Hafnarfjörður
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 60 ›
Komst af leigumarkaðnum á Verkalýðsdaginn Leikkonan María Thelma Smáradóttir og hnefaleikakappinn Steinar Thors hafa fest kaup í þríbýlishúsi í Hafnarfirði sem þau ætla að taka í gegn. María Thelma fagnar því að vera ekki leigjandi lengur. Hún hafi losnað af leigumarkaðnum á sjálfan verkalýðsdeginum. Lífið 2.5.2023 15:37
Vilja ná tali af fjórum ungmennum vegna stórbrunans Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af fjórum ungmennum í tengslum við rannsókn hennar á bruna í Drafnarslippnum í Hafnarfirði gærkvöldi. Innlent 2.5.2023 14:56
Kviknaði í húsi sama eiganda í höfninni fyrir fjórum árum Slökkvistörfum við Hafnarfjarðarhöfn lauk klukkan þrjú í nótt, eftir að eldur kom upp í húsnæði sem til stóð að rífa. Ekkert liggur fyrir um eldsupptök en tæknirannsókn lögreglu fer fram í dag. Annað húsnæði við höfnina í eigu sama aðila brann fyrir fjórum árum. Innlent 2.5.2023 14:32
Húsið rústir einar Mikinn svartan reyk lagði upp frá húsi við gamla slippinn í Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöldi. Þegar slökkvilið mætti á vettvang var húsið þegar alelda. Húsið brann til kaldra kola og verður það rifið á næstunni. Eftir standa rústirnar einar. Innlent 2.5.2023 13:30
Slökkvistörfum lokið og tæknirannsókn fyrirhuguðu í dag Slökkvistörfum við Hafnarfjarðarhöfn lauk klukkan þrjú í nótt, eftir að eldur kom upp í húsnæði sem til stóð að rífa. Ekkert liggur fyrir um eldsupptök en tæknirannsókn lögreglu fer fram í dag. Innlent 2.5.2023 06:33
Myndasyrpa: Stórbruni í Hafnarfirði Slökkvistarf stendur enn yfir í húsi við gamla slippinn í Hafnarfjarðarhöfn eftir að upp kom mikill eldur fyrr í kvöld. Innlent 1.5.2023 23:13
Ekki ljóst hvort húsið hafi verið mannlaust Gunnlaugur Jónsson aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir slökkviliði ekki kunnugt um það hvort einhver hafi verið í húsinu sem brann í stórbruna við Hafnarfjarðarhöfn í kvöld. Slökkvistörfum mun ekki ljúka fyrr en í nótt og eru íbúar beðnir um að loka gluggum ef til þarf vegna reyksins. Innlent 1.5.2023 22:23
Stórbruni í Hafnarfirði: „Engu bjargað sem hægt er að bjarga þarna“ Mikill eldur er nú í gamla slippnum við Hafnarfjarðarhöfn í Skipalóni. Sést reykmökkurinn vel úr fjarlægð meðal annars úr Urriðaholti í Garðabænum. Húsið hefur staðið autt í þó nokkurn tíma og stóð til að rífa það. Innlent 1.5.2023 20:41
Féll í klettunum við Kleifarvatn Í nótt féll maður í klettum við Kleifarvatn og svaraði félögum sínum illa á eftir. Tveir sjúkrabílar og fjallabíll slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á staðinn og maðurinn sóttur. Hann reyndist töluvert lemstraður og með höfuðáverka. Innlent 1.5.2023 08:35
Kallar eftir bættu öryggi á ærslabelgjum eftir að dóttir slasaðist Hafnfirðingurinn Svavar Halldórsson kallar eftir bættu öryggi á ærslabelgjum eftir að tíu ára dóttir hans slasaðist á Víðistaðatúni. Tognaði hún eftir að hafa verið hrint af eldri dreng. Innlent 30.4.2023 14:17
FH og KR mætast í Árbænum Leikur FH og KR í Bestu deild karla verður leikinn á Würth vellinum í Árbænum á morgun. Íslenski boltinn 28.4.2023 12:44
Rétt að kjósa um Carbfix Á opnum kynningarfundi í Hafnarfirði í vikunni kynnti fyrirtækið Coda Terminal áform sín um að byggja móttöku- og förgunarmiðstöð fyrir koldíoxíð (CO2) á lóð ÍSAL í Straumsvík. Til stendur að farga allt að þremur milljónum tonna á ári af efninu sem verður flutt inn til landsins og dælt djúpt niður í jörðina þar sem það „steinrennur“ á tiltölulega stuttum tíma. Skoðun 28.4.2023 10:30
