
Vísindi

Yfir níu kílómetrum á sekúndu á vindasömustu plánetunni
Skotvindur á fjarlægri fjarreikistjörnu er sá sterkasti sem nokkru sinni hefur mælst, yfir níu kílómetrar á sekúndu. Ný tækni er sögð gera stjörnufræðingum kleift að gera nákvæmari athuganir á veðri á fjarreikistjörnum á næstu árum.

Fjögur skip hefja leit að loðnu
Fjögur skip eru núna að hefja loðnuleit í veikri von um að bjarga megi loðnuvertíð. Kristján Már Unnarsson var staddur við höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hann sagði loðnuvertíðina skipta miklu máli fyrir þjóðarbúið.

Staðfesta að 2024 var heitasta árið í mælingasögunni
Nokkrar af helstu vísindastofnunum heims staðfestu í dag að 2024 hafi verið heitasta árið frá upphafi mælinga. Meðalhiti jarðar var þá í fyrsta skipti yfir neðri þröskuldi Parísarsamkomulagsins um að hnattrænni hlýnun verði haldið innan við eina og hálfa gráðu miðað við tímabilið fyrir iðnbyltingu.

Sóttu sér meira en milljón ára gamlan ís á Suðurskautslandinu
Alþjóðlegur hópur vísindamanna hefur náð að sækja eitt elsta ískjarnasýni í heimi djúpt úr Suðurskautslandsísnum. Ísinn er sagður að minnsta kosti 1,2 milljóna ára gamall. Hann getur varpað skýrara ljósi á hvernig lofthjúpur og loftslag jarðar hefur breyst.

Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar
Forsvarsmenn einnar umsvifamestu stjörnuathuganastöðvar heims vara við því að fyrirhuguð rafeldsneytisverksmiðja eigi eftir að spilla einum af fáum stöðum á jörðinni þar sem sést í ósnortinn stjörnuhimininn. Ljósmengun frá verksmiðjunni eigi eftir að trufla athuganir sjónauka í Atacama-eyðimörkinni.

Henta vísindin bara þegar þau styðja skoðanir okkar?
Það er áhugavert, jafnvel kaldhæðnislegt, að fylgjast með þeim sem hafna vísindum þegar þau segja okkur óþægilegar staðreyndir, en grípa á lofti vísindalegar fullyrðingar ef þær henta hugmyndafræði þeirra. Þetta ósamræmi er áberandi í umræðum um loftslagsbreytingar og jafnvel samfélagsmál eins og kynvitund.

Hringir Satúrnusar hverfa á þessu ári
Krúnudjásn sólkerfisins, hringir Satúrnusar, hverfa sjónum manna í mars. Þeir verða þó aðeins „horfnir“ í nokkra daga. Fyrirbærið á sér stað á um fimmtán ára fresti þegar sjónlína frá jörðinni er beint á rönd hringanna.

Kórónugos stefnir á jörðina og von á litríkum norðurljósum
Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins, telur talsverðar líkur á norðurljósadýrð á gamlárskvöld. Mögulega megi sjá bæði björtustu og litríkustu norðurljósin sem sést hafa yfir landinu síðan í október.

Hvað vildu Íslendingar vita á árinu?
Vísindavefurinn hefur tekið saman þau svör á vefnum sem voru mest lesin árið 2024. Fólk var mikið að pæla í eldgosum, vöxtum og starfsstjórn. Þá vekur athygli hve margir lásu um börn íslenskra kvenna og Tyrkjaránsmanna.

Kanni frekar mögulegar aukaverkanir af notkun Ozempic
Tvær nýjar rannsóknir vísindamanna við Háskólann í Suður-Danmörku (d. Syddansk Universitet) í Óðinsvéum benda til að mögulega séu auknar líkur á að þeir sem notist við þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic þrói með sér sjaldgæfan augnsjúkdóm, Naion.

Eru vísindin á dagskrá?
Nú þegar stjórnarmyndunarumræður eiga sér stað viljum við hvetja flokkana sem að þeim standa til þess að setja vísinda- og háskólamál í forgrunn. Vísindin eru langt frá því að vera einkamál þeirra sem þau stunda heldur eru þau mikilvæg öllu samfélaginu.

Webb sér alheiminn einnig þenjast út á vaxandi hraða
Athuganir öflugasta geimsjónauka sögunnar staðfesta enn á ný að alheimurinn þens út hraðar en staðallíkan eðlisfræðinnar getur útskýrt. Eftir sitja stjarneðlisfræðingar í súpunni, engu nær um hvers vegna herðir á útþenslunni.

Spá veikri og skammlífri „stelpu“ í Kyrrahafi
Langtímaspár benda til þess að veðurfyrirbrigðið La niña gæti myndast í Kyrrahafi á næstu þremur mánuðum. Fyrirbrigðið er tengt kólnun en talið er að það verði veikt og skammlíft að þessu sinni.

Fyrsta árið sem fer yfir einnar og hálfrar gráðu múrinn
Öruggt er nú að árið sem er að líða verði það hlýjasta í mælingarsögunni samkvæmt evrópskum vísindamönnum. Árið 2024 verður jafnframt það fyrsta þar sem meðalhiti jarðar verður einni og hálfri gráðu yfir meðaltali fyrir iðnbyltingu.

