Innlent

Fréttamynd

Verðmat á Marel lækkað

Greiningardeild Glitnis hefur uppfært verðmat sitt á Marel. Hefur verðmatsgengi verið lækkað úr 79 krónum í 75 krónur á hlut og er virði fyrirtækisins nú metið á 27,4 milljarða króna. Nýja verðmatsgengið er 5,1 prósenti undir gengi á markaði og 1,4 prósentum yfir útboðsgengi í hlutafjárútboði félagsins í september. Ráðleggur greiningardeildin hluthöfum að halda bréfum sínum horft til lengri tíma.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tanganyika tapar

Olíu- og gasleitarfyrirtækið Tanganyika tapaði rúmum fjórum milljónum Bandaríkjadala, eða 290 milljónum króna, á þriðja ársfjórðungi. Tap félagsins nam um 540 milljónum króna fyrir fyrstu níu mánuði ársins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mistök upp á 214 milljónir króna

„Samtals virðist sem útgerðin hafi hagnast um 214 milljónir króna á þremur árum vegna sakleysislegra mistaka starfsmanna sjávarútvegsráðuneytisins," segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, í nýrri grein í tímaritinu Vísbendingu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Við eigum eftir að landa þeim stóra

Baugur tók í síðustu viku við lyklunum í House of Fraser. Fjárfesting þar sem heildarfjármögnunin nam 77 milljörðum króna. Með Baugi í þessari fjárfestingu eru gamlir kunningjar sem eiga það sameiginlegt að hafa selt Baugi rekstur á undanförnum misserum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Munur á afkomu eykst

Munurinn á afkomu sveitarfélaganna fer ört vaxandi. Litlu sveitarfélögin eiga erfiðara með að svara auknum þjónustukröfum og láta enda ná saman.

Innlent
Fréttamynd

Ökumaður á svörtum BMW stakk af

Maður á reiðhjóli var keyrður niður hjá KB banka við Suðurlandsbraut í lok sumars. Hann sakar lögregluna um sinnuleysi sem hafi valdið því að öryggismyndavélar bankans voru ekki skoðaðar. Er óvinnufær og fær engar bætur.

Innlent
Fréttamynd

Ofbeldi Ísraelshers í Palestínu fordæmt

Utanríkisráðherra afhenti í gær sendiherra Ísraels mótmæli vegna árása hers landsins á íbúðahverfi í síðustu viku. Tæknileg mistök segja ísraelsk stjórnvöld. Fjölmenn mótmæli voru fyrir utan utanríkisráðuneytið vegna fundarins.

Innlent
Fréttamynd

Taílensk kona var útilokuð

Búddistafélagið á Íslandi hélt hátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. Taílensk kona, Wasana Maria Thaisomboon, vildi leggja sitt af mörkum og hafði handgert flögg og barmmerki handa börnunum og vildi kynna taílensk-íslensk vinasamtök sem hún vill stofna og orðabók sem hún hefur unnið.

Innlent
Fréttamynd

Starfsmenn RÚV óttast réttindamissi

Starfsmenn Ríkisútvarpsins vilja að útvarpsstjóri skýri hvernig áunnin réttindi þeirra verði varin ef RÚV verður breytt í hlutafélag. Útvarpsstjóri segist ekki hafa umboð til þess. Ætlunin er að tryggja réttindi, segir menntamálaráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Frjálslyndir tóku ekki þátt

Til að koma í veg fyrir myndun félagslega einsleitra borgarhverfa á Reykjavíkurborg að tryggja að hlutfall leiguíbúða á nýbyggingarsvæðum verði minnst 20 prósent og hlutfall félagslegra íbúða ekki hærra en 10 prósent. Borgin á að auka íslenskukennslu í grunnskólum og hvetja innflytjendur til að sækja um störf hjá borginni. Einnig á að reka annað Alþjóðahús í austurhluta borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja skila hrafntinnunni

30 manna hópur listamanna sem kallar sig Hrafntinnuriddarana hefur kært hrafntinnubrottnám úr Hrafntinnuskeri sem nota á til að klæða Þjóðleikhúsið að utan. Hann krefst þess að þeim 50 tonnum sem þegar hafi verið brottnumin verði skilað aftur á sinn stað sem fyrst.

Innlent
Fréttamynd

Segir seinaganginn ótækan

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri gagnrýnir heilbrigðisráðuneytið fyrir seinagang við hönnun, útboð og byggingu nýs hjúkrunarheimilis í borginni. Hann segir að hjúkrunarheimilið í Mörkinni hafi verið í „endalausum viðræðum“ hjá ríki og borg og ekki sé enn búið að bjóða út verkið.

