Innlent

Fréttamynd

Halldór nýr framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar

Ákveðið hefur verið að skipa Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formann Framsóknarflokksins, sem næsta framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar. Geir H. Haarde segir að forsætisráðherrar norrænu ríkjanna hafi sammælst um þetta á fundi sínum í morgun sem var að ljúka.

Innlent
Fréttamynd

Hagnaður Glitnis tæplega tvöfaldaðist

Glitnir banki skilaði 8,8 milljarða króna hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er 1,2 milljarða króna lækkun á milli fjórðunga. Til samanburðar nam hagnaður bankans á sama tíma fyrir ári 4,8 milljörðum króna. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 28,9 milljörðum króna sem er tæp tvöföldun á milli ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Barnaníðingur á ferðinni?

Lögreglan í Reykjavík leitar að manni sem er grunaður um að hafa ætlað að beita átta ára stúlku kynferðislegu ofbeldi á sunnudaginn.

Innlent
Fréttamynd

Kennarar farnir að ókyrrast

Kennarafélag Reykjavíkur er farið að ókyrrast vegna launa kennara og segir launanefnd sveitarfélaga ekki hafa vilja eða skilning til að endurskoða kjarasamninga, þó að efnahagsaðstæður hafi breyst.

Innlent
Fréttamynd

Samstarf við Dani um björgunarmál

Geir H. Haarde forsætisráðherra sat leiðtogafund Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Kaupmannahöfn í gær. Norðurlandaráðsþing verður sett þar í dag. Geir átti einnig tvíhliða fund með gestgjafanum Anders Fogh Rasmussen.

Innlent
Fréttamynd

Misnotaði þroskahefta konu

Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft samfarir við þroskahefta konu á fertugsaldri í september í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

ÍE mátti skoða tölvupóst

Persónuvernd ætlar ekki að taka upp að eigin frumkvæði skoðun ÍE á tölvupósti fyrrverandi starfsmanna. Hjá ÍE gilda þær innanhúsreglur að fyrirtækið áskilur sér rétt til að skoða allan tölvupóst starfsmanna.

Innlent
Fréttamynd

Sarunas segir að Virunas sé saklaus

Aðalmeðferð hófst í gær í máli Sarunasar Budvytis og Virunasar Kavalciukas vegna innflutnings á tólf kílóum af amfetamíni til Íslands. Sarunas segist hafa haldið að efnin væru hestasterar. Hann segir Virunas ekki hafa vitað um efnin.

Innlent
Fréttamynd

Fatlaðir fá aðild að stéttarfélagi

Undirritað verður í dag samkomulag Einingar-Iðju og Akureyrarbæjar um réttindi og kjör þeirra sem starfa hjá Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi. Þetta er fyrsta samkomulag sinnar tegundar sem sveitarfélag gerir við verkalýðsfélag á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Kæra nauðgunartilraun

Hjón leggja fram kærur hjá lögreglunni í Reykjavík í dag vegna nauðgunartilraunar og líkamsárásar aðfaranótt sunnudags. Atburðurinn átti sér stað á veitingastaðnum Viktor í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Öll börn verða slysatryggð

Vátryggingafélag Íslands mun slysatryggja öll börn undir 18 ára aldri sem stunda íþróttir eða aðra skipulagða félagsstarfsemi í Kópavogi.

Innlent
Fréttamynd

Vilja leiðrétt laun kennara

Kennarar við Digranesskóla krefjast þess að Kópavogur og önnur sveitarfélög sem standa að launanefnd sveitarfélaga leiðrétti laun grunnskólakennara með vísan til greinar í gildandi kjarasamningi. Er þar kveðið á um að meta skuli fyrir 1. september 2006 hvort breytingar á skólakerfinu eða almenn efnahags- og kjaraþróun gefi tilefni til viðbragða.

Innlent
Fréttamynd

Velti vöngum yfir fundi Romans Abramovitsj og Ólafs Ragnars

Hagfræðingur hjá greiningardeild Danske bank í Kaupmannahöfn, Lars Christensen, sendi tölvupóst til miðlara í bankanum á föstudag þar sem hann varar við breytingum á gengi krónunnar í kjölfar fréttar Extra bladet um íslenskt viðskiptalíf. Tölvupósturinn var áframsendur til fjölda viðskiptavina Danske bank.

Innlent
Fréttamynd

Öryggi í leigubílum verður aukið

Í undirbúningi eru breytingar á reglugerð, þar sem meðal annars verður tekið á auknum öryggisbúnaði í leigubifreiðum, að sögn Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Viðgerðum næstum lokið

Lagfæringum á vatnsbólum í Borgarfirði eystri, vegna saurgerla sem komust í þau fyrr í haust, er nánast lokið. Búið er að setja upp nýjan lindarbrunn í stað eldri brunna á Engi auk þess sem annar brunnur á Kúahjalla hefur verið endurbættur. Talið er að gerlarnir hafi komist í brunnana vegna þess að yfirborðsvatn komst að vatnsveitukerfi Borgfirðinga, en það á ekki lengur að vera mögulegt þegar endurbótunum er lokið.

