Reykjavík
252 253 254 255 256 257 258 259 260 … 334 ›
Telur tíu til tuttugu eldgos geta fylgt í kjölfarið á Reykjanesskaga Landsmenn þurfa að vera viðbúnir tíu til tuttugu eldgosum á Reykjanesskaga á næstu tveimur til þremur öldum, að mati Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Gera verði ráð fyrir mun myndarlegri hraungosum en því sem nú stendur yfir. Innlent 19.5.2021 22:44
„Enginn að æpa og enginn að spyrja spurninga“ Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands héldu hvor um sig stutta tölu fyrir sögulegan fund ráðherranna í Hörpu í kvöld, þar sem þeir fjölluðu um tengsl stórveldanna. Eftir framsögu þeirra héldu þeir áfram lokuðum fundarhöldum. Innlent 19.5.2021 22:10
Í fangelsi í tvö og hálft ár fyrir nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Augustin Dufatanye í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu. Hann verður þá að greiða út tæpa fimm og hálfa milljón vegna málsins, þar á meðal 1,8 milljón til konunnar í miskabætur og tæpar fjórar milljónir fyrir allan sakarkostnað. Innlent 19.5.2021 18:44
Starfsmaður í H&M smitaður Starfsmaður verslunar H&M við Hafnartorg greindist með Covid-19 á dögunum. Allt starfsfólkið fer í kjölfarið í skimun og verslunin sótthreinsuð. Lokað var í búðinni um tíma í dag. Innlent 19.5.2021 17:22
Fara ekki fram á aflífun: Hundurinn hafði dvalið á skemmtistaðnum í þrjá tíma Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mun ekki fara fram á að hundurinn sem beit konu á skemmtistaðnum Röntgen í mars síðastliðnum verði aflífaður. Ákvörðunin var tekin í kjölfar skapgerðarmats á hundinum. Innlent 19.5.2021 13:40
Látum draumana rætast - nema drauma fatlaðs fólks Á síðasta borgarstjórnarfundi var menntastefna Reykjavíkurborgar rædd. Heitið á stefnunni er að mínu mati fallegt; “Látum draumana rætast”. Það er talið að stefnumótunin sjálf sé sú allra metnaðarfyllsta sem sést hefur hér í borg en um 10.000 manns komu að því að móta hana. Skoðun 19.5.2021 10:30
Stjörnutorg Kringlunnar mun færa sig um set Til stendur að ráðast í miklar framkvæmdir á þriðju hæð Kringlunnar sem munu meðal annars skila sér í nýrri mathöll, breyttu Ævintýralandi og svokölluðum búbblublómaskála. Kostnaður er áætlaður um milljarður króna og framkvæmdatíminn um eitt og hált til tvö ár. Viðskipti innlent 19.5.2021 07:39
Lítill gróðureldur á Laugarnesi Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst um klukkan sjö í kvöld tilkynning um gróðureldur á Laugarnesi. Einn bíll var sendur á vettvang og tók það skamman tíma að ná tökum á gróðureldinum. Innlent 18.5.2021 19:28
Gróðureldar loga í Breiðholti Tveir eldar hafa kviknað í skóginum á milli Breiðholtsbrautar og Seljabrautar. Útkall barst slökkviliði um klukkan 16:45 í dag og segir varðstjóri að slökkvistarf gangi ágætlega. Innlent 18.5.2021 17:28
Árekstur á horni Fellsmúla og Grensásvegar Tveir fólksbílar rákust saman á horni Fellsmúla og Grensásvegar í Reykjavík á öðrum tímanum í dag. Innlent 18.5.2021 13:58
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kallað út til að bjarga páfagauk og hesti Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti fremur óvenjulegum verkefnum í gær þegar þeir björguðu páfagauk úr tré og voru kallaðir til þegar hestur sást á sundi. Innlent 18.5.2021 06:51
Þjóðskrá gerði mistök við útreikning vísitölu íbúðaverðs Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 711,7 stig í mars 2021 samkvæmt Þjóðskrá og hækkaði um 3,3% á milli mánaða en ekki 1,6% eins og fullyrt var á sínum tíma. Innlent 18.5.2021 06:40
„Hvað í fjandanum er ég að gera í kynjafræði?“ Kynjafræði varð skylduáfangi fyrir iðnnema í Borgarholtsskóla um áramótin. Héðan af er alveg sama hvort nemi er á félagsfræðibraut, í vélvirkjanámi eða stálsmíði: Hann tekur heilan kynjafræðiáfanga ef hann ætlar að útskrifast úr Borgó. Innlent 17.5.2021 22:00
Blinken lentur á Keflavíkurflugvelli Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur á Keflavíkurflugvelli. Ráðherrann mun funda með forseta Íslands, forsætisráðherra og utanríkisráðherra á morgun en hann er kominn hingað til lands til að sækja fund Norðurskautsráðsins á miðvikudag. Innlent 17.5.2021 19:44
Kom að gaskútum og olíu: „Hefði ekki viljað hugsa þá hugsun til enda“ Hústökufólk hefur undanfarin ár hreiðrað um sig í litlu einbýlishúsi við Þórsgötu með fjölda gaskúta til upphitunar. Eigandi hússins þakkar fyrir að stórslys hafi ekki orðið en gagnrýnir Reykjavíkurborg fyrir sinnuleysi með því að hafa ítrekað synjað sér um heimild til þess að rífa húsið, sem löngu er orðið ónýtt. Innlent 17.5.2021 19:36
