Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
181 182 183 184 185 186 187 188 189 … 334 ›
Vongóður að líkamsræktarstöðvar fái bráðlega að opna: „Þetta er bara tóm helvítis þvæla“ „Við erum að heyra nákvæmlega sama ruglið, aftur og aftur. Það eigi að fara varlega í tilslakanir og annað slíkt. Það er eins og stjórnvöld og sóttvarnayfirvöld beri enga virðingu fyrir fyrirtækjum eða fólkinu í landinu. Við erum algjörlega í þoku með það hvort við megum starfa eða ekki,“ segir Björn Leifsson, eigandi World Class. Viðskipti innlent 7.1.2021 18:01
74 nemendur í Hveragerði í sóttkví eftir smit í skólanum Alls eru 74 nemendur og átta starfsmenn Grunnskólans í Hveragerði nú komnir í sóttkví eftir að kennari við skólann greindist með Covid-19 í gær. Innlent 7.1.2021 12:29
Óvíst hvort keppnisbanni verði aflétt Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vildi ekki gefa upp hvort banni á keppnisíþróttir yrði aflétt þegar nýjar sóttvarnareglur taka gildi í næstu viku. Sport 7.1.2021 12:10
Leggur aftur til að afnema sóttkvíarmöguleikann og skikka alla í tvöfalda skimun Sóttvarnalæknir hefur lagt til við stjórnvöld að allir sem koma til landsins verði skyldaðir í tvöfalda skimun fyrir kórónuveirunni. Þá er einnig til skoðunar að þeir sem greinast með hið svokallaða breska afbrigði veirunnar fari í farsóttarhús þar sem hægt er að fylgjast vel með þeim. Innlent 7.1.2021 11:46
Vonandi ekki vísbending um að faraldurinn sé á uppleið Sóttvarnalæknir vonar að fjöldi nýsmitaðra í gær sé ekki vísbending um að faraldurinn sé á uppleið. Tillögur sóttvarnalæknis um veirutakmarkanir sem taka gildi í næstu viku eru í vinnslu. Innlent 7.1.2021 11:30
Ellefu greindust innanlands Ellefu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fjórir ekki. Ekki hafa svo margir greinst innanlands á sama degi síðan 22. desember, þegar tólf greindust. Innlent 7.1.2021 10:49
Líklegast að kórónuveiran þróist í vægari gerð sem smitast betur Erfðafræðingur telur líklegast að SARS-CoV-2, veiran sem veldur Covid-19, muni þróast í átt að vægari gerð sem smitist greiðar en núverandi afbrigði. Slíkar gerðir nái að sýkja fleiri einstaklinga og mögulega smjúga í gegnum sóttvarnir sem virkuðu á upprunaleg afbrigði. Samhæft bólusetningarátak sé lykilatriði til að útrýma veirunni. Innlent 7.1.2021 10:46
Svona var 151. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Innlent 7.1.2021 10:30
Sænska liðið í sóttkví þegar vika er í fyrsta leik á HM Allir leikmenn sænska karlalandsliðsins í handbolta eru komnir í sóttkví og liðið má ekki æfa saman fyrr en á mánudaginn. Fyrsti leikur Svía á HM í Egyptalandi er eftir viku. Handbolti 7.1.2021 09:30
Nýtt Covid-greiningartæki verði loks klárt í febrúar Nýtt greiningartæki Landspítala, sem á meðal annars að nýtast við greiningar á Covid-19, hefur enn ekki verið tekið í notkun. Tækið var keypt síðasta sumar og stóðu þá vonir til að það yrði tekið í gagnið í nóvember, en nú standa hins vegar vonir til að það verði í febrúar. Innlent 7.1.2021 07:36
Óttast að heilbrigðisstarfsfólk þurfi að velja hverjir fái læknisaðstoð Rúmlega þrjátíu þúsund liggja nú á sjúkrahúsi í Bretlandi með Covid-19 en fjöldinn hefur aldrei verið meiri. Þegar mest var í fyrstu bylgju faraldursins lágu tæplega 22 þúsund inni. Erlent 6.1.2021 18:45
Kalla eftir skýrari svörum: Óvissa ofan á alla aðra óvissu Yfir þrjátíu þúsund manns sem eru sjötíu ára og eldri verða bólusettir næst þar sem sóttvarnalæknir hefur breytt forgangsröðun í bólusetningu. Ungur maður með taugahrörnunarsjúkdóm segir vanta betri skilgreiningu á áhættuhópum enda mikilvægt að eyða óvissu hjá fólki sem hefur verið lengi í einangrun. Innlent 6.1.2021 18:31
Farþegafjöldi tvöfaldaðist milli mánaða en 95 prósent samdráttur milli ára Fjöldi farþega sem ferðuðust með Icelandair tvöfaldaðist milli mánaða í desember. Fjölgunin endurspeglast í flutningatölum Icelandair Group fyrir desembermánuð sem birtar voru í Kauphöll í dag að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Þrátt fyrir þetta nam heildarfjöldi farþega í millilandaflugi um 14.500 í desember sem jafngildir 95 prósenta samdrætti milli ára. Viðskipti innlent 6.1.2021 17:54
Átta Tékkar smitaðir til Færeyja viku fyrir HM Leik Færeyja og Tékklands í undankeppni EM í handbolta karla var frestað í dag eftir að átta manns úr leikmannahópi og starfsliði Tékklands reyndust smitaðir af kórónuveirunni við komuna til Færeyja. Handbolti 6.1.2021 17:46
