Erlent
VRÚÚMMMMM Erlent 5.1.2007 16:00 Snyrtilegi pissuskálaþjófurinn Breska lögreglan leitar nú að manni sem stal pissuskálinni af Royal Oak pöbbinum í Southampton. Maðurinn kom þar inn, pantaði sér hálfpott af bjór og fór nokkrar ferðir á klósettið. Á öryggismyndavél sést hann svo troða skálinni í bakpoka sinn og fara með hana út. Erlent 5.1.2007 14:32 Höfrungar vernduðu sundmenn fyrir hákarli Höfrungavaða verndaði fjóra sundmenn fyrir stórum hvítum hákarli, undan ströndum Nýja Sjálands, á dögunum. Mennirnir voru strandverðir, sem voru á æfingasundi um eitthundrað metra frá landi, þegar hákarlinn kom aðvífandi. Erlent 5.1.2007 14:25 Erkibiskup Varsjár var njósnari kommúnista Kaþólska kirkjan í Póllandi segir að erkibiskupinn í Varsjá, sem Benedikt páfi skipaði í embætti í síðasta mánuði, hefði um tuttugu ára skeið verið njósnari fyrir leyniþjónustu kommúnistastjórnar landsins. Óvíst er hvort hann verður vígður í embættið, á sunnudag. Erlent 5.1.2007 14:00 Von á fleiri uppsögnum hjá GM Rick Wagoner, forstjóri bandaríska bílaframleiðandans General Motors, hefur greint frá því að svo geti farið að fyrirtækið segi upp fleiri starfsmönnum á nýju ári. Fyrirtækið sagði upp 34.000 manns í fyrra ákvað að loka 12 verksmiðjum til að draga úr hallarekstri. Viðskipti erlent 5.1.2007 13:40 Íranskir leyniþjónustumenn í Írak Erlent 5.1.2007 13:37 Krókódílaveiðimaður ekki á netið Erlent 5.1.2007 13:28 Þær berrössuðu unnu Nektardans hefur verið opinberlega viðurkenndur sem listform, í Noregi og fjármálaráðherra landsins er ekki skemmt. Hún ætlar að heimta af þessu skatt, hvað sem það kostar. Erlent 5.1.2007 13:21 Vill að Vodafone falli frá yfirtöku í Hutchison Essar Hluthafi í breska farsímarisanum Vodafone vill að félagið falli frá yfirtökutilraunum í 67 prósenta hlut indverska farsímafélagsins Hutchison Essar. Ástæðan er aðkoma indverska fjárfestahópsins Hinduja Group í yfirtökubaráttu um hlutinn. Viðskipti erlent 5.1.2007 13:07 OECD þrýstir á evrulöndin Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) hefur hvatt stjórnvöld til að draga úr fjárlagahalla landanna og auka samkepnnishæfni innan þeirra. OECD segir stjórnvöld í Þýskalandi eina landið á evrusvæðinu sem hafi gripið til aðgerða. Stjórnvöld í Slóveníu eru undanskilin gagnrýni OECD en landið tók upp evrur um áramótin. Viðskipti erlent 5.1.2007 12:44 Boeing tekur fram úr Airbus Stjórn bandarísku flugvélasmiðjanna Boeing greindi frá því í gær að fyrirtækið hefði selt 1.044 farþegaflugvélar á síðasta ári. Þetta er 42 vélum meira en á síðasta ári og annað árið í röð sem fyrirtækið skilar metsölu. Allt stefnir í að Boeing taki fljótlega fram úr evrópska flugvélaframleiðandanum Airbus sem söluhæsti flugvélaframleiðandi heims. Viðskipti erlent 5.1.2007 12:36 Verðlækkanir hérlendis ólíklegar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið undanfarna daga og hefur ekki verið lægra í hálft annað ár. Talsmenn íslensku olíufélaganna segja ólíklegt að eldsneytisverð lækki hér á landi á næstunni vegna óhagstæðrar gengisþróunar. Erlent 5.1.2007 12:04 Mér var kalt, hikk Bæjarfulltrúi í Nuuk á Grænlandi hefur verið úrskurðuð óverðug þess að sitja í bæjarstjórninni eftir að hún braust inn í hótel í bænum Sisiamiut, í janúar á síðasta ári. Jensína Berthelsen sagði sér til varnar, fyrir rétti, að henni hefði verið kalt, og að hótelið hefði verið læst. Hún hefði því ekki átt annarra kosta völ en að brjótast inn. Erlent 5.1.2007 11:02 « ‹ 187 188 189 190 191 192 193 194 195 … 334 ›
