Daði Freyr setur Gordjöss í nýjan búning Daði Freyr hefur nú gert ábreiðu af laginu Gordjöss með Páli Óskari. Lífið 2. júlí 2017 20:12
Sturla Atlas og Major Lazer í eina sæng Það eru spennandi tímar fram undan hjá íslensku hljómsveitinni Sturla Atlas en bandið er að vinna lag í verkefni sem leitt er af bandaríska danstónlistartríóinu Major Lazer sem er stórt nafn innan tónlistarheimsins. Lífið 1. júlí 2017 11:00
Finnur jarðtenginguna heima á Íslandi Jökull Júlíusson, söngvari og lagahöfundur hljómsveitinnar Kaleo, hefur átt ævintýralega skjótri velgengni að fagna. Mikil vinna fylgir slíkri velgengni og á dögunum endaði Jökull á sjúkrahúsi sökum of mikils álags. Lífið 1. júlí 2017 08:00
Áhorfendur fá að hlýða á söng og syngja sjálfir Á morgun hefst Sönghátíð í Hafnarborg sem er ný tónlistarhátíð sem stendur yfir í níu daga. Hátíðin er helguð klassískri sönglist, ljóða- og óperusöng og markmið hennar er meðal annars að auka almenna þekkingu á list raddarinnar. Lífið 30. júní 2017 17:30
Rifjar upp gamla takta á æskuslóðunum Ásgeir Trausti ætlar að halda óvænta tónleika í félagsheimilinu á Hvammstanga í tilefni þess að hann sendi frá sér nýja plötu í maí. Þar endurtekur hann leikinn frá því að hann gaf út Dýrð í dauðaþögn en þá fóru útgáfutónleikarnir fram á þessum sama stað. Tónlist 30. júní 2017 10:30
Með rödd sem hæfir risa Kristjana Stefánsdóttir fór heim með Grímuna fyrir tónlist ársins þegar verðlaunin voru veitt í júní. Hún er afar stolt af þessari viðurkenningu en Blái hnötturinn fékk flest verðlaun á Grímunni, eða fjögur. Tónlist 30. júní 2017 10:00
GusGus frumsýnir myndband við fyrsta lagið af nýju plötunni Hljómsveitin GusGus, sem skipuð er þeim Bigga Veiru og Daníel Ágúst, sendir í dag frá sér myndband við lag af nýrri plötu sem kemur út í haust. Tónlist 29. júní 2017 17:45
Björk vinnur verðlaun fyrir sýndarveruleikamyndband Sýndarveruleikamyndband Bjarkar, Notget, hlaut fyrstu verðlaun á Cannes Lions í flokkinum stafræn iðn (Digital Craft). Tónlist 29. júní 2017 14:30
Fótafimi beint frá Chicago Tónlistarakademía Red Bull býður footwork-plötusnúðnum og pródúsernum DJ Earl til landsins á næstunni. Hann kemur beina leið frá Chicago til að kenna Íslendingum að gera footwork lög. Tónlist 29. júní 2017 13:15
Nýtt nafn í útgáfubransanum Í hlutafélagaskrá kemur það fram að stjörnuparið Pálmi Ragnar Ásgeirsson, StopWaitGo-maður, og Dóra Júlía Agnarsdóttir plötusnúður eru að stofna félagið Rok Records ehf. Tónlist 29. júní 2017 13:00
Reyndi að fá freknur með sigti Mosfellska mærin Guðrún Ýr Eyfjörð er töff týpa sem missteig sig þó aðeins á fermingardaginn. Hún kallar sig GDRN að sviðsnafni, menntar sig í djassi og vekur nú athygli fyrir smellinn sinn, Ein. Tíska og hönnun 29. júní 2017 10:00
Nýtt myndband frumsýnt: „Skilgreining á hinsegin stafrófinu“ Hljómsveitin Eva var að gefa út nýtt myndband við lagið The Queer Song. Tónlist 28. júní 2017 15:30
Heldur upp á endurnýjunina Baldvin Snær Hlynsson gaf í maí út plötuna Renewal, djassplötu þar sem hann semur öll lögin og spilar á píanó. Í kvöld heldur hann upp á útgáfuna með tónleikum í Norræna húsinu. Tónlist 28. júní 2017 09:30
Tónlistarhátíðinni við Skógafoss aflýst Ákveðið hefur verið að aflýsa tónlistarhátíðinni Night+Day sem fyrirhuguð var við Skógafoss í júlí. Ástæðan er viðkvæmt ástand svæðisins við fossinn, að sögn skipuleggjenda. Umhverfisstofnun setti svæðið á rauðan lista á dögunum. Tónlist 27. júní 2017 19:47
Harpa ekki lengur miðpunktur Iceland Airwaves og færri miðar í boði Tónlistarhúsið Harpa í Reykjavík verður ekki miðpunktur Iceland Airwaves eins og verið hefur undanfarin ár heldur munu nýir tónleikastaðir koma inn með breyttu fyrirkomulagi hátíðarinnar. Tónlist 27. júní 2017 12:45
