Íþróttir

Fréttamynd

Jón Arnór og Helena best

Körfuknattleikssamband Íslands hefur útnefnt þau Jón Arnór Stefánsson og Helenu Sverrisdóttur körfuboltamenn ársins á Íslandi árið 2005. Jón Arnór varð Evrópumeistari með liði sínu St. Pétursborg í Rússlandi og var valinn í stjörnulið FIBA Europe. Hann leikur nú í ítölsku A-deildinni með Napoli.

Sport
Fréttamynd

Sækir um undanþágu fyrir Kanu

Bryan Robson ætlar að biðla til nígeríska knattspyrnusambandsins að fá að halda framherja sínum Kanu lengur á Englandi en til stóð, en Kanu er sem kunnugt er á leið í Afríkukeppnina. "Kanu er okkur mjög mikilvægur og ef ég gæti fengið að halda honum í tvo leiki í viðbót, yrði það okkur mjög dýrmætt, en þýddi samt sem áður ekki að hann missti af neinum leikjum með landsliðinu," sagði Robson.

Sport
Fréttamynd

New York lagði Phoenix í maraþonleik

Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í körfuknattleik í nótt og þar bar hæst viðureign New York Knicks og Phoenix Suns, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í þriðju framlengingu. New York hafði betur 140-133.

Sport
Fréttamynd

Gerrard ósáttur við Allardyce

Steven Gerrard fyrirliði Liverpool er ekki par hrifinn af Sam Allardyce stjóra Bolton þessa dagana, því stjórinn hélt því fram eftir leik Bolton og Liverpool í gær að Gerrard hefði viljandi traðkað ofan á bringunni á Kevin Nolan hjá Bolton.

Sport
Fréttamynd

Bolton að kaupa markvörð

Úrvalsdeildarlið Bolton mun væntanlega ganga frá kaupum á nýjum markverði á allra næstu dögum, en sá er frá Oman og heitir Ali Al Habsi og hefur leikið með Lyn í Noregi síðustu ár. Sam Allardyce hefur lengi haft augastað á markverðinum unga, en hefur fram að þessu ekki geta útvegað honum atvinnuleyfi vegna þeirra fáu landsleikja sem hann hafði spilað.

Sport
Fréttamynd

Blackburn lagði Portsmouth

Úrvalsdeildarlið Blackburn hefur heldur betur verið í stuði yfir jólavertíðina og í gærkvöld lagði liðið Portsmouth 2-1 á heimavelli sínum. Þetta var þriðji sigur Blackburn á átta dögum. Það voru Norðmaðurinn Morten Gamst Pedersen og Paul Dickov sem skoruðu mörk Blackburn, en Matthew Taylor kom gestunum reyndar yfir í leiknum með frábæru marki beint úr aukaspyrnu.

Sport
Fréttamynd

Hefði viljað setja eitt mark

"Ég var mjög sáttur við leik liðsins í dag og einnig mjög sáttur við minn leik. Ég er aftur að komast í mitt besta form," sagði Eiður Smári Guðjohnsen eftir 3-1 sigur Chelsea á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Sport
Fréttamynd

Spila ekki aftur fyrr en hnéð er orðið 100%

Nú eru liðnir þrír og hálfur mánuður síðan knattspyrnumaðurinn Ólafur Ingi Skúlason hjá Brentford í Englandi fór í aðgerð eftir að hafa slitið krossbönd og skaddað liðþófa í haust. Atvikið átti sér stað í leik gegn Chesterfield, aðeins öðrum leik Ólafs Inga fyrir félagið.

Sport
Fréttamynd

Reading með örugga forystu

Ívar Ingimarsson og félagar í Reading eru í góðum málum í ensku 1. deildinni eftir leiki dagsins, en liðið vann stórsigur á Cardiff síðdegis, 5-1. Ívar var að venju í byrjunarliði Reading í leiknum, en Brynjar Björn Gunnarsson var á varamannabekknum.

