
Fjármálafyrirtæki

Varar við þenslu á byggingamarkaði
Þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagslífinu er verðbólga ekki að láta undan að sögn Seðlabankastjóra. Og það þrátt fyrir að stýrivaxtahækkanir bankans hafi sérstaklega verið beint að henni. Hann segir byggingariðnað í miklum vexti sem geti reynst varasamt á meðan hagkerfið kólnar.

Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið
Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum þar sem eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Lítið ber enn á vanskilum þrátt fyrir hátt vaxtastig en vert er þó að hafa í huga að þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið á næstu misserum.

Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt
Íslandsbanki hefur tekið sáttaboði fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna ófullnægjandi varna gegn peningaþvætti. Bankinn viðurkennir að brotin séu mörg og alvarleg.

Gæti hallað undan fæti hjá Arion á næsta ári því viðvörunarljós blikka
Greinandi gerir ráð fyrir „hraustlegri“ virðisrýrnun útlána hjá Arion banka á næsta ári og spáir því að hún verði meiri en í síðasta verðmati. Það blikka viðvörunarljós sem munu grafa undan gengis- og verðstöðugleika hér á landi. Verðmatsgengi Arion lækkaði um nærri fimm prósent frá síðasta mati en er engu að síður 44 prósentum yfir markaðsgengi.

Fasteignamat sumarbústaða hækkar mest
Fasteignamat hækkar mun minna á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni því íbúðir hafa hækkað hlutfallslega meira út á landi. Mest er hækkun á Vestfjörðum eða ellefu prósent. Sumarbústaðir hækka mest.

Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM
Landsbankinn gekk frá samningi við Kviku banka um kaup á tryggingafélaginu TM fyrir 28,6 milljarða króna í dag. Kaupsamningur þeirra var skuldbindandi fyrir Landsbankann samkvæmt lögfræðiáliti sem nýtt bankaráðs bankans lét vinna.

Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta
Framkvæmdastjóri sparisjóðs sem býður upp á ný, vaxtalaus lán í lok mánaðar segir það hagsmuni lánveitenda að viðskiptavinir þeirra séu fjárhagslega heilbrigðir.

Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra
Skilmálar fasteignalána Landsbankans uppfylla íslensk og evrópsk lög að mati bankans þrátt fyrir að EFTA-dómstóllinn hafi gert athugasemdir við að orðalag um breytilega vexti væri ekki gagnsætt í dag.

Þarf að endurgreiða sinni fyrrverandi eftir allt saman
Karlmaður sem fékk níutíu prósent skuldbindinga sinna felld niður með greiðsluaðlögunarsamningum eftir efnahagshrun þarf að endurgreiða fyrrverandi eiginkonu sinni greiðslur vegna krafna sem hún hafði greitt sem ábyrgðarmaður. Hann þarf að greiða henni 1,7 milljónir króna með dráttarvöxtum.

Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda
EFTA dómstóllinn segir að orðalag í skilmálum lána þurfi að vera nægilega gagnsætt jafnvel þó það þyki málfræðilega skýrt og skiljanlegt. Skilmálarnir þurfi að vera skiljanlegir þannig að almennur neytandi sem teljist sæmilega vel upplýstur og athugull geti skilið aðferðina sem beitt er við ákvörðun um útlánsvexti.

Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér
Eigendur Inter Milan virðast ófærir um að endurgreiða neyðarlán sem félagið tók árið 2021. Þeir hafa til klukkan 15 í dag til að endurgreiða 375 milljónir evra, annars fer félagið í hendur bandaríska fjárfestingasjóðsins Oaktree Capital.

Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja íhuga að láta reyna á niðurstöðu í atkvæðagreiðslu um kjarasamning við Samtök atvinnulífsins fyrir Félagsdómi. Afar jafnt var á munum í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. SA telja meirihluta hafa samþykkt samninginn en SSF telur að samningurinn hafi verið felldur.

Þekktir fjárfestar styðja við vegferð Indó sem tapaði 350 milljónum
Indó tapaði 350 milljónum króna á sínu fyrsta formlega starfsári 2023 en sparisjóðurinn fjárfesti á sama tíma fyrir 250 milljónir. Á meðal þeirra sem tóku þátt í hlutafjáraukningu Indó á liðnu ári voru félög í eigu Guðmundar Fertram Sigurjónssonar, Andra Sveinssonar, Birgis Más Ragnarssonar, Jónasar Hagan Guðmundssonar. Að auki bættist Iceland Venture Studio II og sænskur vísisjóður í hluthafahópinn í fyrra.

Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna
Rekstur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga gekk vel á síðasta ári. Hagnaður af starfseminni var 204,7 milljónir króna eftir skatta.

Kaupa Íslensk verðbréf
Skagi, móðurfélag Vátryggingafélags Íslands, hefur undirritað kaupsamning við hluthafa Íslenskra verðbréfa um kaup Skaga á 97,07 prósent hlutafjár í félaginu.

Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun
Forsætisráðherra vonast til þess að Seðlabankinn lækki stýrivexti á morgun. Skilyrðin séu fyrir hendi því verðbólga hafi gefið eftir undanfarið. Hann varar þó við því að verðbólga hjaðni of mikið því hagkerfið sé á mikilli siglingu og atvinnustig í landinu hátt.

SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning
Í gær skrifuðu Samtök atvinnulífsins (SA) og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) undir langtímakjarasamning. Samningurinn byggir á samningnum sem undirritaður var við meirihluta félaga á almennum vinnumarkaði í mars.

Forstjóri: Kvika kemst vonandi nálægt því að ná markmiði um arðsemi í ár
Kvika banki kemst vonandi nálægt því að ná markmiði sínu um arðsemi á árinu. „Við erum ánægð með góðan viðsnúning í bankarekstri,“ sagði Ármann Þorvaldsson bankastjóri. Stefnt er á að hleypa af stokkunum 3,5 til fimm milljarða króna framtakssjóði sem fjárfestir í Bretlandi.

Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Spáin rímar við spá Íslandsbanka sem gerir einnig ráð fyrir að stýrivextir haldist óbreyttir.

Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað
Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða Landsbankanum 300 þúsund króna kortareikning, sem var til kominn vegna úttekta í brasilísku ríal. Þá þarf hann að greiða bankanum 400 þúsund krónur í málskostnað.

Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi
Íslandsbanki hagnaðist um 5,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Kostnaðarhlutfall bankans hækkar á milli ára og er rétt nær fjárhagslegu markmiði bankans.

Óvenju hátt skatthlutfall Arion vegna framvirkra samninga
Yfir lengra tímabil hafa framvirkir samningar sem Arion banki hefur veitt viðskiptavinum leitt til lægra virks skatthlutfalls, upplýsti bankastjóri. Hagnaður af slíkum samningum urðu til þess að skatthlutfallið var óvenju hátt á fyrsta ársfjórðungi sem kom greinendum á óvart. Hann gerir ráð fyrir því að þróunin verði með öðrum hætti á yfirstandi ársfjórðungi.

Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 nam 7,2 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 9,3% samanborið við 11,1% á sama tímabili árið áður.

Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða
Arion banki hagnaðist um 4,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er nokkur samdráttur sé fjórðungurinn borinn saman við sama tímabil í fyrra, þegar Arion hagnaðist um 6,3 milljarða. Bankastjóri segir afkomuna undir markmiðum.

Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka
Arion banki hefur ákveðið að hækka vexti á verðtryggðum íbúðalánum með föstum vöxtum um hálft prósentustig. Á föstudaginn lækka innlánsvextir veltureikninga um allt að 0,85 prósentustig.

Vanskil fyrirtækja „ekki til marks um almenna breytingu“ hjá viðskiptavinum
Íslandsbanki hefur ekki fundið fyrir mikilli aukningu í vanskilum hjá fyrirtækjum á undanförnum mánuðum, hvorki lengri né skemmri tíma vanskilum, segir fjármálastjóri Íslandsbanka. Heildarvanskil hjá fyrirtækjum í viðskiptum við Landsbankans hafa lítið eitt aukist frá áramótum en breytingin er „óveruleg og er ekki til marks um almenna breytingu hjá okkar viðskiptavinum.“

Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði
Fráfarandi bankaráð Landsbankans segir hluthafa þurfa að breyta tilgangi félagsins ef hlutverk hans á ekki að vera að taka þátt í samkeppni á fjármálamarkaði. Kaup á TM hafi samræmst eigendastefnu ríkisins því þau hámari virði eignarhluts ríkisins.

Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans
Ný stjórn hefur verið kjörin í bankaráð Landsbankans. Jón Þ. Sigurgeirsson, ráðgjafi hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu er nýr formaður ráðsins og tekur við af Helgu Björk Eiríksdóttur sem hefur sinnt formannsstörfum síðustu átta ár.

Spá minni hagnaði hjá bönkum og að þeir nái ekki arðsemismarkmiði
Greinendur telja að hagnaður viðskiptabankanna sem skráðir eru í Kauphöll Íslands muni dragast saman á fyrsta ársfjórðungi um ellefu og 16 prósent milli ára að jafnaði. Þeir spá því að bankarnir nái ekki markmiði sínu um arðsemi eiginfjár á ársfjórðungnum.

Skynsamlegt að selja Íslandsbanka
Ríkið á miklar eignir. Um 1.300 milljarða króna eru bundnar í eignarhaldi á um 40 ríkisfyrirtækjum, 900 fasteignum og yfir 400 jörðum. Skynsamlegt er að hefja skipulega sölu á þessum eignum sem ekki nýtast í rekstri ríkisins og minnka skuldir ríkissjóðs.