Auglýsinga- og markaðsmál
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 27 ›
Elín Hirst vill Katrínu sem forsætisráðherra „Við viljum Katrínu Jakobsdóttur áfram sem forsætisráðherra“ segir í heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Undir rita fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar, þeirra á meðal Elín Hirst, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Tveir stuðningsmenn kostuðu auglýsinguna. Innlent 23.9.2021 11:36
Munu leiða markaðsstarf og stafræna vegferð Kynnisferða Axel Gunnlaugsson og Atli Björgvinsson ráðnir til Kynnisferða til að leiða markaðsstarf og stafræna vegferð Kynnisferða. Viðskipti innlent 23.9.2021 09:15
Rándýrt að auglýsa í Reykjavík Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa keypt auglýsingar á Facebook fyrir rúmlega 24 milljónir króna undanfarið ár. Auglýsingar á samfélagsmiðlum eru þó aðeins brotabrot af útgjöldum flokkanna til markaðssetningar. Viðskipti innlent 22.9.2021 21:00
Kristrún hafi ákveðið að búa til eigið leikrit Deildar meiningar eru um viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur við umfjöllun Viðskiptablaðsins og Morgunblaðsins um hagnað hennar af kaupréttarauka í samningi hennar hjá Kviku banka. Leikrit segir einn, vitlaust spilað segir annar en gullið tækifæri til að tala til síns hóps segir sá þriðji. Málið var til umræðu í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 21.9.2021 18:48
Fékk kökk í hálsinn yfir „bestu auglýsingunni“: Trúverðugt að Katrín sé komin í þvottahúsið Álitsgjafar Pallborðsins voru á einu máli um ágæti sjónvarpsauglýsingar Vinstri grænna, þar sem daglegt líf frambjóðenda flokksins er í forgrunni við tilfinningaþrungið undirspil íslenskrar tónlistar. Innlent 21.9.2021 17:38
Hölluðust að því að Flokkur fólksins væri sigurvegari kosningabaráttunnar Í Pallborðinu í dag var punktstaðan tekin í kosningabaráttunni, spáð í spilin fyrir næstu daga og um leið litið um öxl og farið yfir frammistöðu hvers flokks fyrir sig hingað til. Innlent 21.9.2021 13:26
Senuþjófar kosningabaráttunnar Nú þegar kosningabaráttan fyrir Alþingiskosningar 2021 fer að nálgast sinn hápunkt er ekki úr vegi að horfa yfir sviðið og reyna að glöggva sig á því hvaða frambjóðandi er sá svarti senuþjófur sem hefur náð að sópa til sín mestu af hinni dýrmætu athygli sem allt snýst um á tímum sem þessum. Þrír einstaklingar teljast ótvíræðir sigurvegarar. En óhætt að segja að þeir hafi farið sitthverja leiðina að því marki. Lífið 18.9.2021 09:42
Fullyrðingar um lægsta verðið úrskurðaðar „ósannaðar og villandi“ Orkan mátti ekki segja að fyrirtækið væri með lægsta verðið eða ódýrasta eldsneytið á höfuðborgarsvæðinu og í öllum landshlutum. Þetta er niðurstaða Neytendastofu sem hefur bannað Orkunni nota fullyrðingarnar í auglýsingum sínum. Neytendur 17.9.2021 14:49
Sérfræðingar fjölluðu um hvað gera ætti þegar krísa skylli á Viðbrögð við krísum á samfélagsmiðlum verða til umræðu í málstofu í Háskólans í Reykjavík í hádeginu í dag. Fundurinn hefst klukkan 12 og stendur til klukkan 13. Viðskipti innlent 16.9.2021 11:30
