

Veitingastaðir
Fréttir af starfsemi veitingastaða á Íslandi.

Kvöddu reksturinn úr fjarska og vinna að bjórböðum
Veitingastaðurinn Smiðjan Brugghús skellti plássi sínu í mathöllinni á Selfossi í lás nú á dögunum. Eigendur staðarins einbeita sér nú alfarið að rekstri staðarins í Vík. Þau hyggjast stækka staðinn og bjóða upp á bjórböð svo eitthvað sé nefnt.

Krafa um áfengi og tilbúna rétti hafi alltaf legið fyrir
Mikla athygli vakti í dag þegar aðstandendur veitingastaðakeðjunnar Joe & The Juice tilkynntu að þeir hefðu dregið sig úr útboðsferli Isavia varðandi veitingasölu á Keflavíkurflugvelli vegna kröfu um áfengissölu og sölu tilbúinna rétta. Í tilkynningu frá Isavia segir að krafan hafi legið fyrir allt frá því að útboðsferlið hófst snemma á síðasta ári.

Furðar sig á sterkum viðbrögðum og opnar Lauga-Ás aftur
Dyr veitingastaðarins Lauga-Áss verða opnaðar að nýju næsta mánudag en áður var tilkynnt að þeim hafi verið lokað fyrir fullt og allt. Í viku munu allar tekjur staðarins renna til Neistans – Styrktarfélags hjartveikra barna.

Joe & the Juice gefast upp á Leifsstöð
Veitingastaðurinn Joe & The Juice hefur dregið sig út úr útboðsferli Isavia varðandi veitingasölu á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Joe & Juice. Fyrirtækið hefur verið með sölustaði á flugvellinum um árabil.

Kláraði vaktina sárþjáður og veitingastaðurinn tilkynnti ekki slysið
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt skaðabótaábyrgð vinnuveitanda í máli starfsmanns sem varð fyrir vinnuslysi á veitingastað.

„Ekki vera huglausir, við verðum að hækka verðin“
Veitingamenn eru farnir að finna fyrir hækkandi hrávöruverði, auknum launakostnaði og hærri áfengisgjöldum á nýju ári og segja rekstrarumhverfi veitingastaða afar slæmt. Veitingamaður skorar á kollega sína að hræðast ekki að hækka verð.

Domino's hækkar aftur verð á þriðjudagstilboði sínu
Domino's á Íslandi hefur hækkað verð á þriðjudagstilboði sínu úr 1.100 krónum í 1.200 krónur. Rúmt ár er síðan fyrirtækið hækkaði verð á tilboðinu úr þúsund krónum í 1.100 eftir að verðið hafði þá haldist óbreytt í ellefu ár.

Sérkjarasamningar nauðsynlegir til að bjarga veitingageiranum
Veitingamenn segja rekstrarumhverfið orðið ómögulegt vegna mikilla hrávöruverðs- og launahækkana. Ómögulegt sé að hækka verð í samræmi við útlagðan kostnað vilji veitingamenn fá til sín gesti.

Sekta fimmtán veitingastaði í mathöllum
Fimmtán veitingastaðir í mathöllum landsins hafa verið sektaðir um fimmtíu þúsund krónur fyrir að bregðast ekki við athugasemdum Neytendastofu um ófullnægjandi verðmerkingar. Alls gerði Neytendastofu athugasemd við merkingar hjá 37 af 54 veitingastöðum.

Hugsar daglega hvort hann eigi ekki að leggja árar í bát
Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumaður kenndur við Slippinn í Vestmannaeyjum og Næs, segist íhuga það daglega að hætta í veitingarekstri. Rekstrarumhverfið sé orðið yfirþyrmandi lýjandi. Hann spyr hvað sé til bragðs að taka?

Verður frábært að fá heilt rekstrarár án takmarkana vegna Covid-19
Það verður frábært að fá heilt rekstrarár án takmarkana vegna Covid-19 heimsfaraldursins, segir Hrefna Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri veitingastaðarins ROK við Frakkastíg, um komandi ár.

