Innlent

Fréttamynd

Áfangasigur fyrir mig

Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans og þingmaður Alþýðubandalagsins, telur ógildingu úrskurðar þjóðskjalavarðar vera áfangasigur. Þjóðskjalavörður hafði áður synjað Kjartani um að fá að skoða gögn um símhleranir á árunum 1949 til 1968, líkt og Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur hafði fengið að gera.

Innlent
Fréttamynd

Gerðardómur fjalli um málið

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra hvetur til að skerðingu lífeyrissjóða á lífeyrisgreiðslum til öryrkja verði vísað til gerðardóms.

Innlent
Fréttamynd

FL selur öll bréf sín í Icelandair Group

Þrír fjárfestahópar kaupa helming hlutafjár í Icelandair. Hópur undir forystu Samvinnutrygginga verður stærsti eigandinn. Almenningi býðst að eignast hlutabréf við skráningu í Kauphöll. FL hagnast um 26 milljarða við söluna.

Innlent
Fréttamynd

Samræmdum prófum hætt

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill leggja niður samræmd lokapróf í grunnskólum og hefur lagt fram frumvarp þess efnis. Björgvin segir prófin úrelt og valda meira tjóni en gera gagn.

Innlent
Fréttamynd

Bjartsýnn á lausn málsins

Hilmar Örn Agnarsson, organisti í Skálholti, segir að unnið verði úr sáttatillögunum í Skálholti og Organistafélagið muni meta starfslýsinguna. „Við komum með eitthvað gott á móti,“ segir hann og er bjartsýnn á framhaldið.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfbærar hvalveiðar í lagi

Sjálfbærar hvalveiðar í atvinnuskyni eru réttlætanlegar að mati Roberts Rangeley, framkvæmdastjóra Atlantshafsdeildar umhverfissamtakanna World Wildlife Fund. Að hans mati eru hóflegar veiðar úr hvalastofnum, sem eru í góðu ásigkomulagi, réttlætanlegar. Hann telur þó að fyrir verði að liggja áreiðanleg gögn um ástand þeirra stofna sem menn hyggjast veiða úr.

Innlent
Fréttamynd

Hækkaðar um 200 milljónir

Vaxtabætur hækka samanlagt um 200 milljónir króna á árinu 2006 frá því sem ráðgert var að verja til þeirra samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins. Nema þær því 5,3 milljörðum króna.

Innlent
Fréttamynd

Spítalinn fær aukið fjármagn

Stjórnvöld hafa ákveðið að hækka framlög til Landspítala - háskólasjúkrahúss um 189 milljónir, að sögn Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra. Þar af fara 124,5 milljónir í rekstur spítalans og 65 milljónum verður varið til nýbyggingar barna- og unglingageðdeildar LSH.

Innlent
Fréttamynd

Seðlabankanum eignuð lóðin

„Segir Fasteignamatið að við eigum lóðina?“ segir Þórður Gautason hjá Seðlabanka Íslands sem ranglega hefur verið skráður eigandi að lóðinni undir húsinu á Fríkirkjuvegi 11 er Reykjavíkurborg ætlar nú að selja.

Innlent
Fréttamynd

Tveir lögreglumenn hljótavaranlega örorku ár hvert

Tveir lögreglumenn á ári að meðaltali hljóta varanlega örorku eftir að hafa slasast í starfi. Alls fá tíu til tólf lögreglumenn bætur úr ríkissjóði árlega vegna meiðsla sem þeir verða fyrir við störf sín.

Innlent
Fréttamynd

Gæta ekki að öryggi barna

Varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli segir að svo virðist sem ökumenn séu orðnir kærulausari en áður. Hann segir að undanfarna daga hafi margir verið stöðvaðir í umdæminu fyrir að hafa ekki beltin spennt. Brýnt sé að minna fólk á mikilvægi þess og þá einkum að það spenni börn sín í belti.

Innlent
Fréttamynd

Trufla stemningu Hótel Norðurljósa

Vinnugáma sem settir hafa verið upp vegna vinnu við Orkuver 6 í Svartsengi verður að flytja annað vegna þess að þeir hafa óheppileg áhrif á rekstur hótelsins Northern Light Inn - Hótels Norðurljósa. Féllst skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkurbæjar á það með forsvarsmönnum hótelsins að flytja þurfi gámana frá lóðamörkum og úr sjónlínu við hótelið.

Innlent
Fréttamynd

Gefur kost á sér í sjötta sætið

Steinunn Guðnadóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, gefur kost á sér í 6. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.

