Sorpa
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Fann verðmæti í kassa sem átti að fara í Góða hirðinn Sigurður Helgi Pálmason, matsmaður og annar stjórnenda þáttarins Fyrir alla muni, hefur hjálpað fólki að finna verðmætar eigur, til dæmis í dánarbúum. Dæmi séu um að fólk geri sér ekki grein fyrir verðmætum sem leynast á heimilum og losi sig því við þau. Lífið 28.2.2023 22:35
Feðgamyndin frá New York sem endaði óvart í Góða hirðinum „Hver hendir þrívíddar fjölskyldumyndinni sinni?“ spurði kona að nafni Aldís í færslu á Facebook á dögunum. Svarið við þeirri spurningu er Magnús Már Kristinsson. Hann ætlaði þó ekki að gefa myndina frá sér þar sem honum þykir afar vænt um hana. Lífið 21.2.2023 14:36
Loka endurvinnslustöðvum vegna veðurs Lokað verður á endurvinnslustöðvum Sorpu í Ánanaustum og við Breiðhellu í dag vegna veðurs. Innlent 11.2.2023 11:45
Loka verslunum Góða hirðisins og hefja flutning í nýtt húsnæði Verslanir Góða hirðisins á Hverfisgötu og Fellsmúla munu sameinast í nýju húsnæði á Köllunarklettsvegi á næstunni. Verslunin á Hverfisgötu mun loka þann 31. janúar og verslunin í Fellsmúla lokar þann 20. febrúar. Þá mun netverslunin loka alfarið. Innlent 19.1.2023 14:21
„Við eigum að fara að hegða okkur meira eins og ömmur okkar og afar“ „Íslendingar hafa margt oft sýnt og sannað hversu öflug og fljót við erum að aðlaga okkur breytingum. Ég er bjartsýnn að eðlisfari og tel því að allir eigi eftir að taka vel í þessar breytingar, fólki hér er annt um náttúruna og við viljum flest vera sjálfbær,“ segir Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri Hringrásarhagkerfisins hjá SORPU. Atvinnulíf 7.12.2022 07:01
Tvær til þrjár ruslatunnur við sérbýli Tvær til þrjár tunnur verða við sérbýli á höfuðborgarsvæðinu með lögum um hringrásarkerfi sem taka gildi um áramótin. Íbúum verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili; pappír, plastumbúðir, matarleifar og blandaður úrgangur. Neytendur 6.12.2022 17:13
Segir mörg fjölbýlishús ekki reiðubúin fyrir nýtt sorpflokkunarkerfi „Það er vitað mál að aðstæður í sumum húsum bjóða ekkert upp á þetta, fjölmörg hús þurfa að fara í að bæta sína aðstöðu og hefðu í raun þurft að vera búin að því,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, um nýtt sorphirðukerfi sem tekur gildi um áramót. Innlent 18.11.2022 07:07
Kostulegt myndasafn úr Góða hirðinum: „Ég er náttúrulega bara áhrifavaldur“ Í Íslandi í dag kynnumst við Maríu Hjálmtýsdóttur, kennara sem fer í Góða hirðinn nær daglega til að kanna hvort hún finni eitthvað að viti. Um leið og hún gengur tekur hún oft myndir sem rata í gífurlega vinsælan hóp hennar: „Hver hendir svona?“ Neytendur 4.11.2022 09:29
Loka Sorpustöðinni við Dalveg í Kópavogi eftir tæp tvö ár Móttökustöð Sorpu við Dalveg í Kópavogi verður lokað í september 2024. Lóðinni var úthlutað til bráðabirgða árið 1991 og í samstarfssamningi Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í Kópavogi kom fram að hugað yrði að flutningi stöðvarinnar þar sem ekki er gert ráð fyrir henni í aðalskipulagi. Innlent 21.10.2022 07:33
Netverjar hneykslast yfir háu verðlagi í „Gróða hirðinum“ Mikil umræða hefur skapast um verðlag í Góða hirðinum á samfélagsmiðlum en verslunin hefur undanfarið hækkað verð á nokkrum vöruflokkum. Samkvæmt upplýsingum frá Góða hirðinum hefur verðbólgan leikið þau grátt og var útlitið svart í sumar. Þau hafi farið eins hóflega í verðhækkanir og hægt var. Innlent 7.10.2022 21:08
Mikil vonbrigði í Mosó með áframhaldandi urðun í bakgarðinum Ljóst er að ekki verður hægt að loka urðunarstað Sorpu í Álfsnesi fyrir lok árs 2023 líkt og samið var um fyrir tveimur árum. Viðræður Sorpu við sveitarfélög um framtíðarurðunarstað fyrir höfuðborgarsvæðið hefur enn engan árangur borið. Innlent 15.9.2022 14:23
Hyggjast byggja upp jarðefnagarð í Álfsnesi Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Hornsteins ehf.m og Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu á jarðefnagarði á athafnasvæði Björgunar í Álfsnesvík í Álfsnesi. Viðskipti innlent 23.8.2022 07:10
Sorpa og Reykjavíkurborg undirrita makaskiptasamning Tveir samningar voru undirritaðir í dag, annars vegar um lóðarvilyrði fyrir umhverfisvæna byggingu við Ártúnshöfða. Hins vegar var undirritaður samningur um makaskiptasamning á lóðum milli Reykjavíkurborgar og SORPU bs. Innlent 10.5.2022 17:47