Braust inn og kláraði barinn Þjófur í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum skildi eftir fleiri vísbendingar en hafði ætlað sér því hann fékk sér nokkra drykki úr barnum í húsinu sem hann braust inn í og drapst því næst áfengisdauða á stofugólfinu. Erlent 5.1.2007 22:37
Ban Ki-moon ræðir ástandið í Darfur Ban Ki-moon hitti í dag sérstakan erindreka Sameinuðu þjóðanna í Darfur sem og fulltrúa Afríkusambandsins til þess að reyna að blása lífi í friðarviðræður í Darfur. Eftir fundinn hvöttu þeir til þess að einhugur yrði varðandi á meðal aðila öryggisráðsins um hvað ætti að gera í Darfur. Erlent 5.1.2007 22:33
27 láta lífið í aurskriðum í Brasilíu Að minnsta kosti 27 létu lífið í aurskriðum í suðausturhluta Brasilíu í þessari viku og talið er að allt að 11 þúsund manns hafi þurft að flýja heimili sín. Varnarmálaráðuneytið þar í landi sagði að enn væri verið að leita að fórnarlömbum og því gæti tala látinna aukist töluvert. Erlent 5.1.2007 22:22
Heimatilbúnar auglýsingar í Super Bowl Tímaritið TIME virðist hafa haft rétt fyrir sér þegar það valdi Þig, eða hinn virka netnotanda, sem persónu ársins því ansi margar auglýsingar í Super Bowl, sem er úrslitaleikurinn í ameríska fótboltanum, verða gerðar af sigurvegurum ýmissa keppna sem auglýsendur standa fyrir. Þannig getur hver sem er tekið þátt í keppni um Chevrolet og Doritos auglýsingar og verða þær sem bera sigur úr býtum sýndar í hálfleik. Erlent 5.1.2007 22:15
Ákærur á föngum í Guantanamo birtar í febrúar Bandaríski herinn býst við því að birta ákærur á hendur hóps fanga í Guantanamo fangelsinu nú í febrúar og að réttarhöld, þar sem sönnunargöng gegn þeim verða sýnd, verði síðan í sumar. Hundruð manna hefur verið haldið í Guantanamo án dóms vegna gruns um að þeir séu hryðjuverkamenn. Erlent 5.1.2007 22:00
Sarkozy hvetur íbúa Korsíku til að sýna stillingu Innanríkisráðherra Frakklands, Nicolas Sarkozy, skoraði í dag á ungt fólk á Korsíku til þess að hemja sig og snúa baki við ofbeldi en í gær sprungu nokkrar sprengjur á eyjunni, sem vill sjálfstæði frá Frakklandi. Einn lést í árásunum og einn særðist síðan alvarlega þegar sprengja sem þeir voru að koma fyrir sprakk í höndunum á þeim. Erlent 5.1.2007 21:08
Bush skipar nýjan yfirmann leyniþjónustna í Bandaríkjunum George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, skipaði í dag fyrrum flotaforingjann Mike McConnell sem yfirmann bandarískra leyniþjónustna en hann tekur við starfinu af John Negroponte sem verður aðstoðarutanríkisráðherra. McConnell þessi vann áður fyrir stjórn föður Bush og þá var hann helsti aðstoðarmaður Colins Powells. Erlent 5.1.2007 20:51
