Slökkvilið
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 55 ›
Brunavarnir á Eiðistorgi í lamasessi: Íbúar sagðir verða fyrir tjóni vegna sinnuleysis bæjaryfirvalda Miklar brotalamir eru á brunavörnum á Eiðistorgi. Flóttaleiðir íbúa á eftirhæðum eru ekki fyrir hendi. Þeir hafa ekki getað sinnt nauðsynlegu viðhaldi og eru íbúðir farnar að skemmast. Þak í eigu Seltjarnarnesbæjar skapar stærsta vandann. Sveitarfélagið hefur ekkert aðhafst. Innlent 4.3.2021 21:01
Árekstur á mótum Sæbrautar og Langholtsvegar Tveir bílar rákust saman á mótum Sæbrautar og Langholtsvegar skömmu eftir hádegi í dag. Innlent 4.3.2021 12:35
Gaslyktin í Vesturbænum kom til vegna efnafræðitilraunar „Eru fleiri í Vesturbænum að finna sterka gaslykt úti við?“ svona hefst færsla sem rituð var í Facebook hópinn „Vesturbærinn.“ Nokkrir íbúar furðuðu sig á lyktinni og hvaðan hún kæmi. Innlent 26.2.2021 21:57
Mikilvægt að fólk sé vel upplýst ef rýma þurfi á höfuðborgarsvæðinu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir margt geta orðið tilefni til þess að grípa þyrfti til rýminga á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir mikilvægt að fólk fái traustar upplýsingar og ani ekki af stað, ef til rýminga kæmi. Innlent 25.2.2021 19:04
Maður fór í sjóinn í Kópavogshöfn Mikill viðbúnaður var í Kópavogshöfn á áttunda tímanum í kvöld eftir að tilkynning barst um mann sem farið hefði í sjóinn. Fólk í höfninni hafði komið manninum á land þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn og hann sakaði ekki. Innlent 24.2.2021 20:33
Íbúar á Reyðarfirði beðnir að loka gluggum vegna bruna Töluverður eldur logar á athafnasvæði Hringrásar á Hjallaleiru á Reyðarfirði. Slökkvistarf stendur yfir að því er fram kemur í tilkynningu á heimasíðu Fjarðabyggðar. Nokkurn reyk mun leggja frá svæðinu og yfir byggð á Reyðarfirði. Innlent 21.2.2021 13:34
Slökkviliðsmenn féllust í faðma á vaktaskiptum eftir marga mánuði í sundur Tímamót urðu hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í gær þegar útkallslið slökkviliðsins varð að einum sóttvarnahóp á nýjan leik. Í marga mánuði hafa vaktaskipti hjá slökkviliðinu farið fram með óhefðbundnum hætti sökum kórónuveirufaraldursins þar sem gætt var að því að vaktir hittust ekki. Innlent 21.2.2021 12:20
Tveir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur við Smáralind Tveggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut rétt við Smáralind nú á tíunda tímanum. Tveir voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar en meiðsl þeirra eru talin minniháttar, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 16.2.2021 09:51
Bíl ekið á neyðarútgang Vínbúðarinnar í Hafnarfirði Bíl var ekið á lokaðan neyðarútgang Vínbúðarinnar í Helluhrauni í Hafnarfirði skömmu eftir klukkan ellefu í morgun. Innlent 12.2.2021 11:55
Margir hringdu sig inn veika eftir seinni sprautuna Lögreglu-, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á höfuðborgarsvæðinu bera sig margir hverjir illa í dag. Margir hafa tilkynnt sig veika í dag og aðrir eru lumbrulegir á vaktinni. Ástæðan er viðbrögð við seinni bólusetningusprautunni sem fyrrnefndir hópar fengu í Laugardalshöll í gær. Innlent 11.2.2021 15:55
Hneig niður í hjartastoppi þar sem þær sátu og spjölluðu Sólveig Ásgeirsdóttir bjargaði lífi bestu vinkonu sinnar, Súsönnu Helgadóttur, í júlí síðastliðnum þegar Súsanna fór í skyndilegt hjartastopp á heimili sínu. Tveggja ára sonur Súsönnu lá sofandi í herbergi sínu þegar atvikið varð. Sólveig var í dag útnefnd skyndihjálparmaður ársins 2020. Innlent 11.2.2021 14:04
Bein útsending: 112 dagurinn 112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggi og velferð barna og ungmenna, enda fjölgaði tilkynningum til barnaverndarnefnda gríðarlega á síðasta ári. Innlent 11.2.2021 11:00
„Við erum ekki úr stáli“ „Náttúruhamfarirnar á Seyðisfirði í árslok 2020 eru þær verstu sem ég hef lent í á mínum ferli. Þarna voru ólýsanlegar, lífshættulegar aðstæður, þar sem maður óttaðist um eigið líf og annarra, bæði líf bæjarbúa og félaganna sem voru að sinna björgunarstörfunum.“ Innlent 11.2.2021 06:15
Krefjandi að setja eigin hagsmuni til hliðar á ögurstund „Það má eiginlega segja að ég hafi verið í útkalli frá 15. desember fram til 9. janúar. Það er lengsta útkall sem ég hef farið í. Þegar ég lít til baka til þessara daga finnst mér að það hafi verið auðvelt að vera í björgunarstörfunum borið saman við það að horfa á eftir heimilinu mínu eyðileggjast í vatnselg. En björgunarmaðurinn í mér gengur sáttur frá borði“. Innlent 10.2.2021 07:00