Athugull borgari kom upp um felustað óhlýðins ökumanns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tvisvar kölluð út vegna líkamsárása í gær og einu sinni vegna hótana. Í tilkynningu lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar segir ekkert meira um líkamsárásirnar en einn var handtekinn í tengslum við hótanirnar. Innlent 28.4.2023 06:42
Eftirför lögreglu endaði á göngustíg á Völlunum Lögreglan veitti ökumanni eftirför á Völlunum í Hafnarfirði um fimmleytið í dag. Að sögn sjónarvotta spændi ökumaður gegnum göngustíga og keyrði loks fram af bílaplani niður á göngustíg. Í kjölfarið flúðu ökumaður og farþegi á fæti áður en lögregluþjónar handsömuðu þá. Innlent 27.4.2023 23:31
Krefjast gæsluvarðhalds yfir þremur vegna manndrápsins Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarhald yfir þremur ungum mönnum sem grunaðir eru um að eiga þátt í dauða manns sem stunginn var til bana á bílastæði í Hafnarfirði í síðustu viku. Mennirnir verða leiddir fyrir dómara í hádeginu og fram eftir degi. Innlent 27.4.2023 11:21
Stofnar styrktarreikning fyrir dóttur mannsins sem lést Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir tveggja ára gamla dóttur pólska mannsins sem lést í hnífstunguárás í Hafnarfirði í síðustu viku. Kristófer Gajowski stofnaði reikninginn með leyfi móður mannsins og hvetur íslenskt samfélag til að einbeita sér að því sem máli skiptir. Innlent 26.4.2023 10:49
Ekki einsdæmi að svo ungt fólk komi við sögu í alvarlegum sakamálum Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segir ekki einsdæmi að jafn ungt fólk hafi komið við sögu við rannsókn alvarlegra sakamála og í manndrápi á bílastæði í Hafnarfirði. Það geri rannsóknir þó flóknari, þar sem gæta þurfi hagsmuna bæði rannsóknarinnar og ungra gerenda. Innlent 25.4.2023 13:38
Stúlkan segir átökin aðallega hafa verið á milli tveggja Sautján ára stúlka, sem sleppt var úr haldi í gær eftir úrskurð Landsréttar þess efnis, lýsir atburðarásinni sem leiddi til dauða manns á þrítugsaldri fyrir helgi sem átökum sem hafi aðallega verið á milli tveggja. Doktor í afbrotafræði segir að stjórnvöld verði að ráðast í aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna ekki seinna en strax. Innlent 25.4.2023 12:02
Hefur alvarlegar efasemdir um notkun einveruherbergja Fyrrverandi prófessor í félagsráðgjöf dregur alvarlega í efa notkun á svokölluðum einveruherbergjum, sem geti reynst börnum afar þungbært veganesti út í lífið. Það sé áhyggjuefni að ráðuneytið virðist ekki vilja banna þau sem meðferðarúrræði. Innlent 24.4.2023 22:01
„Enginn hefði getað ímyndað sér að þetta gæti gerst í þessu annars rólega landi“ Fjölskylda pólska mannsins sem lést eftir stunguárás fyrir helgi er í áfalli að sögn sendiherra Póllands á Íslandi. Pólska samfélagið hér á landi hafi ekki órað fyrir því að slíkt gæti gerst á hinu örugga og hægláta samfélagi á Íslandi. Innlent 24.4.2023 19:31
Stúlkunni sleppt úr haldi og einn búinn að játa Sautján ára stúlka sem var handtekin í tengslum við manndráp á tæplega þrítugum karlmanni í Hafnarfirði í síðustu viku hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi. Verjandi stúlkunnar kærði gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms og Landsréttur felldi hann úr gildi um sexleytið. Nítján ára sakborningur hefur játað að hafa orðið manninum að bana. Innlent 24.4.2023 19:20
