Fréttir
Verðbólga nánast óbreytt Viðskipti innlent 11.11.2006 10:40 Telur gagnrýni lífeyrissjóðs byggða á misskilningi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri telur að gagnrýni lífeyrissjóðs Reykjavíkurborgar þess efnis að söluandvirði hluta borgarinnar í Landsvirkjun sé ofmetið um á fjórða milljarð króna sé misskilningi byggð. Innlent 11.11.2006 10:13 Stórhríð og vonskuveður á Norðausturlandi Vegagerðin varar við stórhríð við vestanverðan Eyjafjörð og segir vonskuveður þaðan um allt norðaustanvert landið. Á Vestfjörðum er víða þæfingur en verið er að hreinsa helstu leiðir og á Norðurlandi vestra er vetrarfærð en hvergi fyrirstaða. Innlent 11.11.2006 10:05 Haniyeh gerir ekki kröfu um forsætisráðherrastól í þjóðstjórn Vonir standa til að samskipti Ísraela og Palestínumanna fari senn batnandi eftir að Ismael Haniyah, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar og einn leiðtogi Hamas-samtakanna, lýsti því yfir að hann gerði ekki kröfu um að halda embætti sínu í þjóðstjórn Palestínu sem verið er að reyna að mynda. Erlent 11.11.2006 10:02 Össur verðlaunað fyrir gervifót Viðskipti innlent 11.11.2006 10:40 Þrjú prófkjör vegna alþingiskosninga í dag Þrjú prófkjör fara fram í dag þar sem tekist er á um fjórðung líklegra þingsæta á næsta Alþingi Íslendinga. Prófkjörin eru hjá Samfylkingunni í Reykjavíkurkjördæmunum, sem hefur þar átta þingmenn, hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðvesturkjördæmi, sem þar hefur fimm þingmenn, og hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi, sem hefur þrjá þingmenn þar. Innlent 11.11.2006 09:48 Bílvelta í miðborg Reykjavíkur í nótt Tveir fólksbílar rákust saman á mótum Skothúsvegar og Fríkirkjuvegar í miðbæ Reykjavíkur laust eftir miðnætti í nótt með þeim afleiðingum að annar bíllinn valt. Í báðum bílum var ungt fólk, alls sex manns, og þurfti hluti hópsins að leita aðhlynningar á slysadeild. Innlent 11.11.2006 09:57 Þegar farnir að endurmeta stefnuna í Írak Yfirmenn Bandaríkjahers eru þegar farnir að endurmeta stefnuna í Írak með það fyrir augum að hernaðurinn verði árangursríkari og hernáminu geti þar með lokið fyrr. Þessu kom fram hjá Peter Pace, oddvita herráðsins, í viðtali við sjónvarpsstöðina CBS í gær. Erlent 11.11.2006 09:45 John McCain hyggur á framboð í forsetakosningum í Bandaríkjunum árið 2008 Búist er við því að John McCain, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Arisóna, ætli sér að bjóða sig fram í forsetakosningunum sem verða haldnar árið 2008. Þótt engin formleg ákvörðun hafi verið tekin segja nánir samverkamenn hans að vinna við hugsanlegt framboð sé þegar hafin. Erlent 10.11.2006 22:30 Rumsfeld hugsanlega sóttur til saka vegna fangelsanna í Abu Ghraib og Guantanamo Bandarísk samtök sem berjast fyrir stjórnarskrárbundnum réttindum fólks ætla sér að höfða mál gegn Donald Rumsfeld, fyrrum landvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vegna meðferðar á föngum í fangelsunum í Abu Ghraib og Guantanamo. Málin verða sótt í Þýskalandi. Erlent 10.11.2006 21:39 Friðarviðræður að hefjast á ný í Sómalíu Sómalskir uppreisnarmenn og meðlimir í bráðabirgðastjórn Sómalíu náðu í dag samkomulagi um að hefja aftur friðarviðræður undi handleiðslu Félags arabískra þjóða og Súdan. Innlent 10.11.2006 21:16 « ‹ 325 326 327 328 329 330 331 332 333 … 334 ›