Tekinn fyrir „ólöglegt brottkast“ í Sorpu Maður var gripinn með svartan ruslapoka í Sorpu í gær. Þá þegar var hann látinn borga fimm hundruð króna „refsigjald“ og engu breytti þegar hann kvaðst ætla að taka pokann með sér heim aftur. Samskipta- og þróunarstjóri Sorpu segir málið einfalt. Innlent 15.4.2022 15:17
Bein útsending: Umhverfisráðstefna Gallup 2022 Umhverfisráðstefna Gallup og samstarfsaðila fer fram í dag, fimmta árið í röð. Á ráðstefnunni verða meðal annars kynntar niðurstöður nýrrar könnunar meðal Íslendinga um viðhorf og hegðun í tengslum við umhverfismál og loftslagsbreytingar. Innlent 22.3.2022 08:17
Stefna á að allir bílar fari út á laugardag til að tæma pappa og plast Sorphirða í Reykjavík er talsvert á eftir áætlun vegna ýmissa þátta, þar á meðal veðurs og veikinda starfsmanna, en verið er að vinna upp tafirnar. Hirða á pappa og plasti hefur legið niðri undanfarnar vikur en er nú aftur komin í gang. Reiknað er með að það taki þrjár vikur að ná áætlun í allri borginni. Innlent 17.3.2022 16:26
Reykvíkingar fara sjálfir með ruslið í aftakaveðri Sorphirða í Reykjavík er í sögulegum ólestri - pappír og plasttunnur hafa flestar ekki verið tæmdar í tæpar sjö vikur. Skýringin: Röð óheppilegra atvika. Innlent 14.3.2022 23:08
Reykjavík í rusli Flestar endurvinnslutunnur í Reykjavík, þar sem íbúar reyna eftir föngum að safna saman pappa og plasti, eru sneisafullar enda eru vikur síðan þær hafa verið tæmdar. Það þýðir svo að óþrifalegt er orðið í höfuðborginni. Innlent 14.3.2022 10:56
Gagnsæi bjargað 1.200 tonnum frá urðun Urðun hefur dregist saman um 1.200 tonn á ársgrundvelli eftir að fólk var krafið um að mæta með óflokkaðan úrgang í glærum plastpokum á endurvinnslustöðvar Sorpu. Innlent 2.3.2022 13:22
Góði hirðirinn flytur í Kassagerðina Góði hirðirinn mun flytja úr Fellsmúla og í gömlu Kassagerðina við Köllunarklettsveg 1 í Reykjavík. Stefnt er að flutningum þann 1. janúar á næsta ári. Viðskipti innlent 24.2.2022 08:26
Loftslagsmálin hafa forgang Ég bind miklar vonir við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við umhverfis- og loftslagsráðuneytinu. Víst er að loftslags- og umhverfismál munu verða efst á baugi hjá okkur Íslendingum á næstu árum og áratugum. Skoðun 9.2.2022 08:01
Róttækar breytingar á flestum heimilum Róttækra breytinga er að vænta á flokkun heimilissorps hjá íbúum höfuðborgarsvæðisins með vorinu. Framvegis verða fjórar tunnur við hvert heimili og nú þarf almenningur að breyta sínum venjum, segir bæjarstjórinn í Garðabæ. Innlent 1.2.2022 23:30
Svona gætu sorptunnurnar þínar litið út í vor Starfshópur á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hefur lagt fram tillögur að samræmdu sorphirðukerfi. Í þeim er lagt til að fjórum flokkum af sorpi verið safnað við öll heimili á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 1.2.2022 06:00
Inn fyrir endimörk alheimsins Heiminum hefur sennilega aldrei vegnað betur. Skrýtið að segja þetta á því sem við vonum að sé skottið á tveggja ára löngum heimsfaraldri. Skoðun 25.1.2022 15:02
Förum betur með peninga borgarbúa! Flokkur fólksins hefur ítrekað gagnrýnt meirihluta borgarstjórnar fyrir bruðl með fjármuni Reykvíkinga og kallað eftir nauðsynlegri virðingu fyrir verðmætum, aga og ráðdeild. Skoðun 24.1.2022 11:00
Rándýr stóll Góða hirðisins loksins kominn með heimili Saga rándýra hönnunarstólsins sem var til sölu hjá Góða hirðinum fékk farsælan endi í dag. Stóllinn hefur hlotið sannkallaða yfirhalningu og var í dag gefinn til góðgerðasamtaka. Innlent 20.1.2022 21:00
Flokkum og skilum Bygging gas- og jarðgerðarstöðvarinnar, GAJU, markar tímamót í umhverfismálum á Íslandi og er eitt stærsta umhverfisverkefni sem ráðist hefur verið í hér á landi. Skoðun 19.1.2022 09:31
Sorpa dæmd til að greiða níutíu milljónir vegna útboðsklúðurs Sorpa þarf að greiða Íslenskum aðalverktökum 89,4 milljónir vegna útboðsins á byggingu Gaju, gas- og jarðgerðarsstöð Sorpu á Álfsnesi. Héraðsdómur telur Sorpu ekki hafa gætt jafnræðis á milli bjóðenda í verkið. Innlent 21.12.2021 10:58
Eiríkur Örn, Freyr og Sigrún ráðin til Sorpu Eiríkur Örn Þorsteinsson, Freyr Eyjólfsson og Sigrún Haraldsdóttir hafa verið ráðin til Sorpu. Viðskipti innlent 16.12.2021 09:09
Vilja tugmilljarða króna úrgangsbrennslu á Álfsnes Hefja þarf undirbúning að byggingu hátækniúrgangsbrennslu á Íslandi að sögn ritstjóra nýrrar skýrslu um framtíðarlausnir í úrgangi. Álfsnesið virðist fýsilegur staður en brennslan gæti kostað allt að 35 milljörðum króna. Innlent 15.12.2021 11:22