Sport
Fréttamynd

O´Leary sáttur

David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, hrósaði stöðugleikanum í leik sinna manna í dag eftir að liðið sigraði West Brom 2-1 og segir að liðið hafi spýtt í lófana eftir að það tapaði fyrir Doncaster í bikarnum á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Schlesser sigraði á þriðju leiðinni

Frakkinn Jean-Louis Schlesser nýtti sér reynslu sína til hins ítrasta á þriðju sérleiðinni í París-Dakar rallinu í dag þegar hann kom fyrstur í mark á sérsmíðuðum bíl sínum, en þetta var fyrsti Afríkuáfanginn í keppninni. Schlesser hefur tvívegis sigrað í keppninni, árið 1999 og 2000. Spánverjinn Nani Roma er í forystu í heildarkeppninni eftir að hafa komið sjötti í mark í dag.

Sport
Fréttamynd

Bolton stöðvaði sigurgöngu Liverpool

Bolton og Liverpool skildu jöfn í ensku úrvalsdeildinni í dag 2-2 í hörkuleik. Það voru Jaidi og Diouf sem skoruðu mörk heimamanna, en Gerrard og Garcia skoruðu fyrir Liverpool.

Sport
Fréttamynd

Essien getur ekki gengið

Ghanamaðurinn Michael Essien getur ekki gengið og er mjög bólginn á ökkla eftir tæklingu sem hann varð fyrir í byrjun leiks gegn West Ham í dag. Bera þurfti miðjumanninn af velli á börum, en Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í lið Chelsea í hans stað eftir aðeins 13 mínútur í dag. Ekki er vitað hve alvarleg meiðsli Essien eru, en óttast er að hann missi af Afríkukeppninni með landsliði sínu.

Sport
Fréttamynd

Bolton yfir gegn Liverpool

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattpspyrnu. Bolton hefur yfir 1-0 gegn Liverpool á heimavelli sínum og það var Jaidi sem skoraði mark heimamanna á 10. mínútu. Liverpool hefur sótt hart að marki Bolton í kjölfarið, en hefur ekki haft erindi sem erfiði enn sem komið er.

Sport
Fréttamynd

Fyrstu kaup Liverpool á árinu

Liverpool gekk í dag frá kaupum á vængmanninum Paul Anderson frá Hull City, en Hull fær John Welsh í staðinn. Andersen þótti standa sig vel þegar hann var til reynslu hjá Liverpool og spilaði með varaliði félagsins. Andersen er aðeins 17 ára gamall.

Sport
Fréttamynd

Schumacher segir Ferrari á réttri leið

Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher segir að Ferrari-liðið sé á réttri leið í að koma sér á meðal þeirra bestu á ný og spáir að næsta keppnistímabil verði mun betra en árið 2005, þar sem liðið olli miklum vonbrigðum.

Sport
Fréttamynd

Öruggur sigur Chelsea

Chelsea lagði granna sína í West Ham 3-1 á Upton Park í ensku úrvalsdeildinni nú áðan og heldur því áfram öruggri forystu á toppi deildarinnar. Það var Frank Lampard sem kom Chelsea yfir í leiknum, en Marlon Harewood jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks. Það voru svo Hernan Crespo og Didier Drogba sem tryggðu Chelsea sigurinn með mörkum á 62. og 80. mínútu.

Sport
Fréttamynd

Portsmouth staðfestir tilboð Gaydamak

Rússneski auðkýfingurinn Alexander Gaydamak hefur keypt helmingshlut í úrvalsdeildarliðinu Portsmouth. Þetta staðfesti félagið nú fyrir stundu og er þetta talið blása miklu lífi í fjárhag félagsins sem berst fyrir lífi sínu í úrvalsdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Baros tryggði Villa sigurinn

Framherjinn Milan Baros tryggði Aston Villa 2-1 sigur á West Brom á útivelli í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag með marki úr vítaspyrnu tíu mínútum fyrir leikslok. Steve Davis kom Villa yfir í upphafi síðari hálfleiks, en Steve Watson jafnaði metin á 76. mínútu. Staðan í leik West Ham og Chelsea er enn 1-0 fyrir Chelsea, en síðari hálfleikur er þar ný hafinn.

Sport
Fréttamynd

Miami burstaði Minnesota

Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Miami burstaði Minnesota 97-70 eftir að jafnræði hafði verið með liðunum í fyrri hálfleik. Pat Riley las hressilega yfir sínum mönnum í hálfleiknum og það dugði, því Miami fékk aðeins á sig 26 stig í síðari hálfleiknum. Dwayne Wade var stigahæstur í jöfnu liði Miami með 19 stig, en Wally Szczerbiak skoraði mest hjá Minnesota, 19 stig.