Innlent
Fréttamynd

Ekki millifært frá bótaþegum

Tryggingastofnun ríkisins hefur ákveðið að fara eftir ábendingum umboðsmanns Alþingis og fella út af eyðublöðum sínum ákvæði um að bótaþegar heimili stofnuninni að millifæra fé af bankareikningum sínum hafi þeir fengið ofgreitt vegna mistaka.

Innlent
Fréttamynd

Kærð fyrir niðrandi ummæli

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur, sem búsettur er í Kaupmannahöfn, hefur kært Jan Jensen, einn ritstjóra Ekstra Bladet, fyrir að halda því fram að Íslendingar stefni allir sem einn að heimsyfirráðum í blaðinu á sunnudaginn.

Innlent
Fréttamynd

Nefndin mun óska skýringa

"Við munum kalla eftir skýringum á af hverju fjárframlög til Skógræktar ríkisins séu með þessum hætti," segir Birkir Jón Jónsson, formaður fjárlaganefndar. Framlög til stofnunarinnar á næsta ári lækka um tíu milljónir frá 2006 og um 24 milljónir frá 2004, samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem fjárlaganefnd er nú að fara yfir.

Innlent
Fréttamynd

Íhuga að bjóða hlutavistun

Starfsmenn Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur ætla að kanna hvort mögulegt sé að draga úr biðlistum á frístundaheimili með því að bjóða upp á hlutavistun. Þetta kom fram í svari meirihlutans við fyrirspurn minnihlutans á fundi ráðsins á föstudag.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að notkun hjálma verði lögbundin

„Það hefur greinilega ekki gengið að hestamenn noti þann öryggisbúnað sem er nauðsynlegur án þess að um það gildi ákveðin lög og ég tel því spurningu hvort ekki þurfi að setja einhverjar reglur um þessa 25 til 30 þúsund hestamenn líkt og ökumenn þurfa að una,“ sagði Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, á fundi um öryggismál í hestamennsku sem fram fór í liðinni viku.

Innlent
Fréttamynd

Sorpa fær sex metangasbíla

Forstjóri Heklu afhenti Sorpu sex EcoFuel-metangasbíla fyrir helgi. Starfsmenn Sorpu munu nota bílana í ýmislegt snatt. Með bílunum verða metanbílar á götum Reykjavíkur orðnir sextíu talsins. Um 50 sinnum ódýrara er að aka um á metanbílum en bensínbílum og þeir menga margfalt minna.

Innlent
Fréttamynd

Slúðurblöð gefa falska mynd

Pólverjar sem koma skyndilega og óhugsað til Íslands hafa oft verið atvinnulausir lengi í Póllandi. Maria Jolanta Polanska, túlkur í Alþjóðahúsi, segir að þetta fólk hafi ekki mikla skólagöngu að baki, sé frá litlum þorpum og komi hingað í leit að betra lífi.

Innlent
Fréttamynd

Stálu fimmtíu Doka-plötum

Um tvöleytið aðfaranótt mánudagsins barst lögreglunni í Reykjavík tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í Teigahverfi í Mosfellsbæ.

Innlent
Fréttamynd

Sameinast í eitt markaðssvæði

Kaupmannahöfn Ísland og Færeyjar munu verða eitt markaðssvæði um næstu mánaðamót þegar „Hoyvikssamningurinn“ svonefndi gengur í gildi. Þar sem Færeyjar standa utan við tollabandalag Evrópusambandsins en Ísland er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu hafa vissar hindranir verið í vegi fyrir „fjórfrelsinu“ milli frændþjóðanna en í því felst frjáls flutningur á vöru, þjónustu, fjármagni og fólki. Á þessu á nýja samkomulagið, sem gengur í gildi á morgun, að ráða bót.

Innlent
Fréttamynd

Gefur kost á sér í fjórða sætið

Steinunn Þóra Árnadóttir gefur kost á sér í fjórða sæti í sameiginlegu forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrir Suðvestur- og Reykjavíkurkjördæmin.

Innlent
Fréttamynd

Réðst á mann með öxi

Rúmlega tvítugur karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í hálfs árs fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með öxi á bílastæði í Mjódd í apríl síðastliðnum.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæla námi í snyrtiskóla

Félag íslenskra fótaaðgerðafræðinga mótmælir harðlega þeirri fyrirætlan Snyrtiakademíunnar að hefja kennslu í fótaaðgerðafræðum án þess að hafa leyfi yfirvalda. „Snyrtiakademían er snyrtiskóli sem útskrifar iðnaðarmenn. Fótaaðgerðafræði er löggilt heilbrigðisfag,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Innlent
Fréttamynd

Fylgifiskar í flugstöðinni

Verslunin Fylgifiskar mun opna sjávarréttabar í flugstöð Leifs Eiríkssonar í apríl á næsta ári þegar nýtt brottfararsvæði verður opnað. Samningur um opnun barsins var undirritaður fyrir helgi og segir Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Leifsstöðvar, hliðstæða bari mjög vinsæla í flugstöðvum erlendis.

Innlent