Slagorðasmiður Framsóknar taldi hið lúmska slagorð falla vel að þeirri heild sem herferðin er Sigtryggur Magnason aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns Framsóknarflokksins er sá sem hitti naglann beint á höfuðið þegar hann mætti á heilaspunafund kosningaráðsins og sló fram „Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“ Innlent 16.9.2021 08:10
Ráðin markaðsstjóri atNorth Bylgja Pálsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri hátæknifyrirtæksins atNorth. Viðskipti innlent 16.9.2021 07:55
Tekur við starfi markaðsstjóra Klappa Hugbúnaðarfyrirtækið Klappir hefur ráðið Láru Sigríði Lýðsdóttur í stöðu markaðsstjóra fyrirtækisins. Viðskipti innlent 9.9.2021 09:34
Segja málningarauglýsingar Múrbúðarinnar ekki villandi eftir kvörtun Húsasmiðjunnar Neytendastofa hyggst ekki grípa til aðgerða eftir kvörtun Húsasmiðjunnar vegna auglýsingar Múrbúðarinnar þar sem verð á málningu sem var til sölu í Múrbúðinni var borið saman við verð á annarri málningu í sölu í Danmörku og hjá Húsasmiðjunni á Íslandi. Neytendur 9.9.2021 07:00
Telur galið að stóru fjölmiðlarnir fái ríkisstyrki Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Vodafone og Stöð 2 segir að sér finnist það galið að fyrirtæki á borð við Sýn og Árvakur, sem reki stóra fjölmiðla, njóti sérstaks ríkisstuðnings. Taka þurfi á fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði og erlendra aðila sem starfi samkvæmt öðrum leikreglum en innlend fyrirtæki á auglýsingamarkaði. Viðskipti innlent 3.9.2021 15:57
Píratar vilja sterkari fjölmiðla Í nýjustu mælingu samtakanna Blaðamanna án landamæra á stöðu fjölmiðlafrelsis í heiminum hafnaði Ísland í 16. sæti. Við sem erum nógu gömul til að muna hversu svekkjandi það var að Gleðibankinn hafnaði bara í sextánda sæti í Eurovision 1986 eigum auðvelt með að setja það sæti í rétt samhengi; alls ekki nógu gott. Skoðun 3.9.2021 11:30
Slíta öll tengsl við þáttinn í kjölfar umdeildra ummæla Domino‘s, Thule og Coca Cola hafa slitið samstarfi sínu við íþróttahlaðvarpið The Mike Show í kjölfar gagnrýni á orðræðu þáttastjórnenda. Varða athugasemdirnar meðal annars ummæli sem stjórnendur létu falla um mál KSÍ og ásakanir á hendur landsliðsmönnum. Innlent 2.9.2021 22:55
Neytendastofa bannar auglýsingu Heimkaupa Auglýsingar Heimkaupa um fría heimsendingu voru villandi þar sem kaupandi þurfti að vera staddur á höfuðborgarsvæðinu og kaupa vörur fyrir lágmarksupphæð. Þetta kemur fram í nýlegri ákvörðun Neytendastofu sem segir Heimkaup hafa brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Neytendur 2.9.2021 16:42
Tóku þátt í herferð um framlínufólk í heimsfaraldri en enduðu í sóttkví Allir sem tóku þátt í myndatöku fyrir nýja herferð Bandalags háskólamanna, Læknafélags Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga enduðu í sóttkví eftir að einn þátttakenda greindist smitaður af kórónuveirunni. Herferðinn fjallar um mikilvægi háskólamenntaðra í heimsfaraldri, fólks sem staðið hefur framlínuvakt á tímum Covid. Innlent 1.9.2021 11:33
Landsbankinn óskar eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ Landsbankinn hefur bæst í hóp þeirra stuðningsaðila Knattspyrnusambands Íslands sem krefjast þess að sambandið geri hreint fyrir sínum dyrum. Forsvarsmenn bankans óskuðu í gær eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ. Innlent 31.8.2021 07:28