„Hún var rangt barn, á röngum stað á röngum tíma“ Verjandi sautján ára stúlku sem var handtekin í tengslum við manndráp á tæplega þrítugum karlmanni í Hafnarfirði í síðustu viku telur óeðlilegt að stúlkan sem sé lykilvitni og upplýsti máli í raun og veru sæti enn gæsluvarðhaldi. Hann hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð yfir stúlkunni til Landsréttar. Stúlkan sé barn sem hafi verið á röngum stað á röngum tíma. Innlent 24.4.2023 17:10
Þrjú ungmennanna nú vistuð á Stuðlum Öll þrjú ungmennin, sem eru undir lögaldri og sæta nú gæsluvarðhaldi vegna stunguárásarinnar við Fjarðarkaup í Hafnarfirði um helgina og leiddi til þess að karlmaður á þrítugsaldri lést, eru nú vistuð á Stuðlum, meðferðarstöð ríkisins fyrir börn og unglinga. Innlent 24.4.2023 13:35
Slegið á fingur Hafnarfjarðarbæjar vegna einveruherbergisins Hafnarfjarðarbær braut lög við meðferð á máli barns, sem var gegn vilja sínum flutt í svokallað einveruherbergi í grunnskóla í bænum. Þetta kemur fram í sérstöku áliti mennta- og barnamálaráðuneytisins í málinu, þar sem ráðuneytið gagnrýnir meðal annars samskipti bæjarstarfsmanna við foreldra barnsins eftir atvikið. Innlent 24.4.2023 11:54
Seltún í Krýsuvík verður lokað í maí Seltún í Krýsuvík verður lokað í maí vegna framkvæmda. Verið er að skipta um göngupall sem sé eina örugga aðkoman að leirhverunum á svæðinu. Innlent 24.4.2023 11:09
„Það þarf ekki nema eina hnífstungu“ Afbrotafræðingur segir hugmyndafræði um að vopnaburður og beiting vopna séu eðlileg hafa náð fótfestu hjá hópum ungmenna hér á landi. Ungmenni virðist oft og tíðum ekki átta sig á þeim hættum og afleiðingum sem fylgi beitingu vopna. Þörf sé á samstilltu átaki til að bregðast við vandanum. Innlent 23.4.2023 21:00
Brotið gegn barni sem var flutt í einveruherbergi Brotið var gegn barni sem var gegn vilja sínum flutt í svokallað einveruherbergi í grunnskóla í Hafnarfirði, samkvæmt úrskurði mennta- og barnamálaráðuneytisins. Sérfræðingur segir gríðarlega vöntun á stuðningi fyrir börn með sérþarfir í skólakerfinu og skýrum verklagsreglum. Innlent 23.4.2023 18:55
„Þetta er svipað því að vera lokaður inni í íbúð“ Tveir hinna handteknu í manndrápsmálinu í Hafnarfirði eru í einangrunarúrræði á vegum barnaverndaryfirvalda, þar sem þeir eru undir átján ára. Þriðji sakborningurinn, sem einnig er undir lögaldri, er á Hólmsheiði. Fangelsismálastjóri segir kappkostað við að draga úr neikvæðum áhrifum einangrunar á börn þegar svo ber undir. Innlent 23.4.2023 11:58
„Ég er með djúpt sár í hjartanu“ Móðir mannsins sem lést eftir hnífstunguárás á bílastæði við Fjarðarkaup á fimmtudag segist vera að bugast af sorg. Hún segist ekki dæma foreldra árásarmannanna, þeir væru krakkar að byrja lífið. Innlent 22.4.2023 17:46
Markús mætti á dráttarvél tvíbura síns í jarðarförina hans Markús Sigurðsson segir ekki hafa komið til greina annað en að koma akandi á dráttarvél Jóns Friðriks Sigurðssonar tvíburabróður síns þegar sá síðarnefndi var borinn til grafar á dögunum. Mynd af Markúsi á dráttarvélinni vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum og ekki síst þegar Linda dóttir Markúsar upplýsti netverja um sögu bræðranna. Lífið 22.4.2023 16:53