Dýr

„Það er erfitt að halda í vonina þegar svona margir mánuðir eru liðnir“
„Hún týndist í byrjun október og þetta er innikisa, norskur skógarköttur sem er alveg einstaklega gæf og mikið keludýr, svona eins og lifandi tuskudýr,“ segir Edda Björg Eyjólfsdóttir, leikkona, sem hefur leitað að kettinum sínum Dafnis í að verða hálft ár.

Hundurinn sem beit stúlkuna mun gangast undir geðmat
Rottweiler-hundurinn sem beit unga konu í andlitið á skemmtistaðnum Röntgen síðastliðið föstudagskvöld mun gangast undir geðmat hjá dýralækni eða hundaatferlisfræðingi. Þetta segir Helgi Helgason, hundaeftirlitsmaður hjá Reykjavíkurborg, í samtali við Vísi.

Forystusauður í stífum æfingabúðum
Stífar æfingar standa yfir þessa dagana við að venja forystusauð að hlaupa í taumi með hesti þegar bóndi á bæ í grennd við Laugarvatn fer í sinn daglega reiðtúr á hestinum Kafteini með sauðinn í eftirdragi.

„Persónulega finnst mér hundar ekkert eiga heima innan um sauðdrukkið fólk“
Þær aðstæður sem hundurinn sem beit stúlku á Röntgen á föstudag voru ekki boðlegar, segir Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Hún segir hundinn hafa verið hræddan og það sé æsifréttamennska að slá tegundinni upp.

Óvíst hvort hundinum sem beit stúlkuna verði lógað
Helgi Helgason hundaeftirlitsmaður segir ekki meitlað í stein að Rottweiler-hundi, sem beit stúlku í andlitið á barnum Röntgen við Hverfisgötu, verði lógað. Lögreglumaður segir að hundurinn verði hugsanlega settur í geðmat.

Staðfestir höfnun á innflutningi fugla sem voru aflífaðir fyrir þremur árum
Tæpur þremur árum eftir að á þriðja hundrað skrautfuglar voru aflífaðir að kröfu Matvælastofnunar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið staðfest ákvörðun stofnunarinnar um að hafna innflutningi á fuglunum.

„Þetta er náttúrlega ekki stelpunni eða hundinum að kenna“
Eigandi skemmtistaðarins Röntgen við Hverfisgötu segir að aðstæður þar sem eru há tónlist og ölvun séu ekki heppilegar fyrir hunda. Í kjölfar atviks sem upp kom á föstudagskvöldið er nú til skoðunar að setja því takmörk hversu lengi fram á kvöld verður leyfilegt að taka hunda með sér inn á staðinn.

Endurskoða hvort hundar verði áfram velkomnir eftir að stúlka var bitin í andlitið
Til skoðunar er hvort hætta eigi að bjóða hunda velkomna á skemmtistaðinn Röntgen við Hverfisgötu eftir að ung stúlka var bitin í andlitið af Rottweiler-hundi á staðnum á föstudagskvöldið.

Sex ljón afhöfðuð og hrammarnir hirtir
Sex ljónshræ hafa fundist í Queen Elizabeth National Park í Úganda. Grunur leikur á um að eitrað hafi verið fyrir dýrunum en búið var að afhöfða þau og fjarlæga hramma þeirra.

Fólk varað við að nálgast hvalinn
Mikill mannfjöldi var í fjörunni á Garðskaga í dag en þar hefur hnúfubakur sem rak á land legið í nokkra daga. Fólk hefur verið varað við því að fara of nálægt hvalnum, en að sögn vísindamanna frá Hafrannsóknarstofnun mun hvalurinn brátt springa í loft upp vegna gasmyndunar.

Hundur Joes Biden til vandræða og sendur burt úr Hvíta húsinu
Tveimur hundum bandarísku forsetahjónanna Joe og Jill Biden, hefur verið vísað burt úr Hvíta húsinu í Washington og þeir sendir aftur til heimilis Biden-hjónanna í Delaware. Þetta var gert í síðustu viku eftir að annar hundanna, Major Biden, sýndi af sér árásargjarna hegðun.

Hundur féll af svölum á fimmtu hæð á Laugavegi
Vegfarendum sem áttu leið um Laugaveg síðdegis í gær brá nokkuð í brún þegar þeir sáu hund sem lá illa slasaður í blóði sínu. Hundurinn hafði fallið niður af svölum á fimmtu hæð og niður á götu. Hundurinn mun hafa lifað fallið af en dáið síðar um daginn af sárum sínum.

Mannapar í San Diego bólusettir gegn Covid-19
Níu mannapar í dýragarðinum í San Diego hafa verið bólusettir gegn Covid-19. Um er að ræða fjóra órangúta og fimm simpasa, sem hafa fengið tvo skammta af bóluefni frá Zoetis, fyrirtæki sem framleiðir lyf fyrir dýr.

Costco ekki orðið við kröfu MAST um innköllun á hundanammi
Matvælastofnun (MAST) varar við tiltekinni lotu af hundanamminu Super foods for dogs: Chicken treats with sweet potato, carrot & pumpkin frá Irish Dog Food vegna málmflísa sem kaupandi fann í vörunni. Costco flytur vöruna inn og selur í verslun sinni í Kauptúni.