Bush hvattur til aðgerða gegn Íran Íran er á bakvið hið aukna ofbeldi í Írak og sér uppreisnarmönnum fyrir vopnum og birgðum. Þetta fullyrti einn helsti andstæðingur íranskra stjórnvalda á fundi nefndar um „Stjórnarskipti í Íran“ í kvöld. Maðurinn, sem heitir Alireza Jafarazadeh, hefur áður fullyrt ýmistlegt um Íran og það hefur jafnan reynst satt. Erlent 5.1.2007 20:05
Erkibiskup í Póllandi viðurkennir spillingu Nýskipaður erkibiskup í Varsjá í Póllandi viðurkenndi í dag að hann hefði unnið með leyniþjónustu landsins á þeim tímum sem kommúnistar voru við völd. Hann hafði áður neitað ásökunum þess efnis en þær raddir sem höfðu krafist afsagnar hans gerðust sífellt háværari. Erlent 5.1.2007 19:43
20 þúsund flýja ofbeldi í Tsjad Ofbeldi í austurhluta Tsjad, sem upprunnið er í Darfur héraði í Súdan, hefur neytt 20 þúsund manns til þess að flýja heimili sín undanfarnar tvær vikur en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna skýrði frá þessu í dag. Erlent 5.1.2007 19:22
Negroponte aðstoðarutanríkisráðherra George Bush Bandaríkjaforseti gagnrýndi í dag hvernig staðið var að aftöku Saddams Hussein en sagði þó einræðisherrann fyrrverandi hafa fengið réttlátan dóm. John Negroponte, yfirmaður leyniþjónustustofnana ríkisins, var í dag tilnefndur í embætti aðstoðarutanríkisráðherra. Erlent 5.1.2007 19:26
Olíuverðslækkanir ósennilegar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur fallið um tíu prósent í þessari viku og hefur ekki verið lægra í hálft annað ár. Ólíklegt er að íslenskir neytendur njóti lækkunarinnar vegna óhagstæðrar gengisþróunar. Innlent 5.1.2007 19:17
Rice varar Norður-Kóreu við Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ef Norður-Kórea framkvæmdi aðra tilraunasprengingu á kjarnavopnum, væri landið að auka enn á einangrun sína í alþjóðakerfinu. Erlent 5.1.2007 19:14
Offitulyf fyrir hunda komið á markað Matvælaeftirlit Bandaríkjanna hefur leyft offitulyf fyrir hunda en það virkar á þann hátt að það dregur úr matarlyst og upptöku líkamans á fitu. Lyfið, sem heitir Slentrol, á að hjálpa þeim bandarísku hundum sem glíma við offitu en talið er að um fimm prósent þeirra eigi við vandann að stríða. Erlent 5.1.2007 18:12
Litvinenko sakaður um fjárkúgun Alexander Litvinenko, fyrrum njósnari sem var eitrað fyrir í Lundúnum í nóvember síðastliðnum, ætlaði sér að fjárkúga rússneskan auðkýfing sem búsettur er í Lundúnum. Þetta fullyrti vinkona hans í samtali við fréttaþáttinn sextíu mínútur en hann verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn kemur. Erlent 5.1.2007 17:43
Frelsaður eftir sex ár í gíslingu Fyrrum ráðherra í Kólumbíu, sem hefur verið í haldi mannræningja í sex ár, tókst í dag að komast undan þeim eftir björgunaraðgerðir kólumbíska hersins. Talið er að tugir uppreisnarmanna í FARC hafi látið lífið í aðgerðunum. Erlent 5.1.2007 17:32
Litla moskan á sléttunni Framleiðendur nýrra gamanþátta fyrir sjónvarp, í Kanada , bíða spenntir eftir að sjá hver viðbrögðin verða við þáttunum. Þáttaröðin heitir "Litla moskan á sléttunni," og fjallar um hóp múslima sem setjast að í kristnum smábæ í Kanada, og samskiptum þessara tveggja hópa. Erlent 5.1.2007 16:45