Eldur kom upp í sorpbíl við Eimskip Eldur kom upp í sorpi í sorpbíl við húsnæði Eimskipa við Sundahöfn í morgun. Útkallið er minniháttar og slökkvilið vinnur nú að því að slökkva. Innlent 9.2.2021 10:55
Slökkva eld í sinu í Úlfarsárdal Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu höfðu hraðar hendur og vinna nú hörðum höndum að því að slökkva eld í sinu í Úlfarsárdal í Reykjavík. Töluverðan reyk leggur yfir Grafarholtið sem sést víða að á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 5.2.2021 16:11
Bruni í kjallara húsnæðis Sjúkratrygginga Íslands Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út upp úr klukkan hálftólf í gærkvöldi vegna elds sem kom upp í kjallara Vínlandsleiðar 16. Sjúkratryggingar Íslands eru þar til húsa auk tannlæknastofu. Innlent 5.2.2021 06:28
„Vorboði“ slökkviliðsmanna óvenjulega snemma á ferðinni Fjölmennt lið slökkviliðsmanna á höfuðborgarsvæðinu var kallað út laust fyrir klukkan átta í morgun vegna sinubruna við Korpúlfsstaðaveg. Brunalykt fannst víða í borginni vegna þessa en slökkviliðið náði tökum á aðstæðum á mettíma. Innlent 2.2.2021 12:16
Mikill sinubruni við Korpúlfsstaðaveg Mikill sinubruni logar nú við Korpúlfsstaðaveg í Reykjavík. Fjölmennt lið slökkviliðs er á svæðinu og er slökkvistarf í gangi. Tvær stöðvar voru sendar á staðinn sem og auka tankbíll úr Hafnarfirði. Innlent 2.2.2021 08:11
Hjálpuðu barni „sem lá svona á að komast í heiminn“ Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk síðasta sólarhringinn 72 boðanir í sjúkraflutning. Innlent 31.1.2021 08:34
Eldur í bíl á Akranesi Slökkviliðið á Akranesi var kallað út um klukkan hálf níu í morgun vegna þess að kviknað hafði í vélarhúddi fólksbíls í bænum. Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri segir að eldur virðist hafa kviknað þegar bílstjóri ræsti bílinn. Innlent 29.1.2021 11:25
Fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu á Eyrarbakkavegi Bílvelta varð á Eyrarbakkavegi rétt sunnan við Selfoss skömmu fyrir klukkan ellefu í kvöld. Ökumaður var einn í bílnum og var fluttur á sjúkrahús á Selfossi. Innlent 28.1.2021 23:00
Mikill viðbúnaður vegna elds í Fellsmúla Lið frá öllum slökkviliðsstöðvum höfuðborgarsvæðisins var kallað út um kvöldmatarleytið vegna elds í fjölbýlishúsi í Fellsmúla. Eldur kviknaði í íbúð í húsinu en húsráðendur komust sjálfir út. Slökkvistarfi lauk á áttunda tímanum. Innlent 28.1.2021 19:09
Talið að kviknað hafi í út frá kannabisræktun Eldsvoðinn í Kaldaseli í Seljahverfi í Reykjavík á mánudag er rakinn til kannabisræktunar. Þetta herma heimildir fréttastofu. Slökkvistarf tók ríflega þrettán klukkustundir og altjón varð á húsinu. Innlent 28.1.2021 12:00
Lítur lífið öðrum augum eftir brunann í Kaldaseli Karlmaður sem missti húsið sitt í eldsvoða í Breiðholti á mánudagsmorgun segir atburðinn hafa markað mikil og djúpstæð áhrif á sig. Litlu hafi munað að hann yrði sjálfur bráð eldsins. Altjón varð þegar einbýlishús sem maðurinn hafði nýverið fest kaup á brann til kaldra kola. Innlent 28.1.2021 10:47
Byssan Cobra algjör bylting í slökkvistarfi Hvers vegna í ósköpunum ætti nokkur að vilja hlaupa inn í brennandi byggingu? Slökkviliðsmennirnir í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hlakka til hvers dags og eru spenntir fyrir nýrri byssu sem þeir nota til að slökkva elda. Lífið 28.1.2021 10:30
Árekstur á mótum Sæbrautar og Skeiðarvogs Einn var fluttur á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bíla á mótum Sæbrautar og Skeiðarvogs í Reykjavík um hádegisbil. Innlent 27.1.2021 13:30
Eiga von á því að húsið verði rifið að hluta á morgun Slökkvistarfi við Kaldasel í Seljahverfi í Breiðholti lauk nú á ellefta tímanum í kvöld. Mikill eldur kom upp í þaki hússins fyrr í kvöld, en þar hafði eldur komið upp í morgun og altjón orðið. Innlent 25.1.2021 22:54
Aftur logar í þaki hússins við Kaldasel Eldur er aftur kominn upp í þaki hússins sem varð alelda í morgun. Húsið er í Kaldaseli í Seljahverfi í Breiðholti, en mikill eldur kom upp í húsinu í morgun og varð altjón eftir brunann. Innlent 25.1.2021 20:28
Íbúinn útskrifaður af slysadeild Altjón varð þegar eldur kom upp í einbýlishúsi við Kaldasel snemma í morgun. Varðstjóri telur að eldurinn hafi verið búinn að malla lengi því efri hluti hússins hafi verið nánast alelda. Einn íbúi var fluttur á slysadeild með reykeitrun. Hann hefur verið útskrifaður. Innlent 25.1.2021 11:48