Viðræðurnar runnar í sandinn Viðræður stjórnmálafylkinga Líbanons um valdaskiptingu í landinu eru farnar út um þúfur eftir að núverandi ríkisstjórnarflokkar höfnuðu kröfum Hizbollah-samtakanna um að fá aukinn hlut í stjórn landsins. Erlent 11.11.2006 14:14
Ríflega 2500 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar kl. 13.30 2502 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík klukkan hálftvö, þar af 1087 utan kjörfundar. Prófkjörið fer fram í dag og er kosið í félagsheimili Þróttar í Laugardal. Kjörfundur hófst klukkan tíu og stendur til sex og er búist við fyrstu tölum fljótlega eftir það. Innlent 11.11.2006 14:06
Ný fjöldagröf finnst í Bosníu Ný fjöldagröf með yfir 100 fórnarlömbuum fjöldamorðanna í Srebrenica árið 1995 hefur fundist í norðausturhluta Bosníu. Hópur réttarmeinafræðinga fékk nafnlausa ábendingu um gröfina en hún er í Snagova, um 50 kílómetra norður af Srebrenica. Erlent 11.11.2006 14:14
Ítalska mafían hafi náð fótfestu í Þýskalandi Ítalska mafían er að ná fótfestu í Þýskalandi og hefur meðal annars fjárfest í orkufyrirtækjum sem skráð eru í Frankfurt og rússneska gasrisanum Gazprom. Þetta hefur þýska dagblaðið Berlinger Zeitung í dag og vísar í rannsókn leyniþjónustu Þýskalands, BND. Erlent 11.11.2006 13:52
RKÍ fagnar auknu fé til íslenskukennslu fyrir útlendinga Þeir innflytjendur sem ekki tala íslensku standa einna verst að vígi í þjóðfélaginu samkvæmt könnun sem Rauði krossinn stóð að. Vegna þessa fagnar félagið þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var í gær, að verja 100 milljónum króna á næsta ári til íselnskukennslu fyrir útlendinga. Innlent 11.11.2006 12:58
Hannes sýknaður af kröfum vegna brota á höfundarlögum Hannes Hólmsteinn Gissurarson var sýknaður í Héraðsdómi í gær af öllum kröfum Auðar Sveinsdóttur, ekkju Halldórs Laxness, vegna brota á höfundarlögum. Dómari taldi þrátt fyrir það að Hannes væri brotlegur. Innlent 11.11.2006 13:04
Sýknaðir af ákæru um að hafa kynt undir kynþáttahatri Nick Griffin, leiðtogi Breska þjóðarflokksins, og einn flokksbræðra hans voru í gær sýknaður af ákærum um að hafa kynt undir kynþáttahatri. Upptökur af ræðu Griffins á lokuðum fundi flokksins þar sem hann segir meðal annars að múslimar hafi breytt Bretlandi í kynþáttablandað helvíti voru kveikja ákæranna en þær voru síðar spilaðar í breska ríkisútvarpinu. Erlent 11.11.2006 12:28
Engar breytingar á heimsókn sendiherra þrátt fyrir árásir Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir að engar breytingar verði á heimsókn sendiherra Ísraels hingað til lands í næstu viku. Stjórnvöld muni þó koma því á framfæri að þau fordæmi árásirnar á óbreytta borgara í bænum Beit Hanoun á Gaza sem kostuðu átján, þar af tíu börn, lífið. Innlent 11.11.2006 12:19
Barsmíðar lögreglu í LA vekja reiði Myndir sem sýna lögregluna í Los Angeles beita miklu harðræði við handtöku hafa vakið bæði óhug og reiði. Talsmaður lögreglunnar telur hins vegar að eðlilega hafi verið staðið að handtökunni. Erlent 11.11.2006 12:22
Leita þarf samkomulags við landeigendur vegna þjóðgarðs Töluverður hluti af því landssvæði sem áætlað er að falli innan Vatnajökulsþjóðgarðs er í einkaeign og verður ekki hluti af þjóðgarðinum nema til komi samkomulag við landeigendur. Innlent 11.11.2006 12:05