Snyrtilegi pissuskálaþjófurinn Breska lögreglan leitar nú að manni sem stal pissuskálinni af Royal Oak pöbbinum í Southampton. Maðurinn kom þar inn, pantaði sér hálfpott af bjór og fór nokkrar ferðir á klósettið. Á öryggismyndavél sést hann svo troða skálinni í bakpoka sinn og fara með hana út. Erlent 5.1.2007 14:32
Höfrungar vernduðu sundmenn fyrir hákarli Höfrungavaða verndaði fjóra sundmenn fyrir stórum hvítum hákarli, undan ströndum Nýja Sjálands, á dögunum. Mennirnir voru strandverðir, sem voru á æfingasundi um eitthundrað metra frá landi, þegar hákarlinn kom aðvífandi. Erlent 5.1.2007 14:25
Erkibiskup Varsjár var njósnari kommúnista Kaþólska kirkjan í Póllandi segir að erkibiskupinn í Varsjá, sem Benedikt páfi skipaði í embætti í síðasta mánuði, hefði um tuttugu ára skeið verið njósnari fyrir leyniþjónustu kommúnistastjórnar landsins. Óvíst er hvort hann verður vígður í embættið, á sunnudag. Erlent 5.1.2007 14:00
Von á fleiri uppsögnum hjá GM Rick Wagoner, forstjóri bandaríska bílaframleiðandans General Motors, hefur greint frá því að svo geti farið að fyrirtækið segi upp fleiri starfsmönnum á nýju ári. Fyrirtækið sagði upp 34.000 manns í fyrra ákvað að loka 12 verksmiðjum til að draga úr hallarekstri. Viðskipti erlent 5.1.2007 13:40
Þær berrössuðu unnu Nektardans hefur verið opinberlega viðurkenndur sem listform, í Noregi og fjármálaráðherra landsins er ekki skemmt. Hún ætlar að heimta af þessu skatt, hvað sem það kostar. Erlent 5.1.2007 13:21
Vill að Vodafone falli frá yfirtöku í Hutchison Essar Hluthafi í breska farsímarisanum Vodafone vill að félagið falli frá yfirtökutilraunum í 67 prósenta hlut indverska farsímafélagsins Hutchison Essar. Ástæðan er aðkoma indverska fjárfestahópsins Hinduja Group í yfirtökubaráttu um hlutinn. Viðskipti erlent 5.1.2007 13:07
OECD þrýstir á evrulöndin Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) hefur hvatt stjórnvöld til að draga úr fjárlagahalla landanna og auka samkepnnishæfni innan þeirra. OECD segir stjórnvöld í Þýskalandi eina landið á evrusvæðinu sem hafi gripið til aðgerða. Stjórnvöld í Slóveníu eru undanskilin gagnrýni OECD en landið tók upp evrur um áramótin. Viðskipti erlent 5.1.2007 12:44
Boeing tekur fram úr Airbus Stjórn bandarísku flugvélasmiðjanna Boeing greindi frá því í gær að fyrirtækið hefði selt 1.044 farþegaflugvélar á síðasta ári. Þetta er 42 vélum meira en á síðasta ári og annað árið í röð sem fyrirtækið skilar metsölu. Allt stefnir í að Boeing taki fljótlega fram úr evrópska flugvélaframleiðandanum Airbus sem söluhæsti flugvélaframleiðandi heims. Viðskipti erlent 5.1.2007 12:36
Verðlækkanir hérlendis ólíklegar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið undanfarna daga og hefur ekki verið lægra í hálft annað ár. Talsmenn íslensku olíufélaganna segja ólíklegt að eldsneytisverð lækki hér á landi á næstunni vegna óhagstæðrar gengisþróunar. Erlent 5.1.2007 12:04
Mér var kalt, hikk Bæjarfulltrúi í Nuuk á Grænlandi hefur verið úrskurðuð óverðug þess að sitja í bæjarstjórninni eftir að hún braust inn í hótel í bænum Sisiamiut, í janúar á síðasta ári. Jensína Berthelsen sagði sér til varnar, fyrir rétti, að henni hefði verið kalt, og að hótelið hefði verið læst. Hún hefði því ekki átt annarra kosta völ en að brjótast inn. Erlent 5.1.2007 11:02