Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
126 127 128 129 130 131 132 133 134 … 334 ›
Dvalargestur sóttkvíarhótels í annarlegu ástandi hafði í hótunum við annan gest Lögregla var kölluð á vettvang snemma í gærkvöldi vegna dvalargests á sóttkvíarhóteli í póstnúmerinu 105. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var til vandræða; hafði meðal annars haft í hótunum við annan gest. Þá er hann grunaður um eignaspjöll. Innlent 4.5.2021 06:13
Bandaríkjamenn í þann mund að leyfa bólusetningar á börnum Gera má ráð fyrir að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) veiti leyfi fyrir notkun bóluefnis Pfizer og BioNTech fyrir börn á aldrinum 12-15 ára í þessari viku eða næstu. New York Times hefur þetta eftir heimildarmönnum innan bandaríska stjórnkerfisins. Erlent 3.5.2021 23:00
10.000 boðaðir aukalega í vikunni 10.000 fleiri verða bólusettir með AstraZeneca þessa vikuna en til stóð. Leik- og grunnskólakennarar verða bólusettir með Jansen og nú er fólk boðað í bólusetningu út frá lyfjasögu. Innlent 3.5.2021 19:00
Prófum læknanema frestað vegna faraldursins Prófum læknanema á Indlandi hefur verið frestað svo þeir geti tekið þátt í baráttunni við Covid-19 þar í landi. Heilbrigðiskerfi Indlands ræður ekki við faraldurinn en er mikill skortur á sjúkrarúmum og súrefni. Erlent 3.5.2021 18:09
Ráðherra gagnrýnir óvægna og ósanngjarna umræðu í garð Pólverja Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að ekki verði liðið að fólki sé mismunað hér á landi á grundvelli aukinnar smithættu frá tilteknum löndum eins og Póllandi. Innlent 3.5.2021 17:48
Fyrstu skammtar Novavax verða afhentir Evrópusambandinu fyrir árslok Lyfjaframleiðandinn Novavax hefur tilkynnt Evrópusambandinu að fyrstu skammtar covid-19 bóluefnis framleiðandans verði afhentir sambandinu fyrir lok þessa árs. Þetta gæti orðið til þess að Evrópusambandið geri formlega samning við fyrirtækið um kaup á bóluefni, jafnvel í þessari viku. Erlent 3.5.2021 15:00
Októberhátíðinni í München aftur slaufað Yfirvöld í Bæjaralandi í Þýskalandi hafa ákveðið að aflýsa Oktoberfest í München, Októberhátíðinni, vegna faraldurs kórónuveirunnar, annað árið í röð. Erlent 3.5.2021 14:11
Kínverjar framleiða bóluefni fyrir Rússland Rússland hefur gert samninga við þrjá kínverska lyfjaframleiðendur um framleiðslu á bóluefninu Sputnik V en framleiðendur í Rússlandi hafa ekki í við eftirspurn eftir efninu. Samningar hafa verið gerðir við kínversk fyrirtæki um framleiðslu á 260 milljón skömmtum af bóluefninu. Erlent 3.5.2021 13:29
Danir hætta notkun á bóluefni Janssen Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hætta notkun á bóluefni Johnson & Johnson, Janssen, gegn kórónuveirunni. Erlent 3.5.2021 13:26
Modi tapaði lykilríki þrátt fyrir umdeilda kosningabaráttu Flokkur Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, tapaði ríkisþingskosningum í Vestur-Bengal þrátt fyrir að hann hefði lagt ofurkapp á það í kosningabaráttunni. Modi var jafnvel sakaður um að láta kosningarnar sig meiru varða en kórónuveirufaraldurinn sem geisar nú stjórnlaust víða um landið. Erlent 3.5.2021 10:57
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví við greiningu. Innlent 3.5.2021 10:48
Eiga yfir höfði sér fimm ára fangelsi fyrir að snúa heim frá Indlandi Yfirvöld í Ástralíu hafa boðað algert bann við ferðum frá Indlandi til Ástralíu frá og með deginum í dag. Allir Ástralar sem hyggjast ferðast heim frá Indlandi geta átt yfir höfði sér háar fjársektir og allt að fimm ár í fangelsi. Gagnrýnendur segja ferðabannið rasískt og mannréttindabrot. Erlent 3.5.2021 09:59
UNICEF frumsýnir fræðslumynd um bólusetningar Saga bólusetninga er rakin á barnvænlegan hátt og mikilvægi bólusetninga skoðuð frá ýmsum hliðum í nýrri fræðslumynd UNICEF. Heimsmarkmiðin 3.5.2021 09:24
Um 30 prósent jarðarbúa neikvæð gagnvart bólusetningu árið 2020 Samkvæmt niðurstöðum nýrrar Gallup-könnunar segjast 68 prósent jarðarbúa munu þiggja bólusetningu vegna Covid-19 ef hún býðst ókeypis en 29 prósent segjast ekki munu láta bólusetja sig. Þrjú prósent eru óákveðin. Erlent 3.5.2021 09:08
Segir útlitið gott en minnir á að veiran þarna enn Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir helgina hafa verið nokkuð góða varðandi fjölda smitaðra hér á landi. Enn eigi eftir að gera helgina betur upp, fínpússa og skoða betur þessar tölur. Innlent 3.5.2021 08:41
Breskir læknar að bugast undan álaginu og margir íhuga að hætta Þúsundir breskra lækna íhuga að láta af störfum í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Helstu ástæðurnar eru gríðarlegt álag og áhyggjur af andlegu heilbrigði. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar á vegum Bresku læknasamtakanna (BMA). Erlent 3.5.2021 08:32