Ekkert ferðaveður víða á Norðaustur- og Austurlandi Ekkert ferðaveður er víða á Norðaustur- og Austurlandi allt frá Öxarfirði suður að Hornafirði samkvæmt Vegagerðinni og því fólki ráðið frá því að vera þar á ferðinni. Á Norðausturlandi er víðast hvar hálka og skafrenningur en óveður austan Öxarfjarðar og eins yfir Möðrudalsöræfi. Á Austurlandi er víða mjög hvasst og Öxi er þungfær. Innlent 11.11.2006 12:01
Tekist á um fjórðung líklegra þingsæta í dag Nokkrir sitjandi þingmenn, bæði Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, eru taldir í verulegri fallhættu í prófkjörum sem fram fara í dag. Þá má telja nokkuð víst að prófkjörin skili nýliðum inn í örugg sæti á framboðslistum, en alls er tekist á um fjórðung líklegra þingsæta á næsta Alþingi Íslendinga. Innlent 11.11.2006 11:52
1850 hafa kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Nýjustu tölur um kjörsókn í prófkjörum dagsins eru þær að í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum höfðu 1850 manns kosið nú rétt fyrir klukkan tólf. Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi höfðu um 700 manns kosið nú skömmu fyrir hádegi. Innlent 11.11.2006 11:57
Lést eftir bruna í Ferjubakka Konan sem brenndist illa í eldsvoða í Ferjubakka 12 á þriðjudagskvöldið var lést af sárum sínum á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss á fimmtudagsmorgun. Hún hét Anna Hauksdóttir og var 58 ára, fædd 20. janúar 1948. Innlent 11.11.2006 11:05
Flogið til Akureyrar og Ísafjarðar Flogið var til Ísafjarðar og Akureyrar nú skömmu fyrir hádegið en enn er ekki hægt að fljúga til Egilsstaða eða Vestmannaeyja. Ekkert hefur verið flogið til staðannna fjögurra síðan á fimmtudagskvöld vegna veðurs. Fyrsta vélin til Ísafjarðar fór um klukkan hálftólf og sú fyrsta til Akureyrar nú klukkan korter í tólf. Innlent 11.11.2006 11:41
Írösk liðsforingjaefni gufa upp í Noregi Þrjú írösk liðsforingjaefni sem eru í herþjálfun í Noregi á vegum Atlantshafsbandalagsins virðast hafa gufað upp af yfirborði jarðar. Að sögn norska ríkisútvarpsins hefur ekkert til þeirra spurst síðan í Ósló á mánudaginn en þá höfðu þeir verið í landinu í tvo daga. Erlent 11.11.2006 10:54
Vilja taka upp samning um sölu Landsvirkjunar Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu það til á aukafundi borgarráðs sem hófst klukkan tíu að samningur um sölu Landsvirkjunar yrðu teknir upp þannig að ásættanleg niðurstaða fengis fyrir Reykjavíkurborg og borgarbúa. Innlent 11.11.2006 11:16
Flutti ræðu á ráðstefnu um heimsleika Special Olympics Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í gær ræðu á ráðstefnu um heimsleika Special Olympics en þeir verða haldnir í Shanghai í október á næsta ári. Ráðstefnan var haldin í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Innlent 11.11.2006 11:00
Ágreiningur um hvaða skilaboð eigi að færa súdönskum stjórnvöldum Hætt hefur verið við för sendinefndar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna til höfuðsstöðva Afríkubandalagsins í Addis Ababa í Eþíópíu til að ræða um áframhald friðargæslu í Darfur-héraði. Ráðið klofnaði í afstöðu sinni í gær til verksviðs sendinefndarinnar og hvaða skilaboð hún ætti að færa súdönskum stjórnvöldum síðar í för sinni. Erlent 11.11.2006 10:09