Samningar lausir og framhaldið velti á umbótum hjá KSÍ Icelandair fundaði með forsvarsfólki Knattspyrnusambands Íslands í dag um stöðu mála innan sambandsins. Samningar milli Icelandair og KSÍ eru nú lausir en Icelandair segir að sambandið verði að sýna fram á áætlun um umbætur áður en ákvörðun verður tekin um áframhaldandi samstarf. Viðskipti innlent 30.8.2021 17:32
Stuðningsaðili óskar eftir samtali við KSÍ vegna frétta síðustu daga Coca-Cola á Íslandi, CCEP, hefur lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu Knattspyrnusambands Íslands í íslensku samfélagi í kjölfar frétta síðustu daga. Hefur félagið í bréfi óskað eftir samtali við fulltrúa KSÍ um málið. Viðskipti innlent 30.8.2021 13:54
Límdu hakakross á auglýsingu frá Ölgerðinni: „Maður er alveg miður sín“ Ölgerðinni barst í dag tilkynning um að búið væri að líma límmiða, með mynd af hakakrossinum og textanum „Við erum alls staðar“, á auglýsingu fyrirtækisins á Ártúnshöfða. Forstjóri Ölgerðarinnar segist miður sín vegna atviksins. Innlent 27.8.2021 17:48
Tjörvi hættir eftir nítján ár hjá Bændasamtökunum Tjörvi Bjarnason, sviðstjóri útgáfu- og kynningarsviðs Bændasamtakanna, hefur sagt upp störfum eftir nítján ár hjá samtökunum. Hann hefur stýrt rekstri Bændablaðsins í fjölda ára og unnið sem almannatengill fyrir bændur svo fátt eitt sé nefnt. Viðskipti innlent 26.8.2021 18:26
Fyrst svartra kvenna til að bera Tiffany demantinn Beyoncé er fyrst svartra kvenna til að fá að bera hinn víðfræga 128,54 karata Tiffany demant. Tónlistarkonan ber demantinn um hálsinn í nýrri auglýsingaherferð Tiffany & Co skartgripaverslunarinnar, þar sem hún situr fyrir ásamt eiginmanni sínum Jay-Z. Lífið 23.8.2021 16:16
Þórhildur ráðin kynningarfulltrúi BHM Þórhildur Þorkelsdóttir hefur verið ráðin kynningarfulltrúi BHM og hefur þegar tekið til starfa. Viðskipti innlent 19.8.2021 08:23
Ráðinn markaðs- og vörustjóri Kerecis Guðmundur Óskarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri markaðs- og vörustjórnunar hjá Kerecis. Viðskipti innlent 17.8.2021 14:28
Geir í Ósvör óvænt orðinn andlit sardínuframleiðanda Geir Guðmundsson, sem eitt sinn var safnvörður í Ósvör í Bolungarvík, virðist vera orðinn að andliti sardínuframleiðanda í Svíþjóð. Fjölskylda Geirs hafði ekki hugmynd um að mynd af honum væri utan á sænskum sardínudósum, en framleiðandanum virðist hafa þótt vanta skegg á Geir. Lífið 9.8.2021 22:57
Stjörnurnar streyma til Íslands í auglýsingatökur Stór hópur heimsþekktra íþróttamanna er væntanlegur til landsins í lok ágúst í tengslum við tökur á auglýsingaefni fyrir ferðavörufyrirtækið Thule. Lífið 9.8.2021 10:02
Vilja leyfa auglýsingar frá veðmálafyrirtækjum Ítalska knattspyrnusambandið, FIGC, hefur farið fram á það við ítölsk stjórnvöld að leyfa auglýsingar frá veðmálafyrirtækjum innan fótboltans þar í landi. Það geti hjálpað ítölskum félagsliðum að vinna sig út úr fjárhagsvandræðum sem kórónuveirufaraldurinn hafi valdið. Fótbolti 5.8.2021 07:16
Havarti heitir nú Hávarður Mjólkursamsalan hefur ákveðið að breyta nafni ostanna Havarti og Havarti krydd í Hávarð og Hávarð krydd. Ástæðan er samningur Íslands og Evrópusambandsins um vernd á afurðaheitum. Neytendur 4.8.2021 12:44