Bóluefni Moderna veitt íslenskt markaðsleyfi Lyfjastofnun veitti bóluefni Moderna skilyrt íslenskt markaðsleyfi síðdegis í dag. Innlent 6.1.2021 17:01
Öll nema eitt á heimleið frá Póllandi Öll sem greindust með veiruna á landamærum í dag eru búsett á Íslandi og voru öll nema eitt á heimleið frá Póllandi. Yfirmaður smitrakningateymis almannavarna segir þessar sveiflur á landamærum viðbúnar þegar fólk snýr heim til Íslands eftir hátíðarnar. Innlent 6.1.2021 16:48
Mæla ekki með bólusetningu barna í áhættuhópum að svo stöddu Barnalæknar mæla ekki með því að börn í áhættuhópum verði bólusett gegn kórónuveirunni að svo stöddu. Þó gæti komið til greina að bólusetja börn í áhættuhópum í undantekningartilfellum, sérstaklega þegar reynsla er komin á bóluefnið. Innlent 6.1.2021 16:04
Kom á óvart að vera boðaður í bólusetningu Á þriðja hundrað einstaklinga hafa verið bólusettir við Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu sem tilheyra ekki hópi heilbrigðisstarfsmanna eða íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Innlent 6.1.2021 15:52
Fyrstu smitin á Norðurlandi eystra í tæpan mánuð Tveir eru nú með virka kórónuveirusýkingu á Norðurlandi eystra en fjórðungurinn hefur verið veirulaus síðan 12. desember. Þeir smituðu greindust við landamæraskimun, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 6.1.2021 15:24
Yfirmaður almannavarna í Svíþjóð hættir eftir ferðina til Kanarí Dan Eliasson, yfirmaður Almannavarnastofnunar Svíþjóðar, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Eliasson hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir ferð sem hann fór í um jólin til Las Palmas. Erlent 6.1.2021 14:56
Grammy-verðlaunahátíðinni frestað fram í mars Grammy-verðlaunahátíðinni hefur verið frestað fram í mars vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Hátíðin átti upphaflega að fara fram síðasta dag janúarmánaðar. Lífið 6.1.2021 14:19
Guðbjörg fékk veiruna og finnur enn enga lykt Guðbjörg Gunnarsdóttir þarf ekki að fara í sóttkví við komuna til síns nýja knattspyrnufélags Arna-Björnar í Noregi, frá Svíþjóð, vegna þess að hún smitaðist af kórónuveirunni um miðjan nóvember. Fótbolti 6.1.2021 14:00
Veðmál á vitlausan hest tafði bólusetningar í Hollandi Hollenska ríkisstjórnin hefur verið harðlega gagnrýnd vegna tafa sem orðið hafa á bólusetningu vegna Covid-19 þar í landi. Bólusetning hófst þar fyrst í dag, tíu dögum eftir að bólusetning hófst í grannríkjunum. Erlent 6.1.2021 13:51
Breytt forgangsröðun: Sjötíu ára og eldri bólusettir næst Fólk sem er sjötíu ára og eldra er í næsta forgangshópi og fær næstu bólusetningar. Í hópnum eru um 34 þúsund manns. Samkvæmt dreifingaráætlunum lyfjafyrirtækja er von á bóluefni fyrir um þrjátíu þúsund einstaklinga á fyrsta ársfjórðungi og geta aðrir því sennilega ekki búist við bólusetningu fyrr en eftir mars. Innlent 6.1.2021 13:44
Lyfjastofnun Evrópu samþykkir dreifingu bóluefnis Moderna Lyfjastofnun Evrópu ákvað á fundi sínum í dag að mæla með skilyrtu markaðsleyfi fyrir bóluefni lyfjaframleiðandans Moderna í Evrópu. Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins afgreiði leyfið í dag og dreifing á bóluefninu hefjist fljótlega. Erlent 6.1.2021 12:34
Fyrsta dauðsfallið af völdum Covid-19 í Færeyjum Tilkynnt var um fyrsta dauðsfallið af völdum Covid-19 í Færeyjum í dag. Var um að ræða 68 ára karlmann sem hafði legið á sjúkrahúsi í Þórshöfn vegna veikindanna frá því skömmu fyrir jól. Erlent 6.1.2021 11:41
Fimm greindust innanlands og átján á landamærum Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír ekki. Innlent 6.1.2021 10:51
Leikmaður Svía smitaður og leik frestað viku fyrir HM Fresta þurfti leik Svíþjóðar og Svartfjallalands í undankeppni EM í handbolta karla sem átti að fara fram í kvöld vegna kórónuveirusmits í herbúðum Svía. Handbolti 6.1.2021 09:00
Vísindamönnum WHO neitað um inngöngu í Kína Vísindamönnum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) hefur verið neitað um inngöngu í Kína en fólkið var á leið þangað til að rannsaka upptök kórónuveirufaraldursins í kínversku borginni Wuhan. Erlent 6.1.2021 07:18
Sextíu þúsund greindust á einum degi í Bretlandi Fjöldi nýrra smita fór yfir sextíu þúsund í fyrsta sinn í Bretlandi í dag. Daglegur fjöldi greindra smita hefur verið yfir fimmtíu þúsund frá 29. desember síðastliðnum, en samhliða þessari fjölgun hefur álag á sjúkrahús landsins aukist til muna. Erlent 5.1.2021 23:25