Sex þúsund einstaklingar fullbólusettir með bóluefninu frá Janssen Framundan er önnur stór vika í bólusetningum gegn Covid-19 og verður bólusett með þremur bóluefnum; frá Pfizer, Janssen og Moderna. Innlent 3.5.2021 07:22
„Ég held að þau hljóti að hafa verið að reykja eitthvað mjög sterkt“ Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, líst nokkuð vel á stöðu faraldursins hér á landi þrátt fyrir að borið hafi á hópsmitum undanfarnar vikur. Hann er þó ósáttur við fyrirhugaðar breytingar á landamæratakmörkunum og vonar að ríkisstjórnin sjái villu síns vegar. Innlent 3.5.2021 07:01
Eðlilegar skýringar á því að margir hafi fengið ótímabæra boðun í bólusetningu Borið hefur á því að fólk undir fimmtugsaldri sem kannast ekki við að tilheyra áhættuhópum hafi verið boðað óvænt í bólusetningu gegn Covid-19 á næstu dögum. Innlent 2.5.2021 23:00
Telja Ísland öruggasta áfangastaðinn í heimsfaraldri Hundrað og þrjátíu ferðamenn frá Bandaríkjunum, langflestir bólusettir, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Þeir hafa sumir beðið í rúmt ár eftir Íslandsferðinni og eru sammála um að landið sé öruggur áfangastaður í heimsfaraldri. Innlent 2.5.2021 20:01
Þórólfur búinn að skila Svandísi nýju minnisblaði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra minnisblaði um sóttvarnaaðgerðir innanlands. Núverandi reglugerð gildir til miðnættis á miðvikudag. Innlent 2.5.2021 18:28
„Ef verðbólga fer vaxandi í Bandaríkjunum þá fara vextir í heiminum upp“ Gylfi Zoega hagfræðiprófessor segir að þróun efnahagsmála í Bandaríkjunum muni hafa gríðarleg áhrif á alþjóðahagkerfið í kjölfar heimsfaraldursins. Hann segir launahækkanir hér á landi hafa neikvæð áhrif á samkeppnisgreinar eins og ferðaþjónustu. Innlent 2.5.2021 15:08
Gætu þurft að halda í þekktar reglur þrátt fyrir afléttingu takmarkana Ekki er útilokað að fjarlægðartakmörk og grímunotkun verði enn í gildi sumsstaðar í Bretlandi þrátt fyrir að nær öllum takmörkunum verði aflétt innanlands. Utanríkisráðherra Bretlands segir engar ákvarðanir liggja fyrir í þessum efnum, en samkvæmt áætlun stjórnvalda er stefnt að allsherjar afléttingu þann 21. júní. Erlent 2.5.2021 14:40
Bólusettu túristarnir eru lentir Flugvél full af bólusettum ferðamönnum frá Bandaríkjunum lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun. Koma flugvélarinnar markar upphaf ferðamannasumarsins á Íslandi, að mati framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Innlent 2.5.2021 12:33
Hótel Klettur nýtt sóttkvíarhótel frá og með deginum í dag Í dag opnar Rauði krossinn nýtt sóttkvíarhótel á Hótel Kletti við Mjölnisholt í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum en hótelið er það þriðja í Reykjavík sem notað verður í þessum tilgangi og það fjórða á landinu öllu. Innlent 2.5.2021 11:52
Aldrei fleiri dauðsföll á einum degi Alls létust 3.689 manns úr kórónuveirunni á Indlandi í gær. Er þetta mesti fjöldi sem hefur látist í landinu á einum degi frá því að faraldurinn hófst og fundaði forsætisráðherra landsins með heilbrigðisráðherranum í morgun til að fara yfir stöðu mála. Erlent 2.5.2021 11:14
Þrír greindust innanlands og allir í sóttkví Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru þeir allir í sóttkví. Enginn greindist með veiruna á landamærum samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Innlent 2.5.2021 10:07
Vonast til að setja nýtt lyf við Covid-19 á markað fyrir lok árs Albert Bourla, forstjóri lyfjafyrirtækisins Pfizer, er bjartsýnn á að nýtt lyf við kórónuveirunni sem veldur Covid-19 sjúkdómnum verði komið á markað fyrir lok ársins. Lyfið, sem enn er á tilraunastigi, er í töfluformi og yrði notað þegar fyrstu einkenni gera vart við sig. Erlent 2.5.2021 09:09
Bæta við þriðja sóttkvíarhótelinu á morgun þar sem hin eru að fyllast Gert er ráð fyrir að nýtt sóttkvíarhótel verði tekið í notkun á höfuðborgarsvæðinu á morgun, til viðbótar við þau tvö sem fyrir eru. Að óbreyttu er útlit fyrir að þau hótel sem þegar eru í notkun fyllist á morgun eða hinn í ljósi þess að von er á þremur áætlunarferðum frá skilgreindum áhættusvæðum til landsins í dag og öðrum þremur á morgun. Innlent 1.5.2021 16:51
Hvetja Breta til að sýna biðlund Vísindalegur ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar segir landsmenn þurfa að vera þolinmóða í aðdraganda næstu tilslakana þar sem enn eigi eftir að bólusetja töluverðan fjölda. Þrátt fyrir góðan gang í bólusetningum er ekki útilokað að ný bylgja geti farið af stað. Erlent 1.5.2021 14:49