Drónabann vegna fundar Norðurskautsráðsins Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að setja á tímabundið bann við flugi dróna eða annarra fjarstýrðra loftfara vegna ráðherrafundar Norðurskautsráðsins. Bannið verður í gildi frá og með deginum í dag til miðnættis á fimmtudag. Innlent 17.5.2021 19:24
Rótin hlýtur Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2021 voru afhent í dag í tengslum við mannréttindadag Reykjavíkurborgar. Að þessu sinni var það Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, sem hlaut verðlaunin. Innlent 17.5.2021 18:14
Regnbogafánanum flaggað fyrir utan Höfða Regnbogafáninn hefur verið dreginn að húni fyrir utan Höfða í tilefni af alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks. Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar voru veitt þar í dag. Innlent 17.5.2021 17:10
HönnunarMars breiðir úr sér um alla borg HönnunarMars fer fram í þessari viku og má búast við því að íslensk hönnun taki yfir stórhöfuðborgarsvæðið næstu daga. Tíska og hönnun 17.5.2021 11:01
Brotist inn í skartgripaverslun í miðborginni Rétt fyrir miðnætti í nótt barst lögreglu tilkynning um að innbrot í skartgripaverslun stæði yfir í miðborginni. Rúða var brotin og skarti stolið en maður handtekinn með þýfið skömmu síðar. Var hann vistaður í fangageymslu. Innlent 17.5.2021 06:18
Kona nýkomin frá útlöndum fékk hríðir á sóttkvíarhóteli Reiknað er með að Hótel Rauðará við Rauðarárstíg verði tekið í notkun sem nýtt sóttkvíarhótel í dag. Fimm flugvélar með farþega frá hááhættusvæðum eru væntanlegar til landsins síðdegis. Þá hefur ýmislegt gengið á á sóttkvíarhótelum landsins, að sögn umsjónarmanns; aðfaranótt laugardags fékk kona hríðir á sóttkvíarhóteli í Reykjavík. Innlent 16.5.2021 10:30
Plokkuðu 750 kíló af rusli í Elliðaárdalnum Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur plokkuðu 750 kíló af rusli úr Elliðaárdalnum í vikunni, þegar vorhreinsun Orkuveitunnar fór fram. Alls tóku 132 starfsmenn OR þátt í átakinu yfir þrjá daga. Innlent 16.5.2021 08:59
Telur íslensk stjórnvöld hræðast að „stugga við“ Ísrael Þingmaður Samfylkingar vill að ríkisstjórnin fordæmi aðgerðir Ísraelsmanna á Gasasvæðinu undanfarna daga. Hún telur að stjórnvöld hræðist það að stugga við ísraelskum stjórnvöldum og því hafi ríkisstjórnin ekki tekið skýrari afstöðu með Palestínu en raun ber vitni. Innlent 15.5.2021 20:31
Sofnaði út frá eldamennsku Slökkviliðið var kallað út síðdegis í dag eftir að tilkynning barst um viðvörunarkerfi í gangi í íbúðarhúsnæði. Tilkynnandi hafði einnig fundið brunalykt og hafði samband við slökkvilið. Innlent 15.5.2021 18:02
Mörghundruð mótmæltu „blóðbaðinu“ á Austurvelli Mörghundruð manns komu saman á Austurvelli og mótmæltu framgöngu Ísraelsmanna á Gasasvæðinu í Palestínu síðustu daga. Mótmælafundurinn var haldinn undir yfirskriftinni „Stöðvum blóðbaðið“. Innlent 15.5.2021 14:30
Til greina kemur að setja kvóta á rástímana Ásókn í að komast að á golfvelli á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri og bitist er um rástímana. Sekúndum eftir að opnað hefur verið fyrir skráningu eru allir tímar bókaðir; ýmsum til mikillar mæðu. Innlent 15.5.2021 08:01
Reglur brotnar á fjórum veitingahúsum Lögregluþjónar könnuðu sóttvarnir og leyfi á 39 veitingastöðum í miðbænum í gærkvöldi. Þar kom í ljós að á fjórum stöðum var tveggja metra reglan ekki virt, ekki bókhald yfir viðskiptavini eða enginn listi yfir starfsmenn. Innlent 15.5.2021 07:32
Tveir sautján ára í ofsaakstri Lögregluþjónar mældu bíl á 160 kílómetra hraða á Miklubrautinni á öðrum tímanum í nótt en hámarkshraði þar er 80 kílómetrar á klukkustund. Þegar bíllinn hafði verið stöðvaður reyndist ökumaður hans sautján ára gamall. Innlent 15.5.2021 07:21
Sýndi ógnandi hegðun þegar honum var sagt að nota andlitsgrímu Einstaklingur sem vildi ekki sinna grímuskyldu í verslun í Breiðholti fyrr í dag sýndi starfsmönnum ógnandi hegðun þegar þeir reyndu að ræða við hann. Þegar lögregla kom á staðinn var hann farinn af vettvangi en fannst þó skammt frá. Innlent 14.5.2021 20:12
Sýknaður af bótakröfu fyrir gáleysi á Bitruhálsi Landsréttur hefur staðfest eins mánaðar skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir 64 ára karlmanni sem sýndi af sér gáleysi þegar hann ók á gangandi vegfaranda á gangbraut á Bitruhálsi í Reykjavík þann 4. desember 2017. Innlent 14.5.2021 15:01