Reykjavík
170 171 172 173 174 175 176 177 178 … 334 ›
Sérfræðingar munu meta ástand hins grunaða Gera má ráð fyrir að morðrannsókn lögreglu í Barðavogi muni taka mánuði. Sérfræðingar munu meta hinn grunaða og réttarkrufning þarf að fara fram. Lögregla getur ekki tjáð sig um hvort játning liggur fyrir eða hvort morðvopn hafi fundist. Innlent 6.6.2022 19:32
Borgarlína mikilvægari en borgarstjórastóllinn Dagur B. Eggertsson segir það skipta sig meira máli að tryggja framgang lykilverkefna á borð við Borgarlínu en að vera borgarstjóri. Tilkynnt var í dag að Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, myndi taka við borgarstjórastólnum eftir átján mánuði og gegna embættinu meirihluta kjörtímabilsins. Innlent 6.6.2022 19:21
Tímaeyðsla að fara í einhverja störukeppni Oddviti Framsóknar segir samstarfssáttmála nýs meirihluta í Reykjavík svara að öllu leyti þeim kröfum um breytingar sem flokkurinn hafi lagt áherslu á. Hann sé gríðarlega ánægður og sáttur með niðurstöðuna. Innlent 6.6.2022 18:15
Einar tekur við af Degi sem borgarstjóri árið 2024 Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar og borgarstjóri, mun áfram gegna embætti borgarstjóra Reykjavíkur fyrri hluta kjörtímabilsins, eða til ársloka 2023. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, mun síðan taka við embættinu af Degi í ársbyrjun 2024. Á kjörtímabilinu mun Dagur því gegna embættinu í rúmlega eitt og hálft ár, en Einar í tæplega tvö og hálft ár. Innlent 6.6.2022 15:10
Segja að Einar og Dagur skiptist á að vera borgarstjóri Einar Þorsteinsson og Dagur B. Eggertsson eru sagðir ætla að skipta með sér borgarstjórastólnum á kjörtímabilinu og nýr meirihluti ætla að kynna sérstakt húsnæðisátak í borginni. Innlent 6.6.2022 14:22
Nýr borgarstjórnarmeirihluti kynntur Hulunni verður svipt af meirihlutasamstarfi og málefnasamningi Framsóknarflokks, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar á blaðamannafundi klukkan 15:00 í dag. Vísir fylgist með fundinum í beinni útsendingu og textalýsingu. Innlent 6.6.2022 13:54
Bjór seldur á knattspyrnuleik á Laugardalsvelli í fyrsta sinn í sögunni í kvöld Bjór verður í fyrsta sinn í sögunni seldur á knattspyrnuleik á Laugardalsvelli í kvöld þegar Ísland mætir Albaníu. Markaðsstjóri KSÍ býst við mikilli stemningu í stúkunni og vonast til að sólin og bjórsalan verði til þess að fólk mæti fyrr í laugardalinn. Innlent 6.6.2022 12:59
Telja eigin viðbrögð hafa verið rétt Lögregla telur sig hafa brugðist rétt við þegar hún var kölluð tvisvar að húsi í Barðavogi í Reykjavík, vegna mannsins sem skömmu síðar var handtekinn, grunaður um að myrða nágranna sinn. Rannsókn málsins miðar vel og búið er að ræða við vitni í málinu. Innlent 6.6.2022 11:34
„Hér ætlum við að vera næstu 100 ár“ „Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal er einhver glæsilegasta íþróttaðstaða Reykjavíkur og landsins. Þetta mun gjörbylta allri aðstöðu félagsins,“ sagði íþróttafréttamaðurinn Guðjón Guðmundsson (Gaupi) um magnaða aðstöðu Fram. Fótbolti 6.6.2022 10:01
Kynna nýjan meirihluta í Elliðaárdal í dag Oddvitar Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar, Pírata og Viðreisnar í Reykjavík hafa boðað til blaðamannafundar til að kynna nýjan meirihluta við stöðvarstjórahúsið í Elliðaárdal í dag. Innlent 6.6.2022 09:40
Rotaðist við líkamsárás í Mosfellsbæ Þolandi líkamsárásar sem tilkynnt var um í Mosfellsbæ sagðist hafa rotast við atlöguna. Hann sat eftir á vettvangi með skurð á höfði þegar lögreglu bar að garði. Innlent 6.6.2022 07:25
Dagur kynnir málefnasamninginn fyrir Samfylkingarliðum annað kvöld Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík mun kynna málefnasamning nýs meirihluta fyrir flokksmönnum sínum í borginni annað kvöld. Fundarboð barst félagsmönnum á níunda tímanum í kvöld. Innlent 5.6.2022 21:09
Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Landspítalann í Fossvogi Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi á níunda tímanum í kvöld eftir að tveggja bíla árekstur varð við gatnamót Bústaðavegar og Háaleitisbrautar. Innlent 5.6.2022 20:47
Úrskurðaður í rúmlega þriggja vikna gæsluvarðhald Karlmaður sem grunaður er um að hafa barið nágranna sinn til bana í gær var í dag úrskurðaður í rúmlega þriggja vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Innlent 5.6.2022 16:25
Fyrrverandi nágranni segir manninn hafa þurft sértæk úrræði Skúli Þór Hilmarsson bjó í þrettán ár í sama húsi og maðurinn sem grunaður er um að hafa barið nágranna sinn til bana í gær. Hann segir manninn hafa skapað ógn og mörgum hafi staðið stuggur af honum í lengri tíma. Lögreglu hafi verið gert viðvart í fjölda skipta en vegna úrræðaleysis hafi ekkert gerst í málinu. Innlent 5.6.2022 15:41
