Hafnarfjörður
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 61 ›
Hefur alvarlegar efasemdir um notkun einveruherbergja Fyrrverandi prófessor í félagsráðgjöf dregur alvarlega í efa notkun á svokölluðum einveruherbergjum, sem geti reynst börnum afar þungbært veganesti út í lífið. Það sé áhyggjuefni að ráðuneytið virðist ekki vilja banna þau sem meðferðarúrræði. Innlent 24.4.2023 22:01
„Enginn hefði getað ímyndað sér að þetta gæti gerst í þessu annars rólega landi“ Fjölskylda pólska mannsins sem lést eftir stunguárás fyrir helgi er í áfalli að sögn sendiherra Póllands á Íslandi. Pólska samfélagið hér á landi hafi ekki órað fyrir því að slíkt gæti gerst á hinu örugga og hægláta samfélagi á Íslandi. Innlent 24.4.2023 19:31
Stúlkunni sleppt úr haldi og einn búinn að játa Sautján ára stúlka sem var handtekin í tengslum við manndráp á tæplega þrítugum karlmanni í Hafnarfirði í síðustu viku hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi. Verjandi stúlkunnar kærði gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms og Landsréttur felldi hann úr gildi um sexleytið. Nítján ára sakborningur hefur játað að hafa orðið manninum að bana. Innlent 24.4.2023 19:20
„Hún var rangt barn, á röngum stað á röngum tíma“ Verjandi sautján ára stúlku sem var handtekin í tengslum við manndráp á tæplega þrítugum karlmanni í Hafnarfirði í síðustu viku telur óeðlilegt að stúlkan sem sé lykilvitni og upplýsti máli í raun og veru sæti enn gæsluvarðhaldi. Hann hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð yfir stúlkunni til Landsréttar. Stúlkan sé barn sem hafi verið á röngum stað á röngum tíma. Innlent 24.4.2023 17:10
Þrjú ungmennanna nú vistuð á Stuðlum Öll þrjú ungmennin, sem eru undir lögaldri og sæta nú gæsluvarðhaldi vegna stunguárásarinnar við Fjarðarkaup í Hafnarfirði um helgina og leiddi til þess að karlmaður á þrítugsaldri lést, eru nú vistuð á Stuðlum, meðferðarstöð ríkisins fyrir börn og unglinga. Innlent 24.4.2023 13:35
Slegið á fingur Hafnarfjarðarbæjar vegna einveruherbergisins Hafnarfjarðarbær braut lög við meðferð á máli barns, sem var gegn vilja sínum flutt í svokallað einveruherbergi í grunnskóla í bænum. Þetta kemur fram í sérstöku áliti mennta- og barnamálaráðuneytisins í málinu, þar sem ráðuneytið gagnrýnir meðal annars samskipti bæjarstarfsmanna við foreldra barnsins eftir atvikið. Innlent 24.4.2023 11:54
Seltún í Krýsuvík verður lokað í maí Seltún í Krýsuvík verður lokað í maí vegna framkvæmda. Verið er að skipta um göngupall sem sé eina örugga aðkoman að leirhverunum á svæðinu. Innlent 24.4.2023 11:09
„Það þarf ekki nema eina hnífstungu“ Afbrotafræðingur segir hugmyndafræði um að vopnaburður og beiting vopna séu eðlileg hafa náð fótfestu hjá hópum ungmenna hér á landi. Ungmenni virðist oft og tíðum ekki átta sig á þeim hættum og afleiðingum sem fylgi beitingu vopna. Þörf sé á samstilltu átaki til að bregðast við vandanum. Innlent 23.4.2023 21:00
Brotið gegn barni sem var flutt í einveruherbergi Brotið var gegn barni sem var gegn vilja sínum flutt í svokallað einveruherbergi í grunnskóla í Hafnarfirði, samkvæmt úrskurði mennta- og barnamálaráðuneytisins. Sérfræðingur segir gríðarlega vöntun á stuðningi fyrir börn með sérþarfir í skólakerfinu og skýrum verklagsreglum. Innlent 23.4.2023 18:55
„Þetta er svipað því að vera lokaður inni í íbúð“ Tveir hinna handteknu í manndrápsmálinu í Hafnarfirði eru í einangrunarúrræði á vegum barnaverndaryfirvalda, þar sem þeir eru undir átján ára. Þriðji sakborningurinn, sem einnig er undir lögaldri, er á Hólmsheiði. Fangelsismálastjóri segir kappkostað við að draga úr neikvæðum áhrifum einangrunar á börn þegar svo ber undir. Innlent 23.4.2023 11:58
„Ég er með djúpt sár í hjartanu“ Móðir mannsins sem lést eftir hnífstunguárás á bílastæði við Fjarðarkaup á fimmtudag segist vera að bugast af sorg. Hún segist ekki dæma foreldra árásarmannanna, þeir væru krakkar að byrja lífið. Innlent 22.4.2023 17:46
Markús mætti á dráttarvél tvíbura síns í jarðarförina hans Markús Sigurðsson segir ekki hafa komið til greina annað en að koma akandi á dráttarvél Jóns Friðriks Sigurðssonar tvíburabróður síns þegar sá síðarnefndi var borinn til grafar á dögunum. Mynd af Markúsi á dráttarvélinni vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum og ekki síst þegar Linda dóttir Markúsar upplýsti netverja um sögu bræðranna. Lífið 22.4.2023 16:53
Fjölmenni sótti bænastund til stuðnings fjölskyldu hins látna Haldin var bænastund í Landakotskirkju í dag til stuðnings vinum og vandamönnum pólsks karlmanns á þrítugsaldri sem lést í kjölfar stunguárásar fyrir utan Fjarðarkaup í Hafnarfirði á fimmtudag. Innlent 22.4.2023 16:46
Telja myndband af árásinni mögulega í dreifingu Lögregla er nú með til skoðunar hvort myndband af árásinni í Hafnarfirði, sem leiddi til dauða manns á þrítugsaldri, sé í dreifingu. Lögregla telur sig vera með hnífinn sem notaður var við árásina undir höndum. Innlent 22.4.2023 14:07
