Dómstólar

832 mál afgreidd hjá Landsrétti síðan rétturinn tók til starfa
Réttarkerfið á Íslandi er svo gott sem á hliðinni að sögn dósents við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Bjarni setur spurningamerki við valdsvið Mannréttindadómstólsins
Forsætisráðherra segir forgangsmál stjórnvalda að tryggja réttaröryggi eftir dóm Mannréttindadómstólsins og Landsréttur lagði niður störf í gær.

Stjórnarandstaðan gagnrýnir viðbrögð ríkisstjórnarinnar
Stjórnarandstaðan tekur undir með leiðtogum stjórnarflokkanna um að mikilvægt sé að tryggja stöðu Landsréttar sem fyrst og eyða réttaróvissu.

Vill skapa frið með ákvörðun sinni
Sigríður Á. Andersen fráfarandi dómsmálaráðherra segir að hún hafi ekki verið beitt þrýstingi um að segja af sér

Boðað til ríkisráðsfundar á Bessastöðum
Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til fundar á Bessastöðum á morgun

Þórhildi Sunnu og Helgu Völu brugðið vegna orðræðu Sigríðar og Bjarna um MDE: „Erum við komin þangað?“
Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir að það sé varhugavert að grafa undan MDE sem hafi fært okkur réttarbætur og aukið trú á réttarkerfið.

Sér tvo kosti í stöðunni varðandi nýjan dómsmálaráðherra
Annars vegar að annar ráðherra taki við skyldum ráðherra eða nýr ráðherra komi úr hópi þingmanna Sjálfstæðisflokksins, segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.

Katrín lýsti yfir áhyggjum sínum við Sigríði í gær
Styður ákvörðun ráðherrans að stíga til hliðar.

Sigríður Andersen stígur til hliðar
Vill ekki láta persónu sína trufla framhald Landsréttarmálsins.

Blaðamannafundur Sigríðar og viðbrögð þingmanna við ákvörðun hennar
Bæði forsætisráðherra og dómsmálaráðherra hafa boðað til funda í dag þar sem rætt verður við blaðamenn vegna niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu.

Sigríður Andersen boðar til blaðamannafundar
Hefst klukkan 14:30 í ráðuneytinu

Katrín ætlar að tjá sig eftir þingflokksfund
Bjarni Benediktsson sagðist vera of seinn á fund.

Hriktir í ríkisstjórnarsamstarfinu
Bakland Vinstri grænna í uppnámi vegna stöðu Sigríðar Á. Andersen.

Dæmdir menn óska eftir frestun á afplánun í ljósi dómsins í Strassborg
Páll Winkel fangelsismálastjóri segir að nokkrar beiðnir hafi borist Fangelsismálastofnun um frestun á afplánun í ljósi dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg í gær.

Staða dómsmálaráðherra gæti skýrst í dag
Staða Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra innan ríkisstjórnarinnar skýrist væntanlega eftir þingflokksfundi stjórnarflokkanna og ríkisstjórnarfund í dag.

Staða Sigríðar muni ráðast af stuðningi Sjálfstæðismanna en málið sé VG erfitt
Segir flokka í ríkisstjórn oftast láta flokk ráðherra um að leysa málið.

Hæstaréttarlögmaður segir óvissuna um Landsrétt mjög alvarlega
Jóhannes Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, segir óvissuna sem skapast hefur um Landsrétt í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu frá því gær mjög alvarlega.

Ellefu samskonar mál á borði Mannréttindadómstólsins
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður hefur skotið ellefu málum til Mannréttindadómstóls Evrópu til viðbótar við málið sem dæmt var í í gær.

Skellur frá Strassborg
Allar greinar ríkisvaldsins fá bágt fyrir aðdraganda og eftirmál skipunar dómara við Landsrétt í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu.

Neitaði að tjá sig um dóm Mannréttindadómstólsins við komuna til Keflavíkur
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, neitaði að tjá sig um Landsréttardóm Mannréttindadómstóls Evrópu við komuna til landsins í Leifsstöð nú í morgun.

Erfitt að segja til um endanleg áhrif dóms MDE að svo stöddu
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður segir daginn vera svartan dag í sögu réttarfars- og stjórnmálasögu á Íslandi og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, formaður Dómarafélags Íslands segir að huga þurfi að stöðu Landsréttar til framtíðar.

Segir brot Sigríðar Andersen vera svívirðilegt
Ráðast þarf strax í aðgerðir eftir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu og Sigríður Á. Andersen getur ekki verið hluti af þeim. Þetta er mat Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformanns Pírata, og Helgu Völu Helgadóttur, formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Dómsmálaráðherra íhugar að vísa landsréttarmáli til Yfirdóms
Dómsmálaráðherra segir ekki ástæðu til að hún segi af sér embætti vegna dóms Mannréttindadómstóls Evrópu sem þó kunni að hafa áhrif um alla Evrópu

Dómarar við Landsrétt telja dóm MDE eiga við um þá alla
Engir dómar verða kveðnir upp í Landsrétti í vikunni í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í morgun.

Vantraust á dómsmálaráðherra óumflýjanlegt
Formaður Samfylkingarinnar telur eðlilegt að dómsmálaráðherra segi af sér vegna Landsréttardóms Mannréttindadómstóls Evrópu. Hann segir óumflýjanlegt að lýsa yfir vantrausti á ráðherra. Formaður Viðreisnar segir réttarríkið í óvissu vegna dómsins og viðbragða dómsmálaráðherra við honum.

Bíður eftir viðbrögðum forsætisráðherra: „Það er gott símasamband við útlönd“
Helga Vala Helgadóttir, lögfræðingur og formaður stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar, segist fyrst og fremst vera að bíða eftir viðbrögðum Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, við dómi MDE sem féll í morgun.

Þingmenn þurfi að fara upp úr skotgröfunum til að vernda réttarríkið
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir að þingmenn þurfi að fara upp úr skotgröfunum í Landsréttarmálinu svokallaða til að vernda réttarríkið, láta dómskerfið virka og eyða óvissu sem sé uppi um Landsrétt, hið nýja dómsstig vegna nýfallins dóms MDE.

Heldur að Katrín dingli áfram í forsætisráðuneytinu
Össur Skarphéðinsson segir VG reytt og tætt í stjórnarsamstarfinu.

Vilhjálmur segir dóm MDE tala sínu máli
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hyggst ekki tjá sig nánar um niðurstöðu MDE að svo stöddu því hann segir dóminn tala sínu máli.

„Taki poka sinn og hypji sig strax í burtu“
Boðað til mótmæla gegn Sigríði Andersen á Austurvelli.