Telur gagnrýni lífeyrissjóðs byggða á misskilningi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri telur að gagnrýni lífeyrissjóðs Reykjavíkurborgar þess efnis að söluandvirði hluta borgarinnar í Landsvirkjun sé ofmetið um á fjórða milljarð króna sé misskilningi byggð. Innlent 11.11.2006 10:13
Stórhríð og vonskuveður á Norðausturlandi Vegagerðin varar við stórhríð við vestanverðan Eyjafjörð og segir vonskuveður þaðan um allt norðaustanvert landið. Á Vestfjörðum er víða þæfingur en verið er að hreinsa helstu leiðir og á Norðurlandi vestra er vetrarfærð en hvergi fyrirstaða. Innlent 11.11.2006 10:05
Haniyeh gerir ekki kröfu um forsætisráðherrastól í þjóðstjórn Vonir standa til að samskipti Ísraela og Palestínumanna fari senn batnandi eftir að Ismael Haniyah, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar og einn leiðtogi Hamas-samtakanna, lýsti því yfir að hann gerði ekki kröfu um að halda embætti sínu í þjóðstjórn Palestínu sem verið er að reyna að mynda. Erlent 11.11.2006 10:02
Þrjú prófkjör vegna alþingiskosninga í dag Þrjú prófkjör fara fram í dag þar sem tekist er á um fjórðung líklegra þingsæta á næsta Alþingi Íslendinga. Prófkjörin eru hjá Samfylkingunni í Reykjavíkurkjördæmunum, sem hefur þar átta þingmenn, hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðvesturkjördæmi, sem þar hefur fimm þingmenn, og hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi, sem hefur þrjá þingmenn þar. Innlent 11.11.2006 09:48
Bílvelta í miðborg Reykjavíkur í nótt Tveir fólksbílar rákust saman á mótum Skothúsvegar og Fríkirkjuvegar í miðbæ Reykjavíkur laust eftir miðnætti í nótt með þeim afleiðingum að annar bíllinn valt. Í báðum bílum var ungt fólk, alls sex manns, og þurfti hluti hópsins að leita aðhlynningar á slysadeild. Innlent 11.11.2006 09:57
Þegar farnir að endurmeta stefnuna í Írak Yfirmenn Bandaríkjahers eru þegar farnir að endurmeta stefnuna í Írak með það fyrir augum að hernaðurinn verði árangursríkari og hernáminu geti þar með lokið fyrr. Þessu kom fram hjá Peter Pace, oddvita herráðsins, í viðtali við sjónvarpsstöðina CBS í gær. Erlent 11.11.2006 09:45
John McCain hyggur á framboð í forsetakosningum í Bandaríkjunum árið 2008 Búist er við því að John McCain, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Arisóna, ætli sér að bjóða sig fram í forsetakosningunum sem verða haldnar árið 2008. Þótt engin formleg ákvörðun hafi verið tekin segja nánir samverkamenn hans að vinna við hugsanlegt framboð sé þegar hafin. Erlent 10.11.2006 22:30
Rumsfeld hugsanlega sóttur til saka vegna fangelsanna í Abu Ghraib og Guantanamo Bandarísk samtök sem berjast fyrir stjórnarskrárbundnum réttindum fólks ætla sér að höfða mál gegn Donald Rumsfeld, fyrrum landvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vegna meðferðar á föngum í fangelsunum í Abu Ghraib og Guantanamo. Málin verða sótt í Þýskalandi. Erlent 10.11.2006 21:39
Friðarviðræður að hefjast á ný í Sómalíu Sómalskir uppreisnarmenn og meðlimir í bráðabirgðastjórn Sómalíu náðu í dag samkomulagi um að hefja aftur friðarviðræður undi handleiðslu Félags arabískra þjóða og Súdan. Innlent 10.11.2006 21:16