveldisins í dag, önnur kvenna til að gegna embættinu. Í fyrsta sinn í lýðveldissögunni verða þrír fyrrverandi forsetar viðstaddir athöfnina. Innlent 1. ágúst 2024 12:31
Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Í dag fór fram síðasti ríkisráðsfundur Guðna Th. Jóhannessonar í embætti forseta Íslands. Forsætisráðherra segir skilaboð forsetans fráfarandi á fundinum þau að ríkisstjórnin komi til með að spjara sig án hans, lítillát skilaboð sem hann segir endurspegla karakter Guðna vel. Innlent 31. júlí 2024 21:34
Von á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku Höllu Von er á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku forseta Íslands þegar Halla Tómasdóttir verður sett í embætti á morgun. Athöfnin verður með nokkuð hefðbundnu sniði, en þó með nokkrum undantekningum. Vegna öryggiskrafna Alþingis komast færri fyrir í þinghúsinu, og því munu sérstakir gestir Höllu fylgjast með úr nýbyggingu þinghússins, Smiðju. Innlent 31. júlí 2024 12:31
Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Vikivaki verður sunginn í Dómkirkjunni, Vetrarsól í Alþingishúsinu og almenningur getur fylgst með af risaskjá á Austurvelli. Dagskráin fyrir innsetningarathöfn Höllu Tómasdóttur liggur fyrir. Innlent 30. júlí 2024 16:54
Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins skorar á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra að fallast hvorki á varanlega né tímabundna lausn Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara frá störfum vegna ummæla hans um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum. Innlent 29. júlí 2024 22:09
Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Dómsmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp sem myndi gera yfirvöldum kleift að svipta fólk alþjóðlegri vernd, gerist það uppvíst að alvarlegum afbrotum. Hún leggur frumvarpið fram í haust, en það myndi aðeins gilda um afbrot framin eftir að lögin taka gildi. Innlent 28. júlí 2024 09:18
ÉG ÞORI! Enginn sem freistar þess að koma sér þaki yfir höfuðið í því stjórnleysi sem hér ríkir, getur gert sér í hugarlund hvaða vinnuþrælkun og fjötrar munu binda hann til framtíðar. Skoðun 27. júlí 2024 07:00
Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Umboðsmaður barna hefur sent mennta- og barnamálaráðherra bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum um innleiðingu nýs samræmds námsmats. Einnig er óskað eftir því að ráðuneytið leggi fram skýrslu um framkvæmd skólastarfs í grunnskólum, sem ráðuneytið hefur ekki skilað af sér síðan 2019. Lögum samkvæmt á að leggja slíka skýrslu fram á þriggja ára fresti. Innlent 26. júlí 2024 13:27
Aftengja sig Pírataspjallinu Hópnum „Pírataspjallið 2“ hefur verið læst og nafninu breytt í „Vettvangurinn.“ Píratar hafa ákveðið að aftengja hreyfinguna við hópinn sem var með tæplega tólf þúsund meðlimi. Innlent 25. júlí 2024 19:41
„Orðlaus af reiði“ yfir óboðlegu leikskólahúsnæði í Ármúla Foreldri barns í leikskólanum Brákarborg kveðst orðlaus af reiði og ekki vita hvað hún eigi að gera, en til stendur að færa starfsemi leikskólans tímabundið yfir í skrifstofuhúsnæði í Ármúla, sem hún segir óboðlegt leikskólabörnum. Í gær barst foreldrum póstur um að framkvæmdir yrðu í húsnæði Brákarborgar í ótilgreindan tíma, og starfsemi skólans yrði færð yfir í Ármúlann á meðan. Innlent 25. júlí 2024 15:11
„Hvað ertu að gera í þessum karlrembuflokki?“ Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og fyrsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi er gestur Einar Bárðarsonar í nýjasta þættinum hans af Einmitt. Innlent 25. júlí 2024 11:42
Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf „Menntamálastofnun réð ekki við framkvæmdina þrátt fyrir að við værum búin að aðstoða þá, koma með leiðbeiningar og tillögur að framkvæmd um hvernig væri hægt að gera þetta – þær bara gengu ekki upp.“ Innlent 25. júlí 2024 06:41
Þórarinn selur ekki sinn hlut í Búsæld Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis og þingmaður Framsóknarflokksins, ætlar ekki að selja sinn hlut í Búsæld ehf. Heilmikil umræða varð um eignarhald hans og konu hans í félaginu þegar Kaupfélag Skagfirðinga keypti meirihluta hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska. Innlent 24. júlí 2024 16:32
Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar Þrettán umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins sem auglýst var um miðjan júní sl. en umsóknarfrestur rann út 19. júlí. Innlent 24. júlí 2024 15:21
Arnar Þór íhugar að stofna stjórnmálaflokk Arnar Þór Jónsson, lögmaður og forsetaframbjóðandi, íhugar að stofna stjórnmálaflokk. Hann segir stjórnarflokkana orðna viðskila við hugsjónir sínar og að þörf sé á heilindum í íslenskum stjórnmálum. Innlent 24. júlí 2024 12:09
Les(mis)skilningur Miðflokksmanna Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason, þingmenn Miðflokksins, hafa látið mikið fara fyrir skoðunum sínum á Mannréttindastofnun Íslands upp á síðkastið og hafa slengt fram allskonar fullyrðingum en eins og gengur og gerist eru þær því miður bara ekki sannleikanum samkvæmar. Skoðun 24. júlí 2024 09:01
Röng skilaboð að Yaris borgi það sama og stór jeppi Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að flatt kílómetragjald sem lagt er til á alla bíla undir 3,5 tonnum, sé ósanngjarnt. Það séu röng skilaboð til almennings að minni bílar sem mengi minna og slíti vegum minna, borgi það sama og stærri jeppar og pallbílar. Einnig þurfi að ræða gjaldtöku á þungu atvinnubílunum, en ef fram fer sem horfir mun gífurlegur kostnaður leggjast á landsbyggðina. Innlent 23. júlí 2024 20:35
„Þetta eru ekki bara viðvörunarbjöllur heldur rauð ljós“ Aukna áhættuhegðun og vímuefnanotkun barna ber að taka alvarlega og gefur þróunin tilefni til að taka enn betur utan um málefni barna. Þetta segir formaður velferðarnefndar Alþingis sem gerir ráð fyrir að málið verði tekið fyrir í nefndinni þegar þing kemur saman í haust. Innlent 23. júlí 2024 13:01
Málflutningur Viðskiptaráðs óásættanlegur Menntamálaráðherra segir málflutning Viðskiptaráðs, um starfsfólk menntakerfisins óásættanlegan og hjákátlegan. Ráðið segir Kennarasamband Íslands hafa leitt málaflokkinn í öngstræti og hvetur stjórnvöld til að taka fyrir frekari afskipti sambandsins. Innlent 22. júlí 2024 12:00
Mikill meirihluti landsmanna mótfallinn sjókvíaeldi Í nýrri könnun Gallups kemur fram að rúm sextíu og fimm prósent þjóðarinnar er andsnúin sjókvíaeldi meðan tæp fjórtán prósent eru jákvæð. Innlent 22. júlí 2024 11:25
Skerjafjarðarskáld skriplar á skötu en gefst ekki upp Kristján Hreinsson skáld, kenndur við Skerjafjörðinn er ósáttur við að Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hafi vísað kæru hans á hendur Ríkisútvarpinu frá. En hann er hvergi nærri af baki dottinn. Innlent 22. júlí 2024 10:15
Landtöku Ísraela skuli hætt Utanríkisráðuneytið kallar eftir því í tilkynningu að Ísraelar láti af landtöku í Palestínu. Innlent 21. júlí 2024 10:46
Eflum Mjódd sem miðstöð almenningssamgangna fyrir landið allt Sterkar almenningssamgöngur fyrir fjölmennsta íbúahorn landsins ætti að vera í algjörum forgangi hjá pólitíkinni - svæði sem 82% landsmanna býr á og langflestir ferðamenn snerta fyrst. Strætó bs. þjónustar höfuðborgarsvæðið og landsbyggðarstrætó, sem Vegagerðin ber ábyrgð á og rekur, sinnir á tengingu út land, eins og til Keflavíkur, Akureyrar og austur fyrir fjall. Skoðun 21. júlí 2024 08:01
Félag í eigu rabbína keypti Framsóknarhúsið Félag í eigu rabbínsins Avraham „Avi“ Feldham hefur fest kaup á Framsóknarhúsinu á Hverfisgötu. Hann flutti hingað til lands árið 2018 til þess að koma fyrstu íslensku sýnagógunni á laggirnar. Innlent 20. júlí 2024 14:15
Afstaða borgarstjóra „blaut tuska í andlit margra“ Oddviti Flokks fólksins í borginni kveðst sleginn yfir ummælum borgarstjóra um stöðu fólks sem býr í hjólhýsum í borginni. Fólkið hafi fengið fyrirheit um úrlausn sinna mála, sem nú virðist úr sögunni. Innlent 20. júlí 2024 13:01
Á undan áætlun í ríkisfjármálum Í nýbirtum ríkisreikningi fyrir árið 2023 kemur fram að heildarafkoma ríkissjóðs hafi verið um 100 milljörðum króna betri en gert hafði verið ráð fyrir í fjárlögum, það er að segja 20 milljarða halli í stað 120. Þar segir einnig að frumjöfnuður, með öðrum orðum afkoma ríkissjóðs án tillits til vaxtagjalda og -tekna, var jákvæður um 78 milljarða. Skoðun 20. júlí 2024 09:00