Sport
Fréttamynd

Neitar að tjá sig um hugsanlega yfirtöku

Þær fréttir bárust frá Englandi í morgun að rússneskur auðkýfingur væri að íhuga að reyna að kaupa úrvalsdeildarlið Portsmouth, en félagið hefur neitað að tjá sig um þessar fregnir. Maðurinn sem um ræðir heitir Alexander Gaydamak og er sonur milljarðamæringsins Arcadi Gaydamak, en hann á til að mynda knattspyrnulið í Ísrael.

Sport
Fréttamynd

Átta leikir í dag

Boltinn er þegar farinn að rúlla í ensku úrvalsdeildinni í dag og nú standa yfir tveir leikir. Alls eru átta leikir á dagskrá í dag. Aston Villa hefur 1-0 yfir á útivelli gegn West Brom þegar síðari hálfleikur er nýhafinn, en það var Steve Davis sem skoraði mark Villa. Þá er um hálftími liðinn af leik West Ham og Chelsea, þar sem Frank Lampard var að koma gestunum yfir á 25. mínútu.

Sport
Fréttamynd

Enn lengist meiðslalistinn

Það á ekki af Steve Bruce og félögum í Birmingham að ganga í vetur og nú er ljóst að varnarmaðurinn Matthew Upson verður frá í mánuð eftir að hann sneri sig á ökkla eftir aðeins tíu mínútna leik gegn Chelsea á gamlársdag.

Sport
Fréttamynd

2005 var ótrúlegt ár fyrir Chelsea

Jose Mourinho segir að liðið ár hafi verið frábært fyrir Chelsea og segir að keppinautar liðsins geti gleymt því að reyna að ná því að stigum í vetur.

Sport
Fréttamynd

Liverpool á höttunum eftir Agger

Liverpool er nú sagt vera að leggja lokadrög að því að fá til sín danska varnarmanninn Daniel Agger frá Bröndby, en Agger þessi er landsliðsmaður og Englendingum að góðu kunnur frá því Danir burstuðu Englendinga á Parken í ágúst á síðasta ári. Agger er aðeins 21 árs gamall og er metinn á fimm milljónir punda.

Sport
Fréttamynd

Celtic sigraði Hearts

Glasgow Celtic bar sigurorð af Hearts 3-2 í æsilegum nýársleik í toppbaráttunni í skosku úrvalsdeildinni í dag. Hearts léku hluta úr leiknum manni færri, en með sigrinum er Celtic komið með sjö stiga forystu á toppnum í deildinni. Jankauskas og Pressley komu Hearts í 2-0 á heimavelli sínum eftir aðeins sjö mínútna leik, en tvö mörk frá McManus á síðustu fjórum mínútum leiksins tryggðu Celtic sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Sainz í forystu

Spænski ökuþórinn Carlos Sainz hefur náð hátt í fjögurra mínútna forskoti í París-Dakar rallinu sem nú stendur yfir. Sainz sigraði með sekúndu mun á öðrum keppnisdegi sem fram fór í Portúgal, þar sem ekin var 115 kílómetra leið. Sainz ekur á Volkswagen, en næstur á eftir honum kemur Al Allyah frá Katar á BMW.

Sport
Fréttamynd

Orðað við tvo franska leikmenn

Tveir franskir knattspyrnumenn hafa nú verið sterklega orðaðir við Manchester United. Annar þeirra, miðjumaðurinn Franck Ribery hjá Marseille, fullyrðir þetta í samtali við breska blaðið News of the world. Hinn leikmaðurinn er varnarmaðurinn Patrice Evra hjá Mónakó.

Sport
Fréttamynd

Souness og Eriksson áhyggjufullir

Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle og Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, segja það mikið áfall fyrir liðin að Michael Owen hafi ristarbrotnað í leiknum við Tottenham í gær. Owen þarf að fara í aðgerð fljótlega og verður frá keppni í að minnsta kosti þrjá mánuði.

Sport
Fréttamynd

Cleveland stöðvaði Detroit

LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers stöðvuðu níu leikja sigurgöngu Detroit Pistons í nótt með öruggum 97-84 sigri á heimavelli sínum. James skoraði 30 stig, hirti 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Cleveland, en Rasheed Wallace og Rip Hamilton skoruðu 21 stig hvor fyrir Detroit sem er þó enn með bestan árangur allra liða í deildinni.

Sport