Fréttir

Fréttamynd

Leynisamkomulag brot á lögum og jafnvel stjórnarskrá

Talsmenn vinstri grænna og Samfylkingarinnar segja að lög og jafnvel stjórnarskrá hafi verið brotin þegar viðaukum við varnarsamninginn var haldið leyndum fyrir Alþingi. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra eru sammála um að innihald viðaukanna kalli ekki á leynd, en tíðarandinn hafi verið allt annar fyrir hálfri öld en nú.

Innlent
Fréttamynd

Kuldaköst að vori heyri sögunni til

Kuldaköst á vorin heyra sögunni til á Íslandi en um leið verður norðanáttin algengari, gangi spár um hlýnun loftslags eftir. Þetta er mat Haraldar Ólafssonar, veðurfræðings, sem segir sumarið lengjast í báða enda en áfram verði kalt yfir hávetur.

Innlent
Fréttamynd

56,5 milljónum úthlutað

Baugur Group úthlutaði í dag 43 aðilum 56,5 milljónum úr Styrktarsjóði Baugs Group. Þetta var í þriðja sinn sem úthlutað var úr sjóðnum. Styrktarsjóði Baugs Group hf. er ætlað að styðja margvísleg líknar og velferðarmál auk menningar listalífs. Styrkirnir voru veittir í Iðusölum við Lækjargötu.

Innlent
Fréttamynd

Íslensku forvarnarverðlaunin í annað sinn

Íslensku forvarnaverðlaunin verða veitt í annað sinn í apríl og standa tilnefningar nú yfir. Markmiðið er að verðlauna þá sem þykja skara fram úr í forvarnastarfi og hvetja þá og aðra til góðra verka. Viðurkenningarnar eru veittar í þrem flokkum: Í fyrsta lagi til fyrirtækis sem skarað hefur framúr í forvörnum, í öðru lagi til einstaklings sem sýnt hefur forystu og frumkvæði í forvörnum og loks til félagasamtaka eða stofnana sem eru í fararbroddi í forvörnum.

Innlent
Fréttamynd

Umferðarteppa í Ártúnsbrekku

Miklar umferðartafir eru nú í Ártúnsbrekku vegna aftanákeyrslu sem þar varð. Lögreglan segir að ekki sé vitað hvað olli árekstrinum. Engin slys urðu á fólki í árekstrinum og bílarnir skemmdust lítið.

Innlent
Fréttamynd

Stjórn SUS undrast styrki til sauðfjárræktar

Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna lýsir furðu sinni á fyrirhuguðum samniingi milli ríkisstjórnarinnar og Bændasamtaka Íslands um styrki til sauðfjárræktar. Í tilkynningu til fjölmiðla segir að stórfelldar niðurgreiðslur í formi skattheimtu, framleiðsluhöftum og verðstýringu gangi þvert á flest grundvallargildi sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir.

Innlent
Fréttamynd

FIM hækkar um 30%

Gengi hlutabréfa í finnska fjármálafyrirtækinu FIM Group hækkaði um þrjátíu prósent í Kauphöllinni í Helsinki í dag eftir að Glitnir greindi frá því að bankinn hefði eignast yfir 68 prósent hlutafjár og stefndi að yfirtöku á öllu félaginu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýr framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga

Jón Helgi Björnsson hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Jón var skipaður af Siv Friðleifsdóttur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra til fimm ára, frá 1. mars 2007. Níu einstaklingar sóttu um starfið og fól ráðherra þriggja manna hæfnisnefnd að meta umsóknirnar. Sex umsækjendur þóttu uppfylla hæfnisskilyrði um menntun sem sett voru fram í auglýsingu um starfið.

Innlent
Fréttamynd

Náttúruvaktin skorar á umhverfisráðherra

Náttúruvaktin hefur ritað Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra bréf þar sem athygli er vakin á skeytingarleysi stjórnvalda varðandi svæði á Náttúrminjaskrá. Í bréfinu segir að baráttuhópurinn, sem berst fyrir verndun Íslenskrar náttúru, taki nú þátt í að reyna að verja þrjú svæði á náttúruminjaskrá fyrir óhóflegri framkvæmdagleði.

Innlent
Fréttamynd

Olíuverð við 59 dali á tunni

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað nokkuð um helgina og stendur nú í rúmum 59 dölum á tunnu vegna kulda í NA-Bandaríkjunum sem hefur valdið því að eftirspurn eftir olíu til húshitunar hefur aukist til muna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nemendur Suðvesturkjördæmis bestir í stærðfræði

Niðurstöður úr samræmdum prófum nemenda í 4. og 7. bekk liggja nú fyrir í vefriti Menntamálaráðuneytisins. Þar kemur fram að nemendur í Suðvesturkjördæmi eru sterkastir yfir landið í stærðfræði, bæði í 4. og 7. bekk. Í Íslensku eru nemendur 4. bekkjar í Reykjavík og Norðausturkjördæmi bestir, en í 7. bekk eru bestu Íslenskunemendurnir í Norðausturkjördæmi.

Innlent
Fréttamynd

Vel heppnað Fjölskylduþing í Reykjanesbæ

Fjölskyldu-og félagsþjónusta Reykjanesbæjar stóð fyrir fjölskylduþingi um síðustu helgi og var markmið þess að endurskoða fjölskyldustefnu bæjarins. Í fréttatilkynningu segir að þingið hafi verið afar vel heppnað en þar voru fjölskyldutengd verkefni úr framtíðaarsýn bæjarins til ársins 2010 kynnt. Hera Ósk Einarsdóttir verkefnastjóri kynnti forvarnarverkefni Reykjanesbæjar, en Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri kynnti fjölskyldustefnuna.