Innlent
Fréttamynd

Sérsveitin æfði með áhöfn USS WASP

Sérsveit ríkislögreglustjóra æfði í gær með áhöfn bandaríska herskipsins USS Wasp. Þyrla Bandaríkjahers flutti sérsveitina, ásamt sprengjusérfræðingum, til og frá æfingasvæði í Hvalfirði. Gekk vel, sagði aðstoðaryfirlögregluþjónn.

Innlent
Fréttamynd

Tekjurnar hækka um 62 milljónir

Gjöld skattgreiðenda í Framkvæmdasjóð aldraðra hækka um 239 krónur á næsta ári, úr 6.075 í 6.314 krónur. Er hækkunin í samræmi við hækkun byggingavísitölunnar.

Innlent
Fréttamynd

Neysluviðmið fyrir Ísland

Opinber viðmið um áætlaðan framfærslukostnað heimila hafa verið tekin upp víða erlendis, til dæmis á Norðurlöndunum, Bandaríkjunum og víðar. Starfshópur á vegum viðskiptaráðuneytisins, sem athugaði kosti og galla þess að semja neysluviðmið fyrir Ísland, segir það vel framkvæmanlegt hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Stormur áfram við festar

Hafnarstjórn Kópavogs hefur hafnað kröfum listakonunnar Rebekku Ránar Samper um að fiskibáturinn Stormur SH-333 verði fjarlægður strax af þeim stað þar sem báturinn liggur við festar utan við Kópavogshöfn.

Innlent
Fréttamynd

Flug til Vestmannaeyja hafið að nýju

Fjölmargir mættu til þess að vera viðstaddir athöfn sem fram fór í flugstöðinni á Vestmannaeyjaflugvelli í tilefni þess að Flugfélag Íslands hóf áætlunarflug þangað í gær. Við athöfnina tóku fulltrúar í bæjarstjórn Vestmannaeyja á móti forsvarsmönnum FÍ.

Innlent
Fréttamynd

Fangar hóta hungurverkfalli

Vistmenn í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg hafa hótað því að fara í hungurverkfall ef ekki verði komið til móts við kröfur þeirra um betra fæði og umbætur á vistarverum þeirra. Þeir hafa gefið yfirvöldum frest fram á föstudag til að verða við óskum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Kári Þorleifsson fundinn.

Lögreglan í Reykjavík lýsti í kvöld eftir Kára Þorleifssyni. Kári er með Downs heilkenni og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu talar hann lítið sem ekkert og ratar lítið. Síðast var vitað um ferðir hans í Austurstræti í Reykjavík. Það var svo á tólfta tímanum í kvöld sem Kári fannst, heill á húfi, á gangi í Kópavoginum.

Innlent
Fréttamynd

Hátæknifyrirtæki skoða Ísland

Fulltrúar frá stórfyrirtækinu Dow Corning og dótturfélagi þess, Hemlock Semiconductor Corporation, heimsóttu Ísland í síðustu viku til að kanna kosti þess að reisa stóra verksmiðju í hátækniiðnaði hér á landi. Þykir Grundartangi ákjósanlegasti staðurinn, en um tíma var einnig rætt um Eyjafjörð og Þorlákshöfn. Virðast þeir staðsetningarkostir út úr myndinni að því er fram kemur á vefsíðunni Hvalfjörður.is.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla lýsir eftir Kára Þorleifssyni

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Kára Þorleifssyni. Kári er 23 ára, um 165 cm á hæð, klæddur í gráa úlpu, svartar joggingbuxur og svarta skó. Hann er skolhærður með stuttklippt hár. Kári er með Downs heilkenni, talar lítið sem ekkert og ratar lítið. Síðast var vitað um ferðir hans í Austurstræti í Reykjavík fyrir um klukkustund.

Innlent
Fréttamynd

Nýr diskur og nýr samningur

Bubbi Morthens gaf út nýjan geisladisk og mynddisk í dag og við sama tækifæri undirritaði hann tímamótasamning við Senu um útgáfu verka sinna. Samningurinn tryggir fyrirtækinu útgáfurétt á allri tónlist Bubba fyrr og nú.

Innlent
Fréttamynd

Allt hlutafé FL Group í Icelandair selt

FL Group hefur selt allt sitt hlutafé í Icelandair. Forstjóri félagsins segir mikla vaxtarmöguleika í flugi og ferðaþjónustu og áætlar að starfsfólki verði fjölgað en ekki fækkað með nýjum eigendum.

Innlent