Getur spilað ellefu mismunandi útgáfur af laginu Africa með Toto Lagið Africa með sveitinni Toto kom út árið 1982 og sló rækilega í gegn og hefur það í raun notið vinsælda síðan þá. Tónlist 26. júní 2017 17:30
Daði Freyr og Karitas senda frá sér sumarsmell Þessi tvö hafa slegið í gegn á undanförnum mánuðum. Tónlist 23. júní 2017 14:00
Föstudagsplaylistinn: Lord Pusswhip "Þetta er playlisti með tónlist úr ýmsum áttum sem ég myndi persónulega dilla mér við á föstudagskvöldi, ef þið mynduð gera það líka fáið þið kúlstig!" segir Lord Pusswhip, en það er listamannsnafn Þórðs Inga Jónssonar, rappara og pródúsers sem er maðurinn bakvið föstudagsplaylistann að þessu sinni. Tónlist 23. júní 2017 13:15
Hætti í tónlist út af kvíða Tónlistarmaðurinn og forritarinn Jónas Sigurðsson glímdi lengi við kvíða sem varð til þess að hann hætti í tónlist í kjölfar velgengni Sólstrandargæja. Hann vinnur nú að nýrri plötu sem kemur út í lok árs og spilar alla sunnudaga á Rósenberg í sumar með Ritvélum framtíðarinnar. Lífið 23. júní 2017 10:00
Kiriyama Family með útgáfutónleika annað kvöld Hljómsveitin Kiriyama Family ætlar að fagna útgáfu annarar breiðskífu sinnar Waiting For… með veglegum útgáfutónleikum í Tjarnarbíói. Lífið 22. júní 2017 17:43
Neðanjarðarsenan tekin fyrir í tónleikaröð Stage Dive Fest verður haldin í fimmta sinn nú í kvöld á skemmtistaðnum Húrra. Fram koma ungir og efnilegir tónlistarmenn. Tónlist 21. júní 2017 16:45
Ragga Gísla flutti glænýtt Þjóðhátíðarlag Tónlistarkonan Ragnhildur Gísladóttir semur og flytur Sjáumst þar, Þjóðhátíðarlagið í ár, en hún er jafnframt fyrsta konan sem fengin er til að semja Þjóðhátíðarlag. Tónlist 20. júní 2017 21:57
Föstudagsplaylisti Flona Rapparinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Floni, setti meðflylgjandi lagagista saman sem ætti að koma lesendum í föstudagsfílíng. "Þetta er léttur listi með þeim lögum sem hafa verið að hafa áhrif á mig undanfarið.“ Tónlist 16. júní 2017 09:15
Reif sig upp úr þunglyndi og rugli Tónlistarmaðurinn Andri Fannar Kristjánsson, eða AFK, hefur gefið út sex laga EP-plötu þar sem hann semur um tímabilið þegar þunglyndi og eiturlyf tóku yfir. Nú er hann kominn á beinu brautina. Lífið 16. júní 2017 08:00
Aflýsa tónleikum vegna veikinda Jökuls Hljómsveitin Kaleo hefur aflýst átta tónleikum sem fara áttu fram í sumar víðs vegar um heiminn vegna veikinda Jökuls Júlíussonar, söngvara sveitarinnar. Tónlist 15. júní 2017 18:28
Leiðarvísir um Secret Solstice Það úir allt og grúir af alls kyns nöfnum á Secret Solstice hátíðinni sem hefst í dag og það getur verið erfitt að ákveða hvað skal sjá. Lífið kemur því hér til bjargar og setur upp smá leiðarvísi. Tónlist 15. júní 2017 12:00
Yoko Ono gerð að meðhöfundi lagsins Imagine Yoko Ono verður gerð að meðhöfundi lagsins Imagine en lagið er eitt vinsælasta lag eiginmanns hennar, Johns Lennon heitins. Tilkynning um ákvörðunina var send út í New York í Bandaríkjunum í gær. Tónlist 15. júní 2017 11:45
Heiðrar heimabæinn með flennistóru flúri Rapparinn Herra Hnetusmjör gerði sér lítið fyrir og lét flúra á magann á sér orðin Kóp Boi í sama stíl og Thug Life húðflúrið sem Tupac skartaði á sínum tíma og frægt er orðið. Herra Hnetusmjör vísar þar til heimabæjar síns Kópavogs, sem hann ber miklar tilfinningar til. Lífið 15. júní 2017 10:00
Hefðu líklega aldrei getað rambað á fullkomnara samstarf Upptökustjórinn og tónlistarmaðurinn Printz Board, sem unnið hefur með The Black Eyed Peas, John Legend, Fergie og fleirum, verður Stuðmönnum til halds og trausts í atriði þeirra á Secret Solstice-hátíðinni í dag. Þar verður áhorfendum gefin innsýn í nýjan tónlistarheim sem Printz og Stuðmenn hafa unnið með undanfarið undir yfirskriftinni Polar Beat. Tónlist 15. júní 2017 08:00
Jamie xx í beinni frá Reykjavík Jamie xx er að spila fyrir mannskara í Reykjavík. Tónlist 14. júní 2017 22:12