Innlent
Fréttamynd

Fitch staðfestir lánshæfismat Glitnis

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir Glitnis eftir kaup bankans á finnska félaginu FIM Group. Fitch gefur Glitni langtímaeinkunnina A, skammtímaeinkunnina F1, óháðu einkunnina B/C og stuðningseinkunnina 2. Horfur lánshæfiseinkunna Glitnis eru stöðugar, að mati Fitch.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gistinóttum fjölgaði um 27%

Gistinóttum á hótelum í desember fjölgaði um 11.500 milli ára og voru 53.800 í desember síðastliðnum. Aukning varð í öllum landshlutum, en hlutfallslega var hún mest á Austurlandi þar sem gistinæstur nánast tvöfölduðust, fóru úr 900 í 1.700 á milli ára.

Innlent
Fréttamynd

Afkoma Ryanair umfram væntingar

Írska lággjaldafyrirtækið Ryanair skilaði 47,7 milljóna evra hagnaði fyrir skatta á þriðja rekstrarfjórðungi félagsins, sem endaði í desember í fyrra. Þetta jafngildir tæpum 4,3 milljörðum íslenskra króna sem er 30 prósenta aukning á milli ára. Búist var við minni hagnaði vegna síaukins eldsneytiskostnaðar í fyrra. Afkoman er langt umfram meðalspá greinenda.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Kreistir chillivökva yfir augum sér

Mexíkóskur maður, sem hyggst setja heimsmet í chilipiparáti, er svo ónæmur fyrir styrk belgjanna að hann úðar þeim í sig eins og hverju öðru sælgæti. Hann gengur jafnvel svo langt að kreista safann úr þeim yfir augunum á sér.

Erlent
Fréttamynd

Stjórnvöld kærulaus um stera

Jóhanna Eiríksdóttir, nýkjörinn formaður Kraftlyftingasambandsins harmar að stóra steramálið hafi tengst sambandinu og segir það á móti steranotkun. Birgir Guðjónsson læknir og meðlimur í lyfjanefnd alþjóða frjálsíþróttasambandsins segir að stjórnvöld hafi sýnt algjört kæruleysi í þessum málaflokki.

Innlent
Fréttamynd

Segja stóriðjustefnuna í forgangi

Formaður vinstri grænna átelur ríkisstjórnina fyrir ábyrgðarleysi í umhverfismálum og segir stóriðjustefnuna forgangsatriði í málflutningi hennar. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir enga raunverulega stefnu í loftslagsmálum til hérlendis

Innlent
Fréttamynd

Yfir þúsund hafa fallið í vikunni

Yfir þúsund manns liggja í valnum í Írak eftir átök og árásir undanfarinna sjö daga. Stjórnvöld í landinu segja fylgismenn Saddams Hussein hafa staðið á bak við hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf.

Erlent
Fréttamynd

Á fjórða tug dó í námuslysi

32 kólumbískir verkamenn biðu bana í sprengingu í kolanámu norðausturhluta landsins í gærkvöld. Talið er að neisti hafi komist í gas á um fjögur hundruð metra dýpi í námugöngunum og þau hrunið.

Erlent
Fréttamynd

Þúsund fallnir á sjö dögum

Forsætisráðherra Íraks kennir stuðningsmönnum Saddams Hussein um hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf. Um eitt þúsund manns hafa látið lífið undanfarna viku í ofbeldisverkum í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Léku rangan þjóðsöng

Stjórnvöld á eynni Grenada í Karabíska hafinu eru í öngum sínum eftir að þjóðsöngur Taívans var leikinn í stað þess kínverska þegar nýr íþróttavöllur var tekinn í notkun um helgina í höfuðborginni St. Johns.

Erlent
Fréttamynd

Vara við árásum á Íran

Þrír fyrrverandi hershöfðingjar úr Bandaríkjaher vara eindregið við hernaðaraðgerðum gegn Írönum í bréfi sem þeir birta í breska blaðinu Sunday Times í dag.

Erlent
Fréttamynd

Aukin útgjöld til varnarmála

George Bush Bandaríkjaforseti segir að í næstu fjárlögum ríkisins verði útgjöld til varnarmála aukin á kostnað útgjalda til innanríkismála.

Erlent
Fréttamynd

Óttast farsóttir

Mikil flóð í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, hafa kostað níu mannslíf og hrakið tvö hundruð þúsund manns af heimilum sínum. Gríðarleg úrkoma hefur verið á þessum slóðum að undanförnu enda stendur regntímabilið sem hæst.

Erlent
Fréttamynd

Þúsund fallnir á einni viku

Íraska ríkissstjórnin kennir stuðningsmönnum Saddams Hussein um hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf. Um eitt þúsund manns hafa látið lífið undanfarna viku í sjálfsmorðsárásum, skotárásum og bardögum á milli hermanna og uppreisnarmanna að því er Reuters-fréttastofan hermir.

Erlent
Fréttamynd

Hlýnun bætir nýtingu virkjana

Hlýnun loftslags bætir nýtingu virkjana og gerir þær hagstæðari í rekstri. Þetta segir Tómas Jóhannesson, jöklafræðingur. Endurskoðuð umhverfisstefna til ársins 2050 verður lögð fram á næstu dögum, segir Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra.

Innlent