Myndefni og tilkynning vitnis skipti miklu fyrir rannsóknina Lögregla skoðar nú gögn úr eftirlitsmyndavélum í nágrenni Fjarðarkaupa í Hafnarfirði til að varpa ljósi á árásina sem leiddi til dauða pólsks manns á þrítugsaldri á fimmtudagskvöld. Fjórir Íslendingar sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Innlent 22.4.2023 11:48
Reyndi að stela hraðbanka Maður sem virðist hafa reynt að stela hraðbanka í Hafnarfirði var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. Búið var að binda reipi við afturenda bifreiðar og í hraðbankann. Innlent 22.4.2023 07:25
Skrá sig á spjöld sögunnar í næstu viku Þau tímamót verða eftir viku að fyrsta kvennaliðið keppir til úrslita í ræðukeppninni MORFÍS. Stelpurnar í liðinu eru stoltar af því að skrá sig svona á spjöld sögunnar - en finna þó enn fyrir fordómum á þessum áður karllæga vettvangi. Innlent 21.4.2023 22:00
Mennirnir úrskurðaðir í gæsluvarðhald Dómari við Héraðsdóm Reykjaness hefur fallist á kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir fjórum mönnum sem eru til rannsóknar í tengslum við andlát karlmanns á þrítugsaldri. Innlent 21.4.2023 21:44
Krefjast gæsluvarðhalds yfir fjórum Íslendingum vegna andlátsins Fjórir Íslendingar sem eru í haldi lögreglu vegna árásar sem leiddi til andláts pólsks manns á þrítugsaldri seint í gærkvöldi verða leiddir fyrir dómara í kvöld. Búið er að yfirheyra þá sem voru handteknir og verið er að rannsaka möguleg tengsl. Lögregla krefst gæsluvarðhalds. Innlent 21.4.2023 18:54
Árásarmennirnir sagðir á menntaskólaaldri Karlmaður á þrítugsaldri sem stunginn var til bana á bílastæði við Fjarðarkaup í Hafnarfirði seint í gærkvöldi var með fleiri en einn stunguáverka. Þeir sem eru í haldi lögreglu eru sagðir á menntaskólaaldri. Innlent 21.4.2023 15:41
Fjórir handteknir í tengslum við andlát í kjölfar átaka í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fjóra í tengslum við rannsókn á andláti karlmanns á þrítugsaldri í Hafnarfirði í gær. Innlent 21.4.2023 09:53
Hamarinn spyr ekki um stétt, stöðu eða kennitölu Börn af erlendum uppruna geta átt erfitt með að finna sig í skipulögðu tómstundastarfi og sérstaklega ef íslenskukunnátta er ekki til staðar. Í Hafnarfirði er starfrækt ungmennahús sem spyr ekki um stétt né stöðu, eða kennitölu. Innlent 20.4.2023 08:00
Pétur Gautur er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2023 Pétur Gautur Svavarsson myndlistarmaður er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2023. Pétur Gautur hefur unnið af krafti að list sinni síðan hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Portinu í Hafnarfirði árið 1993. Hefð hefur skapast fyrir því að halda síðasta vetrardag hátíðlegan í Hafnarfirði með vali á bæjarlistamanni ársins. Menning 19.4.2023 19:21
Inga Hlín ráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins Inga Hlín Pálsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og mun hún hefja störf í byrjun maí. Alls bárust þrjátíu og sjö umsóknir um starfið. Viðskipti innlent 18.4.2023 11:25
FH-ingar steinlágu síðast þegar þeir spiluðu á frjálsíþróttavellinum Allt bendir til þess að FH mæti Stjörnunni á frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika á morgun. Þegar FH-ingar léku síðast á vellinum í deildarleik steinlágu þeir. Íslenski boltinn 14.4.2023 11:31
Kemur í ljós á morgun hvort FH megi spila á frjálsíþróttavellinum Það kemur endanlega í ljós á morgun hvort FH megi spila heimaleik sinn gegn Stjörnunni í Bestu deild karla á laugardaginn á frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika. Aðalvöllurinn er óleikfær. Íslenski boltinn 13.4.2023 15:30
Eldur logaði í safnhaug fram á nótt Mikið mæddi á Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðastliðinn sólarhring. Dælubílar voru sendir í fjögur útköll, þar af eitt sem tók fjórar klukkustundir, og sjúkralið sinnti 94 sjúkraflutningum, sem er vel yfir meðaltali. Innlent 9.4.2023 07:55
Spara milljarð á lægsta boði í breikkun Reykjanesbrautar Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta boð í breikkun Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns, upp á nærri fjóra milljarða króna. Tilboðið reyndist meira en einum milljarði króna undir kostnaðaráætlun. Viðskipti innlent 5.4.2023 20:50
Stofnuðu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins eftir tveggja ára undirbúning Í dag var Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð eftir tveggja ára undirbúning. Markaðsstofan verður áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt og stofnendur eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Viðskipti innlent 3.4.2023 22:48
Einhverfufélagið blæs til listasýningar: „Við getum gert allt sem annað fólk getur gert“ Nóg verður um að vera í húsnæði Hamarsins ungmennahúss í Hafnarfirði um helgina þar sem Einhverfufélagið hefur sett upp listasýningu. Menning 31.3.2023 23:02