Skella í lás eftir tíu ár í CooCoo's Nest
Veitingastaðnum CooCoo's Nest á Granda í Reykjavík verður lokað í dag eftir að hafa framreitt mat fyrir gesti í áratug. Aðrir aðilar opna rekstur í húsnæðinu á nýju ári. Síðasti brönsinn á CooCoo's hefur verið borinn fram.

Árið í ár var eitt það mest krefjandi í 30 ára sögu Domino‘s á Íslandi
Árið í ár var eitt það mest krefjandi í 30 ára sögu Domino‘s á Íslandi. Kostnaðarhækkanir voru líklega þær mestu frá því eftir hrun árið 2008, segir Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. „Áskoranir ársins fólust einna helst í því að finna jafnvægi í rekstri í gegnum mikinn aukinn launakostnað fyrri hluta árs og verulega hækkanir á öllum innkaupum beint í kjölfarið,“ segir hann.

„Maður er afklæddur í forstofunni“
Þorláksmessa og skötulykt leggur yfir landið að venju, mörgum til ama en ekki þeim sem biðu í röð eftir því að fá að bragða á ilmandi skötunni á Lauga-ás. Í síðasta sinn þar sem staðnum verður formlega lokað eftir daginn í dag.

Paddy's fær að heita Paddy's
Barinn Paddy's beach pub í Keflavík þarf ekki að hætta notkun nafnsins Paddy's. Eigandi hins sáluga Paddy's irish pub, sem rekinn var í sama húsnæði, höfðaði dómsmál til að krefjast þess að notkun nafnsins yrði hætt.

Viðskiptafréttir ársins 2022: Skattsvik, klikkaður fasteignamarkaður og úrræðagóðir Akureyringar
Árið 2022 í viðskiptalífinu einkenndist af því að í fyrsta sinn frá því snemma árs 2020 komst lífið aftur í venjubundið horft eftir tveggja ára kórónuveirufaraldur.

DJ Sóley og Birna bankastjóri fögnuðu Fröken Reykjavík
Nýjasti veitingastaðurinn í fjölbreyttri flóru Reykjavíkur opnaði í gærkvöldi en það er staðurinn Fröken Reykjavík sem staðsettur er í hjarta miðborgarinnar við Lækjargötu 12. Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór mætti og tók að sjálfsögðu lagið Fröken Reykjavík.

Sumac hrærir upp í jólunum með framandi kryddi
„Jólaseðillinn okkar er allt annað en hefðbundinn. Við kryddum upp á jólin í staðinn fyrir hefðirnar og sækjum innblástur frá Norður Afríku til Líbanon. Kryddin þaðan og matreiðsluaðferðirnar skína í gegn í öllum okkar réttum hjá yfirkokkinum okkar Jakobi Baldvinssyni. Þú færð ekki matinn okkar annarsstaðar í bænum,“ segir Þráinn Freyr Vigfússon, eigandi og kokkur á veitingastaðnum Sumac.

Carsten og Fjóla taka við rekstri Striksins
Hjónin Carsten Tarnow og Fjóla Hermannsdóttir Tarnow hafa formlega tekið við rekstri veitingastaðarins Strikið á Akureyri. Þau reka einnig Centrum Hotel og Centrum Kitchen & Bar á Akureyri.

Veitingastaðurinn Brút blómstrar í miðbænum
„Við opnuðum fyrir rétt rúmu ári, eftirminnilega því rafmagnið fór af miðbænum korter í sex það kvöld. Það var smá stressandi en það þýddi ekkert annað en anda rólega,“ segir Ragnar Eiríksson, yfirkokkur veitingastaðarins Brút og eigandi staðarins ásamt Ólafi Erni Ólafssyni og Braga Skaftasyni.