Nanna hlaut titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur 2024
Nanna Kristjánsdóttir hlaut titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur 2024 fyrir störf og afrek á sviði menntamála á verðlaunaathöfn á vegum JCI hreyfingarinnar sem fram fór í Höfuðstöðinni í Elliðarárdal í gær.

Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum
Öreindafræðingar við Kjarnorkurannsóknaráð Evrópu (CERN) ætla að reyna að flytja andefni á milli staða í fyrsta skipti. Flutningarnir, sem fara fram með vörubílum, eiga að gera þeim kleift að rannsaka andróteindir nánar.

SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim
Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa samið við SpaceX um að senda kjarnorkuknúið könnunarfar af stað til tunglsins Títan, sem er á braut um Satúrnus, árið 2028. Skjóta á Dragonfly-þyrludrónanum á loft með Falcon Heavy eldflaug SpaceX en ferðin sjálf mun taka sex ár.

Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti
Lögreglumenn sem voru á leið um Sæbraut í Reykjavík að kvöldi mánudags í síðustu viku sáu skyndilega vígahnött á himni.

Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói
Borgarstjóri og rektor Háskóla Íslands skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu sem felur í sér uppbyggingu fullburða vísindaseturs opnu almenningi í Háskólabíói.

Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar
Stjörnufræðingum hefur í fyrsta sinn tekist að ná nærmynd af stjörnu fyrir utan Vetrarbrautina okkar. Stjarnan er í um 160.000 ljósára fjarlægð frá jörðinni og er á leiðinni að verða að sprengistjörnu.

Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum
Heilbrigðisfyrirtækið Intuens er farið að bjóða aftur upp á heilskimanir, sem nú eru kallaðar „heilskoðanir“. Heilbrigðisráðuneytið felldi úr gildi ákvörðun landlæknisembættisins um að banna starfsemina.

Sektuð vegna fullyrðinga um aukinn hárvöxt og minni hrukkur
Félagið X20 Lausnir ehf. hefur verið gert að greiða hundrað þúsund króna stjórnvaldssekt vegna fullyrðinga sem birtust á vefsíðunni lifsbylgja.is. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að umræddar fullyrðingar teldust undir öllum kringumstæðum óréttmætar, en þær vörðuðu vörur undir merkinu Lifewave.

Ferskvatnsforði jarðar ekki náð sér á strik eftir þráláta þurrka
Magn fersksvatns á jörðinni hefur ekki komist í fyrra horf eftir að það tók dýfu fyrir rúmum tíu árum samkvæmt gervihnattamælingum. Ekki er talið tilviljun að hnignun ferskvatnsforðans eigi sér stað þegar níu af síðustu tíu árum voru þau hlýjustu sem um getur.

Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022
Jarðskjálfti að stærð 3,0 varð klukkan 08:13 í morgun á austurbakka Öskjuvatns, 1,6 kílómetra frá Víti sem er stærsti sprengigígurinn í Öskju. Þetta er stærsti skjálftinn sem hefur mælst á svæðinu síðan í janúar 2022.

Alþjóðastarf þingmanna álitið sem „fyllerís- og fríferðir“
Þingmenn og embættismenn segja alþjóðastarf ekki nægilega samræmt störfum Alþingis. Ferðalög í þágu alþjóðastarfs séu álitnar „fyllerís- og fríferðir“ í stað vinnuferða. Neikvætt álit almennings og þingmanna á alþjóðastarfi hefur áhrif á hvata alþingismanna að taka þátt.

Mörg börn sem beita ofbeldi hafa orðið fyrir því sjálf
Dósent í afbrotafræði sér vísbendingar um aukinn vopnaburð barna og ungmenna. Mörg barnanna sem beita ofbeldi hafa orðið sjálf fyrir ofbeldi. Nálgast þarf börnin á styðjandi hátt í stað refsandi.

Ógnarstór loftsteinaárekstur eins og áburður fyrir líf á jörðinni
Vísbendingar eru um að loftsteinaárekstur sem var margfalt stærri en sá sem grandaði risaeðlunum hafi hjálpað lífverum með því að dreifa næringarefnum um jörðina. Talið er að höfin hafi soðið og stærsta flóðbylgja sem vitað er um hafi fylgt árekstrinum.

Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast
Sumir fremstu loftslagsvísindamanna heims eru á meðal þeirra sem vara norræna ráðherra við alvarlegri ógn við mikilvæga hringrás í Norður-Atlantshafi sem gæti haft hörmungar í för með sér fyrir Norðurlöndin. Fjórir íslenskir fræðimenn eru á meðal þeirra sem skrifa undir opið bréf þess efnis.

Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu
Fyrsti könnunarleiðangurinn til ístunglsins Evrópu gæti hafist í dag með geimskoti bandaríska geimfarsins Europa Clipper. Evrópa þykir einn mest spennandi hnöttur sólkerfisins því neðanjarðarhaf er talið að finna undir ísilögðu yfirborðinu.

Rafeldsneyti vegna íslenskrar tækni dugar til orkuskipta alls skipaflotans
Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling hefur samið um hönnun rafeldsneytisverksmiðju í Kína. Þetta er einn stærsti samningur í sögu fyrirtækisins en með honum stefnir í að framleiðslumagn vistvæns eldsneytis á grunni íslenskrar tækni dugi til orkuskipta á öllum íslenska skipaflotanum.