Lög og regla
Fann hassmola á víðavangi
Komið er í ljós að torkennilegur moli, sem átta ára drengur í Keflavík fann á víðavangi í fyrradag, er hass. Molinn var vafinn í umbúðafilmu og fannst móður drengsins hann eitthvað torkennilegur og fór með hann til lögreglu. Hann reyndist tæp fimm grömm að þyngd.

Landssímamálið aftur í dóm
Hæstiréttur tekur Landssímamálið fyrir í dag. Ríkissaksóknari sagði fyrir héraðsdómi að vörn þeirra Árna Þórs Vigfússonar og Kristjáns Ragnars Kristjánssonar í Landssímamálinu væri ótrúverðug. Þeir byggðu upp viðskiptaveldi á viðskiptaþekkingu sinni úr Verzlunarskólanum og undruðust ekki er fé streymdi úr sjóðum Símans án allra ábyrgða og undirskrifta.</font /></b />

Kona sem lifði af
Hún sætti harkalegu kynferðisofbeldi af hendi stjúpföður síns frá fjögurra ára aldri. Þar kom að hún þurfti að velja á milli sín og fjölskyldu sinnar. Hún valdi sig. </font /></b />

Annasamt hjá lögreglu í Kópavogi
Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni í Kópavogi í allan dag. Nú rétt fyrir klukkan fimm höfðu fjórir árekstrar orðið í bænum en engin slys urðu á fólki. Þá hefur vel á annan tug ökumanna verið stöðvaður vegna hraðaksturs að sögn lögreglunnar.
Bíða dóms í Þýskalandi
Íslendingarnir tveir sem handteknir voru með mikið magn fíkniefna um borð í Hauki ÍS við leit tollayfirvalda í Bremerhaven í byrjun janúar bíða nú dóms í málinu.

Reyndi að feta í fótspor Fischers
Japanskur karlmaður, sem er veill á geðsmunum, reyndi fyrir skömmu að fá íslenskan ríkisborgararétt við komu sína til landsins og vísaði til þess að Bobby Fischer hefði fengið slíkt.

Hafnaði bótakröfu vegna afsagnar
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun ríkið af rúmlega þrettán milljóna króna kröfu Valgerðar Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, en hún taldi sig hafa verið neydda til að segja af sér.

Ekki þvinguð til uppsagnar
Íslenska ríkið var í gær sýknað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af bótakröfum Valgerðar Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, en hún fór fram á rúmar þrettán milljónir króna fyrir töpuð laun og miskabætur vegna missis þeirrar stöðu sinnar.
Féll illa á sorptunnu
Alvarlegt vinnuslys varð við Hlíðarhjalla í Kópavogi rétt fyrir hádegi í dag. Karlmaður, sem starfar fyrir gámafyrirtækið Sorpu, var að draga sorpílát upp tröppur þegar hann missti jafnvægið og féll aftur fyrir sig og lenti á ílátinu. Að sögn lögreglunnar er talið að maðurinn hafi brákast á hrygg en meiðsli hans eru þó ekki ljós á þessari stundu.

Fimm handteknir fyrir innbrot
Lögreglan í Reykjavík handtók samtals fimm innbrotsþjófa í tengslum við tvö innbrot í nótt þar sem þeir reyndu að stela verðmætum fyrir hundruð þúsunda króna.

Erill hjá lögreglu
Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og var mikil ölvun í miðbænum og heimahúsum. Sjö voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Á slysavarðstofu Landspítala - Háskólasjúkrahúss var einnig talsvert að gera en að sögn vakthafandi læknis var enginn fluttur þangað alvarlega slasaður.

Brýnt að reisa nýtt fangelsi
Fangavarðafélag Íslands skorar á stjórnvöld að standa við áform um byggingu nýs fangelsis sem koma á í staðinn fyrir bæði Hegningarhúsið við Skólavörðustíg og Fangelsið að Kópavogsbraut 17.

Tekinn á 162 km hraða
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði ungan ökumann á 162 kílómetra hraða á Norðurlandsvegi í gærkvöldi en alls stöðvaði hún fimmtán ökumenn vegna hraðaksturs á þremur klukkustundum. Flestir voru á 105-110 kílómetra hraða en nokkrir á yfir 120.
Bíll endaði inni í garði
Fólksbíll endaði inni í garði húseiganda í Kópavogi rétt upp úr hádegi eftir að hafa keyrt aftan á jeppabifreið á ofsahraða. Ökumaður fólksbílsins slasaðist og var fluttur á slysadeild en meiðsl hans voru talin minniháttar. Þrír voru í jeppanum og sluppu þeir ómeiddir.

Bíll hafnaði í húsagarði
Árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi laust eftir hádegi í gær með þeim afleiðingum að annar ökumannanna missti stjórn á bifreið sinni, sem þá rakst utan í nærliggjandi bíla áður en hún valt sjálf harkalega og hafnaði ofan í húsagarði við íbúðarhús á Ásbraut í Kópavogi.

Bóndinn ábyrgur fyrir kindinni
Héraðsdómur Reykjavíkur gerði með dómi sínum í gær bónda ábyrgan fyrir kind sem slapp upp á þjóðveg og olli tjóni á bíl sem ók á hana. Lausaganga búfjár er bönnuð þar sem atvikið varð og er bóndinn talinn bera ábyrgð á því að hún slapp upp á veg.