Hundar Lady Gaga komnir heim heilir á húfi
Koji og Gustav, frönskum bolabítum bandarísku tónlistarkonunnar Lady Gaga, hefur verið skilað til eiganda síns heilum á húfi. Þeir voru teknir ófrjálsri hendi og Ryan Fischer, aðstoðarmaður Gaga, skotinn í bringuna síðastliðinn miðvikudag.

Um manninn og fleiri dýr
Ætla loks að skrifa það sem hefur velkst um í kollinum á mér í nokkur ár. Það er þetta með tjáninguna og ábyrgðina. Orð eru til alls fyrst.

Skotárásin og rán á hundum Lady Gaga náðist á myndband
Árásin á aðstoðarmann söngkonunnar Lady Gaga, sem var á gangi með hunda hennar, náðist á myndband. Tveir menn á hvítum bíl veittust að aðstoðarmanninum á miðvikudaginn og reyndu að ræna hundum söngkonunnar af honum.

Aðstoðarmaður Lady Gaga skotinn og hundum hennar rænt
Tveir menn réðust að aðstoðarmanni söngkonunnar Lady Gaga í Los Angeles í gærkvöldi og skutu hann einu sinni í bringuna. Því næst rændu mennirnir tveimur af þremur hundum söngkonunnar og flúðu af vettvangi.

Ástralskur sauður rúinn hálfri kengúru
Veikburða sauður fannst í Ástralíu á dögunum, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skepnan hafði ekki verið rúin í fjölda ára og var 35 kílóum léttari þegar snyrtingu lauk.

Bitin í rassinn af birni
Kona sem var í útilegu í Alaska í síðustu viku særðist á rassi þegar hún gekk örna sinna í kamri í óbyggðum ríkisins og telur að björn, sem var búinn að koma sér fyrir í kamrinum, hafi bitið sig.

Verndum líffræðilega fjölbreytni
Fuglar eru um margt táknmynd fyrir líffræðilega fjölbreytni. Til hennar er nú, þegar loftslagsbreytingar valda æ alvarlegri vandamálum, horft með auknum áhuga. Hér á landi verpa að staðaldri 75 tegundir. Í Ekvador við miðbaug jarðar eru tegundirnar 1651.

Kisan Bella rúntaði um 150 kílómetra í vélarhúddi bíls
Kötturinn Bella fór óvænt í hundrað og fimmtíu kílómetra ökuferð um Suðurland eftir að hún fór inn í vélarhúdd á bíl og var þar í sólarhring. Hún fannst þegar eigandi bílsins fór að setja rúðuvökva á bílinn.

Larry fagnar tíu ára starfsafmæli
Kötturinn Larry, músaveiðari breska forsætisráðuneytisins, fagnar tíu ára starfsafmæli í dag.

Algjör sprenging í hundahaldi á Íslandi og þeir þurfa sitt spa
Hundahald verður sífellt vinsælla og varð sprenging í Kórónuveirufaraldrinum. Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi fengu áhorfendur að sjá sæta hunda verða enn sætari.

Fjögurra metra langur krókódíll drepinn eftir að veiðimaður hverfur
Yfirvöld í Queensland í Ástralíu hafa fangað og drepið fjögurra metra langan krókódíl sem er grunaður um að hafa orðið veiðimanni að bana. Mannsins hafði verið leitað síðan á fimmtudag, eftir að hann skilaði sér ekki heim.

Þrífættur hundur
Tíkin Zenta er magnaður hundur á bænum Árbæjarhjáleigu í Holtum í Rangárþingi ytra því hún er aðeins með þrjár lappir en lætur það ekki aftra sig við að gera alla hluti eins og hún gerði áður þegar hún var með sínar fjórar lappir.

Hundurinn fór að „þrífa“ hana í miðri handstöðuarmbeygju
Þuríður Erla Helgadóttir ætlaði að taka hörkuæfingu en einn á heimilinu var ekki alveg nógu sáttur við útlitið á henni.

„Ég veit að ríkið gaf hálfan hund í fyrra“
Átján manns bíða eftir því að fá blindrahunda en Blindrafélagið ræður einungis við það að úthluta tveimur slíkum hundum á ári. Hvorki ríki né sveitarfélög taka þátt í kostnaðinum. vegna blindrahunda.

Hafði ekki hugmynd um að Zoom gæti gert sig að ketti og svo internetstjörnu
Lögmaðurinn Rod Ponton hafði ekki hugmynd um að Zoom gæti breytt honum, fyrst í kött og svo í internetstjörnu en er að reyna að gera sitt besta til að takast á við frægðina.

Vísindamenn vilja grisja flóðhestahjörð Pablo Escobar
Vísindamenn segja nauðsynlegt að ráðast í grisjun flóðhestahjarðar sem varð til í kjölfar þess að eiturlyfjabaróninn Pablo Escobar var drepinn af lögreglu árið 1993, áður en hún fer að ógna plöntu og dýraríkinu þar sem hún hefur fjölgað sér.