Innlent

Fréttamynd

Snyrta hár án réttinda í heimahúsum

Hluti þeirra sem ekki klára hárgreiðslunám starfar við fagið án þess að hafa tilskilin réttindi. Talið er að hluti þessara kvenna sé jafnframt á atvinnuleysisbótum. Svört atvinnustarfsemi á Íslandi veltir milljörðum.

Innlent
Fréttamynd

Magna fagnað í Smáralind

Aðsóknarmet var slegið í Smáralind í gær þegar átta þúsund manns komu þar saman til að bjóða Magna Ásgeirsson velkominn heim frá Los Angeles þar sem hann var landi og þjóð til sóma í raunveruleikaþættinum Rockstar Supernova. Magni klökknaði þegar hann sá

Innlent
Fréttamynd

Lagði milljarða í eigin fjárfestingar

Magnús Kristinsson, sem átt hefur í deilum við Björgólf Thor Björnsson í stjórn Straums-Burðaráss, gerir upp við Björgólf í blaðagrein í Morgunblaðinu í gær. Þar segir hann meðal annars að grunnurinn að illdeilum þeirra hafi verið þegar Björgólfur vildi nota Straum-Burðarás til að leggja tugi milljarða í eigin fjárfestingarverkefni.

Innlent
Fréttamynd

Stemmir stigu við ofbeldi

Það er mikilvægt að þeir sem starfa með börnum og unglingum séu meðvitaðir um ábyrgð sína og skyldur og geti lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi eigi sér stað, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Borgarbúar hvattir til að leggja bílnum

Hjólreiðamenn sýndu listir sínar á hjóladeginum síðastliðinn laugardag. Vegleg dagskrá var haldin þar sem skipulagðar hjólalestir fóru um borgina þvera og endilanga, auk sérstakrar götuhjólreiðakeppni, og ofurhugar sýndu listir sínar í Hljómskálagarðinum þar sem dagskránni lauk.

Innlent
Fréttamynd

Jónsi fallegastur en Bubbi galar hæst

Árleg sýning eigenda- og ræktendafélags landnámshænsna var haldin á Hrafnagili í ágúst. Alls voru sýndir um sjötíu fuglar. Um sjö hundruð manns tóku þátt í vali á fallegustu fuglunum og voru úrslit þau að Grána þótti fallegasta hænan en Jónsi í svörtum fötum fallegasti haninn.

Innlent
Fréttamynd

Torfæruhjólastóll í notkun

Heilbrigðisstofun Suðurlands fékk fyrir skömmu torfæruhjólastól. Stóllinn hentar vel á svæðum sem hefðbundnir hjólastólar komast illa yfir. Hægt er að setja skíði undir framhjólin sem gerir hreyfihömluðum kleift að komast leiðar sinna í snjó.

Innlent
Fréttamynd

Pósthús rís á Reyðarfirði

Nýtt pósthús mun rísa á Reyðarfirði næsta sumar ef áætlanir um byggingu þess ganga eftir. Skóflustunga að húsinu var tekin á dögunum. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, kynnti við tækifærið tillögur um byggingu nýrra pósthúsa á tíu stöðum á landinu.

Innlent
Fréttamynd

Bæjarstjóra vel fagnað

Nýr bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Helga Jónsdóttir, var boðinn velkominn til starfa á hátíð í Fjarðabyggð á laugardag. Mikið var um dýrðir á hátíðinni sem haldin var vegna sameiningar Austurbyggðar, Fáskrúðsfjarðarhrepps og Mjóafjarðahrepps, við Fjarðabyggð.

Innlent
Fréttamynd

Yfirbyggingin tilbúin

Lokið hefur verið við yfirbyggingu á brúnni yfir Vestulandsveg. Brúarsmíðin hefur staðið yfir frá því í maí á þessu ári. Yfirbyggingin á brúnni var steypt á þriðja tímanum aðfaranótt laugardags, en um þrjátíu manns voru kallaðir út til verksins og lauk því upp úr hádegi á laugardegi.

Innlent
Fréttamynd

Bregðast þarf við manneklu

Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að engar raunhæfar áætlanir séu fyrirliggjandi til að bregðast við manneklu á leikskólum og frístundaheimilum í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Einokun á lénsskráningunni .is

Skráning léna með endinguna .is er í höndum einkaaðila á Íslandi, ólíkt flestum öðrum löndum. Internet á Íslandi hf., sem er í eigu Dagsbrúnar, hefur einkaleyfi á því að skrá lén sem hafa .is endinguna. Kostnaður við að skrá lén er mun hærri hér en í löndunum í kringum okkur.

Innlent
Fréttamynd

Eins og blaut tuska framan í organista

Formaður Organistafélagsins segir fréttir um uppsögn organistans í Skálholti vera áfall fyrir stéttina. Vígslubiskupinn í Skálholti segir skipulagsbreytingar boðaðar í samráði við sóknarnefndir. Því neitar formaður Skálholtssóknar.

Innlent
Fréttamynd

Bandarískt spínat innkallað

Sala á fersku spínati frá Bandaríkjunum hefur verið stöðvuð í verslunum Hagkaupa vegna hugsanlegrar bakteríusýkingar. Þetta er spínat frá merkjunum „Hollt og Gott“ og „Earthbound Farms“.