Fjarlægðu ekki manninn þrátt fyrir tvær tilkynningar um ofbeldisfulla hegðun Maðurinn sem lögregla telur að hafi verið myrtur í Barðavogi í Reykjavík í gær og sá sem handtekinn var grunaður um morðið bjuggu í sama húsi. Aðstoðar lögreglu hafði verið óskað vegna þess síðarnefnda fyrr um daginn. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 5.6.2022 13:54
Tengsl milli þess látna og grunaðs morðingja Tengsl voru á milli mannsins sem lögregla telur að hafi verið myrtur í Barðavogi í Reykjavík í gærkvöldi, og þess sem lögregla hefur handtekið grunaðan um morðið. Lögreglan vinnur nú að því að ræða við hugsanleg vitni. Innlent 5.6.2022 11:46
Ekið á hjólreiðamann, yfir hjólið og svo af vettvangi Umferðarslys varð í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld þegar ekið var á hjólreiðamann. Að sögn vitna hafði ökumaður bifreiðarinnar verið að þenja bifreiðina og flauta áður en hann ók á reiðhjólamanninn sem datt í götuna og bifreiðinni var ekið yfir hjólið. Innlent 5.6.2022 08:16
Barsmíðar hafi leitt til dauða mannsins Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í gærkvöld vegna gruns um morð í Barðavogi í Reykjavík. Innlent 5.6.2022 07:34
Segir ekki á dagskrá hjá borginni að fjölga auglýsingaskiltum Deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg segir borgina meðvitaða um gagnrýni á fjölda auglýsingaskilta á borgarlandi og að hún sé skiljanleg. Ekki standi til að fjölga skiltum í borginni. Innlent 4.6.2022 22:33
Langt komin í yfirferð á flestum málum og horfa til þriðjudags Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar munu halda meirihlutaviðræðum áfram um helgina. Oddviti Framsóknar segir yfirferð á flestum málaflokkum langt komna og góður samhljómur sé um stóru málin. Meirihlutasamstarf sé þó ekki í höfn fyrr en að öllu ferlinu loknu. Innlent 4.6.2022 21:31
Karlmaður á þrítugsaldri handtekinn vegna gruns um morð í austurborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar hugsanlegt morð í austurbæ Reykjavíkur í kvöld. Mikill viðbúnaður var á vettvangi í kvöld. Innlent 4.6.2022 21:23
Til vandræða hjá Landspítala og handtekinn með fíkniefni Ungur maður var handtekinn við Landspítalann í Fossvogi í nótt laust upp úr miðnætti þar sem hann var til vandræða og fór ekki að fyrirmælum lögreglu. Við vistun hans í fangageymslu fundust fíkniefni í fórum mannsins. Innlent 4.6.2022 07:49
Harmar auglýsingavæðingu almannarýmisins Íbúa í Hlíðahverfi er ekki skemmt yfir áformum Reykjavíkurborgar um að setja upp auglýsingaskilti við Klambratún en það væri þriðja slíka skiltið á aðeins tvö hundruð metra kafla meðfram túninu. Innlent 3.6.2022 22:31
Fjórflokkarnir í Reykjavík byrjaðir á ritun meirihlutasáttmála Líklegt verður að teljast að flokkunum sem rætt hafa myndun nýs meirihluta í borgarstjórn takist ætlunarverkið enda eru oddvitar þeirra byrjaðir á textavinnu fyrir nýjan meirihlutasáttmála. Reiknað er með niðurstöðu um eða strax eftir helgi. Innlent 3.6.2022 21:07
Hávaxnar undraverur og baðströnd í miðbænum Fimmtíu tonnum af sandi hefur verið komið fyrir inni í Listasafni Reykjavíkur þar sem tugir sóla sig á manngerðri baðströnd. Hávaxnar undraverur skálmuðu um miðbæinn í dag í tilefni af opnun listahátíðar. Innlent 3.6.2022 21:01
Þriggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi en enginn alvarlega slasaður Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi fyrir ofan Ártúnsbrekku rétt upp úr klukkan sex. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í samtali við fréttastofu. Innlent 3.6.2022 18:58
Ellefu nýjar verslanir og veitingastaðir opnaðir eftir nokkrar vikur Her iðnaðarmanna leggur þessa dagana lokahönd á nýtt torg í miðborginni. Þar taka ellefu nýir veitingastaðir og verslanir til starfa eftir um fimm vikur. Innlent 2.6.2022 19:21
Lögregla greip innbrotsþjófa glóðvolga Lögreglan á höfuborgarsvæðinu greip í morgunsárið tvo innbrotsþjófa glóðvolga og þeim stungið samstundis í steininn á meðan unnið var að rannsókn málsins. Þjófarnir höfðu komist inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Reykjavík með því að klifra upp vinnupalla við húsið. Innlent 2.6.2022 17:45
Endurreisn gamla meirihlutans geti falið í sér fátt annað en óbreytt ástand Fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir það borðleggjandi að Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins myndi nýjan meirihluta í borginni. Þær meirihlutaviðræður sem nú eru í gangi geti varla endurspeglað þær breytingar sem kjósendur óskuðu eftir í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Innlent 2.6.2022 16:50