Innlent
Fréttamynd

Aðstoð við sveitir landsins aukin

„Þetta var afar athyglisverð ferð og það var einstaklega ánægjulegt að kynnast starfsemi og verkefnum Þróunarsamvinnustofnunar í Mósambík," segir Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra Íslands í Suður-Afríku, en hún kynnti sér á dögunum starfsemi ÞSSÍ í Mósambík.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn sögð í réttum farvegi

Jón H.B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, segir rannsókn á meintum skattalagabrotum fjölda einstaklinga tengdum Baugi í eðlilegum farvegi. „Skattrannsóknarstjóri kærði árið 2004 ætluð refsiverð skattalagabrot einstaklinga og fyrirtækja er tengdust Baugi til Ríkislögreglustjóra og við höfum þau til rannsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt flugsafn kostar 150 milljónir

Áætlað er að opna nýtt og stærra flugsafn á Akureyri næsta sumar. Flugsafn Íslands áformar að byggja 2.178 fm safnhús undir starfsemi sína og er áætlaður byggingakostnaður 150 milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Aðeins fjórum sinnum logn á ári

Mikið var um dýrðir í Vestmannaeyjum í gær þegar því var fagnað að Stórhöfðaviti er 100 ára. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var meðal veislugesta ásamt þingmönnum kjördæmisins.

Innlent
Fréttamynd

Verðmæt landkynning styrkt

Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kynnti í gær frumvarp til laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Þungaðar konur á heilsugæsluna

Breytt skipulag mæðraverndar gerir ráð fyrir því að heilbrigðar þungaðar konur sæki mæðravernd til nærliggjandi heilsugæslustöðva en konur sem skilgreindar hafa verið með áhættuþætti sækja mæðravernd til LSH þar sem sérhæft eftirlit fer fram.

Innlent
Fréttamynd

Bylting í gerð kvikmynda

Íslensk kvikmyndagerð verður efld með nýju samkomulagi stjórnvalda og kvikmyndagerðarmanna. Áhersla verður á efni fyrir börn og unglinga.

Innlent
Fréttamynd

Níu prósenta hækkun milli ára

Jólagjöfin á Íslandi árið 2006 er ávaxta- og grænmetispressa, en varan er talin njóta vinsælda meðal allra aldurshópa í landinu. Þetta er niðurstaða fjögurra manna dómnefndar, sem skipuð er sérfræðingum á sviði verslunar og þjónustu, sem greint var frá á fundi í húsakynnum Samtaka verslunar og þjónustu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri styrkja Sjónarhól

Fulltrúar bakhjarla Sjónarhóls-ráðgjafamiðstöðvar munu hittast í dag og skrifa undir áframhaldandi samstarf næstu þrjú árin.

Innlent
Fréttamynd

520 tjón á síðustu sex árum

Flest umferðaróhöpp í Reykjavík urðu á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á síðasta ári, að því er fram kemur í skýrslu Sjóvár Forvarnarhúss.

Innlent
Fréttamynd

Morðum mótmælt

„Við erum að mótmæla hernámi og morðum á hertekna svæðinu í Palestínu. Við erum að reyna að koma skilaboðum frá fólki á Vesturlöndum sem er á móti því sem þarna er að gerast," segir Salman Tamimi, formaður Félags múslíma á Íslandi. „Það er kominn tími fyrir Ísland og heiminn allan að segja hingað og ekki lengra og nota allar leiðir til að hjálpa Palestínumönnum til að öðlast sjálfstæði."

Innlent
Fréttamynd

Aðgerðir strax

„Ríki hafa sætt refsiaðgerðum og einangrun fyrir smámuni miðað við það sem Ísrael ber ábyrgð á,“ segir Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður. Hann telur tímabært að ræða hvort slíta eigi stjórnmálasambandi við Ísrael. „Það er ekki síður ástæða til að beita slíkum aðgerðum gegn Ísraelsmönnum en Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunnar.“

Innlent
Fréttamynd

Lögregla leitar að strokufanga

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Ívari Smára Guðmundssyni sem strauk frá fangaflutningsmönnum við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær. Ívar afplánar 20 mánaða dóm vegna fíkniefnamála og er talinn geta verið varasamur. Ívar er 26 ára gamall og 180 sentimetrar á hæð.

Innlent
Fréttamynd

Þurfa að þrífa svínastíurnar

Yfirvöld í menntaskólanum Ion Mincu í Vaslui í Rúmeníu hafa gripið til þess ráðs að láta nemendur sem skrópa í tíma þrífa svínastíur.

Erlent