Tæp hálf milljón vegna móðurmissis
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða systkinum tæplega hálfa milljón króna í bætur vegna andláts móður þeirra, sem lést af völdum læknamistaka.

Umferðaróhöppum fækkar lítið
Ef allir Íslendingar ækju á löglegum hraða mætti draga úr banaslysum í umferðinni um 40 til 45 prósent að mati verkefnastjóra Umferðarstofu. Í nýrri ársskýrslu stofunnar kemur fram að umferðaróhöppum fækkaði lítið sem ekkert á síðasta ári en færri slasast nú en áður.

Undir áhrifum í bíltúr á Laugavegi
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði ökumann í miðborginni í nótt og reyndist hann nær alveg út úr heiminum af áfengis- og vímuefnaneyslu. Vegfarendur um Laugaveg gerðu lögreglunni viðvart um skrykkjótt og stórhættulegt aksturslag mannsins niður Laugaveginn en þar ók hann meðal annars utan í bíl.

Færri slasast í umferðinni
Slösuðum í umferðinni hefur fækkað um rúmlega 50 prósent á síðustu 10 árum. Þetta kemur fram í Skýrslu um umferðarslys árið 2004 sem kynnt var í morgun. Þar kemur fram að í fyrra slösuðust 115 manns alvarlega í umferðarslysum en árið á undan slösuðust 145 alvarlega. Alls létust 23 í umferðarslysum í fyrra og er það sami fjöldi og lést árið áður.

Ákæruvaldið snuprað í héraðsdómi
Héraðsdómur Reykjaness gagnrýnir málatilbúnað ákæruvaldsins í dómi yfir tvítugri konu sem fundin var sek í morgun fyrir þjófnað og gripdeildir á höfuðborgarsvæðinu í fyrra. Konan játaði skýlaust brot sín fyrir dómi. Hún hafði áður hlotið dóma í Héraðsdómi Reykjavíkur og Héraðsdómi Reykjaness 2003 og 2004 og verið dæmd í samanlagt 28 mánaða skilorðsbundið fangelsi, meðal annars fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni.
Lýst eftir hafnfirskri konu
Lögreglan í Hafnarfirði lýsir eftir 54 ára gamalli konu, Áslaugu Eddu Bergsdóttur sem ekkert hefur spurst til síðan á laugardagskvöldið að hún var heima hjá sér í Hafnarfirði. Hún er 170 sentímetrar á hæð, þéttvaxin með stutt skollitað hár og notar gleraugu. Engar vísbendingar eru um ferðir hennar og leit með sporhundum í gær bar ekki árangur.
Björguðu skíðamönnum úr lífsháska
Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna kom með tvo skíðamenn til Reykjavíkur í morgun sem þeir höfðu bjargað úr lífsháska við Hlöðufell á hálendinu í morgunsárið.

Vill sakaruppgjöf vegna mismununar
Íslenskur kynþáttahatari krefst sakaruppgjafar þar sem Bobby Fischer er ekki refsað fyrir gyðingahatur. Hann segist ekki ætla að una því að Fischer sé hlíft í ljósi þess að hann hafi verið dæmdur fyrir ummæli sín.

Dæmd fyrir fíkniefnabrot og stuld
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tæplega þrítuga konu í 14 mánaða fangelsi, þar af tólf mánuði skilorðsbundið, fyrir fíkniefnabrot og þjófnað í nóvember í Reykjavík í fyrra. 0,07 grömm af amfetamíni fundust í fórum konunnar við leit en hún sagðist ekki hafa vitað af efninu þar sem vinkona hennar hefði lánað henni buxurnar sem hún væri í. Hún gat hins vegar ekki nafngreint vinkonu sína og þótti héraðsdómi skýring hennar ekki trúverðug.
Féll þrjá metra í körfu
Vinnuslys varð í fyrirtækinu Gúmmívinnslunni á Akureyri um klukkan tvö í dag þegar maður féll rúmlega þrjá metra niður í svokallaðri mannkörfu. Að sögn lögreglunnar á Akureyri eru meiðsli mannsins enn óljós en hann var fluttur á sjúkrahús.
Fjórtán mánaða fangelsisdómur
Kona var í gær dæmd til fjórtán mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot og þjófnað en brotaferill viðkomandi er langur og útskýrir það lengd dómsins. Dómurinn frestaði þó fullnustu tólf af þeim fjórtán mánuðum sem dómurinn hljóðaði upp á haldi viðkomandi skilorð næstu þrjú ár.

Lítið heillegt eftir bruna
Nánast ekkert heillegt var að finna í íbúðinni sem brann við Rósarima í gær. Eldurinn er talinn hafa kviknað út frá eldavélarhellu.

Óku saman í Ljósavatnsskarði
Tvennt var flutt á slysadeild eftir árekstur tveggja bíla í Ljósavatnsskarði til móts við Stóru-Tjarnir í dag. Jeppi og fólksbíll skullu saman með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbílsins og farþegi í jeppabifreiðinni slösuðust. Fólkið var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar en ekki er talið að það sé alvarlega slasað.

Lá við stórslysi
Litlu munaði að illa færi að mati lögreglunnar þegar stór þungaflutningabíll lenti aftan á kyrrstæðum lögreglubíl í Kömbunum á Hellisheiði í gærmorgun. Var lögreglan þar við skýrslutöku af ökumönnum þriggja bíla sem aður höfðu lent í árekstri.