Innlent
Fréttamynd

Mataræði og hreyfingu breytt

Rannsókn á lífsstíl sjö til níu ára grunnskólabarna hefst í haust og stendur fram til 2008. Tilgangurinn er að kanna hvort fræðsla, aukin hreyfing og bætt mataræði hafi áhrif á líkams­ástand­ og vellíðan barnanna.

Innlent
Fréttamynd

Þorskkvóti skertur um 15%

Danir eru óánægðir með þá ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að skerða þorskkvótann í Eystrasalti öllu um 15 prósent á næsta ári vegna veiða umfram kvóta á svæðinu undanfarin ár. Bent hefur verið á að ofveiðin sé aðeins í austurhluta Eystrasalt og ástand stofnsins sé ágætt í vesturhlutanum.

Innlent
Fréttamynd

Fjárfestir fyrir 8 milljónir evra

Eimskip hefur gengið frá kaupum á 30 prósenta hlut í litháíska flutningafyrirtækinu Kursiu Linija. Þessi hluti kemur til viðbótar 70 prósent hlut sem Eimskip eignaðist fyrr á árinu og hefur félagið því eignast Kursiu Linija að fullu.

Innlent
Fréttamynd

Félagsmönnum fjölgar ört

Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness hafa aldrei verið jafn margir og nú. Í árslok 2004 voru félagar um 1.800 talsins og hafði fjölgað um tæp tvö hundruð á einu ári. Í árslok í fyrra voru þeir tæplega nítján hundruð og hafði þeim fjölgað um rúmlega sjötíu á árinu.

Innlent
Fréttamynd

Kaupa franska ferðaskrifstofu

Dótturfélag Avion Group, XL Leisure Group, hefur fest kaup á öllu hlutafé frönsku ferðaskrifstofunnar Vacances Heliades. Kaupverðið er tæplega 700 milljónir. Heliades flýgur frá Frakklandi til átta mismunandi áfangastaða í Grikklandi og víðar.

Innlent
Fréttamynd

Horfnar á vit eigenda sinna

Ljósmyndasýningin Reykjavíkurmyndir, sem prýtt hefur miðbæinn í sumar, var tekin niður í gær. Ljósmyndirnar, rúmlega 60 talsins, voru seldar á uppboði á menningarnótt og hafa eigendurnir nú fengið þær í hendur.

Innlent
Fréttamynd

Færri reykja í návist barna

Dregið hefur verulega úr reykingum í návist barna og foreldrar virða rétt barna sinna á reyklausu umhverfi. Þetta er niðurstaða rannsóknar Jakobínu Árnadóttur, verkefnisstjóra tóbaksvarna á Lýðheilsustöð.

Innlent
Fréttamynd

Geta fengið yfir milljón í styrk

Félagsmálaráð Akureyrar hefur ákveðið að styrkja hjúkrunarfræðinema við Háskólann á Akureyri sem áhuga hafa á að sérhæfa sig í hjúkrun aldraðra.

Innlent
Fréttamynd

Jón Gunnarsson sækist eftir 1. sæti

Jón Gunnarsson alþingismaður hefur ákveðið að sækjast eftir því að leiða framboðslista í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi vegna kosninga til Alþingis í vor.

Innlent
Fréttamynd

Reykur í stjórnklefa flugvélar Icelandair

Lenda þurfti Boeing 767 þotu Icelandair á eyju í Karabíska hafinu í kvöld vegna alvarlegs flugatviks. Flugvélin var í leiguflugi á leið frá Madríd til Caraccas þegar þegar mikill reykur gaus upp í stjórnklefa flugvélarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Margrét Frímannsdóttir hættir í stjórnmálum

Margrét Frímannsdóttir, þingmaður og formaður þingflokks Samfylkingarinnar, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu í Alþingiskosningunum á næsta ári. Þetta tilkynnti hún á aðalfundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem haldinn var í Þorlákshöfn í dag.

Innlent
Fréttamynd

Skreytir sig með stolnum fjöðrum

Gudrun Schyman forystukona sænska kvennaframboðsins fer með fleipur þegar hún fullyrðir að framboð þeirra sé fyrsta feminíska kvennaframboðið í heiminum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ein af frumkvöðlum íslenska kvennaframboðsins, segir að Gudrun viti betur, enda hafi hún komið hingað til lands fyrir tveimur árum og kynnst frumkvöðlastarfi íslenskra kvennalistakvenna.

Innlent
Fréttamynd

Margrét að hætta í pólítík?

Talið er að Margrét Frímannsdóttir formaður þingflokks Samfylkingarinnar tilkynni á kjördæmaráðsfundi Samfylkingarinnar í dag að hún hætti í pólitík.

Innlent
Fréttamynd

Grænlenski togarinn kominn til hafnar

Varðskipið Ægir kom með grænlenska togarann Kingigtok til Reykjavíkur á sjötta tímanum í morgun. Togarinn varð vélavana um fjögurhundruð sjómílur suðvestur af Reykjanesi í fyrrinótt.

Innlent
Fréttamynd

Mikil stemming á Nick Cave

Mikil stemning var á tónleikum Nick Cave í Laugardalshöll í gærkvöldi. Nick Cave hefur verið vinsæll meðal Íslendinga í langan tíma enda var uppselt á tónleikana fyrir löngu síðan.

Innlent