Fimm réðust á gest veitingahúss í Kópavogi
Veitingahússgestur í Kópavogi hlaut áverka á höndum og fótum þegar ráðist var á hann á öðrum tímanum í nótt. Fimm manns eru sagðir hafa tekið þátt í árásinni en þeir voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði.

Óska eftir sjónarmiðum vegna kaupa á Gleðipinnum
Samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir sjónarmiðum vegna rannsóknar sinnar á fyrirhuguðum kaupum Kaupfélags Skagfirðinga og Háa kletts ehf. á Gleðipinnum hf.

Fara með krafti inn í skemmtanalífið eftir andlitslyftingu
Skemmtistaðurinn Exit var opnaður við Austurstræti þann 11. nóvember þar sem annar skemmtistaður 203 Club var áður til húsa. Eigandi staðarins segir að staðurinn sé allt annar þrátt fyrir smávægilegar breytingar.

203 Club lokað og Exit tekur við
Skemmtistaðnum 203 Club sem staðsettur var við Austurstræti 3 hefur verið lokað. Þess í stað hefur annar skemmtistaður, Exit, opnað í húsnæðinu.

Opnuðu hverfisbar sem minnir á stofuna hennar ömmu
Jakob Eggertsson, Jónas Heiðarr Guðnason, Ólafur Andri Benediktson og Sindri Árnason opnuðu í síðuasta mánuði nýjan bar í miðbænum. Bingo Drinkery opnaði þann 9 nóvember, nákvæmlega þremur árum og einum degi eftir að fyrsti staður þeirra, Jungle Cocktail Bar, opnaði á sínum tíma.

Hafa ekki lagt það í vana sinn að skrópa þegar kallið kemur
Samtök reykvískra skemmtistaða hafa farið fram á annan fund með mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði Reykjavíkurborgar. Fjarvera stjórnarinnar á fundi sem haldinn var á fimmtudag skýrist af því að fundarboð barst ekki. Lögregla verður áfram með aukinn viðbúnað í miðbænum eftir hnífaárás á Bankastræti club fyrr í mánuðinum.

Frönsk og ítölsk matarmenning á flottasta horni Reykjavíkur
„Við opnuðum staðinn í maí 2020 viðtökurnar hafa verið frábærar. Við erum auðvitað með eitt af bestu útisvæðum í borginni sem er æðislegt á sumrin og svo erum við á einu fallegasta horni bæjarins. Nú fyrst erum við að upplifa það að hafa túristana með í viðskiptavinahópnum sem er auðvitað bara frábær viðbót. Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur yfir hátíðarnar,“ segir Margrét Ríkharðsdóttir, yfirkokkur á Duck and Rose, sem er veitingastaður vikunnar á Vísi.

Umræðan hafði mikil áhrif á næturlífið: „Þetta var ákveðinn draugabær“
Lítið sem ekkert var að gera á öldurhúsum miðbæjar Reykjavíkur í gærkvöldi og í nótt. Veitingamenn segja umræðu undanfarinna daga ótvírætt hafa fælt fólk frá næturlífinu.

Bankastræti Club hafi gert allt rétt í krísustjórnun
Í umfjöllun um hnífaárásina í síðustu viku hefur ítrekað verið rætt um Bankastræti Club í því samhengi, og réttilega, þar sem árásin fór jú fram á staðnum. Sérfræðingur í vörumerkjastjórnun telur ekki að málið komi til með að hafa áhrif á skemmtistaðinn til lengri tíma og eigendur hafi gert allt rétt í krísustjórnun. Hann hefur hins vegar meiri áhuga á að skoða málið út frá vörumerkinu Ísland.

Vilji til þess að leysa hlutina í sameiningu
Talsverður styr hefur staðið um næturlíf Reykjavíkur að undanförnu en til viðbótar við ofbeldismálin sem hafa verið í fréttum hefur skapast talsverð umræða um hávaða frá skemmtistöðum eins og við sögðum frá í kvöldfréttatíma okkar í gær.